Morgunblaðið - 10.01.1996, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1996 43
FRETTIR
í DAGBÓKINNI þetta tímabil má
sjá 14 bókanir vegna líkamsmeið-
inga, 13 eignaspjöll, afskipti af 49
einstaklingum vegna ósæmilegrar
ölvunarháttsemi, 11 innbrot og 32
umferðaróhöpp. Þá eru 24 bókanir
vegna hávaða og ónæðis utan dyra
og innan. Ökumenn, grunaðir um
ölvunarakstur voru 8 og 24 öku-
menn voru kærðir fyrir að aka
hraðar en leyfileg hámarkshraða-
mörk sögðu til um. Alls voru 80
ökumenn kærðir fyrir ýmis umferð-
arlagabrot um helgina. Vista þurfti
44 í fangageymslunum. Af þeim
voru 23 í tengslum við aðgerðir
lögreglumanna í fíkniefnamálum á
föstudagskvöld. 15 voru í geymsl-
unum aðfaranótt mánudags, en það
telst óvenjumikið á þeim tíma.
Annatíminn þar er venjulega að-
faranætur laugardaga og sunnu-
daga.
Umferðaróhöpp
og slys
Skömmu eftir hádegi á föstudag
var bifreið ekið yfir fót á barni á
Freyjugötu. Talið var að barnið
hefði sloppið með lítilsháttar mar.
Um miðjan dag á föstudag þurfti
að flytja ökumenn á slysadeild eft-
ir árekstur tveggja bifreiða á Lang-
holtsvegi. Um svipað leyti var til-
kynnt um harðan árekstur tveggja
bifreiða á Vesturlandsvegi við
Höfðabakka. Ökumaður annarrar
bifreiðarinnar kenndi til minnihátt-
ar meiðsla og fór sjálfur á slysa-
deild.
Aðfaranótt laugardags datt
maður í stiga á veitingastað við
Austurstræti. Hann hlaut talsverða
andlitsáverka og var því færður
með sjúkrabifreið á slysadeild. Á
sunnudag varð 9 ára stúlka fyrir
bifreið í Alfhéimum við Gnoðarvog.
Hún var flutt á slysadeild með
sjúkrabifreið.
Meiðingar
Maður var sleginn í andlitið á
Úr dagbók lögreglunnar í Reykjavík
80 ökumenn
kærðir um helgina
5.-8. janúar
veitipgahúsi við Laugaveg aðfara-
nótt laugardags. Þá voru menn
fluttir á slysadeild með sjúkrabif-
reið eftir slagsmál á veitingahúsi
við Hafnarstræti og við Laugaveg
um nóttina. Snemma á laugardags-
morgun var stúlku ekið á slysa-
deild eftir átök í íbúð á Seltjarnar-
nesi.
Slagsmál og
líkamsmeiðingar
Flytja þurfti mann í fanga-
geymslu eftir slagsmál í húsi við
Krummahóla aðfaranótt sunnu-
dags. Þá var maður laminn í Aust-
urstræti. Hann var fluttur á slysa-
deild ásamt öðrum sem lent hafði
í átökum í Hafnarstræti. Stúlka
var slegin á veitingastað við Hafn-
arstræti og maður var sleginn í
andlitið í samkomuhúsi hesta-
manna. Hann var fluttur á slysa-
deild. Um nóttina var og maður
fluttur í fangageymslu eftir slags-
mál á veitingastað við Austur-
stræti. Snemma á sunnudagsmorg-
un kærði kona mann fyrir árás.
Á föstudag var tilkynnt um inn-
brot í geymslur húss við Teigasel.
Á föstudagskvöld var brotist inn í
hús við Mánagötu og stolið verk-
færum. Þá var tilkynnt um innbrot
í aðstöðu hestamanna við Hindisvík
og skemmdir unnar á innanstokks-
munum.
Brunar
Helgin bar keim af þrettándan-
um. Á föstudagskvöld var tilkynnt
um eld í biðskýli SVR við Alfa-
bakka. Kveikt hafði verið í rusli
við biðskýlið.^ Lögreglumenn
slökktu eldinn. Á laugardagskvöld
var kveikt í ruslatunnum við leik-
skólann Kvistaborg. Skemmdir
urðu á tunnunum auk þess sem
tvær rúður í húsinu sprungu af
hitanum. Um kvöldið var einnig
tilkynnt um eld í ruslageymslu
húss við Geitland. Húsráðandi náði
að slökkva eldinn áður en tjón
hlaust af.
Skömmu fyrir miðnætti var til-
kynnt um eld í póstkössum húss
við Háaleitisbraut. Aðkomandi lög-
reglumenn slökktu eldinn. Þá var
kveikt í ruslatunnum við hús á
Grettisgötu. Slökkviliðsmenn
slökktu eldinn áður en tjón varð. Á
sama tíma var tilkynnt um eld í
íbúð við Egilsgötu. Þar hafði kvikn-
að út frá logandi kerti á jólatré.
Slökkviliðsmenn réðu niðurlögum
eldsins, en húsráðandi var fluttur
á slysadeild vegna gruns um reyk-
eitrun. Talsverðar reyk- og sót-
skemmdir hlutust af brunanum.
Skömmu síðar var tilkynnt um eld
í ruslatunnum húss við Fífusel.
Lögreglumenn slökktu eldinn. Á
sunnudag var tilkynnt um lausan
eld á skólalóðinni við Árbæjarskóla.
Um kvöldið var tilkynnt að krakkar
væru að kveikja í jólatrjám í Flúða-
seli.
Fíkniefni
Lögreglumenn létu til skarar
skríða gegn tveimur fíkniefnagren-
um í borginni á föstudagskvöld.
Annað er við Tangarhöfða og hitt
er við Mjölnisholt. Á fyrmefnda
staðnum voru 12 handteknir og
færðir á lögreglustöð og á þeim
síðarnefnda voru 11 handteknir.
Lítilsháttar af fíkniefnum fannst
við leit, auk ætlaðs þýfis úr innbrot-
um.
Aðfaranótt sunnudags fannst
ætlað hass á manni, sem lögreglu-
menn þurftu að_ hafa afskipti af í
Austurstræti. Á sunnudagskvöld
var lagt hald á lítilsháttar af amfet-
amíni er fundist hafði á farþega í
bifreið eftir að afskipti voru höfð
af ökumanninum í Tryggvagötu.
Þá fannst eitthvað af hassi á öku-
manni eftir að lögreglumenn stöðv-
uðu hann í akstri aðfaranótt mánu-
dags. Skömmu áður höfðu lög-
reglumenn fundið ætlað hass á
ökumanni, sem þeir höfðu stöðvað
vegna umferðarlagabrots. Um
nóttina lögðu lögreglumenn hald á
amfetamín og hass í húsi við
Laugaveg.
Skemmdarverk
Á laugardagskvöld sparkaði pilt-
ur í rúðu í verslun við Háholt. Um
kvöldið var blómapottur skemmdur
og auglýsingaskilti verslunar við
Langholtsveg grýtt út á götu. Að-
faranótt laugardags var rúða brot-
in á veitingastað við Laugaveg og
skemmdir unnar á bifreið við
Hörgshlíð. Aðfaranótt sunnudags
voru 7 rúður brotnar í Öldusels-
skóla og 14 rúður brotnar í leikskól-
anum Seljakoti. Sást til 6 drengja
hlaupa af vettvangi. Rúða var brot-
in í bifreið við Hverfisgötu og í
annarri við Hjaltabakka.
Uppeldisbókinni dreift í 30 þúsund
eintökum til foreldra barna
*
Atakinu Stöðvum ungl-
ingadrykkju slitið
ÁTAKINU Stöðvum unglinga-
drykkju verður slitið formlega með
ráðstefnu undir kjörorðinu Mann-
rækt — mannauður í Borgartúni 6
í Reykjavík í dag, miðvikudaginn
10. janúar. Ráðstefnan verður sett
kl. 14 að viðstöddum verndara
átaksins, forseta íslands, Vigdísi
Finnbogadóttur.
Markmið með fundinum er að
draga saman árangur átaksins,
hveiju það hafi skilað og hvað megi
af því læra. í upphafi ráðstefnunnar
verður kynnt uppeldisbókin Lengi
muna börnin, sem átakið Stöðvum
unglingadrykkju hefur látið gera í
30.000 eintökum fyrir foreldra
barna sem eru fædd 1982 og síðar.
Menntamálaráðuneytið hefur tekið
að sér að dreifa bókinni í samvinnu
við grunnskóla og fræðslustjóra og
verður áhersla lögð á að dreifa bók-
inni um land allt sama dag og ráð-
stefnan er haldin. Höfundar bókar-
innar eru sálfræðingarnir Sæmund-
ur Hafsteinsson og Jóhann Ingi
Gunnarsson. Ráðstefnan er opin
öllu áhugafólki.
Dagskrá fundarins er þannig að
Ragnar Gíslason, formaður Vímu-
lausrar æsku, setur ráðstefnuna en
síðan kynnir Valdimar Jóhannes-
son, framkvæmdastjóri átaksins,
uppeldisbókina og forseta Islands
verður afhent fyrsta eintak. Aðrir
frummælendur eru Sæmundur Haf-
steinsson, Jóhann Ingi Gunarsson,
sálfræðingar, Árni Einarsson,
framkvæmdastjóri FRÆ, Unnur
Halldórsdóttir, formaður Heimilis
og skóla, Aldís Yngvadóttir, verk-
efnisstjóri menntamálaráðuneytis,
Ómar Smári Ármannsson, yfirmað-
ur forvarnardeildar lögreglu í Rvík,
Sigmundur Ernir Rúnarsson, að-
stoðarfréttastjóri Stöðvar 2. og
Áskell Örn Kárason, forstöðumaður
Meðferðarstöðvar fyrir unglinga.
Ráðstefnunni verður slitið um kl.
18.
Vorönn Leik-
mannaskóla
kirkjunnar
VORÖNN Leikmannaskóla þjóð-
kirkjunnar hefst 10. janúar nk. Skól-
inn, sem starfar á vegum Fræðslu-
deildar kirkjunnar í samvinnu við
guðfræðideild Háskóla íslands, býður
fjölbreytta fræðslu fyrir almenning
um kristna trú.
Meginnámskeið vetrarins er með
sama sniði og undanfarin ár.
Kennslugreinar á vorönn eru: Helgi-
siðir og táknmál kirkjunnar, kirkju-
saga, siðfræði og sálgæsla.
Kennt er á miðvikudögum kl.
20-22 í aðalbyggingu Háskóla ís-
lands, stofu 7. Auk þessa samfellda
námskeiðs sem tekur yfir haust- og
vormisseri er boðið upp á styttri
námskeið þar sem fjallað er um
helstu trúarbrögð heims, skipulag
þjóðkirkjunnar, safnaðaruppbygg-
ingu, trúflokka og kirkjur. Þau eru
kennd á miðvikudögum kl. 18-20 í
aðalbyggingu Háskóla íslands, stofu
5. Innritun og nánari upplýsingar á
Biskupsstofu, Laugavegi 31.
FRÁ Lónsöræfum.
Lónsöræfi á
myndakvöldi
Utivistar
FYRSTA myndakvöld Útivistar á
nýbyrjuðu ári verður haldið annað
kvöld, fimmtudagskvöldið 11. janúar,
í Fóstbræðraheimilinu, Langholts-
vegi 109-111 og hefst það kl. 20.30.
Myndimar sem sýndar verða eru
úr Útivistarferð í Lónsöræfi dagana
28. júlí til 3. ágúst 1 sumar er leið.
Litskyggnurnar tóku þau Gunnar S.
Guðmundsson og Eyrún Jensdóttir.
Ferðahópurinn sem fór í þessa ferð
var mjög heppinn með veður í hinu
stórbrotna landslagi Lónsöræfa.
Litadýrð þeirra og hrikaleg fegurð
verður hveijum manni sem þangað
austur kemur ógleymanleg. f hléi
verður gengið að hinu rómaða Úti-
vistarhlaðborði.
Yorönn Leik-
mannaskóla
kirkjunnar
VORÖNN Leikmannaskóla þjóð-
kirkjunnar hefst 10. janúar nk. Skól-
inn, sem starfar á vegum Fræðslu-
deildar kirkjunnar í samvinnu við
guðfræðideild Háskóla íslands, býður
fjölbreytta fræðslu fyrir almenning
um kristna trú.
Meginnámskeið vetrarins er með
sama sniði og undanfarin ár.
Kennslugreinar á vorönn eru: Helgi-
siðir og táknmál kirkjunnar, kirkju-
saga, siðfræði og sálgæsla.
Kennt er á miðvikudögum kl.
20-22 í aðalbyggingu Háskóla ís-
lands, stofu 7. Auk þessa samfellda
KIN
-leikur að liera!
Vinningstölur 9. jan. 1996
8»13»17*20*25»26*30
Eldri úrslit á símsvara 568 1511
námskeiðs sem tekur yfir haust- og
vormisseri er boðið upp á styttri
námskeið þar sem fjailað er um
helstu trúarbrögð heims, skipulag
þjóðkirkjunnar, safnaðaruppbygg-
ingu, trúflokka og kirkjur. Þau eru
kennd á miðvikudögum kl. 18-20 í
aðalbyggingu Háskóla íslands, stofu
5. Innritun og nánari upplýsingar á
Biskupsstofu, Laugavegi 31.
Gengið með
suðurströnd
Reykjavíkur
H AFN ARGÖN GUHÓPURINN fer
frá Hafnarhúsinu kl. 20 miðvikudag-
inn 20. janúar og gengur tvær mis-
langar leiðir með suðurströnd
Reykjavíkur í Skeijafirði.
Gengið verður með Tjörninni, um
Hljómskálagarðinn og háskólahverf-
ið. Þar skilja leiðir. Þeir sem velja
lengri gönguleiðina fara yfir að
útilistaverkinu Björgun við Ægissíðu
og þaðan með ströndinni inn að nýju
göngubrúnni í Sundskálavík og það-
an með ströndinni inn að göngu-
brúnni. Þar skammt frá er svo hægt
að fara með SVR til baka.
Við blöndum
litinn...
DU PONT bflalakk notað af
fagmönnum um land allt
Er bíllinn þinn
grjótbarinn eða
rispaður ?
DU PONT lakk
á úðabrúsa er
meðfærilegt og
endingargott.
Faxafeni 12. Sími 553 8000
Framúrskarandi tVLS^'S
hönnun '
með þægindi
ökumanns í fyrirrúmi.
Gámagengur lyftari.
2, 2'h og 3 tonna lyftigeta.
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
’SM
SMIÐJUVEGI 70, KÓP. • SlMI 564 4711 ' FAX 564 4725
"y
- kjarni málsins!
Frábært námskeið fyrir byrjendur:
WSlÍöWS9Word og Excel
hk 96011
Tölvu- og verkfræöiþjónustan
jraðgjöf • námskeiö • útgáfa
Tölvuraðgjöf •
Grensásvegi 16 ■
útgáfa
sími 568 8090
| STJÖRNUNARNÁMSKEIÐ |
fyrir stjórnendur fyrirtœkja sem vilja
standa upp úr í samkeppninni, bjóða
upp á gœði og frábœra þjónustu.
I Upplý?:?Z 581 2411 |
0 STJÓRNUNARSKÓLINN
Einkaumboð á Islandi - Konráð Adotphsson j