Morgunblaðið - 10.01.1996, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 10.01.1996, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR: EVRÓPA Reuter Dini vill berjast gegn atvinnuleysi ERLENT Oveðrinu slotar í Bandaríkjunum Djúp lægð á hafi úti olli hríðarveðrinu New York. Reuter. LAMBERTO Dini (t.v.), for- sætisráðherra Ítalíu, og Jacques Santer, forseti fram- kvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins, koma til fundarstað- ar síns I Róm á mánudag. Þeir ræddu þar um áform ítal- íu á formennskutímabili sínu í ráðherraráði ESB. Fini sagði á blaðamanna- fundi að atvinnuleysi og hætt- an á að Evrópa yrði „tveggja hraða“ yrðu meðal þeirra vandamála, sem ítalska stjórnin myndi takast á við á meðan hún væri í forystu ESB. Bæði vandamálin tengj- ast áformuðu myntbandalagi; Dini sagði að ein forsenda þess að myntbandalagið gæti JOSEF Zielenic, utanríkisráðherra Tékklands, segist vona að ríkis- stjórn hans geti hafið formlegar aðildarviðræður við Evrópusam- bandið um leið og Kýpur og Maita, þ.e. hálfu ári eftir að ríkjaráðstefnu sambandsins lýkur. Tékkland mun sækja formlega um aðild að ESB síðar í mánuðinum. Tékkland uppfýllir nú þegar flest skilyrði Maastricht-sáttmál- ans fyrir aðild að Efnahags- og myntbandalagi Evrópu (EMU) og vona tékknesk stjórnvöld að til aðildar landsins að ESB geti kom- ið fyrir aldamót. „Það væri gaman að halda upp á aldamótin sem nýtt aðildarríki," sagði Zielenic á blaðamannafundi í Helsinki, þar sem hann er í opin- berri heimsókn. „Frammistaða okkar í efnahagsmálum er góð og THEO Waigel, fjármálaráðherra Þýskalands, sagði á þriðjudag að svo virtist sem Þjóðveijar hefðu ekki staðist skilyrði Maastricht- sáttmálans um opinberar skuldir á árinu 1995. Samkvæmt sáttmálan- um mega heildarskuldir hins opin- bera ekki vera meiri en 60% af vergri landsframleiðslu ef ríki ætlar að taka þátt í peningalegum sam- runa Evrópuríkja. Waigel sagði horfur hins vegar mun betri fyrir árið 1996. í fyrra orðið að veruleika væri að minnka atvinnuleysið, en kostnaður vegna atvinnu- lausra eykur mjög á fjárlaga- halla Evrópuríkja. Hann sagði jafnframt að næstu tvö ár yrði að nota til að leysa þann vanda, sem skapaðist með því að sum Evrópuríki tækju upp Evrópumyntina og önnur ekki. Santer gaf í skyn á fundin- um að hann kysi að Dini sæti áfram í embætti forsætisráð- herra, en framtíð hans í því starfi skýrist væntanlega í vikunni. Forsetinn sagðist þó ekki hafa neinar efasemdir um að Ítalía myndi standa sig í formennskunni. raunar uppfyllum við flestar kröfur Maastricht nú þegar.“ Aðildarumsókn í mánuðinum Vaclav Klaus, forsætisráðherra Tékklands, mun afhenda ítölskum stjórnvöldum aðildarumsókn Tékk- lands er hann kemur í opinbera heimsókn til Rómar síðar í mánuð- inum. Leiðtogar ESB hétu því á fundi sínum í Maastricht í desem- ber að hefja viðræður við þau Austur-Evrópuríki, sem væru nægilega langt á veg komin í umbótum sínum, um leið og við Kýpur og Möltu. Zielenic sagði að innri vandamál Tékklands væru ekki eina hindrun- in í vegi aðildar. „Við erum aðeins hluti vandamálsins. Hinn er ESB sjálft ... geta þess til að bæta við aðildarríkjum," sagði hann. hefði sambandsstjórnin verið innan settra marka en mikil skuldsetning ríkisstjórna sambandslanda og sveitarfélaga hefði sprengt ramm- ann auk þess sem hagvöxtur hefði ekki verið í takt við það sem vonir stóðu til. „Við vorum líklega þremur prósentum yfir mörkin á árinu 1995,“ sagði Waigel. Þýski fjármálaráðherrann sagði ljóst að opinberir aðilar yrðu að leggja enn harðar að sér hvað spamað og niðurskurð varðar. VEÐURFRÆÐINGAR bandarísku veðurþjónustunnar sögðu í gær, að óveðrið í norðausturríkjum Banda- ríkjanna væri meira og minna um garð gengið þar sem lægðin sem því olli hefði farið út á Norður-Atlants- haf á mánudagskvöld. A.m.k. 41 dauðsfall hefur verið rakið til veðurs- ins. Vegna fannfergis voru skólar og opinberar stofnanir einnig lokað- ar víðast hvar í gær. Illviðrið hófst á laugardagskvöid og stóð í tvo sólarhringa. Það geng- ur nú undir nafninu Bylurinn ’96 og er sagt eitt þriggja verstu hríðar- veðra sem gengið hefur yfir New York-borg. Skólar voru enn lokaður í gær í borgum á borð við New York, Fíla- delfíu og Boston. Sömuleiðis frestaði alríkisstjórnin því um einn dag til viðbótar að opna stofnanir sem til stóð að öpna á mánudag eftir margra vikna deilu á þingi um fjárlög. Samgöngur röskuðust stórlega vegna veðursins og enn í gær var óljóst hvort þá tækist að opna stærstu alþjóðaflugvelli á svæðinu frá Karolínuríkjum til Boston. BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti gagnrýndi harkalega helstu ráða- menn varnar- og öryggismála á fundi í Kreml í gær. Fundurinn var haldinn er fregnir bárust af því að hópur Tsjetsjena hefði tekið um 2.000 óbreytta borgara í gíslingu í borginni Kísljar í Dagestan, austan við Tsjetsjníju. Sagði forsetinn landamæraverði hafa sofið á verðin- um. Menn virtust ekkert hafa lært af atburðunum í borginni Búd- ennovsk í fyrra er annar uppreisn- arhópur Tsjetsjena tók álíka marga gísla með þeim afleiðingum að um 100 manns, aðallega óbreyttir borg- arar, féllu. „Hershöfðingjar, hvernig er hægt að skilja ykkur?“ spurði forsetinn. „Eruð þið að leika ykkur? Hvað haf- ið þið verið að gera, af hveiju ein- beittuð þið ykkur ekki að því að reisa varnargirðingar, efla herliðið og stöðva uppreisnarseggina? Nokkur þúsund hermenn voru á leiðinni sem uppreisnarmenn fóru um en samt komust þeir í gegn. Skilaboð bárust frá hverri varðstöð en síðan lognaðist allt út af og ekk- ert var gert í málinu.“ Fréttastofan Itar-Tass gaf í skyn að hernum hefðu borist upplýsingar þess efnis 23. desember að árás á Kísljar væri í vændum. Lengi hafa verið á kreiki sögusagnir um að harðlínumenn í Moskvu vildu helst að Tsjetsjenar gerðu árás utan landamæra héraðsins; þá væri komin átylla til að beita hernum af öllu afli gegn uppreisnarliðinu. Vopnahlé ekki virt Samningar tókust milli Rússa og Tsjetsjena um vopnahlé í júlí sl. eft- ir hálfs árs styijöld, skömmu eftir að einn af. uppreisnarforingjum Tsjetsjena hafði tekið mörg hundruð manns í gíslingu í Búdennovsk í Suður-Rússlandi. Öryggis-, og samvinnustofnun Evrópu, ÖSE, hefur haft menn í Kákasus til að reyna að fylgjast með því að vopnahlésskilmálar séu haldn- ir. Dzhokar Dúdajev, fyriverandi forseti uppreisnarhéraðsins, var and- vígur samningnum og hvarf til fjalla í suðurhlutanum þar sem hann og Haraldur Eiríksson veðurfræðing- ur á Veðurstofu íslands sagði í sam- tali við Morgunblaðið, að djúp og dýpkandi lægð hefði valdið hríð- arveðrinu í Bandaríkjunum. „Lægðin var allan tímann út á hafi og færðist í austnorðaustur meðfram strönd- inni. Samskil hennar lágu inn á land- ið og það er úr þeim sem snjóar. Hlýja loftið frá lægðinni náði aldrei inn á landið heldur veldur ijarlægð lægðarinnar þar norðaustan og norð- anáttum sem feykja köldu megin- íandslofti inn yfir óveðurssvæðfn. Það útskýrir þann mikla kulda sem veðrinu fylgir og skafrenning sem víða jók á erfiðleika af völdum snjó- komunnar," sagði Haraldur. Að sögn Haraldar var lægðin í gær suður af Nýfundnalandi og með stefnu á írland. Var hún þá orðin öflugri en um helgina og hafði dýpk- að í 960 millibör. „Svona veður er ekki óþekkt eða óvenjulegt í Bandaríkjunum en fann- fergið er greinilega gríðarlegt og sennilega í meira lagi,“ sagði Har- a'.dur Eiríksson. fleiri uppreisnarmenn eiga sér örugg vígi. Tengdasonur hans fer nú fyrir liði Tsjetsjena í Kísljar. Gert var ráð fyrir því samningnum að uppreisnarmenn afvopnuðust og Rússar hyrfu smám saman með lið sitt á brott. Á hinn bóginn var aðal- vandinn, sjálfstæðiskröfur Tsjetsj- ena, óleystur og ekki bætti úr skák að Tsjetsjenar voru sjálfum sér sund- urþykkir. Haldið var áfram skæru- liðaárásum víða í héraðinu á búðir Rússa er svöruðu með gagnárásum. Einnig hefur verið reynt að myrða rússneska herforingja og háttsetta embættismenn Jeltsíns með sprengjutilræðum. Stjórn Jeltsíns jók enn á reiði sjálf- stæðissinna með því að láta kjósa í héraðinu 17. desember eins og ann- ars staðar í Rússlandi. Helsti leið- togi Tsjetsjena á vígvellinum, Aslan Maskhadov, gafst nú upp á að semja Friðar- samkomu- lag í hættu Brussel, Sarajevo. Reuter. GERI Bosníu-Serbar alvöru úr hótunum sínum um að allt að 100.000 manns hverfi frá Sarajevo, stofnar það friðarsam- komulaginu í Bosníu í voða og kann að ríða því að fullu, að mati Carls Bildt, aðalfulltrúa Samein- uðu þjóðanna í Bosníu. „Stærstur hluti fólks... vill vera um kyrrt en þorir ekki og býr sig nú undir að yfirgefa borg- ina,“ sagði Bildt. Momcilo Krajisnik, forseti þings Bosníu-Serba, hefur óskað eftir því að ákvörðun verði tekin í síð- asta lagi á morgun um hvort því verði frestað fram til 15. septem- ber að færa yfirráð í þeim hlutum Sarajevo sem Bosníu-Serbar hafa ráðið yfir á hendur múslima. Bildt sagði það vilja SÞ að Sarajevo væri borg þar sem allar þjóðirnar gætu búið saman í sátt. Teldi fólk það ómögulegt, hlyti það að vekja upp spurningar um hvort landið sjálft ætti framtíð fyrir sér. við Rússa. Hann stóð fyrir því að hópur uppreisnarmanna tók borgina Gudermes og hélt henni um hríð fyrir jól þótt rússneskt herlið gerði harða hríð að henni. 32 þjóðerni í Kísljar Dagestan er eitt margra rúss- neskra sjálfsstjórnarlýðvelda við rætur Kákasusíjalla. Það er austan við Tsjetsjníju og þar býr fjöldi Tsjetsjena, höfuðstaður Dagestan er Makatsjkhala. Kísljar er í um 100 kílómetra íjarlægð frá Grosní, höf- uðstað Tsjetsjena og um hana liggur járnbraut frá Tsjetsjníju til borgar- innar Astrakan við Kaspíahaf. Nær 2.000 kílómetrar eru til Moskvu frá Kísljar. Kísljar er allajafna sögð heldur róleg borg en þar búa um 40.000 manns og töldust vera af alls 32 þjóðernum árið 1992. Tékkar vilja aðild fyrir aldamótin Helsinki. Reuter. Þýskaland uppfyllti ekki skilyrðin árið 1995 Wildbad Kreuth. Reuter. Gíslatakan í Dagestan ný martröð fyrir rússnesku stjórnina Jeltsín ræðst harkalega á ráðamenn öryggismála Moskvu. Reuter. TSJETSJENAR TAKA GÍSLA Uppreisnarhópur úr röðum Tsjetsjena, er nefnist Úlfurinn eini, tók aö minnsta kosti 1.000 gísla á sjúkrahúsi og fæöingadeild í borginni Kisljar í grannhéraöinu Dagestan i gær. Tsjetsjenarnir hótuöu aö skjóta gislana ef Rússar hyrfu ekki á brott meö her sinn frá Tsjetsjníju. JUN11995: Búdennovsk Yfir hundrað manns féllu og stjórnvöld í Moskvu voru auðmýkt þegar tsjetsjenskir uppreisnarmenn héldu mörg hundruð manns í gtslingu á sjúkrahúsi í Búdennovsk I suðurhluta Rússlands JANÚAR 1996: Kísljar Um 600 uppreisnarmenn tóku þátt I árásinni i gær, fimm óbreyttir borgararog tveir lögreglumenn munu hafa fallið. Talsmaður innanríkisráðuneytis sjálfstjórnarhéraðsins sagði að Tsjetsjenarnir hefðu einnig ráðist á herflugvöll og grandað þar tveim þyrlum . „ Stjómvöld í Kreml sendu her- jll liö til Tsjetsjníju í desember 1994 og var markmiöiö aö brjóta á bak aftur sjálfstæðiskröfur héraösins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.