Morgunblaðið - 10.01.1996, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1996
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Þrettándagleðin
í Vogum vel sótt
Vogum - Mikill fjöldi
fólks tók þátt í þrett-
ándagleði sem haldin
var í Vogum á laugar-
daginn. Gengið var frá
Glaðheimum niður á
Stóru-Vogatún þar
sem haldin var álfa-
brenna. í fararbroddi í
göngunni voru álfa-
kóngur og álfadrottn-
ing og suifgu göngu-
menn álfasöngva við
harmoníkuundirleik.
Flugeldasýning,
sem fyrirtæki í
hreppnum kostuðu
ásamt bönkum og
sparisjóði, lýsti upp
himininn og umhverfíð tók undir
sprengjugnýinn með bergmáli. Að
lokum var safnast saman í Glað-
heimum og stiginn dans. Þar voru
svo valdir búningar kvöldsins og
M. Guðmundsson
og -drottning gengu í far-
arbroddi að álfabrennunni.
hlutu 10 búningar verðiaun að
þessu sinni. Greinilegt er að margir
leggja mikinn metnað í búninga-
gerðina og er algengt að sama fólk-
ið fái verðlaun ár eftir ár.
Morgunblaðið/Eyjólfur
ÁLFAKÓNGUR
Júdómaður fremstur
hjá Ungmenna-
félagi Selfoss
BJARNI Skúlason, 17 árajúdómað-
ur, var valinn afreksmaður Ung-
mennafélags Selfoss fyrir árið
1995. Útnefning þessi fór fram 30.
desember á árlegri verðlaunahátíð
félagsins, þar sem deildir þess veita
viðurkenningar fremstu afreks-
mönnum sínum og einnig þeim sem
skara framúr í yngri flokkum.
Bjarni Skúlason, sem er 17 ára,
hefur náð góðum árangri á mótum
á síðastliðnu ári, varð meðal annars
íslandsmeistari í sínum aldursflokki
þriðja árið í röð og varð framarlega
í karlaflokki. Bjarni hlaut til varð-
veislu bæjarstjórnarbikarinn sem
fylgir þessu sæmdarheiti félagsins
og afhentur er árlega.
Á verðlaunahátíðinni var kynntur
nýr utanyfirbúningur félagsins sem
er vínrauður, svartur og hvítur.
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
BJARNI Skúlason. afreksmað-
ur Ungmennafélags Selfoss.
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Söfnuðu fyrir Flateyringa
KRAKKARNIR í 8. bekk HLG í
Sólvallaskóla sýndu hug sinn í
verki er þau héldu kökubasar
nokkru fyrir síðustu jól og söfn-
uðu 15.000 krónum sem þeir gáfu
til styrktar Flateyringum. Á
myndinni er hinn hressilegi hóp-
ur nemenda.
Sími: 533-4040
-Fax: 588-8366
Opið mánd. - föstud. kl. 9 - IS.og laugard. kl. 11 -14.
sunnudaga kl. 12 -14.
Dan V.S. Wiium hdl. lögg. fasteignasali -
Ólufpr Ouðmund*M)n, sftlusijóri Birgiríieorgswn sölum.,
Hör&ur Harftarson. Miluin. Erlendur Dav|öf.Mm -fcölum.
KASTEKi.MASAI.A - Árinúla 21 - ke.' kjiivík - Iraust uu oruug |>iónusta
Iðnaðarhúsnæði í Reykjanesbæ
Til sölu er fasteignin Fitjabraut 3, Reykjanesbae. Um er að ræða 727 fm
stálgrindarhús, byggt árið 1978. Mikil lofthæð er í húsinu og hefur húsið
verið m.a. notað til bátasmíða. Stærð lóðar er 12.000 fm. Fasteignamat
eignarinnar er samtals kr. 19.558.000.
“ Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
FJöLDI barna í ýmiskonar búningum var á grímuballinu.
Fjöldi bama á grímu-
balli Eyverja í Eyjum
Vestmannaeyjum - Eyveijar, Fé-
lag ungra sjálfstæðismanna í Vest-
mannaeyjum, stóð að vanda fyrir
grímuballi fyrir böm á þrettándan-
um en grímuball Eyvetja hefur ver-
ið fastur liður á þrettándanum í
Eyjum í áratugi. Að vanda var mik-
ill fjöldi barna á grímuballinu og
búningar mjög fjölbreyttir.
Börnin mættu í ýmiskonar bún-
ingum á grímuballið og mátti sjá
sum búin sem persónur úr ævintýr-
um en hugmyndir annarra búninga
voru sóttar í ýmsar áttir. Þrenn
verðlaun vom veitt en farandbikar
ásamt áletruðum skildi til eignar
fær handhafi grímubúnings ársins.
í þriðja sæti voru tvö börn í gervi
hests með knapa, í öðru sæti voru
tvö grasker og í fyrsta sæti og þar
með grímubúningur ársins var fiðr-
ildi.
Að grímuballinu loknu fengu síð-
an allir þátttakendur sælgætispoka
að launum fyrir þátttökuna í ball-
inu.
FIÐRILDIÐ sem lenti í fyrsta
sæti og var því valið grímu-
búningur ársins.
Þrettándabrenna o g fhigeldasýning
Selfossi - Selfossbúar og nágrannar
fjölmenntu á þrettándagleði á Sel-
fossi sem hófst með blysför frá
Tryggvaskála og endaði með álfa-
brennu og flugeldasýningu á íþrótta-
vellinum.
Jólasveinar gengu með kyndla í
göngunni og álfar dönsuðu með. Á
íþróttavellinum fylgdist fólk með
glæsilegri flugeldasýningu og jóla-
sveinarnir kvöddu börn og viðstadda
með viðeigandi gleðilátum.
Eftir dagskrána á íþróttavellinum
voru jólin dönsuð út, bömin gerðu
það í félagsmiðstöðinni, unglingamir
á unglingadansleik í kjallara KÁ og
þeir elstu í skemmtistaðnum Inghóli.
Þessi hátíðarhöld fóru að venju vel
fram og voru óhappalaus.
, Morgunoiaoio/öig. Jon».
JOLIN kvödd á íþróttavellinum á Selfossi.