Morgunblaðið - 10.01.1996, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 10.01.1996, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1996 39 ARIPÁLSSON + Ari Pálsson fæddist 21. júlí 1934 í Reykjavík. Hann lést í Reykja- vík 29. desember síðastliðinn. For- eldrar Ara voru Páll Skúlason, fyrrum ritstjóri Spegilsins, f. 19.9. 1894 í Odda á Rangárvöllum, d. 24.7. 1973, og Hall- dóra Elísdóttir, f. 13.11. 1904 á Vopna- firði. Systkini Ara eru Guðlaug, hús- móðir í Garðabæ, f. 12.12. 1935, d. 16.10. 1982, hennar maki var Grétar Hjartarson, aðstoðarskólastjóri í Namibíu, og áttu þau fjögur börn; Skúli, lögmaður í Reykja- vík, f. 25.7. 1937, maki Kristrún Ólafsdóttir, yfirmeinatæknir, f. 10.5.1941, þau eiga tvö börn; Sigríður, f. 2.9. 1940, búsett á Nýja Sjálandi, maki Ólaf Bayer, þau eiga tvö börn; Eiríkur, bankastarfsmaður, f. 13.1. 1943; og Elín, bankastarfsmaður, f. 20.3. 1946, maki Þorlákur Þor- láksson, kerfisfræðingur. Ari var kvæntur Auði Har- aldsdóttur, f. 28. apríl 1935, d. Kveðja frá Sjónvarpinu Þegar komið er að kveðjustundu verður manni hugsað til baka og margt riijast upp frá liðnum árum. Ari Pálsson hóf störf hjá Sjónvarp- 10. apríl 1993, Björnssonar, póst- fulltrúa í Reykjavík, og Jóhönnu Sigur- björnsdóttur frá Fá- skrúðsfirði. Börn Auðar og Ara eru Haraldur, f. 24. október 1959, við nám í Svíþjóð, kvæntur Jennýju Björk Sigmunds- dóttur, þjóni, f. 30. nóvember 1961 og eru börn þeirra Hlynur Smári, f. 23.2. 1983, og Marín Auður, f. 8.5. 1986, og Halldóra, f. 1. mars 1963, tónlistarkennari. Auk þess átti Auður dóttur, Mildríði Huldu Kay, f. 11. desember 1954, sjúkr- aliði, maki hennar er Tryggvi Eiríksson, náttúrufræðingur, f. 9.4. 1947. Ari lauk námi í útvarpsvirkjun frá Iðnskólanum í Reykjavík og var meistari í þeirri grein. Hann starfaði sjálfstætt að iðn sinni um árabil en hjá Sjónvarpinu um aldarfjórðungsskeið. Útför Ara verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. inu í otkóber 1970. Hann var einn af frumkvöðlum sjónvarps á Íslandi og lagði sitt af mörkum til þess að gera það að veruleika með dugnaði og faglegri kunnáttu. SIG URBJORN ÞÓRÐARSON + Sigurbjörn Guðmundur Þórðarson prentmynda- smiður fæddist 11. desember 1919. Hann lést á hjartadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur á ný- ársnótt og fór útför hans fram frá Ilafnarfjarðarkirkju 9. jan- úar. MIG langar með nokkrum fátæk- legum orðum að minnast elskulegs frænda míns og vinar, Sigurbjörns Þórðarsonar. Margar af mínum fyrstu bernskuminningum tengjast honum og Guðmundi bróður hans sem alla tíð voru nánir samverka- menn. Þannig háttaði til að þeir frændur mínir, Sibbi og Mummi, voru með atvinnurekstur á fyrstu hæð æskuheimilis míns á Hring- braut 37, Hafnarfirði. Þar inni var mikill ævintýraheimur fyrir ungan sveinstaula, fullt af tækjum og tól- um, myrkraherbergi til framköllun- ar og ýmis efni sem tengd voru iðn þeirra bræðra. Ég var þarna dag- legur gestur, en þó oft væri mikið annríki gaf Sibbi frændi sér samt alltaf tíma til að sinna litlum for- vitnum frænda sínum, smíða sverð og skjöld, svara ótal spurningum og leyfa mér að kynnast undrum framköllunarherbergisins. Á þess- um árum voru bílar ekki eins al- gengir í einkaeign og nú er, en Sibbi og Mummi áttu samt einn slíkan. Bíltúrar þóttu mér heilt ævintýri, og oftar en ekki tók Sibbi frænda sinn með sér þegar hann þurfti að sinna erindum sínum. Sigurbjörn var á sínum yngri árum mjög liðtækur knattspyrnu- maður og oft gaf hann sér tíma til að skjótast út á blett til að taka þátt í leik okkar strákanna. Sibbi frændi var alla tíð áhugamaður um þá fögru list, skáklistina, og oft þegar við hittumst áttum við fjörug- ar umræður um hvað væri efst á baugi. Um nokkurt skeið hittumst við nokkrir frændur og vinir einu sinni í viku til að sinna þessu sam- eiginlega áhugamáli okkar. Ég er nokkur keppnismaður og frekar tapsár, en ég held að það lýsi Sibba frænda að einhverju leyti þegar ég segi að það var alltaf sársaukalaust að tapa fyrir honum, því hann var einstaklega lítillátt ljúfmenni. Þeir bræður, Þórður faðir minn, Aðal- steinn, Guðmundur og Sigurbjörn, voru allir með sínar föstu pólitísku skoðanir og stundum greindi þá á og þá var oft gaman fyrir okkur krakkana að hlusta á lætin. Alltaf var það Sibbi frændi sem sló öllu í grín og lægði öldurnar, því auðvit- að voru þessir bræður miklir sam- heijar og vinir. Fjölskyldur þessara bræðra hafa alla tíð verið tengdar miklum vin- áttu- og tryggðarböndum og ég vona og veit að svo mun ætíð verða. Það er svo ótal margt sem leitar á hugann við fráfall Sibba frænda, t.d. stundirnar þegar við hittumst yfir kaffibolla á Hringbrautinni og ekki síður hinar ógleymanlegu stundir sem við áttum á Selvogs- götu hver jól. Þó verð ég að nefna síðustu stundina sem við Sibbi frændi áttum tveir einir saman skömmu fyrir andlát hans. Þar skynjaði ég til fullnustu mannkosti hans og gæsku og mun að eilífu geyma minningu hans í hjarta mér. Elsku Heiða, Sirrý; Herdís, Helga og Mummi frændi. Ég veit að Guð mun leiða ykkur í ykkar miklu sorg. Hrafn Þórðarson. Þú hjartkæri vinur sem horfinn ert á braut, þú hefur fengið lækningu á sérhverri þraut. Við sðknum þín sáran, en vitum þér er vís vist með guði þínum, í lífsins Paradís. Eskulegi Sibbi, af hjarta þökkum vér það sem varstu okkur, við aldrei gleymum þér. Hinsta kveðja, Þórður bróðir og fjölskylda. Mig langar til þess að skrifa hér nokkur kveðjuorð til hans Sigur- björns afa míns, ekki mörg, heldur fá. Ég þekkti afa ekki neitt að ráði fyrr en fyrir tveimur árum þegar ég lenti í erfiðleikum og gat ekki lengur búið heima hjá mér. Amma og afi tóku á móti mér opnum örm- um og ég fann strax, þó að þau væru bæði frekar lokuð, að ég var hjartanlega velkomin og þau vildu allt fyrir mig gera. Heilmikið breyttist sjálfsagt því að mörg ár voru síðan móðir mín og systur hennar fluttu að heiman og skrýtið Ari var útvarpsvirki að mennt og meistari í greininni. Hann rak eigið viðgerðarverkstæði um árabil. Þar var metnaður og vönduð vinna í fyrirrúmi. Á verkstæði Ara voru nokkrir nemar í gegnum árin og reyndi hann að þjálfa þá eftir eigin metnaði. Starfsreynsla Ara og fagleg þekking kom sér einkar vel þegar hann réðst til Sjónvarpsins. Hjá Sjónvarpinu gegndi hann mörgum störfum og leysti þau ávallt einstak- lega vel af hendi. Lengst af var hann útsendingarstjóri og lenti þá oft á honum að vinna mikið og taka margar aukavaktir vegna forfalla annarra og þekkingar hans á starf- inu. í því starfi sem hann hafði síð- ustu árin reyndi iðulega á hæfileika hans og var það oft viðkvæðið ef um flókin verkefni var að ræða, að sagt var „þetta verður allt í lagi, hann Ari verður á vaktinni". Við hjá Sjónvarpinu minnumst trúmennsku Ára og kveðjum hann með einlægum vinarhug og þakk- læti fyrir samstarfið. Aðstandendum sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur. Fyrir hönd Sjónvarpsins, Eyjólfur Valdimarsson. Enn er rofíð skarð í raðir sjón- varpsstarfsmanna og skammt stórra högga á milli. Á nýliðnu ári féll frá einn af frumheijum Sjón- varpsins, Tage Ammendrup. í dag kveðjum við Ara Pálsson útsendingastjóra, sem látinn er langt um aldur fram. að taka aftur ungling inn á heimil- ið. Én árið hjá ömmu og afa var það besta í lífí mínu hingað til. Húsið okkar, sem stendur við Öldu- slóð 28 í Hafnarfirði, var og er fullt af fjöri og gleði. Það var alltaf hægt að leita til einhvers því að húsið var fullt af fólki og eru mér einna minnisstæðastar stundirnar þegar allir sátu í eldhúsinu hjá ömmu og afa og drukku kaffisopa. Afi var ætíð hrókur alls fagnaðar og hann gat alltaf sagt eitthvað sniðugt í sambandi við það sem var að gerast og hann vissi svo sannar- lega hvað var að gerast, því að það var sjaldnast slökkt á litla ferðaút- varpinu. Mér fannst það reyndar aldrei flytja neitt annað en fréttir. Afi söng líka oft með mér og sér- staklega ef hann var í góðu skapi og amma með kótilettur í matinn. Ég áttaði mig hins vegar því miður ekki á því hversu veikur hann var. Ég man eftir því að þegar afi varð sjötíu og fimm ára var hringt frá Dagblaðinu og hann spurður hvort hann vildi fá birta afmælisgrein í blaðinu. Þá sagði afí: „Nei takk, hringið frekar í mig þegar ég verð áttræður.“ Ég efaði aldrei að slíkt símtal myndi berast fímm árum síð- ar og við hlógum saman að þessu, ég og afi, en af misjöfnum ástæð- um, held ég. Það er þess vegna sem mér er það svo mjög erfitt að kveðja hann afa, sem mér þykir svo vænt um, sem var mér svo góður og gaf mér svo margt á sinn hátt, með sínu fallega brosi. Takk, elsku afi minn á Ölduslóð; minningin mun lifa í hjarta mínu. Þú kvaddir mig þegar þú baðst um kvennakossinn og elsku afi minn, þú færð annan þegar við hittumst aftur hinum megin. Ég veit að þér líður vel þar sem þú ert núna og mundu nú það sem ég hvíslaði að þér við kistulagninguna. Bless, elsku afi minn. Heiðveig Hanna. Minningargrein um Sibba afa. Þakka þér fyrir samveruna á síðast- liðnum 14 árum. Ég minnist þess sérstaklega hvað þér þótti vænt um friðinn og þegar þið amma fóruð með mig og Ola og stundum Sibba og Grím upp í sumarbústað, en þá fórst þú með okkur út á bát. Allar stundirnar með þér voru frábærar og ég mun varðveita minninguna úm þær um ókomin ár. Guðmundur Karl. Ari hóf störf hjá Sjónvarpinu árið 1970 og er í hópi þeirra manna sem mótuðu störfin og vísuðu öðr- um veginn. Á þesum tíma var kvik- myndafilman nær allsráðandi í út- sendingum Sjónvarpsins og um ára- bil var Ari verkstjóri yfir þeirri mikilvægu og erilsömu deild. Þá var tæknin ekki komin á það flug sem hún er í dag og því skipti skyn- bragð mannsins við sýningarvélina oft miklu máli um áferð myndarinn- . ar sem birtist á skjánum í stofunni heima. Kunnátta Ara Pálssonar brást aldrei og samviskusemi var hans aðalsmerki. í aldarfjórðung var Sjónvarpið starfsvettvangur Ara gegnum ýms- ar tæknideildir, allt til dauðadags, og sýnir ferill hans það traust sem yfirmenn báru til hans. Við fráfall Ara hugsum við til baka og þökkum góð kynni frá fyrstu tíð. Við vottum ættingjum hans dýpstu samúð. Starfsmannafélag Sjónvarps (SFS) t Eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, ÁGÚSTA JÓNSDÓTTIR, Vogatungu 87, Kópavogi, verður jarðsungin frá Digraneskrikju fimmtudaginn 11. janúar kl. 13.30. Bergur Lárusson, Kristfn J. Harðardóttir, Sigurður Konráðsson, Hörður Á. Harðarson, Elín Bergsdóttir, Brynja Bergsdóttir , og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður og afa, KJARTANS GUÐJÓNSSONAR, Fossheiði 18, Selfossi. Matthildur Pálsdóttir, Halldór Kjartansson, Gyða Ólafsdóttir, Gunnar Kjartansson, Kristfn Stefánsdóttir, Hildur, Stefán og Kjartan Gunnarsbörn, Guðrún og Nanna Pétursdætur. t Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, PÉTURS HALLGRÍMSSONAR, Aðalstræti 19, Akureyri. _____ Hulda Jónsdóttir, Kristín Pétursdóttir, Broddi Björnsson og dótturbörn. t Hjartans þakkir til þeirra, er sýndu okkur samúð og vinarþel við andlát og útför móður okkar og stjúpmóður, tengdamóður, ömmu og langömmu, INGIBJARGAR JÓNSDÓTTUR, Hrafnistu, Hafnarfirði. Sævar Örn Jónsson, Heiðveig Guðmundsdóttir, Margrét Jónsdóttir, Óskar Harry Jónsson, Þuríður Jónsdóttir, Gfsli Guðjónsson og ömmubörnin. t Við þökkum innilega öllu því góða fólki, er veitti okkur styrk við andlát og útför RÓSU NÍELSDÓTTUR. Nfels Hafstein, Magnhildur Sigurðardóttir, Haraldur Níelsson, Hafdfs Hanna Sigurðardóttir, Ragnar Jóhannesson, Marfa Ragnarsdóttir, Óskar Hilmarsson, Guöbjörg Rósa Ragnarsdóttir, Gunnar Gray, Sigurður Ragnarsson, Gunnar Sigurðsson, Guðrún ísaksdóttir, ívar Nfelsson, Guðrún Sigfúsdóttir, Ingibjörg Nfelsdóttir, Gfsli Gíslason, Ingunn Nfelsdóttir, Hlynur Júlíusson, Helga Níelsdóttir, Elsa Nfelsdóttir, Hermann Guðnason, börn, makar og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.