Morgunblaðið - 10.01.1996, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1996 11
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
DAVÍÐ Jónsson hefur þýtt norskt forrit um
fóðrun hrossa sem hann telur að geri kleift að
halda niðri fóðurkostnaði og auðveldi að
tryggja sem hagstæðasta fóðursamsetningu.
Hrossafóðrun á tölvuforriti
Fóðurkostn-
aður lækkar
Borgarnes
Benjamín Markússon, Borgarbraut 31,
hefur tekið við umboði Morgunblaðsins,
sími 437 2031, símboði 845-4931.
Sunnlendingar - Vestlendingar
Finnur Ingólfsson,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
kynnir ný tækifæri til atvinnusköpunar
Miðvikudaginn 10. janúar kl. 12 á Hótel Stykkishólmi og
kl. 18 á Hótel Borgarnesi.
Fimmtudaginn 11. janúar kl. 18 á Sveitarsetrinu, Blönduósi.
Föstudaginn 12. janúar kl. 12 Veitingastaðnum Króknum
Sauðárkróki.
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið.
KOMIÐ er á markaðinn forrit sem inniheldur fóð-
uráætlanir fyrir hross. Forritið er samið af tveim-
ur Norðmönnum, dýralækni og fóðurfræðingi, sem
báðir eru fristundahestamenn og starfa við land-
búnaðarháskólann að Asi í Noregi. Davíð Jónsson
búfjárfræðingur sem starfar við Rannsóknarstofn-
un landbúnaðarins þýddi og staðfærði forritið fyr-
ir íslenskar aðstæður.
Dávíð sagði að með hjálp forritsins mætti lækka
fóðurkostnað og koma í veg fyrir of- eða vanfóðr-
un. Eftir sem áður verða menn að hafa tilfinningu
fyrir fóðrun því auðvitað gæti verið mismunandi
hversu miklu hross brenndu. Best er að efnagreina
það hey sem gefið er og færa niðurstöður inn á
tölvuna en einnig eru fyrirliggjandi í forritinu
upplýsingar um efnainnihald heys af mismunandi
gæðum. Þá er tilgreint hlutverk hrossins, hvort
það er reiðhestur í viðhalds- eða þjálfunarfóðrun,
unghross í uppeldi, fylsuga eða stóðhestur í notk-
un svo eitthvað sé nefnt. Koma þá fram upplýs-
ingar um hvort fóðurefni, steinefni eða vítamín
séu of eða van og þá hversu mikið í hveiju tilfelli.
í forritinu eru ny'ög nákvæmar innihaldsupplýsing-
ar um ýmiskonar fóðurbæti, steinefna- og bæti-
efnablöndur og geta menn þreifað sig áfram með
hjálp tölvunnar til að finna út hvaða aukafóður
er hagkvæmast að nota og hæfir hrossinu best
miðað við hlutverk.
Tölvan gefur upp fóðurkostnað á dag á hvern
hest miðað við gefið magn af heyi og ýmiskonar
aukafóðri. Þannig geta hestamenn verið vel með-
vitaðir um fóðurkostnaðinn allan veturinn. Þá
gefur tölvan einnig upp vaxtaraukningu ungviðis
út frá því fóðurmagni sem það innbyrðir.
Kom í veg fyrir múkk
Ingimar Sveinsson, kennari á Hvanneyri, notaði
forritið við fóðrun á nemendahrossunum og segir
Davíð það hafa gefið góða raun. Sem dæmi nefndi
hann að múkk hefur verið landlægt á Hvanneyri
í áratugi en með notkun forritsins hafi tekist að
ná hagstæðri samsetningu fóðursins meðal annars
með réttri steinefnagjöf. Of mikið prótein í fóðri
er talið valda hættu á myndun múkks í framfótum.
Forritið er 300 kilóbæt og hægt að nota það í
öllum PC-tölvum og kostar 12.000 kr. fyrir utan
virðisaukaskatt og fylgir íslenskur leiðbeining-
arbæklingur með.
Morgunblaðið/Gunnar Þór Hallgrímsson
65 fuglategundir sáust í talningu
ÁRLEG fuglatalning á vegum Nátt-
úrufræðistofnunar Islands var hald-
in um síðustu helgi. Talið var nán-
ast óslitið frá Stokkseyri til Akra-
ness.
Að þessu sinni sáust 65 fuglateg-
undir og af þeim voru þrjár mjög
sjaldséðar. Þá sást förufálki í Hval-
firði og lyngstelkur í Selvogi en þess-
ar tegundir hafa aðeins sést hér í
kringum tíu sinnum áður. Einnig
sást sefgoði í Höfnum á Reykjanesi.
Nokkrir algengari flækingar sáust
líka og meðal þeirra sáust glóbryst-
ingur, tyrkjadúfa, silkitoppa og bles-
hæna í Reykjavík. Óvenjumikið var
af himbrimum að þessu sinni og
nánast ekkert sást af snjótittlingum.
Það hefur greinilega orðið mikil
fækkun eða tilfærsla á snjótittling-
um á suðvesturhorni landsins.
- kjarni málsins!
Toyota Landcruiser GX árg. '95,
vínrauður/grár, sjálfsk., 33" dekk, álfelg-
ur, ek. 36 þús. km.
Verð kr. 4.600.000.
BÍLATORG FUNAHÖFÐA I Ss S87-7777
Fl lAC. LtK.C.Il l KA Bll KHDASM A
Toyota Corolla 1300 XL árg. ‘91,
rauður. Fallegur blll, ek. 66 þús. km.
Verð kr. 750.000.
Mercedes Benz 190E árg. '91, silfur-
grár, sjálfsk., sóllúga, álfelgur, ek. 98
þús. km. Verð kr. 2.100.000.
Skipti, skuldabréf.
Opel Omega 3.0 árg. '95, blásans., blll
með öllum aukahlutum sem hægt er að
fá. Sjón er sögu ríkari, ek. 16 þús. km.
Verð kr. 3.950.000.
BMW 525 TDS árg. ’92, rauöur, diesel,
sjálfsk., álfelgur, ek. 96 þús. km.
Verð kr. 2.700.000.
MMC Galant 2000 GLSi 4WD árg. 92.
hvítur, gullfallegur bíll, ek. 89 þús. km.
Verð kr. 1.330.000.
MIKIL SALA — ÚTVEGUM BÍLALÁN TIL ALLT AÐ S ÁRA