Morgunblaðið - 10.01.1996, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.01.1996, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fjórar vélar Flugleiða fara frá áfangastöðum í Bandaríkjunum í dag Flug að komast í samt horf BOEING 747 breiðþota, sem Flug- leiðir tóku á leigu í Frakklandi til að leysa úr vandræðum vegna stór- hríðar á austurströnd Bandaríkj- anna, hélt frá Keflavíkurflugvelli með rúmlega 500 farþega til New York í gær og í dag munu fjórar vélar á vegum Flugleiða fljúga frá Bandaríkjunum með sæti fyrir rúm- lega eitt þúsund farþega. Einar Sig- urðsson, blaðafulltrúi Flugleiða, sagði í gær að þar með yrði áætlun- arflug Flugleiða, sem varð fyrir miklu raski á sunnudag og mánu- dag, komið í samt lag. Rúmlega fjögur þúsund flugum var aflýst á austurströnd Bandaríkj- anna vegna snjókomu á mánudag og hefur myndast mikið öngþveiti. Einar sagði að þótt Flugleiðir næðu að koma farþegum sínum á áfanga- stað gætu tafir beðið þeirra, sem lengra ætla. Upphaflega átti að fljúga breið- þotunni til Baltimore, en flugvöllur- inn þar hafði ekki verið ruddur nægjanlega til að taka á móti svo Reglur um ferða- kostnað ríkisins Stofnun getur gefið út heimildir FRIÐRIK Sophusson fjár- málaráðherra kynnti á ríkis- stjórnarfundi í gær breytingu sem ákveðin hefur verið á regl- um um greiðslur ferðakostnað- ar ríkisstarfsmanna. Ber að afla skrif- legrar heimildar „í gildandi reglugerð um greiðslu ferðakostnaðar segir að áður en ferð til útlanda hefst beri að afla skriflegrar heimildar viðkomandi ráðu- neytis en til hægðarauka fyrir þau ráðuneyti sem það kjósa, felur breytingin í sér að sett er inn viðbót þar sem segir að einstök ráðuneyti geti falið stofnun að annast útgáfu slíkra ferðaheimilda. Það er verið að færa þetta í frjáls- ræðisátt fyrir þá sem vilja notfæra sér það,“ sagði Skarp- héðinn Steinarsson, deildar- stjóri í fjármálaráðuneytinu. Morgunblaðið/Björn Blöndal stórum flugvélum og var henni því beint til New York. Þeim farþegum, sem ætluðu til Baltimore, verður komið þangað eftir öðrum leiðum eftir að til New York kemur. Að auki hélt farþegavél af gerð- inni Boeing 757 frá íslandi til Balti- more í gær og Boeing 757-vél, sem lenda varð í Orlando í Flórída á sunnudag vegna þess að ekki var hægt að lenda í New York, var flog- ið þangað í gær. Þessar þrjár vélar halda til ís- lands í dag auk einnar vélar, sem flogið verður frá Orlando. Óveruleg áhrif yfir íslandi Mestur hefur glundroðinn vegna ofankomunnar verið á flugvöllum í Washington, Baltimore, New York og Boston. Veðrið hefur hins vegar ekki haft mikil áhrif á flugumferð yfir íslandi. „Þetta hefur óveruleg áhrif á vinnu hér,“ sagði Benedikt Grön- dal, vaktstjóri í flugstjórnarmiðstöð Flugmálastjórnar, í gær. Hann sagði erfitt að segja til um hvað mikið hefði dregið úr flugi vegna snjókomunnar, enda hefðu ýmsir aðrir þættir áhrif á flug á eftirlits- svæði Flugmálastjórnar. Hins vegar gerði hann ráð fyrir að flug hefði ekki dregist saman um meira en fimm af hundraði vegna ófærðar í Bandaríkjunum. Samkeppmsstofnun kannar eggjamarkað SAMKEPPNISSTOFNUN hefur láðst að gera bakarameistara, sem kærði Félag eggjaframleiðenda fyr- ir samráð við verðlagningu í nóvem- ber 1994, formlega grein fyrir því að erindi hans falli utan gildissviðs samkeppnislaga og verði því ekki tekið til umfjöllunar. Að sögn Guð- mundar Sigurðssonar, forstöðu- manns samkeppnissviðs Samkeppn- isstofnunar, valda ýmis tilefni því að stofnunin hefur málefni eggja- framleiðenda engu að síður til með- ferðar og stefnir að því að Ijúka í þessum mánuði athugun á sam- keppni og viðskiptaháttum við framleiðslu og dreifingu á eggjum. Bakarameistari í Reykjavík aug- lýsti í júlí 1994 eftir tilboði frá eggjaframleiðendum í 700-900 kg af eggjum. Aðeins barst eitt svar, frá Félagi eggjaframleiðenda, sem bauð skráð verð og 3% staðgreiðslu- afslátt. Taldi bakarameistarinn að þar með hefði félagið gerst sekt um samráð og ólögmætt tilboð og vísaði málinu til Samkeppnisstofn- unar 27. nóvember 1994. í gær ítrekaði Bakarameistarafé- lag Islands erindi félagsmannsins við Samkeppnisstofnun með bréfi. Kveðst félagið vísa málinu til um- boðsmanns Alþingis hafi ekki borist svör fyrir 22. janúar. Guðmundur Sigurðsson, for- stöðumaður samkeppnissviðs Sam- keppnisstofnunar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að fyrir mistök hefði stofnuninni láðst að gera kærandanum formlega grein fyrir því að erindi hans félli utan gildissviðs samkeppnislaga og þar með utan verksviðs stofnunarinnar. Verð ákveðið með sérlögum Til 1. desember sl. hafi 5 manna nefnd lögum saíftkvæmt ákvarðað verð á eggjum í heildsölu en 6 manna nefnd ákvarði enn verð til framleiðenda. Þar sem verðlagning sé ákveðin með sérlögum þijóti valdsvið Samkeppnisstofnunar, auk þess sem í búvörulögum sé lagt bann við því að vörur þær sem háðar eru verðlagsákvörðun 5 og 6 manna nefndar séu seldar á hærra eða lægra verði en hinu opinbera. Guðmundur sagði að þrátt fyrir að lög gerðu ekki ráð fyrir afskipt- um stofnunarinnar af eggjafram- leiðslu ynni hún nú að athugun á samkeppni og viðskiptaháttum við framleiðslu og dreifingu á eggjum. Tilefni athugunarinnar er, að sögn Guðmundar, annars vegar nið- urstaða verðkönnunar stofnunar- innar og Neytendasamtakanna sem leiddi í ljós verulega hærra verð eggja og kjúklinga í Reykjavík en í Osló og Kaupmannahöfn og hins vegar „ýmsar athafnir Félags eggjaframleiðenda“ sem gefið hafi tilefni til þess að kanna málið. Þar kvaðst Guðmundur m.a. vísa til þess að í október sl. hefði félag- ið lagst gegn því að Ríkisspítalar fengju að víkja frá skráðu verði með því að bjóða út kaup sín á eggjum. Auk þess væri vitað að þrátt fyrir hið skráða verð tíðkaðist að eggjaframleiðendur veittu af- slætti til verslana og einstakra framleiðenda. Fjórar fjöl- skyldur skipta stóra pottinum FJÓRAR ijölskyldur í Árnessýslu skipta með sér fyrsta vinningi í laug- ardagslottóinu sl. laugardag. Aldrei hefur áður komið jafnhár vinningur á einn miða, yfir 24 milljónir kr. Fulltrúi fjölskyldnanna brá sér í bæinn og gaf sig fram með miðann hjá íslenskri getspá í Laugardalnum fyrir hádegi í gær. Hann var að vonum ánægður og fram kom að vinningsféð kæmi í góðar þarfir. Vinningshafarnir vildu halda nafn- Ieynd og er sú ósk ætíð virt. -----» ♦ ♦--- Staða finnsku og íslenzku Island með aðrar áherzlur SNJÓLAUG Ólafsdóttir, skrifstofu- stjóri skrifstofu Norðurlandamála í forsætisráðuneytinu, segir að finnsk stjórnvöld hafi löngum gert kröfur um að túlkað sé yfir á finnsku í norrænu samstarfi. ísland hafi ekki gert þá kröfu. Finnska stjórnin, sem tók við for- ystu í norrænu ráðherranefndinni um áramótin, hyggst styrkja stöðu íslenzku og finnsku í norrænu sam- starfi. „Það hefur verið áherzlumunur á milli okkar og Finna,“ segir Snjó- laug. „Við höfum fremur viljað leggja áherzlu á kunnáttu íslendinga í skandinavísku málunum til þess að við getum tekið þátt í umræðum. Hins vegar höfum við farið fram á að norrænt upplýsingaefni fyrir al- meniiing sé þýtt á íslenzku og að framboð af námskeiðum fyrir þá, sem vilja taka þátt í norrænu sam- starfi, sé aukið.“ Snjólaug segir að íslenzk stjórn- völd styðji þó Finna í viðleitni þeirra og telji hana af hinu góða. -----» ♦ ♦---- Bruggari tekinn LÖGREGLAN í Reykjavík lagði hald á um 300 lítra af gambra og um 100 lítra af landa í húsi í Norð- urmýrinni í gær. Að sögn varðstjóra náðist brugg- arinn og var handtekinn. Hann hef- ur ítrekað fengið dóm fyrir brugg en lætur sér ekki segjast. Morgunblaðið/Sverrir Jólasveinninn færður í geymslu MENN eru nú í óða önn að taka niður jólaskrautið og af þaki Víkingakrárinnar í Hafnarfirði var verið að færa jólasveininn, sem glatt hefur vegfarendur yfir hátíðirnar, í geymslu. A Utsvarstekjur í Kópavogi og Eyjum hæstar Vestmannaeyjum. Morgunblaðið. MEÐALTEKJUR á íbúa í Vest- mannaeyjum hækkuðu talsvert á árinu 1995 miðað við 1994, sam- kvæmt áætlun Sambands íslenskra sveitarfélaga um útsvarstekjur sveitarfélaga árið 1995. Samkvæmt áætluninni jukust útsvarstekjur Vestmannaeyjabæjar um 6,52% milli ára en áætlunin byggir á út- svarstekjum fyrstu 11 mánuði árs- ins og miðað er við breytingar á tekjunum fyrstu 10 mánuðina mið- að við sama tíma árið 1994. í áætluninni kemur fram að úsvarstekjur Kópavogsbæjar jukust mest alla sveitarfélaga milli áranna 1994 og 1995, um 13,93%, en næst- mest í Vestmannaeyjum. Akranes- bær kom síðan næstur með 5,54% aukningu og Akureyri þar á eftir rrieð 5,42%. Áætlað er að útsvars- tekjur Kópavogs hafi aukist um 9.465 kr. á íbúa en um 5.361 kr. í Vestmannaeyjum. Samkvæmt áætluninni jukust meðalútsvars- tekjur sveitarfélaga um 3,14% sem samsvarar 2.219 kr. á íbúa. Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, sagðist fagna þessum tölum. „Álagningarpró- senta útsvars hækkaði ekkert hjá okkur milli ára þannig að þessar tölur sýna einungis auknar meðal- tekjur íbúa. Samkvæmt þessum tölum hafa meðaltekjur á íbúa hér aukist um rúm 60.000 á árinu 1995, miðað við árið á undan. Að vísu var árið 1994 frekar slakt ár tekjulega séð en það skýrir samt ekki þennan mun. Það má heldur ekki gleyma því að 1995 varð hér mikið tekju- tap. Á árinu var sjómannaverkfall, humárvertíðin brást og engin loðna barst hingað á liðnu hausti en þrátt fyrir það erum við að sjá þessa tekjuaukningu milli ára,“ sagði Guðjón. Hann sagði að þessar tölur ykju mönnum bjartsýni og sýndu að atvinnulífið væri á réttri leið. „Ég held að þessar tölur sýni betur en allt annað að hér er að verða upp- sveifla og ekki er ástæða til annars en að vera bjartsýnn á framhaldið,“ sagði Guðjón. h i i I i I I I I I ! fc I fc I fc 1 I fc i fc fc I fc fc fc l fc
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.