Morgunblaðið - 10.01.1996, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 10.01.1996, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIIMNINGAR MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1996 37 GRÉTA ÓLAFSDÓTTIR + Gréta Ólafs- dóttir fæddist í Reykjavík 7. ágúst 1953. Hún lést 30. desember síðastlið- inn á Akureyri. Gréta var dóttir Ólafs Jónssonar, f. 29.1. 1913, og Jyttu Jensen, f. 28.1. 1928. Bræður Grétu eru Ragnar Ólafs- son, f. 11.12. 1949, d. 1970, Jón Ólafs- son, f. 22.5. 1958, og Vilhjálmur Ól- afsson, f. 3.9. 1965. Eftirlifandi eiginmaður Grétu er Sigurgeir Vagnsson húsa- smiður, f. 29.8. 1958. Þeirra synir eru Trausti Sigurgeirs- son, f. 10.11. 1980, og Ari Sigurgeirs- son, f. 10.2. 1986. Áður átti Gréta soninn Ragnar Þor- varðarson, f. 10.12. 1973, d. 2.1.1990. Gréta lauk kenn- araprófi 1973 og starfaði við Barna- skóla Hrafnagils- hrepþs 1973-4. Arið 1974 réð hún sig að Oddeyrarskóla og starfaði þar til dauðadags. Útför Grétu verður gerð frá Akureyrar- kirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. HINN 30. desember síðastliðinn barst mér sú harmafregn að vin- kona mín, Gréta Ólafsdóttir kenn- ari, væri látin. Þetta ótímabæra kall Drottins fær maður ei skilið. Þegar slíkar harmafregnir berast vill hugurinn leita aftur til fortíðar og minningar um gengin spor hlað- ast upp. Ekki ætla ég í þessum fátæklegu orðum að rekja ævi Grétu náið. Gréta fæddist 7. ágúst 1953 í Reykjavík og ólst þar upp. Að loknu grunnskólanámi settist Gréta í Kennaraskóla íslands og lauk þar námi aðeins tvítug að aldri. Þá yfirgefur hún heimaslóðir sín- ar og fer norður að Hrafnagili í Eyjafirði og kennir þar um skamma hríð en fór síðar til Akureyrar og réðst að Oddeyrarskóla sem átti eftir að verða hennar vinnustaður til æviloka. Eðlisþættir Grétu voru stórbrotn- ir. Hún var djarfmannleg í fram- göngu og bar höfuðið hátt. Það var mikið gæfuspor að Gréta skyldi velja kennslu að lífsstarfi, því þar naut hún sín. Hún af afburða kennari, harð- dugleg og ósérhlífin og hafði afar gott skipulag á sinni vinnu. Sam- kennurum sínum á kennarastofu verður Gréta ógleymanleg. Henni lá hátt rómur og talaði tæpitungu- laust um menn og málefni, en nú heyrist ekki lengur hinn hái hvell- andi hlátur Grétu sem hafði svo smitandi áhrif. Það var sjaldan logn þar sem Gréta var en því oftar lék um hana svalandi blær. Gréta varð fyrir þungum áföllum í sínu lífi og þekkti sorgina vel en slíku tók hún með slíku æðruleysi að aðdáunarvert var. Gréta bjó manni sínum, Sigur- geiri Vagnssyni, og sonunum, Ara og Trausta, ástríkt heimili á Ægis- götu 21 og bar það glöggt vitni góðrar móður. Við hjónin vottum Sigurgeiri og sonunum ungu og öðrum vanda- mönnum okkar dýpstu samúð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Ormarr Snæbjörnsson. Ég horfði í gegnum gluggann, á grafhljóðri vetramóttu, og leit eina litla stjömu þar lengst úti í blárri nóttu. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett or æski- legt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-texta- skrár. Ritvinnslukerfin Word og Word- pcrfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýs- ingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina og hálfa örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 3600-4000 slög. Ilöf- undar eru beðnir að hafa skírnarnöfn s(n en ekki stuttnefni undir groinunum. Hún skein með svo blíðum bjarma, sem bros frá liðnum árum. Hún titraði gegnum gluggann, sem geisli í sorgartáram ... (Ljóðaþ. M.Á.) Við komum og förum. Leiðin sem samferðafólkinu verður stundum styttri en ætlað var, því að sumir hverfa á braut í blóma lífsins. Þeir skilja eftir kærar minningar, en um leið sáran söknuð. Nú er Gréta Ólafsdóttir horfin úr hópnum sem starfaði við Oddeyr- arskóla. Hún var gædd miklum hæfileikum til kennslu, full lífs- þróttar og gekk ætíð til starfa af þeim krafti að eftir var tekið. Stjórn hennar á nemendum var ákveðin en jafnframt hlý og nærgætin var hún við marga þá sem miður gekk að ná tökum á náminu. Hún var mjög greind og fljót að átta sig ef taka þrufti snöggar ákvarðanir, gleðigjafi á kennarastofunni og hlátur hennar hljómaði þar og um ganga skólans. En Gréta var stund- um einnig hörð og ákveðin. Hún hafð i skoðanir á flestum málum og fylgdi þeim eftir af kappi og rökvísi. Fólk varð vart við ef hún beitti sér gegn einhveiju eða ein- hverjum. AHtaf var samt stutt í glettinn svip og hlátra. Eitt af áhugamálum hennar voru bindind- ismál og að þeim starfaði hún allan sinn kennsluferil þó að ekki væri það á áberandi hátt. Hins vegar nýtti hún vel þau tækifæri sem gáfust til þess að leiðbeina æskunni við að sneiða hjá vímugjöfum og öðrum þeim efnum sem verða henni til tjóns. Við Gréta kynntumst fyrst, þegar hún var ráðin kennari við Oddeyrar- skóla 1974. Þar störfuðum við svo saman í rúmlega tuttugu ár. Aldrei varð ég var við að skugga bæri á samstarfið, þó að vafalaust hafi ég stundum tekið ákvarðanir sem ekki voru að hennar skapi. Slíkt gerist ætíð við stjórn skóla. Fljótt kom í ljós að hún var gædd þeim hæfileik- um sem ekki eru allra; að vera nokkuð jafnvíg á kennslu yngri sem eldri nemenda og þar að auki alltaf tilbúin að auka þekkingu sína með því að sækja sumarnámskeið, ef vera kynni gagn af því fyrir þá nemendur sem henni var ætlað að sjá um á næsta skólaári. Hún hafði mikinn áhuga á nýjungum í skóla- málum, var góður ræðumaður og tillögugóð. í nokkur ár sat hún fundi skólanefndar Akureyrar sem full- trúi kennara. Hún fór stundum með okkur í útskrftarferðir nemenda til Norðurlanda og Þýskalands. Þar reyndi mikið á alla fararstjóra og málakunnáttu þeirra. í þeim ferðum var Gréta góður liðsmaður, því að auk þess að hafa gott vald á ensku og dönsku gat hún þó nokkuð talað þýsku. Á lífsleiðinni eru okkur öllum gefnir bjartir og dimmir dagar. Gréta fór ekki varhluta af dimmu dögunum í sínu persónulega lífi þegar hún missti elsta son sinn. Þá reyndi á þrek og þol. En hún stóð ekki ein. Við hlið sér hafði hún eftir- lifandi eiginmann, Sigurgeir Vagnsson, og drengina þeirra, Trausta og Ara. Þar hafði hún sitt bakland og fékk drifkraft til starfa. Dugnaðurinn, glaðværðin og áhug- inn virtust fýlgja henni hvert skref og þegar hún nú er horfin á braut finnum við öll til tómleika. Við hjónin sendum Sigurgeiri og drengjunum þeirra svo og öllum ættingjum innilegar samúðarkveðj- ur. Minningin um Grétu, þennan trausta samstarfsmann og góða vin, mun lifa í huga okkar. _ Indriði Úlfsson. Fráfall Grétu Ólafsdóttur kom snöggt, óvæntog sársaukafullt. Það er óskiljanlegt að hugsa til þess að Gréta, sem við fyrir nokkrum dög- um hittum glaða og hressa að und- irbúa jólin með fjölskyldu sinni skuli nú hafa kvatt í síðasta sinn eftir örstutta sjúkdómslegu. Á svona stundum standa menn orðlausir og skilningslausir um tilgang lífsins — þótt dauðinn sé annars eini öruggi fylgifiskur þess. Gréta Ólafsdóttir var aðeins 42 ára þegar kallið kom. Við þekkjum ekki æviferil hennar til hlýtar en víst er að Gréta bjó yfir meiri reynslu en flestir jafnaldrar hennar og á hana voru lagðar meiri byrðar en almennt voru lagðar á samferða- menn hennar. Gréta ólst upp í Reykjavík en flutti til EyjaQarðar nýútskrifaður kennari árið 1973. Á Akureyri átti hún sitt fyrsta barn, Ragnar, en hann lést sviplega fyrir fáum árum. Gréta kvæntist eftirlif- andi eiginmanni sínum, Sigurgeiri Vagnssyni, árið 1981 og eignuðust þau tvo syni, Trausta og Ara. Ari hefur frá fæðingu þurft umtals- verða umönnun og hefur Gréta hlot- ið aðdáun þeirra sem til þekkja fyr- ir ósérhlífni og dugnað í því sam- bandi. Það verkefni bættist við önn- ur heimilisstörf og kennslu í Odd- eyrarskóla, sem hún hefur sinnt um árabil. Gréta sýndi í sínu lífi að hún tókst af fullum þrótti á við þau verkefni sem henni voru falin og lét engan bilbug á sér finna þótt sum þeirra væru þung. Gréta Ólafsdóttir var glaðleg og ræktarsöm. Hún ,hafði ákveðnar skoðanir á flestum málum og vílaði ekki fyrir sér að tala fyrir sínum skoðunum hvar sem var. Hún var góð heim að sækja og þau hjónin bjuggu fjölskyldu sinni glæsilegt heimili sem alltaf stóð vinum og vandamönnum opið. Við fráfall Grétu er gott að minnast þess hve mikils virði það er að hafa átt hana að vini. Við viljum með þessum línum votta Sigurgeiri og sonum þeirra og öðrum ástvinum dýpstu samúð og megi minningin um Grétu Ólafs- dóttur leggja líkn með þraut. Gunnar Kr. Jónasson, Pétur Bjarnason og fjölskyldur. Öll við kveðjum þig klökk, óvænt kallið þitt barst. Hafðu þúsunda þökk fyrir það sem þú varst. (B.M.) Nú þegar nýtt ár heilsar er horf- inn úr hópi okkar mætur kennari, Gréta Ólafsdóttir. Gréta lauk kenn- araprófi árið 1973 og starfaði við Barnaskóla Hrafnagilshrepps skóla’árið 1973-74. Árið 1974 réð hún sig að Oddeyrarskóla og hefur kennt hér síðan. Skuggar grúfa yfir þegar dauð- inn heggur svo vægðarlaust og hjá okkur vakna áleitnar spurningar, hvers vegna? Það er erfitt að skilja þegar dugmikið fólk í blóma lífsins er hrifið burtu svo fyrirvaralaust frá öllu sem því er kærast. Eftir sitja minningar sem ylja þegar horft er tilbaka. í starfi sínu sem kennari var Gréta afar samviskusöm og ná- kvæm. Hún lagði mikla vinnu í það að skipuleggja alla kennslu sem best og vildi hag nemenda sinna sem mestan. Hún fylgdist vel með straumum og stefnum í kennslu- málum og var ódeig að fylgja þar sannfæringu sinni. Alloft leiðbeindi hún kennaranemum og gerði það af miklum áhuga og vandvirkni. Drjúgum tíma varði Gréta til félags- starfa í skólanum og áttu þar skák og leiklist hug hennar. Hún var röggsöm og ákveðin i allri fram- komu, glettin og spaugsöm. Með sinni einstöku kímnigáfu gat hún séð spaugilegar hliðar á ýmsum málum. Þótt móti blési stundum var eins og hún sæi ekki erfiðleikana, en væri full bjartsýni um að úr rættist. Seint gleymist glaðværðin sem ríkti þegar haldið var í jólaleyfið nýverið eftir jólafagnað alls starfs- fólks skólans. Þar var Gréta geisl- andi glöð og efst í huga var tilhlökk- un og eftirvænting. En hverfult er lífið. Við mætum ekki lengur hressilegu viðmóti hennar eða hlustum á rösklegt fóta- takið. Það er komið að kveðjustund svo allt of fljótt og óvænt. Við viljum þakka Grétu vináttu og vel unnin störf í þágu skólans. Fjölskyldu hennar sendum við inni- legar samúðarkveðjur. Samstarfsfólk í Oddeyrarskóla. Kveðja frá kven- félaginu Hlíf Með nokkrum orðum langar okk- ur til að minnast Grétu Ólafsdóttur kennara og þakka henni fyrir sam- starfið í kvenfélaginu Hlíf síðastlið- in 15 ár. Gréta var ævinlega boðin og búin að leggja félaginu lið ef á þurfti að halda. Hún var félagslynd og ljóðelsk og tilbúin að gefa af sér, hugmyndarík og kraftmikil hvort sem um var að ræða fjáröflun- arátak eða innlegg á félagsfundi. Gréta var góður dansari og í tví- gang aðstoðaði hún okkur við að koma upp danssýningum fyrir KEA-fundi. Hún átti létt með að leika ef því var að skipta og var góður upplesari. Síðast í nóvember, fyrir sameig- inlegan fund hjá kvenfélögum hér í grennd, leituðum við til hennar á seinustu stundu og þá kom hún á fund okkar full af hugmyndum og vann úr þeim málum með okkur með góðum árangri. Við vonuðumst til áframhaldandi samskipta og samvinnu við Grétu á næstu árum en þá var hún skyndilega kölluð burt til æðri starfa. Og hvað er að hætta að draga andann ann- að en að frelsa hann frá friðlausum öldum lífsins, svo að hann geti risið upp í mætti sínum og ófjötraður leitað á fund guðs síns? (Spámaðurinn - Kahlil Gibran.) Við kveðjum Grétu með söknuði og þökkum vel unnin störf í þágu félagsins. Sigurgeiri, Trausta og Ara vottum við okkar innilegustu samúð. Hlífarkonur. Kveðja frá gamla bekknumhennar Gréta dáin, það getur ekki ver- ið, Gréta, kennarinn sem okkur þótti svo vænt um og leiðbeindi okkur allan okkar tíma í Oddeyrar- skólanum er farinn á brott og við gátum ekki einu sinni sagt bless. Okkur setti öll hljóð þegar við feng- um fréttirnar; Gréta sem alltaf var svo hress og kát og ekki hægt að lýsa því með orðum hve hún var alltaf góð og hlý við okkur öll. Gréta var ekki aðeins kennarinn okkar hún var einnig félagi okkar og vinur og hún tók okkur oft á tíðum undir sinn vemdarvæng. Gréta hafði sterka réttlætiskend og til marks um það má nefna að þegar við fórum út í frímínútur lét hún okkur draga miða til að eng- inn yrði útundan við skiptingu í fótboltalið. Gréta lét okkur líka draga miða um sætaskipan í stof- unni svo að við kynntumst hvert öðru sem best. Þetta vesen í þér, elsku Gréta, skildum við ekki þá en nú sjáum við þetta í öðru ljósi og okkur verður oft hugsað til þessa alls í dag. Þar sem Gréta var ríkti aldrei nein lognmolla, brosið, kátínan og hispursleysið einkenndi hana alla tíð og hún mátti aldrei neitt aumt sjá. Okkur verður oft hugsað til þess þegar hún bauð öllum bekknum í kaffi heim til sín, þegar allir vom búnir að borða og æsingur kominn í hópinn tók hún það ráð að henda einfaldlega strákunum út og tala svo í rólegheitum við stelpurnar, svona var Gréta, einstaklega hrein- skiptin. Fyrir tveimur ámm þegar við hittumst allur hópurinn mættir þú auðvitað manna hressust, með myndir, og reyttir af þér brandar- ana og hristir upp í okkur fjörið. Við endurtókum gömlu góðu leik- ina okkar, ávaxtaleikinn og blikk- leikinn. Við ákváðum síðan að hitt- ast aftur 1998 og þú hlakkaðir svo til að koma og gefa okkur gömlu skriftarbækumar okkar sem þú hafðir geymt handa okkur. Þegar við lítum til baka kemur aðeins eitt upp í hugan og það er þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast þér og fyrir það þökkum við öll. Elsku Geiri, Trausti og Ari, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð og megi algóður guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér, hvert andartak er tafðir þú hjá mér var sólskinsstund og sæludraumur hár, minn sáttmáli við Guð um þúsund ár. (Halldór Laxness.) Þínir nemendur við Odd- eyrarskóla árin 1985-1991. SIGFÚS ÓLAFUR SIGURÐSSON + Sigfús Ólafur Sigurðsson fæddist í Árkvörn í Fljóts- hlíð 7. apríl 1907. Hann lést í Dvalarheimilinu Skjóli 24. des- ember siðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogskirkju 5. janúar. ELSKU afí minn. Nú hefur þú kvatt þetta líf og ert farinn að takast á við önnur viðfangsefni. Ég veit að þú átt eftir að leysa þau vel af hendi, alveg eins og allt sem þú gerðir í þessu lífi. Þú skalt ekki vera leiður yfir því að hafa þurft að kveðja hana ömmu, því að hún kemur til að hitta þig seinna. Þang- að til skulum við, afkomendur ykk- ar, hugsa vel um hana fyrir þig. Mikið er ég fegin að hafa fengið að hitta þig á Þorláksmessu, daginn áður en þú fórst. Þú tókst svo vel á móti mér og bróður mínum þrátt fyrir veikindi þín. Sjálfsagt hefurðu vitað þá að þú værir að fara, þó að okkur grunaði ekki hvað það væri í raun skammt eftir. Mig langar svo til að segja þér hvað mér þótti afskaplega vænt um þig og þykir ennþá. Þú varst yndis- legur afi og ég veit að þannig líður öllum bamabömunum þínum. Heimurinn er eitt stórt leiksvið, Þar sem mennimir eru aðeins leikarar. Allir hafa þeir sinn stað og tíma til að yfir- gefa sviðið, • og einnig til að koma inn á það; Og hver maður á sínum tíma leikur mörg hlutverk, þar sem leikur hans nær yfir eitt æviskeið. (Shakespeare - Þýð. H.S.H.) Elsku afi, ég vona að þér líði vel núna, hvar sem þú ert. Sjáumst síðar. Hanna Sif.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.