Morgunblaðið - 27.03.1996, Side 19

Morgunblaðið - 27.03.1996, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ TÓNLIST Norræna húsiö LJÓÐATÓNLEIKAR Guðrún Edda Gunnarsdóttir og Iw- ona Jagla fluttu söngva eftir Jórunni Viðar, Hildigunni Rúnarsdóttur, Pál ísólfsson, Markús Kristjánsson, Faure, Strauss, Caplet, Ibert og Jolui Musto. Sunnudagurinn 24. mars, 1996 GUÐRÚN Edda Gunnarsdóttir starfar ekki eingöngu við söng, er tölvunarfræðingur og hefur einnig aflað sér góðrar tónlistarmenntun- ar og hefur góða og vel þjálfaða rödd en hættir til að ofgera í túlk- un og þar með þvinga röddina nokkuð. Hún hóf tónleikana með lagi Jórunnar Viðar, Unglingurinn í skóginum, sem var fallega sungið en þar á eftir komu tvö lög eftir Hildigunni Rúnarsdóttur, Líf og ljóð og Meloditimen, geðþekk lög, Burtfarar- próf í píanóleik ÓLAFUR Reynir Guðmundsson lýkur burtfararprófi frá Nýja tón- listarskólanum með tónleikum í Gerðubergi fimmtudaginn 28. Ólafur er nemandi Rögn- valds Siguijóns- sonar og heldur hann utan til framhaldsnáms í píanóleik og einnig til lög- fræðináms að hausti. Verkefnin sem Ólafur leik- ur á tónleikun- um í Gerðubergi eru tvær fúgur eftir J.S. Bach, sonata í a-moll, K 310 eftir W.A. Mozart, tvær prelúdíur eftir Cl. Debussy, tvær preludíur eftir Rachmaninoff og Ballade op. 47 í As-dúr eftir Fr. Chopin. Tónleikarnir eru öllum opnir og aðgangur er ókeypis. Laugardaginn 30. mars kl. 14 verða 8. stigs píanópróftónleikar sem fara fram í sal skólans á Grensásvegi 3. Sigmar Karl Stef- ánsson leikur þar tæplega 60 mín- útna langa efnisskrá. Þessir tónleikar eru einnig öllum mars kl. 20.30. Ólafur Reynir Guðmundsson ♦ ♦ » Verk Hamish Fulton á Annarri hæð OPNUÐ hefur verið sýning á verk- um Hamish Fulton í sýningarsaln- um Önnur hæð, Laugavegi 37. Hamish er fæddur í Englandi og hefur síðustu áratugi gert verk er tengjast göngum hans um stijálbyggð svæði. Verk hans voru fyrst aðallega í formi ljósmynda, en eru nú æ oftar í formi málaðra texta. I kynningu segir: „Listamaður- inn dvelur í náttúrunni án þess að raska henni á nokkurn hátt. Þetta mun vera áttunda ferð hans hingað til lands. Fyrir þessa sýn- ingu dvaldist listamaðurinn í Haf- ursey á Mýrdalssandi í sjö daga og sjö nætur og mun hann sýna verk tengd þeirri reynslu.“ Sýningin er opin á miðvikudög- um frá kl. 14-18 eða eftir sam- komulagi út maí eða fram að Listahátíð, en þá verður opnuð önnur sýning á verkum Carl Andre. MIÐVIKUDAGUR 27. MARZ 1996 19 LISTIR Haminn söngur er Guðrun söng af innileik. Kossa- vísur eftir Pál ísólfsson og Kvöld- söngur eftir Markús Kristjánsson voru í heild vel flutt. Eins og fyrr segir er söngur Guðrúnar nokkuð haminn og túlk- unin bæld, eins henni sé mikið niðri fyrir. Þetta merkir ekki að Guðrún geti ekki sungið öðruvísi, heldur er hér um viðhorf að ræða gagn- vart túlkun og tónmótun, sem margir tengja ljóðasöng, að ekki megi syngja út í slíkri tónlist. Um þetta má deila en hálfeinkennilegt þætti slíkt viðhorf í hljóðfæraleik. Hvað sem þessu líður var söngur Guðrúnar Eddu sérlega yfirvegað- ur, er kom hvað best fram í þrem- ur lögum eftir Faure, Mandoline, En sourdine og Green og einnig í fjórum lögum eftir Strauss, Traum durch die Dámmerung, All mein Gedanken, Die Nacht og Stánchen. Eftir hlé voru frönsk lög á efnis- skránni, fyrst La Croix Doulour- euse, eftir André Caplet (1878- 1925), franskan hljómsveitarstjóra og tónskáld er var undir áhrifum af Debussy og reyndar vinur hans. Hann samdi m.a. nokkuð af söng- verkum og þar á meðal oratoríuna Miroir de Jesus. Ekki man undirrit- aður eftir að hafa heyrt verk eftir hann á tónleikum hér. Kross sárs- aukans, eins og lagið nefnist í efn- isskrá er sterkt harmljóð, er var sérlega vel túlkað af Guðrúnu Eddu. Ljóðaflokkurinn La Verdure dorée, eftir Ibert, er frekar litlaus en samt margslunginn að gerð og þarf áreiðanlega að flytja þennan langdregna lagaflokk með meiri tilþrifum í lit og hraða, til að hann verði ekki sérlega leiðinlegur. Tónleikunum lauk með fjórum lögum eftir John Musto, er nefnast Shadow of the Blues. Þetta eru lítilfjörlegar tónsmíðar, sem þarf þessvegna að leika með miklum tilþrifum, nema annað lagið, Lit- any, sem er falleg tónsmið og var flutt af innileik. Guðrún Edda Gunnarsdóttir er góð söngkona en sú leið í túlkun sem hún valdi nú var allt of ham- in, sérstaklega er varðar mótun raddarinnar og bælda túlkun, sem getur verið áhrifamikil, sem and- stæða við fullan hljóm raddarinn- ar, sem Guðrún Edda sýndi á köfl- um, að hún á til í raddsjóði sínum. Samleikari Guðrúnar, Iwona Jagla, gerði margt fallega, þó Stánchen eftir Strauss léki henni ekki alls kostar í hendi, en allt annað vel af hendi leyst. Jón Ásgeirsson BIODROGA Llfrænar jurtasnyrtivörur Engin auka ilmefni. BIODROGA Fermingarhlaöborö Súkkuiaöi- og páskaskraut ítaiskir réttir Forréttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.