Morgunblaðið - 10.01.1996, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
KARL
EINARSSON
+ Karl M. Einars-
son fæddist ~ í
Reykjavík 26. októ-
ber 1911. Hann lést
á Elli- og- hjúkr-
unarheimilinu
Grund 3. janúar síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru Jónína
Þorsteinsdóttir, f.
1874, d. 1962, og
Einar Einarsson,
bátasmiður, f. 1880,
d. 1939. Systkini
Karls voru Unnur
Sigríður, f.
d. 1976, eiginmaður
hennar var Ingólfur Matthías-
son, stöðvarstjóri, f. 1903, d.
1950, og Jónas, f. 1906, d.1932.
Árið 1937 kvæntist Karl Ing-
unni Jónsdóttur, f. 1909, d.
1994. Synir þeirra
Jón Ólafur Karls-
son, f. 1937, kvænt-
ur Guðrúnu Dam,
f. 1937. Börn þeirra
eru 1) Elsa, f. 1957,
gift Jóhanni Þóris-
syni og eiga þau
þijú börn. 2) Ing-
unn, f. 1959,^ gift
Guðmundi Árna-
syni og eiga þau
fjögur börn. 3) Pét-
ur, f. 1963, kvæntur
Elínu Andrésdóttur
og eiga þau þijú
börn. Yngri sonur
Karls og Ingunnar var Ingi
Karl f. 1947, d. 1970.
Útför Karls fer fram Grafar-
vogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
í DAG kveðjum við kæran móður-
bróður okkar, Karl M. Einarsson
skipasmið. Kalli frændi, eins og
við kölluðum hann, bjó alla tíð á
Nýlendugötu 18 eða þar til fyrir
hálfu öðru ári að hann missti Ing-
unni, eiginkonu sína, og heilsu
hans tók að hraka. Seinasta hálfa
árið dvaldi hann á Grund og naut
þar góðrar umönnunar. Karl var
einstaklega dagfarsþrúður maður
og skipti sjaldan skapi. Hann var
ljúflingur, sem vildi öllum vel og
nutum við systkinin ástríkis hans
alla tíð.
Húsið „á 18“ var byggt um alda-
mótin og var þá ein hæð og kjall-
ari. Afi Einar keypti húsið í kring-
um 1907 og nokkrum árum seinna
var því lyft og kjallarinn hækkaður
og ris byggt á húsið. Afi byggði
stóran vinnuskúr á lóðinni þar sem
hann smíðaði nótabáta til síldveiða.
Kalli frændi vann með afa við þess-
ar bátasmíðar í mörg ár, en í stríðs-
lok stofnaði Karl skipasmíðastöð-
ina Bátanaust í félagi við nokkra
aðra skipasmiði. Gamli skúrinn var
samt sem áður notaður til báta-
smíða, en nú voru smíðaðir þar
lúxus hraðbátar og voru þeir gerð-
ir eftir bandarískum teikningum.
Það voru þeir Karl og félagi hans,
Hjálmar Árnason, sem smíðuðu
þessa báta og var hver þeirra lista-
smíð, póleraðir og fægðir eins og
fínustu stofumublur.
Kalli hafði alla tíð yndi af lax-
veiðum og stundaði þá íþrótt í
mörg ár. Hann hafði þolinmæði
stangveiðimannsins. Í gamla daga,
þegar við krakkarnir vorum tekin
með í fjölskylduveiðiferðir, þá hafði
afi Einar enga þolinmæði í lax-
veiði, hann vildi veiða silung í net
og sjá sem mestan afrakstur veiði-
ferðarinnar.
Húsið „á 18“ var sannkallað fjöl-
skylduhús. Afi Einar og amma
Jónína bjuggu þar fyrst með sín
þijú börn og þegar foreldrar okkar
giftu sig fengu þau risíbúðina til
umráða og þar fæddumst við þrjú
systkinin. Eftir að afi féll frá
bjuggu Inga og Kalli á hæðinni
með sonum sínum tveimur, Jóni
Ólafi og Inga Karli. Á tímabili
bjuggu ijórir ættliðir í húsinu og
sá fimmti nokkrum árum seinna.
Þetta var glaðvært hús og heyrð-
ust oft hlátrasköllin um allt, sér-
staklega þegar afi Einar var að
spila whist.
Kalli var með afbrigðum músik-
alskur 'og spilaði á fiðlu og píanó.
Heimili þeirra Ingu var gestkvæmt
og oft spilað og sungið heilu kvöld-
in. Margar sögur voru sagðar og
flest spaugilegt hent á lofti. Kalli
frændi var einstakur sögumaður,
sagði skemmtilega frá og gat fært
í stílinn. Óli frændi, sonur hans,
hefur erft þennan hæfileika föður
síns svo og músíkgáfuna.
„Nú er hún Snorrabúð stekk-
ur.“ Enginn úr fjölskyldunni býr
lengur í húsinu. Þetta góða hús,
sem hýsti þessar fjölskyldur í
mörg ár, verður okkur krökkunum
alltaf jafn kært. „Heim á Nýló“
var alltaf sagt, hvar sem við vor-
um stödd eða jafnvel flutt að heim-
an og búin að stofna eigið heim-
ili. Af þriðja ættlið erum við nú
þrjú sem kveðjum ástríkan föður
og frænda.
Jón Ólafur og hans fjölskylda
kveðja föður, tengdaföður, afa og
langafa. Við tvö kveðjum móður-
bróðurinn okkar góða. Jóhannes,
bróðir okkar, lést í maí 1995, öllum
harmdauði, svo stutt er milli stórra
högga í fjölskyldum okkar. Við
krakkarnir „á 18“ nutum einstaks
ástríkis fólksins, sem ól okkur upp.
Við höfum reynt að færa þessa
góðvild til næstu kynslóða, því
ekkert er eins gott veganesti í líf-
inu og ástríkt uppeldi. Við kveðjum
Kalla frænda með virðingu og
þökk. Megi góður Guð blessa minn-
ingu hans og allra okkar ástvina.
Við geymum minninguna í hjarta
okkar.
Jónína Ingólfsdóttir,
Einar Jónas Ingólfsson.
MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1996 33
Gleáilegft ár!
Kennsla er liafin í framlialclsflokfcum.
Vegfna mikillar aásóknar köfum viá kætt
við flokkum 11 -13 ára.
Einnig örfá pláss laus í forskóla 4-6 ára.
Innritun í síma 581 3730.
jazzballett
Fyrir dansarana
og ungt fólk.
Byrjenda- og
framhaldsflokkar
dansflokkar
Fyrir unglingana.
Byrjenda- og
framhaldsflokkar.
2-3svar i viku.
óAAa
Lágmúla 9, símar 581 3730 og 581 3760.
FÍLD - Félag íslenskra listdansara DÍ - Dansráð íslands
Við bjóðum bíleigendum í heimsókn.
Komdu
... skoða
bílinn þinn
pér að
endurgalds-
lausu...
og Idttu • • •
. . . stilla Ijósin á bílnum þínum
. . . fagmenn leidbeina þér
OPIÐ HÚS Á VERKSTÆÐUM
á laugardaginn 13. jan. nk. Bíigreinasambandið
sími 568 1550.