Morgunblaðið - 20.02.1996, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1996 11
FRÉTTIR
Frystihús Ósvarar í Bolungarvík formlega tekið í notkun um helgina
Tálknafjörður
Ódýra heimilishjálpin!
Hómer er einfaldur og þægilegur „Windows" hugbúnaður, sérstaklega ætlaður fyrir heimilis-
bókhaldiö. Þú þarft ekki bókhaldsþekkingu til að nota hann, þú færir aðeins inn upphæð-
irnar og Hómer sér um framhaldið.
Hómer færðu í Búnaðarbankanum á 900 kr. og ef þú ert í Heimilislínunni kostar
hann aðeins 450 kr. Með Hómer veistu hvað þú átt - og hvað þú mátt!
Gleði og bjartsýni ríkti
hjá íbúum Bolungarvíkur
Bolungarvík. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/RAX
BOLVÍKINGAR fjölmenntu þegar nýtt frystihús Ósvarar var formlega tekið í notkun á laugardag.
AÐALBJÖRN Jóakimsson
ÞAÐ RÍKTI gleði og bjartsýni
meðal íbúa Bolungarvíkur er hrað-
frystihús Ósvarar var formlega
tekið í notkun sl. laugardag eftir
umtalsverðar breytingar og endur-
bætur. Eftir þessar breytingar er
frystihúsið í Bolungarvík meðal
fullkomnustu frystihúsa landsins.
• í ræðu sem Aðalbjörn Jóakims-
son aðaleigandi og framkvæmda-
stjóri Ósvarar flutti af þessu til-
efni kom fram að með þessum
breytingum gæfist kostur á að
uppfylla allar ströngustu kröfur
sem markaðurinn gerði til gæða
hveiju sinni og á þann veg einan
væri hægt að hámarka verðmæti
framleiðslunnar. Aðalbjöm sagðist
fullur bjartsýni á að ná því mark-
miði sem að væri stefnt en það
er að byggja upp öflugt sjávarút-
vegsfyrirtæki hér í Bolungarvík.
Það mætti hins vegar búast við
vindum úr öllum áttum en til að
sigrast á erfiðleikum þarf fyrst og
fremst tvennt að fara saman,
þekking Bolvíkinga á veiðum og
vinnslu sjávarafurða og nægt fjár-
magn.
Hið fyrra er til staðar og allt
bendir til þess að takast muni að
tryggja fjármagnið. Aðalbjörn
sagði að gerðar yrðu kröfur tii
stjórnenda og starfsfólks fyrirtæk-
isins því með því einu mætti ná
árangri.
Barátta til betri tíma
Ólafur Kristjánsson bæjarstjóri
flutti kveðju og árnaðaróskir til
fyrirtækisins fyrir hönd íbúa Bol-
ungarvíkur. Hann rakti í stuttu
máli þá baráttu sem Bolvíkingar
hafa háð frá því að fyrirtæki Ein-
ars Guðfinnssonar hf. fór í gjald-
þrot og þar til bæjarstjórn tók J)á
ákvörðun að selja hlut sinn í Os-
vör hf. til Bakka hf. í Hnífsdal í
maí 1995. Hann sagði að það sem
gert hefði verið væri allt í þá átt
að styrkja stoðir atvinnulífsins á
staðnum og það sé að koma betur
og betur í ljós að sú ákvörðun
bæjarstjórnar að selja hlut sinn í
Ósvör hafi verið rétt.
Einar Kristinn Guðfinnsson al-
þingismáður óskaði eigendum
fyrirtækisins til hamingju með
þetta glæsilega frystihús og sagði
ljóst að í Bolungarvík væru marg-
ir að taka höndum saman um
mikið verk og kvaðst sannfærður
um að atvinnulífið væri að komast
upp úr öldudal og það sem menn
hefðu tekist á við hér í Bolungar-
vík bæri vott um bjartsýni á fram-
tíð byggðarlagsins.
5.083 þorskígildistonn
á fjórum skipum
Rækjuvinnsla Ósvarar tók til
starfa fyrir fjórum mánuðum eftir
gagngerar breytingar og hefur
vinnsla þar gengið vel.
Þegar rækjuverksmiðjan fór í
gang í lok október var bolfisk-
vinnslan stöðvuð og framkvæmdir
hafnar við breytingar á vinnslu-
salnum, sem nú er lokið. Nú hefst
jafnframt bolfiskvinnsla í hinum
nýju og glæsilegu salarkynnum. Á
næstu dögum eru væntanlegir
sölufulltrúar frá Bretlandi hingað
til að gera úttekt á húsinu. Gert
er ráð fyrir að í Ósvör verði unnið
úr 3.500 tonnum af rækju á árinu
og um 6.000 tonnum af hráefni í
bolfiskvinnslunni, þar af 3.000
tonnum af þorski. Skip Ósvarar,
Vinur ÍS og Flosi ÍS, munu sjá
um hráefnisöflun fyrir bolfisk-
vinnsluna en Dagrún ÍS og Heiðr-
ún ÍS verða að mestu á rækjuveið-
um. Einnig verður keypt hráefni
á markaði eða með viðskiptum við
aðaleigandi og framkvæmda-
stjóri Ósvarar, Þorvarður
Gunnarsson, stjórnarformað-
ur, og Ágúst Oddsson, forseti
bæjarstjórnar Bolungarvíkur.
sjálfstæðar útgerðir. Ósvör hefur
yfir að ráða 5.083 þorskígildis-
tonnum á fjórum skipum félags-
ins. Nú þegar nýtt frystihús tekur
til starfa í Bolungarvík vantar um
80 manns til vinnu.
Sama dag og frystihús Ósvarar
var formlega opnað komu hingað
til Bolungarvíkur 12 pólskir físk-
verkamenn sem hefja munu störf
hjá Ósvör, fleiri Pólverjar eru
væntanlegir til fiskvinnslustarfa
hér í Bolungarvík þa_r sem ekki
hefur tekist að ráða íslendinga í
störf hjá fyrirtækinu þrátt fyrir
að ítrekað hafi verið auglýst eftir
fólki.
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
SAMKVÆMT könnun Hagvangs hf.
á meðal 1.200 Islendinga fyrir Ríkis-
útvarpið treysta 37,5% þeirra sem
svöruðu fréttastofu Ríkisútvarpsins,
Rás 1 og 2, best varðandi fréttir af
málefnum líðandi stundar.
Tekið var slembiúrtak 1.200 ís-
lendinga í janúar sl. og var hringt í
fólk á aldrinum 15 til 75 ára í könn-
uninni. Þegar búið var að draga frá
þá sem eru látnir, erlendir ríkisborg-
arar og búsettir erlendis, var nettó-
svarhlutfall 72,3%
Mikill munur eftir aldri
Samkvæmt niðurstöðum treysta
27,5% fréttastofu Rikissjónvarpsins,
10,6% fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgj-
unnar og 8,3% Morgunblaðinu. Ekki
þykir marktækur munur á þvi hve
margir nefna fréttastofu Stöðvar 2
Sveinn kjör-
inn sóknar-
prestur
SVEINN Valgeirsson guðfræðingur
var einróma kjörinn sóknarprestur
á Tálknafirði um siðustu helgi.
Voru 17 kjörmenn á kjörfundi og
greiddu þeir allir Sveini, sem var
eini umsækjandinn um brauðið, at-
kvæði sitt.
Sveinn verður vígður til starfa
næstkomandi sunnudag í Dómkirkj-
unni ásamt þeim Eðvarð Ingólfs-
syni, sem kjörinn hefur verið prest-
ur í Skinnastaðasókn í Öxarfirði,
og Arnaldi Bárðarsyni, sem hlaut
kosningu á Raufarhöfn.
----♦ ♦ ♦----
Síbrotamað-
ur í gæslu
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur úr-
skurðaði mann í 45 daga gæsluvarð-
hald um helgina, grunaðan um inn-
brot í Stykkishólmi í síðustu viku.
Samkvæmt upplýsingum Rann-
sóknarlögreglu ríkisins var maður-
inn handtekinn í haust og dæmdur
í héraði fyrir fjölda innbrota. Maður-
inn áfrýjaði dóminum til Hæstarétt-
ar, var þá látinn laus og hefur geng-
ið laus þar til nú að hann er handtek-
inn, grunaður um innbrot. Hann
verður í gæsluvarðhaldi til 3. apríl.
og Bylgjunnar og Morgunblaðið, en
marktækt færri nefna DV en Morg-
unblaðið.
Mikill munur er á afstöðu fólks
eftir aldri. Mun fleiri nefna frétta-
stofu Ríkisútvarpsins eftir því sem
fólk er eldra, en því er öfugt farið
með alla hina miðlana. Ef niðurstöð-
urnar eru greindar eftir aldri þeirra
sem tóku afstöðu, ber fólk á aldrinum
50-75 ára mest traust til fréttastofu
Ríkisútvarpsins, eða 62,7% þeirra
sem tóku afstöðu, en minnst traust
til DV eða 0,5%. Hins vegar bera
2,3% þeirra sem eru á aldrinum
15-29 ára traust til DV, 17,1% til
Morgunblaðsins, 22,5% til fréttastofu
Stöðvar 2 og Bylgjunnar, 36,5% til
fréttastofu Ríkissjónvarpsins og
21,2% til fréttastofu Ríkisútvarpsins.
Treysta RÚV best
HEIMILISLÍNAN
BÚNAÐARBANKINN
- traustur heimilisbanki