Morgunblaðið - 10.01.1996, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 10.01.1996, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1996 41 Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson Svipmynd frá undankeppni Reykjavíkurmótsins, sem lýkur í kvöld. BRIPS Umsjón Arnór G. Iiagnarsson Svæðamót (kjördæma- mót) Norðurlands vestra í sveitakeppni DAGANA 20. og 21. janúar verður svæðamót Norðurlands vestra í sveitakeppni haldið á Siglufirði. Mót þetta er kjördæmamót en gefur jafnframt þremur efstu sveitunum rétt til þátttöku í undanúrslitum Islandsmóts í sveitakeppni 1996. Mótið hefst kl. 10 á laugardags- morgni og mótslok áætluð'um kl. 19 á sunnudagskvöld. Spilað verður um silfurstig í hveijum leik auk þess sem sérstök uppbótarstig verða gefin sem eru 42 fyrir hvern spilara í fyrsta sæti, 30 fyrir annað sæti og 21 fyrir þriðja stætið. Gert er ráð fyrir að spiluð verði u.þ.b. 140 spil allir við alla eða Monrad ef þátttaka verður mikil. Hægt er að reikna út Butler ef mikill áhugi er fyrir því en þá hækk- ar gjald pr. sveit lítillega. Þátttöku- gjald er kr. 8.000 pr. sveit. Það kæmi sér vel fyrir okkur að skráning bærist sem fyrst og í síð- asta lagi 17. janúar nk. Jón Sigur- björnsson (v.sími 467-1350, h.sími 467-1411) og Sigurður Hafliðason (v.sími 467-1305, ir.sími 467-1650) taka við skráningu og veita nánari upplýsingar. Undankeppni Reykjavíkurmótsins að ljúka Undankeppni Reykjavíkurmóts- ins í sveitakeppni lýkur annað kvöld en ekki í kvöld eins og missagt var í blaðinu í gær. Fjórar efstu sveit- irnar í hvorum riðli munu spila til úrslita um Reykjavíkurmeistaratit- ilinn og njóta éfstu sveitimar í hvor- um riðli þeirra forréttinda að mega velja sér andstæðing úr þeim riðli sem þeir spiluðu ekki í. Atta liða úrslitin verða spiluð miðvikudaginn 17. janúar og úrslit- in um aðra helgi. Keppnin er jafnframt undan- - kepgni Reykjavíkur fyrir undanúr- slit íslartdsmóts og komast 6 efstu sveitir í hvorum riðli í undankeppn- ina en sveitir í 7-9 sæti í riðlunum spila sérstaka úrslitakeppni um 3 sæti en kvóti Reykvíkinga er 15 sveitir. Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Atján pör spiluðu í tveim riðlum fimmtudaginn 4. janúar sl. A-riðill. 10 pör: Baldur Ásgeirsson - Magnús Halldórsson 124 Þórarinn Amason - Bergur Þorvaldsson 122 Kristinn Gíslason - Margrét Jakobsdóttir 118 B-riðill. 8 pör: Rafn Kristjánsson - Tryggvi Gíslason 108 Þórhildur Magnúsdóttir - Halla Ólafsdóttir 100 Bergljót Rafnar—Soffía Theodórsdóttir 91 Hefst nú nýtt fimmtudagsmót sern stendur fram að sumarfríi. Átján pör spiluðu í tveim riðlum sunnudaginn 7. janúar sl. A-riðill: ÞórarinnÁmason-BergurÞorvaldsson 134 Björg Pétursdóttir - Halla Ólafsdóttir 127 Bergsveinn Breiðfjörð - Stígur Herlufsen 124 B-riðill: Baldur Ásgeirsson - Magnús Halldórsson 124 Rafn Kristjánsson - Þorsteinn Kristjánsson 119 Ingveldur Viggósd. - Ragnheiður Bjamason 117 Þessi keppni stendur aðeins í þrjá sunnudaga eða þangað til sveitakeppnin byijar. Rekstrarvörur á mögnuðu innkaupsveröi - fyrir einstaklinga, félög og fyrirtæki. Allt að 50% sparnaður á innkaupum í magni. Innkaupadagar standa aðeins til janúarloka. Tæknival Skeifunni 17 • Sími 568-1665 • Fax 568-0664 X BJÖRGUNARSKÓLI ÍgÉ landsbjörg Landsbjargar og Slysavarnafélags íslands -- Stangarhyl 1, Pósthólf 10075. 130 Reykjavflc, sfmi 587 4044. simbróf 587 4010 Fyrirlestur um ferðabúnað til fjalla Björgunarskóli Landsbjargar og Slysavarna- félags íslands stendur fyrir fræðslufundi fyr- ir almenning um ferðabúnað til göngu- og fjallaferða fimmtudaginn 11. janúar kl. 20.00. Fyrirlesari verður Helgi Eiríksson. Fundurinn verður haldinn í húsi Flugbjörgun- arsveitarinnar í Reykjavík við Flugvallarveg (Öskjuhlíð) og er öllum opinn. Allir þeir, sem ferðast um hálendið að sumri eða vetri til, eru hvattir til að mæta. Þátttökugjald er kr. 1.000 og er veglegt fræðslurit um ferðamennsku innifalið í þátt- ^tökugjaldinu. TranscenDance International kynnir: Dansað í átt til frelsis Helgarnámskeið með Uriel West 12.-14. janúar: Sköpunin sem felst í ringul- reiðinni. 19.-21. janúar: Nýi karlmaðurinn, hvernig er hann? 4 helgar í Hlfðardalsskóla: 2.-4. febrúar: Hefur þú á tilfinningunni að lífið sé eitthvað meira? 9. -11. febrúar: Þráir þú að skapa heim, þar sem þú nýtur kærleika, heim, þar sem það er öruggt að vera elskuð/aður? 16.-18. febrúar: Langar þig til að umbreyta sektarkennd, skömm og kvíða í kaérleika, gleði, jafnvægi og fögnuð? 23.-25. febrúar: Hefur þú brennandi löngun til að uppgötva og tjá alla möguleika þína, verða það besta sem þú getur orðið? Kynningarkvöld verða öll miðvikudagskvöld frá 10. jan. - 14. feb. í Jógastöðinni Heimsljósi, Ármúla 15, kl. 20-21. Aðgangseyrir kr. 500. Nánari upplýsingar og skráning: Nanna Mjöll Atladóttir, sími 567 5759. Frönskunámskeið AllianceFrancaise Vetrarnámskeið verða haldin 15. janúar til 19. apríl. Innritun fer fram alla virka daga frá kl. 15 til 19 í Austurstræti 3, sími 552 3870. ALLIANCE FRANQAISB Þýskunámskeið Germaniu Námskeiðin hefjast á ný 15. janúar. Boðið er upp á byrjendahóp, 4 framhaldshópa og talhópa fyrir bæði skemmra og lengra komna. Kennarar eru Magnús Sigurðsson MA og Rebekka Magnúsdóttir - Olbrich MA. Innritað verður á kynningarfundum í Lög- bergi, Háskóla íslands, stofu 102, miðviku- daginn 10. janúar og fimmtudaginn 11. janú- ar kl. 20.30. Upplýsingar eru einnig veittar í síma 551-0705 kl. 12-13 eða kl. 17-18.30. Geymið auglýsinguna. Stjórn Germaniu. Til sölu jarðir í Borgarfirði Til sölu eru hjá undirrituðum eftirtaldar jarðir: Giljahlíð í Flókadal ásamt bústofni, vélum og tækjum. Framleiðsluréttur 36.000 I af mjólk, 1200 kg af kjöti. Bústofn 10 kýr, 4 geldneyti, 49 ær, 10 gemlingar, 2 hrútar og 13 hross. Verð 10,0 millj. Breiðabólsstaður í Reykholtsdal. Um er að ræða 300 ha jörð í Reykholtsdal. Engin fram- leiðsluréttur fylgir. Þokkalegt íbúðarhús, sem er hæð og ris, auk útihúsa fyrir hross og sauðfé. Hitaveita. Verðhugmynd: 11,0 millj. Spilda úr Breiðabólsstað. Um er að ræða ca 50 ha spildu sem liggur m.a. að Reykja- dalsá. Borhola með heitu vatni er á spild- unni og er vatn úr henni notað til upphitunar nokkurra húsa í grenndinni. Verðhugmynd 5,0 millj- Allar nánari upplýsingar gefur undirritaður. Gísli Kjartansson hdl., lögg. fasteigna- og skipasali, Borgarbraut 61, Borgarnesi, sími 437 1 700, fax 437 1017. Harðfiskurtil sölu í þorrabakkann Hert lúða að vestan er nauðsynleg. Sendi í póstkröfu um allt land. Fiskverkun Jóhanns, Suðureyri, símar 456 6159 og 854-5033. Skrifstofuhúsnæði til leigu Höfum til leigu 34 fm skrifstofuherbergi á 5. hæð í Austurstræti 17. Nánari upplýsingar gefnar hjá Gjaldskilum sf. í síma 568 1915. SlttCI auglýsingor Hörgshlíð 12 Bænastund í kvöld kl. 20.00. I.O.O.F. 7 = 17701108'A = R. □ GLITNIR 5996011019 I.H.v. .S. I.O.O.F.9 = 1771108'/2 = Á.S. REGLA MUSTERISRIDDARA A RM Hekla /Æfjr\ 10.1.VSIMF Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Bsenastund í kvöld kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. ÉSAMBAND ÍSLENZKRA ,_/KRISTNIBOÐSFÉlAGA Háaleitisbraut 58-60 Samkoma i kvöld kl. 20.30 í Kristniboðssalnum. Raeðumaður sr. Gísli Jónasson. Einsöngur: Bylgja Dís Gunnars- dóttir. Allir velkomnir. Myndakvöld fimmtudaginn 11.janúar kl. 20.30 í Fóstbræðraheimilinu. Eyrún Ósk Jensdóttir og Gunnar S. Guðmundsson sýna myndir úr ferð Útivistar um Lónsöræfi sl. sumar. Glæsilegt kaffihlað- borð innifalið í aðgangseyri. Allir velkomnir. Skfðagöngunámskeið laugardaginn 13. janúar kl. 10.00. Staður auglýstur föstud. 12. jan. Allir velkomnir, ekkert þátttökugjald. Skíða- göngunámskeiðin verða haldin hálfsmánaðarlega í vetur. Dagsferð laugardaginn 13. janúar kl. 9.30 Póstgangan ’91 rifjuð upp. Farið af stað með Akraborg og ekið með rútu að Leirá. Það- an er gengin gömul póstleið aö Innra-Hólmi. Þeir sem tóku þátt í raðgöngunni ’91 eru sérstak- lega velkomnir. Mæting við Akraborg. Dagsferð sunnudaginn 14. janúar kl. 10.30 Búrfellsgjá. Ekið inn Vífilstaðahlíð og gjáin gengin að Búrfelli. Komið við í Valabóli og gengið í Kaldársel í bakaleið. Mæting við BSl. Útivist.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.