Morgunblaðið - 10.01.1996, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1996 21
Orkusteinar
MYNPLIST
Ráð h ú s
Rcykjavíkur
HÖGGMYNDIR
Orn Þorsteinsson. Opið kl.8-19
virka daga og kl. 12-18 um helgar
til 21. janúar. Aðgangur ókeypis.
hefur unnið á síðustu tveimur
árum, sem verður að telja dijúg
afköst þegar fengist er við jafn
harðan efnivið.
Þessar smáu myndir eru mótað-
ar með ýmsum hætti. í sumum
tilvikum er aðeins höggvið lítillega
af útlínum steinsins, og þannig
leidd fram fáguð ímynd með
óvæntum hætti, líkt og á sér stað
HÖGGMYNDALISTIN
hefur hin síðari ár fyrst og
fremst verið hugtak heildar-
sviðs myndgerðar í lengd,
breidd og dýpt þar sem fjöl-
breytileg efni og vinnubrögð
koma við sögu. Þeir eru orðn-
ir tiltölulega fáir myndhöggv-
ararnir sem vinna í anda þess
sem orðið gefur til kynna; við
að höggva myndir af listfengi
úr steini.
Slíkir eru þó enn til, og
sýningar þeirra jafnan
áhugaverðar að sækja. Örn
Þorsteinsson hefur í gegnum
tíðina verið dijúgur við til-
raunir á sviði höggmynda-
gerðar úr málmum, tré og
með ýmsum öðrum efnum. A
sýningunni hér er líkt og
hann sé kominn aftur að upp-
hafinu, steininum - hnullung-
um úr grásteini, graníti og
marmara, og út úr þeim laðar
hann forvitnileg form og
kynjaverur.
Listamaðurinn hefur gefið
sýningunni yfirskrift í form-
úlu: „Orka + steinn = Mynd“,
sem er í raun réttri öðru
fremur lýsing á vinnuferli mynd-
höggvarans. Örn sýnir hér tæp-
lega fimmtíu myndir sem hafm
ÖRN Þorsteinsson: Frá steinöld. 1995.
í verkunum „Á varðbergi" (nr. 34)'
og „Buldi við brestur“ (nr. 43). í
öðrum er meira tekið af og áferð
mótuð með mismunandi hætti, þar
til mjúk formin koma í ljós, eins
og í verkunum „Frá steinöld" (nr.
19) og „Harmfeija“ (nr. 38).
Stundum kemur myndin líkt og
hálf-unnin út úr steininum (t.d.
„Miidin mest“, nr. 6), og í enn
öðrum verða ýkjukennd form til
að veita verkunum enn frekari
styrk (t.d. „Andlit rekamannsins",
nr. 3).
Viðfangsefni Arnar má
helst túlka sem verur huldu-
heima, sem búa í berginu í
sátt við umhverfi sitt. Hér
er engin neyð eða þjáning
að bijótast út; formin eru
mjúk og friðsæl, til vitnis um
það jafnvægi sem fylgir efn-
inu þar sem órkan býr í inn-
taki steinsins, sem listamað-
urinn hefur verið að laða
fram með handverki sínu.
Sýningin fyllir báða
neðstu sali Ráðhússins, og
nýtur sín vel í einfaldri upp-
setningu,. þó þétt sé skipað.
Verkin eru flest sett: á undir-
stöðu með teinum, þannig
að þau standa upp af grunn-
inum; þessi léttleiki á sinn
þátt í hversu vel mýkt þeirra
kemst til skila. Nokkuð
óvænt reynist lýsing með
ágætum fyrir listina, þó hús-
næðið sé varla hannað með
hana í huga; þannig er ljóst
að staðurinn getúr verið góð-
ur til sýningarhalds, sé rétt
á haldið.
Er rétt-að hvetja listunn-
endur til að líta við í Ráð-
húsi Reykjavíkur á sýningartím-
anum.
Eiríkur Þorláksson
VILT ÞU LOSNA VIÐ AUKAKILO?
I boði er
meðal annars:
Fitubrennsla,
vaxtarmótun,
magi, rass
og læri,
þrekhringur,
kínversk
slökunarleikfimi
o.fl.
aS*5
ð
\éttr»
Lokað 8 vikna
fitubrennslunámskeið
í aðhaldi og megrun
hefst 15. janúar.
Lokað
unglinganámskeið í
þolfimi fyrir 12-16 ára
hefst 17. janúar.
— staður með markmið —
Smiðjuvegi 1, sími 554-2323.
Tómstundaskólinn
* fyfoiJf a.e% L*£k t\í* sSarfi *
Timstunda skólinn
Tungumálanám
á vorönn 1996
Enska
/
Italska
Paolo Turchi
Paolo
Danska
Magdalena Ólafsdóttir
Magdalena
Sænska
Adolf H. Petersen
Finnska
Tuomas Jarvela
Tuomas
/
Islenska
fyrir útlendinga
Rússneska
Áslaug Agnarsdóttir
Áslaug
Kjúiverska
Guan Dong Qing
Qing
Sími: 5SS 72 22
Elisabeth Saguar
Elisabeth
Peter
Magnús
Ingunn
Robert
Reiner
Jacques
Inga Karlsdóttir
Inga
Spænska
Cheryl Hill Stefánsson
Peter Chadwick
Robert S. Robertson
Cheryl
Þýska
Ann Sigurjónsson
Ingunn Garðarsdóttir
Jacques Melot
Ann
Bernd Hammerschmidt
Magnús Sigurðsson
Reiner Santuar
Jranska
Bernd