Morgunblaðið - 27.03.1996, Page 16

Morgunblaðið - 27.03.1996, Page 16
16 MIÐVIKUDAGUR 27. MARZ 1996 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Bretar í baráttu gegn öðrum þ.jóðum ESB vegna kúariðu Óljóst hvort bann nær til alls nautakjötsútflutnings Brussel, London. Reuter, The Daily Te- legraph. Reuter WILLIE McLean, bóndi í Stirlingshire í Skotlandi, ræktar nautgripi af Angus-kyni en kjötið af þeim er í miklum metum. Nú hefur eftirspurnin eftir þessu úrvalskjöti þorrið eins og eftir öðru nautakjöti í Bretlandi. kann hana ekki utan að,“ sagði van Lýðræði efltí austri SEX nýfrjáls ríki í Mið- og Austur-Evrópu, sem gengið hafa í Evrópuráðið síðustu ár- in, hafa ekki enn staðfest mannréttindaákvæði ráðsins, að sögn Daniels Tarschys, að- alframkvæmdastjóra ráðsins, á blaðamannafundi í gær. Hann sagði ráðið aðstoða um- rædd ríki eftir föngum við að treysta nýfengið lýðræðið í sessi, m.a. með ráðgjöf við lagasetningu. Ástandið í þess- um löndum væri að mörgu leyti viðkvæmt vegna skorts á lýðræðishefðum, snögg um- skipti ættu sér stað. „Auðvitað má segja að ástand mannrétt- indamála versni að meðaltali í samtökunum við inngöngu nýrra aðildarríkja en markm- iðin eru óbreytt," sagði Tarsc- hys. Hann sagði að hægt væri að grípa til ýmiss konar þrýst- ings gagnvart ríkjum sem ekki hlíttu lögum ráðsins en þrauta- ráðið væri brottvísun. Tarschys var áður prófessor og þingmaður í Svíþjóð. Hann er hér á landi í boði Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráð- herra og ræddi auk þess í gær við forseta íslands, Vigdísi Finnbogadóttur, forsætisráð- herra, Davíð Oddsson og fleiri ráðamenn um starf og fram- tíðarverkefni Evrópuráðsins. Á myndinni sést Tarschys (fyr- ir miðju) á blaðamannafundin- um, t.h. er Sverrir Haukur Gunnlaugsson, sendiherra Is- lands í Brussel. BRESKIR sérfræðingar í dýra- lækningum reyndu í gær að fá starfsbræður sína frá hinum Evr- ópusambandsríkjunum 14 til að hverfa frá banni við innflutningi á breskum nautgripaafurðum vegna kúariðu en ákveðið var að halda banninu til streitu. Að sögn Franz Fischlers, sem fer með land- búnaðarmál í framkvæmdastjórn ESB, mega Bretar ekki heldur flytja út nautgripaafurðir til landa utan sambandsins og mun markm- iðið vera að hindra smygl á bresku kjöti til sambandsríkjanna. Sé því í reynd um útflutningsbann að ræða. Enn mun vera óljóst hvort laga- legur grundvöllur er fyrir svo víð- tæku banni, stjórnvöld í London telja auk þess að bannið byggist ekki á vísindalegum grunni. Segja þau að hin ESB-ríkin hafi iátið stjórnast af fjölmiðlafári og þröng- um viðskiptasjónarmiðum en sala á nautakjöti hefur snarminnkað í Bretlandi. Margir óttast að sams konar þróun geti orðið annars stað- ar ef ekki tekst að slá á ótta al- mennings með harkalegum aðgerð- um, einkum niðurskurði búijár. Nikolaus van der Pas, talsmaður framkvæmdastjórnarinnar, gat á blaðamannafundi í gær ekki út- skýrt hvaða lagagreinar hefðu legið að baki ákvörðun sérfræðinga- nefndarinnar. „Ég er viss um að til er einhver lagagrein hjá samband- inu sem við getum stuðst við en ég OTTINN við kúariðu, sem nú tröllríður öllu, er ekki fyrsta málið sinnar tegundar þótt það kunni raunar að hafa meiri efna- hagslegar afleiðingar en nokkru sinni fyrr. Neytendur hafa áður snúið baki við ýmsum matvörum, að minnsta kosti um stundar sak- ir, vegna ótta við sýkingu eða eitrun og fer hér á eftir listi yfir nokkur slík mál: • Talið er, að listeria, veira, sem berst með ógerilsneyddri mjólk og sumum heimagerðum ostum, hafi valdið dauða 20 manna 1992 og tveimur dauðsföllum og um 50 sýkingum fram til 1995. Er sýkingin einkum hættuleg ófrísk- um konum, börnum og öldruðu fólki. Vart verður við nokkur hundruð einangruð tilfelli í Frakklandi ár hvert. der Pas. Hann bætti því við að um væri að ræða álit nefndarinnar en ekki ákvörðun framkvæmdastjórn- arinnar sem slíkrar um útflutnings- bann. Viðstaddir fréttamenn gerðu sumir hróp að talsmanninum vegna þessara ummæla. John Major, forsætisráðherra Bretlands, hringdi í Jacques Santer, forseta framkvæmdastjórnar ESB, á mánudag er hann frétti af banni dýralæknanefndar sambandsins og lýsti furðu sinni á þessari ákvörðun. Tókst Major að fá því framgengt að sérfræðinganefndin fjallaði á ný um málið í gær og jafnframt mun • 1993 kom upp mikill ótti við eiturefnið patúlín, sem getur valdið krabbameini, en þá vitnað- ist, að árið áður hafði það fund- ist í átta sinnum meira magni en leyfilegt er í breskum eplasafa. Yfirvöld og iðnaðurinn sjálfur létu þó ekkert af því vita en sett- ar voru nýjar reglur um fram- leiðsluna. • Franska fyrirtækið, sem framleiðir Perrier-ölkelduvatn- ið, tapaði hundruðum milljóna kr. 1990 þegar í ljós kom, að í framkvæmdastjórnin ræða það á fundi sínum í dag. Bresk verðbréf hafa fallið undan- farna daga vegna kúariðumálsins sem hefur skaðað mjög álit bresku stjórnarinnar. Segja sumir Ijölmiðl- ar að ráðherrar Majors hafi haldið svo klaufalega á málum að þeir hafi gert út um vonir íhaldsmanna um sigur í næstu þingkosningum. Frakkar draga íland Um 150 naut voru felld í Frakk- landi á mánudag vegna gruns um riðu. Frakkar voru fyrstir allra til að banna innflutning á bresku nau- takjöti en í gær virtust vera komn- vatninu fannst örlítið benzen en talið er, að það geti valdið krabbameini. • Eggjasala hrundi í Bretlandi þegar Edwina Currie, aðstoðar- heilbrigðisráðherra, sagði, að flest bresk egg væru sýkt af salmonellu. Árið áður höfðu 23 manneskjur látist vegna salmon- ellusýkingar úr eggjum en bænd- ur sögðu, að hættan væri hverf- andi og ummæli Currie óafsakan- leg. Sagði hún af sér og breska sljórnin lagði fram hátt í fjóra ar vöflur á þá. Hétu frönsk stjórn- völd Bretum fullum stuðningi við að kveða niður uppnámið vegna kúariðunnar og sögðust myndu styðja þá í ESB færu Bretar fram á það. Ljóst þykir að verði Bretar að láta undan og fella verulegan hluta af nautgripum sínum munu þeir krefjast bóta af hálfu ESB enda um gífurlegt tjón að ræða. Verði eingöngu ákveðið að slátra tiltölu- lega gömlum gripum, sem taldir eru hættulegastir, myndi samt vera um að ræða tjón er nemur fimm millj- örðum punda eða um 500 milljörð- um króna. milljarða kr. til að bæta skaðann. • Nokkrir austurrískir vínkaup- menn voru dæmdir fyrir að hafa blandað frostlegi út í ódýr vín 1985 til að gefa þeim fyllingu. Utflutningur á austurrískum vín- um minnkaði mikið en það hafði hins vegar miklu minni áhrif þegar upp komst, að ítalskir vín- kaupmenn höfðu blandað metan- óli í vínið sitt. Það dró 21 mann til dauða. • 1981 kom á markað á Spáni menguð iðnaðarolía, sem seld var sem matarolía. Olli það dauða meira en 400 manna. Voru 13 kaupmenn dæmdir fyrir verkn- aðinn. • Gin- og klaufaveiksfaraldur kom upp í Bretlandi 1967 og var þá slátrað 400.000 gripum, naut- gi-ipum, sauðfé, geitum og svín- um. London. Reuter. Mörg dæmi um ótta við eitraðan mat Rádherrafundur Framsóknarfélag Reykjavíkur og Samband ungra framsóknarmanna standa fyrir hádegisfundi með Ingibjörgu Pálmadóttur, heilbrigðis og tryggingamálaráðherra miðvikudaginn 27. mars kl. 12.00 á Litlu Brekku Bankastræti 2. llll Allir velkomnir FR og SUF Framsóknarflokkurinn Reuter Albertshöllin 125 ára í gær var haldið upp á afmæli Alberts-sýningahússins í London en þá voru 125 ár liðin frá vígslu þess. Húsið er kennt við Albert prins, eiginmann Viktoríu Breta- drottningar. Frægir listamenn mættu í afmæliskaffið og þá var tertan, sem minnir á húsið sjálft, snædd. Meðal þeirra sem fengu sneið voru fiðlusnillingurinn Ye- hudi Menhuin (t.h.) og grínistinn Vitoria Wood (t.v.). Nastase í forystu Búkarest. Reuter. VICTOR Ciorbea, fyrrverandi kommúnisti og dómari, tilkynnti á mánudag að hann yrði í framboði gegn Ilie Nastase, tennisstjörnunni fyrrverandi, í borgarstjórakosning- unum í Búkarest í næsta mánuði. Samkvæmt nýjustu skoðana- könnunum hefur Nastase náð miklu forskoti í kosningabarátt- unni. Fylgi hans er 47% og tvöfalt meira en Ciorbea, sem er miðju- maður og andstæðingur Ions Iliesc- us forseta. Nastase, sem er fimmtugur og hefur búið í New York og París, nýtur stuðnings stjórnarinnar og hefur lofað að „fylla upp í holurnar á götunum með dollurum". Ciorbea er jarðbundnari í málflutningi sín- um og lofar umbótum í húshitun- ar-, vatns- og samgöngumálum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.