Morgunblaðið - 07.03.1996, Side 32
32 FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
SKÓLAKEPPIMI
Danskeppni Dansskóla
Heiðars Astvaldssonar
inn, hvort heldur sem er á gólfinu
eða uppi í stúkum. Annars gekk
keppnin hratt og vel fyrir sig í
flesta staði og var henni lokið vel
fyrir klukkan 16. Dómarar stóðu
sig ágætlega að mínu mati og
mjög fátt sem kom á óvart að
þessu sinni og held ég að flestir
hafi farið sáttir heim.
Jóhann Gunnar Arnarsson
Úrslit
DANS
íþröttahúsið á
Scltjarnarncsi
DANSKEPPNI
Danskeppni Dansskóla Heiðars Ást-
valdssonar í íþróttahúsinu á Sel-
tjamarnesi sunnudaginn 3. mars,
klukkan 12.
SÍÐASTLIÐINN sunnudag stóð
Dansskóli Heiðars Ástvaldssonar
fyrir danskeppni í íþróttahúsinu á
Seltjamarnesi. Skólakeppni, sem
þessi, hefur verið að færast í vöxt
síðustu tvö árin og er þetta þriðja
slíka keppnin sem haldin er í vetur.
Að þessu sinni var megináherzl-
an lögð á keppni með grunnspor-
um og voru þar reiknuð út saman-
lögð stig úr bæði suður-amerísk-
um dönsum og standarddönsum,
en „frjálsu" riðlarnir kepptu í öll-
um standarddönsunum. Rétt tæp-
lega hundrað pör voru skráð til
keppninnar, sem er nokkuð minna
en hefur verið í öðrum skólakeppn-
um, en það stafar hugsanlega af
því að um næstu helgi eru þrjár
Islandsmeistarakeppnir; í 8 og 10
dönsum, gömlum dönsum og
rokki.
Fyrstir á gólfið voru C/D-riðlar
í yngstu flokkunum. Þama eru á
ferðinni ungir keppendur sem
margir hveijir eru nýbyijaðir að
stunda dansinn sem keppnisíþrótt
og leyndi áhugi og einbeitnin sér
ekki í andlitum ungmennanna á
gólfinu.
A- og B-riðlarnir vora þá næst-
ir á gólfið, þessir riðlar dönsuðu
nokkuð vel á sunnudaginn og
sýndu hreint ágætan dans. Ég var
sérstaklega ánægður með þá
framför sem yngstu hópamir hafa
verið að sýna í standarddönsunum,
en suður-amerísku dansarnir hafa
löngum verið og eru enn sterkari
greinin hjá þessum keppendum
flestum, en það fer vonandi að
breytast eitthvað. Sérstaklega
fannst mér mikil framför hjá
—>flokki 9 ára og yngri í A-riðli, en
þar sigruðu Gylfi Aron og Helga
verðskuldað, einnig var mjög gam-
an að horfa á 10-11 ára, A-riðil,
en þar sigraðu Davíð Gill og Hali-
dóra Sif, verðskuldað, en þau
dönsuðu nýlega í 12 para úrslitum
í standarddönsum í opnu Kaup-
mannahafnarkeppninni. Sturlaug-
ur o g Aðalheiður áttu einnig ágæt:
an dag, en höfnuðu í öðra sæti. í
A-riðli í flokki 12-13 ára sigruðu
Gunnar og Bryndís, með mjög
öruggum og góðum dansi, parið í
öðru sæti, Hannes og Linda, stóðu
sig ekki síður vel og hafa eflaust
ekki verið langt undan. Sigurveg-
► ararnir í öllum þessum flokkum
voru að mínu mati öruggir í sínum
sætum, og áttu þau svo sannar-
lega sigurinn skilinn, og svo var
einnig um eldri flokkana með
grunnaðferðinni.
Með fijálsri aðferð var einungis
keppt í standarddönsunum, en
þeir hafa því miður legið á hakan-
um oft á tíðum og finnst mér
gott að keyra þá svolítið upp núna.
Það er margsannað mál að við
íslendingar eigum dansara á
heimsmælikvarða í suður-amer-
"► 'ísku dönsunum og er það vonandi
að meiri áherzla verði lögð á
standarddansana í framtíðinn, því
ég efast ekkert um það að þar er
óplægður akur fyrir okkar frá-
i bæra dansfólk.
í flokki 12-13 ára sigruðu
Gunnar Hrafn og Ragnheiður
^ mjög verðskuldað, en fast á hæ!a
þeirra fylgdu Skapti og Ingveldur,
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
EYÞÓR Gunnarsson og Berglind Petersen-dönsuðu vel um helgina
og unnu til silfurverðlauna í flokki 14-15 ára með grunnaðferð.
sem komu ákaflega sterk til leiks
í standarddönsunum og hefur
þeim farið mikið fram og sýndu
þau feikigóðan dans.
Þau Sigursteinn Stefánsson og
Elísabet Sif Haraldsdóttir sigruðu
í flokki 14-15 ára, en þau era
nýkomin heim úr stórri keppni í
Kaupmannahöfn, þar sem þau
komust í 12 para úrslit í stand-
arddönsum í sínum flokki. í öðra
sæti lentu Eyþór og Berglind, þau
era mjög hratt vaxandi par og
GUNNAR Hrafn Gunnarsson og Ragnheiður Eiríksdóttir gerðu það gott um
helgina og sigruðu í flokki 12-13 ára, með frjálsri aðferð.
HÉR eru Gunnar Már Jónsson og Anna Claessen
í léttri sveiflu.
DAVÍÐ Gill Jónsson og Halldóra Sif Halldórs-
dóttir eru efnilegir dansarar og framtíðin er svo
sannarlega þeirra, en þau sigruðu í flokki 10-11
ára, A-riðli, með grunnaðferð.
sýndu góða takta á dansgólfinu á
sunnudaginn, en þau eru einnig
nýkomin heim frá Kaupmanna-
höfn þar sem þau voru aðeins
hársbreidd frá því að komast í 12
para úrslit í standarddönsunum.
í flokki 16 ára og eldri sigruðu
systkinin Árni Þór og Erla Sóley
með miklum yfirburðum og komst
ekkert par nærri þeim. í öðru
sæti voru Þorvaldur og Jóhanna
Ella og dönsuðu þau ágætlega,
en þau geta þó dansað miklu bet-
ur og gera það vonandi um næstu
helgi.
Iþróttahúsið á Seltjarnarnesi
hentar ágætlega fyrir svona
keppni og er mátulega stórt. Að
mínu mati þarf þó að vera
öflugra hljóðkerfi í húsinu
svona til að koma
meiri stemmningu
í mannskap-
9 ára og yngri, A-riðill
1. Gylfi Aron Gylfason/Helga Bjömsdóttir
DHR
2. Jónatan Örlygsson/Bryndís María
Bjömsdóttir DJK
3. Stefán Claessen/Erna Halldórsdóttir
DJK
9 ára og yngri, B-riðill
1. Gunnar Kristjánsson/Anna María Art-
hursdóttir DHR
2. Baldur Kári Eyjólfsson/Sóley Emilsdóttir
DJK
3. Brynjar Þór Jakobsson/Elín Dröfn Ein-
arsdóttir DJK
9 ára og yngri C/D-riðill
1. Benedikt Þ. Ásgeirsson/Tinna Rut Pét-
ursdóttir DSH
2. íris Rós Óskarsdóttir/Ólöf Katrín Þórar-
insdóttir DJK
3. Bára Bragadóttir/Thelma Dögg Ægis-
dóttir DHÁ
10-11 ára, A-riðill
1. Davíð Gill Jónsson/Halldóra Sif Halldórs-
dóttir DJK
2. Sturlaugur Garðarsson/Aðalheiður Sig-
fúsdóttir ND
3. Guðni Rúnar Kristinsson/Helga Dögg
Helgadóttir DSH
10-11 ára, B-riðill
1. Hafsteinn Már Hafsteinsson/Lilja Rut
Þórarinsdóttir DSH
2. Conrad McGreal/Kristveig Þorbergsdótt-
ir DSH
3. Tryggvi Helgason/María Fönn Þórsdótt-
ir DHA
10-11 ára, C/D-riðili
1. Guðbjörg Hafsteinsdóttir/Sæunn Kjart-
ansdóttir DJK
2. Bergrún Stefánsdóttir/Ingunn Ósk Bene-
diktsdóttir DJK
3. Ástrós Jónsdóttir/Elva Arnarsdóttir ND
12-13 ára, A-riðill
1. Gunnar Þór Pálsson/Bryndís Símonar-
dóttir DHR
2. Hannes Egilsson/Linda Heiðarsdóttir
DHR
3. Eyþór Atli Einarsson/Auður Haralds-
dóttir DHÁ
12-13 ára C/D-riðlar
1. Sigrún Ösp Siguijónsdóttir/Tinna Ingi-
bergsdóttir DAH
2. Osk Kjartansdóttir/Berglind Arna Stef-
ánsdóttir DHÁ
3. Hafrún Ægisdóttir/Kolbrún Þorsteins-
dóttir ND
12-13 ára, frjáls aðferð
1. Gunnar Hrafn Gunnarsson/Ragnheiður
• Eiríksdóttir DSH
2. Skapti Þóroddsson/Ingveldur Lárusdóttir
ND
3. Haraldur Anton Skúlason/Sigrún Ýr
Magnúsdóttir DAH
14-15 ára, A-riðill
1. Victor Knútur Victorsson/Ásta Björns-
dóttir DHÁ
14-15 ára, B/C-riðill
1. Guðrún Halla Hafsteinsdóttir/Þórey
Gunnarsdóttir DHÁ
2. Hrönn Margrét Magnúsdóttir/Laufey
Árnasóttir DJK
3. Bjarki Steingrímsson/Klara Steingríms-
dóttir DHÁ
14-15 ára, ftjáls aðferð
1. Sigursteinn Stefánsson/Elísabet Sif
Haraldsdóttir DJK
2. Eyþór Gunnarsson/Berglind Pet-
ersen DSH
3. Kristinn Sigurbergsson/Védís
Sigurðardóttir DHR
16 ára og eldri, A-riðill
1. Magnús Ingimundarson/Þórunn
Kristjánsdóttir DHÁ
16 ára og eldri, B-riðill
1. Snorri Ottó Vídal/Anna Rós Sigmunds-
dóttir DAH
16 á_ra og eldri, frjáls aðferð
1. Árni Eyþórsson/Erla Sóley Eyþórs-
dóttir DHR
2. Þorvaldur S. Gunnarsson/Jóhanna
Ella Jónsdóttir DAH
3. Victor Victorsson/Anna Björk
1 Jónsdóttir ND