Morgunblaðið - 10.01.1996, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 10.01.1996, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Bankastjórn Lands- bankans segir frétt „ósannindavaðalu Eig’infjái*- hlutfall ekki í hættu EIGINFJÁRHLUTFALL Lands- bankans er vel jrfír þeim mörkum sem krafíst er eftir gildandi reglum, að sögn Brynjólfs Helgasonar, að- stoðarbankastjóra Landsbankans. Brynjólfur segir að jafnvel þótt nýj- ar reglur um áhættumat íjölnota atvinnuhúsnæðis hefðu tekið gildi nú hefði eiginfjárhlutfall bankans samt verið í lagi. í gær sendi bankastjóm Lands- bankans frá sér svohljóðandi yfirlýs- ingu: „Vegna fréttar um Lands- banka Islands í aðalfréttum Stöðvar 2 mánudagskvöldið 8. janúar, vill bankastjóm Landsbankans upplýsa, að megininnihald fréttarinnar var ósannindavaðall." í fréttinni kom fram að eiginfjárhlutfall bankans stæði tæpt og þyldi ekki breyttar BlS-reglur. Að sögn Brynjólfs hefur til þessa mátt flokka fjölnota atvinnuhúsnæði sem 50% áhættu inn í útreikninga á eiginíjárhlutfalli skv. BlS-reglum. Uppi vom hugmyndir um að færa þessa áhættu upp í 100%, en Evr- ópuþingið hefur nú frestað gildis- töku þeirra reglna og telur Brynjólf- ur óvíst að þær taki nokkum tíma gildi. „Hins vegar er ekkert sem bendir til að þær hefðu alvarleg áhrif á eiginfjárstöðu bankans, þótt þær tækju gildi,“ sagði Brynjólfur. Verið að greiða víkjandi Ián Vegna umijöllunar um fjögurra milljarða ríkisframlag til Lands- bankans í formi eiginfjárframlags og víkjandi lána vildi Brynjólfur taka fram að bankinn hefði fengið tveggja milljarða eiginíjárframlag frá ríkinu 1993, sem er eigandi bankans. Um svipað leyti fékk bankinn 1,2 milljarða víkjandi lán frá Seðlabankanum og 1 milljarðs víkjandi lán frá Tryggingasjóði við- skiptabanka. Verið er að endur- greiða þessi víkjandi lán með fullum vöxtum og I ár verða greiddar 250 milljónir auk vaxta vegna þessara lána. A fundi Haraldar Noregskonungs INGÓLFUR Guðmundsson prestur færði Haraldi Noregs- konungi Passíusálmana að gjöf í konungshöllinni í Ósló á mánu- dag. „Hann tók hlýlega á móti mér,“ sagði Ingólfur þegar tal náðist af honum í gær og bætti við að mikill viðbúnaður hefði verið í konungshöllinni. „Ég þurfti að hitta fimm menn áður en ég náði fundi konungs." Ingólfur gaf Haraldi Passíu- sálmana á nýnorsku þegar hann varð fimmtúgur. Nú færði hann honum Passíusálmana á íslensku og dönsku myndskreytta af Bar- böru Árnason. „Haraldur er hlýlegur maður og þægilegur,“ sagði Ingólfur. „Hann fór strax að spyrja um ástand og horfur á íslandi og barst talið fljótt að því að for- setaskipti væru í vændum. Har- aldur talaði um að hann hefði notið gistivináttu Vigdísar Finn- bogadóttur og hennar frábæru Ieiðsagnar á Islandi.“ Ingólfur sagði að Haraidur hefði harmað að hann hefði ekki komið að Reykholti, bóli Snorra Sturlusonar, þegar hann kom til Islands. „Ég sagði honum að ég færi nú sem prestur þangað sem Hrafnistumenn hefðu komið frá og heitir nú Ramstad. Þar liggur Ketill hængur.forfaðir Snorra, heygður. Eg fullvissaði hann um að tilkomumeira yrði að koma að Reykholti þegar hann kæmi næst til íslands því að á Ólafs- vöku ætti að vígja þar nýja kirkju," sagði Ingólfur. Passíusálmarnir voru einnig ræddir og sagði Ingólfur að við hirð konungs hefði þótt sér- kennilegt að á Islandi væru sálmar frá sautjándu öld fluttir í útvarp á hverju virku kvöldi og þætti upphefð að fá að lesa þá. Ingóifur hélt í gær til Þránd- heims. Hann mun verða í þjón- ustu Finns Vagles, biskups í Niðarósi, til 1. apríl í það minnsta. Hann sagði að ferð sín væri farin til að stuðla að aukn- um kynnum og skilningi milli íslendinga og Norðmanna og friði bæði á landi og hafi. Ingólf- ur Guðmundsson kvaðst hafa fundið það hjá norskum prestum að þeir vildu að kirkjan ætti þátt í að auka skilning milli þjóð- anna. .. i s ir t i i i i » 1,11..JLJLJ I 1 s J 1,1 I MC í Reuter SÉRA Ingólfur Guðmundsson færði Haraldi Noregskonungi Passíusálmana að gjöf á mánudag. Þessi mynd var tekin þegar hann kom af fundi konungs. í höndum hefur hann eintak af Passíusálmunum, sem hann hyggst gefa biskupnum af Niðarósi. „Ég geri ekki mun á kóngi og presti," sagði Ingólfur í Ósló í gær. Sr. Sigurður Sigurðarson segir orð biskups ekki í takt við biskupafund Biskup segir Geir ekki hafa verið til umræðu á fundinum HERRA ÓLAFUR Skúlason, biskup íslands, sagði að yfírlýsingar Geirs Waage um trúnaðarbrest milli presta og biskups væru bull í innleggi í umræðuþátt í beinni útsenþingu í rík- issjónvarpjnu í fýrradag. Eftir viðtalið við herra Ólaf tók sr. Sigurður Sigurð- arson, vígslubiskup í Skálholti og þátttakandi í umræðunum, fram að orð biskups væru ekki í takt við yfir- lýsingu biskupafundar fyrr um dag- inn. Herra Ólafur segist ekki vita hvaða hugtak nái því betur en bull þegar einhver endurtaki hið sama aftur og aftur þrátt fyrir leiðréttingar. Herra Ólafur tók fram í samtali við Morgunblaðið að ekkert hefði ver- ið fjallað um Geir Waage á biskupa- fundinum. „Ekkert samkomulag var milli okkar um hann eða hans per- sónu,“ sagði hann. „Sjónvarpsmaður- inn einfaldlega spyr mig hvort ég hafí skipt um skoðun. Einhvern tíma hafí ég sagt að ég væri orðinn svolít- ið þreyttur á Geir. Ég hef ekki skipt um skoðun og finnst að því miður hafi okkur ekki borið gæfa til að vinna saman að lausn þessara mála. Hún er komin út í alls kyns öfgar um sam- skipti biskups og formanns prestafé- lagsins sem ætti ekki einu sinni að vera nefnd í þessu sambandi, slíkir samherjar ættu þeir að vera.“ Bull mjög hliðstætt staðlausum stöfum Biskup var spurður að því hvort eftir á að hyggja hefði verið óþarfi að nota orðið bull. „Ég get litið langt aftur til baka í ferlinum öllum og sagt að ótrúlega mörg orð hafi verið óþörf og ótrúlega mörg viðbrögð hafi verið á skjön við það sem þarft var og nauðsynlegt," sagði hann og vildi ekki svara spurningunni beint. „Ég get hins vegar sagt um orðið bull að í mínum huga er orðið bull hugtak mjög hliðstætt staðlausum stöfum. Ég hef heyrt marga í gælu- tón tala um bullukolla og eru alls ekki að nota orðið með niðrandi hætti. Þegar einhver endurtekur hið sama aftur og aftur þrátt fyrir leið- réttingar veit ég ekki hvaða hugtak nær því betur. Þar fyrir þarf maður auðvitað ekki að segja allt.“ Engir óvelkomnir Sr. Sigurður sagðist í sjónvarpinu hafa stungið upp á því að hann sjálf- ur, biskup og_ Geir Waage ræddu saman. Herra Ólafur var spurður að því hvort slíkur fundur kæmi til greina. „Ritari minn skráir niður nöfn þeirra sem óska eftir viðtölum og ég veit ekki til að hún hafi nokk- urn tíma vísað mönnum frá, hvorki í síma né fundum hér á skrifstofunni hjá mér, og ég hef ekki gefið henni fyrirmæli um að einhveijir væru óvel- komnir hingað." Sr. Sigurður kaus að tjá sig ekki frekar um ummæli Ólafs í sjónvarps- þættinum þegar haft var samband við hann í gær. Rannsóknarbið vegna brælu H AFRANN SÓKNASKIPIÐ Bjarni Sæmundsson hefur ekki getað at- hafnað sig við rannsóknir á þorsk- gengd úti fyrir Vestíjörðum vegna brælu og lá inni á Isafirði í gær. Sjómenn hafa orðið varir mikils af þorski á þessum slóðum frá því í haust. Að sögn Sigfúsar Schopka fiskifræðings tókst þeim á Bjama Sæmundssyni að ná einu togi og fengu 3 tonn á hálftíma áður en þeir urðu frá að hverfa. Uppistaðan í þeim afla var 4-8 ára þorskur. Sigfús sagði ekki tímabært að draga af því ályktanir, taka þyrfti fleiri sýni. Hann sagði einnig að vegna brælunnar hefði ekki verið hægt að gera bergmálsmælingar. Sigfús vonaðist til að skipið héldi á miðin í dag. Reiknað var með batn- andi veðri og að einhveijar niðurstöð- ur lægju fyrir um helgina. Iðnaðarráðherra skipar ráðgjafarnefnd vegna endurskoðunar löggjafar um orkumál BORGARRÁÐ hefur samþykkt tillögu borg- arstjóra um að óska eftir viðræðum við full- trúa annarra eignaraðila að Landsvirkjun um framtíðarskipulag, rekstrarform og eignar- aðild að fyrirtækinu. Á fundi borgarráðs var jafnframt lagt fram bréf iðnaðarráðherra, þar sem óskað er.eftir að borgin tilnefni full- trúa í ráðgjafarnefnd við endurskoðun á lög- gjöf um vinnslu, flutning og dreifingu orku. Eðlilegt að ræða framtíðarskipulag í bókun borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðis- flokksins segir að eðlilegt sé að eigendur Landsvirkjunar ræði um framtíðarskipulag og rekstrarform fyrirtækisins ekki síst í tengslum við mögulega raforkuvinnslu á Nesjavöllum. Sjálfstæðismenn hafi haft forystu um stefnu- mörkun virkjunar á Nesjavöllum og hafið framkvæmdír þar í verulegri andstöðu við þáverandi minnihlutaflokka og núverandi R- lista flokka, sem flestir fundu því allt til for- áttu. Þá segir:, „Iðnaðarráðherra hefur þegar tekið frumkvæði í málinu og í bréfí til borgar- innar í nóvember sl. mun Reykjavíkurborg vera boðin aðild að nefnd sem hann hyggst skipa til að fjalla m.a. um leiðir til að auka skilvirkni og samkeppni í orkuvinnslu og þ.á m. að skoða framtíðarskipulag Landsvirkjunar. Bréf þetta var fyrst lagt fram fyrir borgarráð á þessum fundi. Það er í sjálfu sér gagnrýnivert að borgarstjóri skuli hafa haldið bréfí þessu frá borgarráði í marg- ar vikur.“ Eigendur í ábyrgð Fram kemur í bókuninni að eftir að bréf ráðherra hafí borist hafí borgarstjóri dregið í Borgin vill við- ræður um Landsvirkjun Ráðherra þeg ar tekið frumkvæði land með yfirlýsingar um sölu á eignarhluta Reykjavíkur. Bent er á að rétt sé að hafa í huga að eigendur Landsvirkjunar séu í ein- faldri ábyrgð lögum samkvæmt fyrir öllum skuldbindingum fyrirtækisins. Langtímalán 31. desember 1994 hafí verið 51,3 milljarðar króna. Ef eignaraðili seldi hlut sinn yrði hann -------- eftir sem áður í ábyrgð fyrir þeim lánum sem fyrirtækið tók áður en til eignaskipta kom nema til komi samþykki allra lánveitenda um breytingu á ábyrgð. ""““ Loks segir að tillaga borgar- stjóra geri ráð fyrir að málin verði skoðuð í víðara samhengi og að hún sé því efnislega svipuð verksviði nefndar á vegum iðnaðar- ráðherra og ætti því að falla vel að boði ráðherra um nefndarskipan. En borgarstjóri leggi fram eigin tillögu um þætti sem falli undir heildarskoðun ráðherra. Það hljóti að vera óhagræði ef ræða á nánast sömu þætti í tveimur nefndum sem fulltrúar eignaraðila skipa og því þurfí að huga vel að tilhögun þeirrar vinnu, sem framundan sé. Ekkert frumkvæði í svari borgarstjóra segir að vandséð sé hvernig borgarráðsfulltrúar Sjálf- ------- stæðisflokks telji að hagsmunum Reykvíkinga yrði best gætt í mál- efnum Landsvirkjunar. Sjálf- stæðismenn hafi um langt árabil verið í forystu í stjórn fyrirtækis- ins án þess að hafa tekið þar frumkvæði í þágu borgarbúa. Lengi hafi legið fyrir að Akureyrarbær hafi áhuga á að draga sig út úr fyrirtækinu en áform þeirra strönduðu á andstöðu fyrrverandi meirihluta sjálfstæð- ismanna í borgarstjórn. Ljóst sé að borg- arbúar njóti þess í engu umfram aðra lands- Fyrirtækið metið á 79 milljarða menn að vera með verulegt fjármagn bund- ið í fyrirtækinu. Af þeim sökum hljóti að liggja beint við að borgin, sem 45,5% eigna- raðili, óski eftir endurskoðun á skipan mála. Oháðir meti fyrirtækið Jafnframt segir að það hljóti að vekja furðu borgarbúa að borgarráðsfulltrúar Sjálfstæð- isflokksins skuli leggja megináherslu á skuld- ir Landsvirkjunar í málflutningi sínum en horfí ekki til eigna fyrirtækisins sem metnar eru á 79 milljarða árið 1994 og eigið fé sem metið sé á 26 milljarða. Þá hafí þeir jafnframt gleymt hvemig til Sogsvirkjunar og Lands- virkjunar var stofnað í upphafi og hver stofn- framlög eignaraðila hafi verið. Þá segir, „Óvarlegt er og ógerlegt að svo stöddu að meta einarhluta hvers eignaraðila í Lands- virkjun og nauðsynlegt að eignaraðilar láti fara fram sjálfstætt mat óháðs aðila á sann- virði fyrirtækisins." Loks segir að bókun sjálfstæðismanna beri með sér að þeim þyki illt að frumkvæði og forysta fyrir nýrri hugsun í orkumálum skuli koma úr herbúðum Reykjavíkurlistans og þar með skuli vakin athygli á frumkvæðisleysi --------- þeirra sjálfra. Minnt er á að virkjun á Nesjavöllum hafí verið samþykkt í borgarstjóm með 11 atkvæðum gegn 3 árið 1986. I síðari bókun sjálfstæðismanna segir að ráða megi af bókun borg- arstjóra að bréf ráðherra hafi ekki verið lagt fram fyrr en eftir því var gengið því borgar- stjóri telji að þannig hefði hann tekið frum- kvæði úr hendi ráðherra. Bent er á að sjálf- stæðismenn hafi áður lýst vilja til að ræða breytt eignaskipulag og ítrekað það með sam- þykkt tillögunnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.