Morgunblaðið - 27.03.1996, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 27. MARZ 1996 35
FRETTIR
í FREMRI röð f.v. standa verðlaunahafarnir Stefán Freyr Guð-
mundsson, Flensborg, Kári Ragnarsson, MH, og Sveinn B. Sig-
urðsson, MR. í aftari röð standa þrír af bakhjorluni keppninn-
ar, Jónas Frímannsson, verkfræðingur hjá Istaki, Birgir Isleifur
Gunnarsson seðlabankastjóri og Eggert Briem, stjórnarformað-
ur Raunvísindastofnunar.
Stærðfræðikeppni
framhaldsskólanema 1995-1996
Kári Ragnarsson
sigurvegari
Fundur um
réttindi
sjúklinga
Á ALÞINGI hefur verið lagt fram
frumvarp um réttindi sjúklinga.
Markmið frumvarpsins er að
tryggja sjúklingum tiltekin réttindi
í samræmi við almenn mannréttindi
og mannhelgi og styrkja þannig
réttarstöðu þeirra gagnvart heil-
brigðisþjónustunni. Ennfremur er
frumvarpinu ætlað að treysta þær
grundvallarreglur um trúnaðarsam-
band sem ríkja skal milli sjúklinga
og starfsfólks í heilbrigðisþjónustu.
Af þessu tilefni hafa Félag ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga, Félag
um heilbrigðislöggjöf og Læknafé-
lag íslands ákveðið að efna til sam-
eiginlegs fundar til að kynna frum-
varpið og þau nýmæli sem í því
felast.
Frummælendur verða Dögg Páls-
dóttir, hæstaréttarlögmaður,
Ástríður Stefánsdóttir, læknir, Lov-
ísa Baldursdóttir, hjúkrunarfræð-
ingur og Sigurður Helgason, hæsta-
réttarlögmaður.
Fundurinn verður haldinn
fimmtudaginn 28. mars kl. 20.30 í
húsakynnum Læknafélags Islands
að Hlíðasmára 8, Kópavogi, 4. hæð
og er opinn öllum.
Árshátíð Kína-
klúbbs Unnar
KÍNAKLÚBBUR Unnar heldur árs-
hátíð sína í fyrsta sinn í ijögurra ára
sögu klúbbsins föstudaginn 29. mars.
Hátíðin verður haldin á veitingahús-
inu Shanghæ, Laugavegi 28, og hefst
kl. 18, en tilkynna þarf þátttöku til
veitingahússins.
Fyrir utan skemmtidagskrá í kín-
verskum anda og kínverskan hátíð-
arkvöldverð mun Unnur Guðjóns-
dóttir kynna næstu hópferð til Kína
sem farin verður í maí og verður það
eina ferðin sem farin er þangað í ár.
Árshátíðin er opin öllum bæði þeim
sem farið hafa til Kína og þeim sem
eiga það eftir.
Aðalfundur
BÍ í kvöld
AÐALFUNDUR Blaðamannafélags
íslands verður haldinn í húsnæði
félagsins í Síðumúla 23 í Reykjavík
í> kvöld, miðvikudaginn 27. mars,
og hefst kl. 20.
Að aðalfundinum loknum verður
haldinn sérstakur umræðufundur
um frumvarp til upplýsingalaga
sem Alþingi hefur nú til meðferðar.
Fyrir aðalfundinum liggja meðal
annars tillögur um breytingar á
iögum félagsins auk kosninga og
annarra hefðbundinna aðalfunda-
starfa.
J.J. Soul á
Kringlukránni
HLJÓMSVEITIN breska blúsöngv-
arans J.J. Soul leikur miðvikudaginn
27. mars á Kringlukránni.
Auk J.J. Soul, sem syngur og leik-
ur á munnhörpu, leika þeir Ingvi Þór
Kormáksson á píanó, Steingrímur
Óli Sigurðarson á trommur, Eðvarð
Lárusson á gítar og Stefán Ingólfs-
son á bassa. Tónlist þeirra félaga er
oft kölluð bræðingur, þ.e.a.s sam-
suða djass-, rokk- og blústónlistar.
Tónlistarflutningur J.J. Soul hefst
kl. 22 og stendur fram yfir miðnætti.
Myndbanda-
kvöld hjá LAUF
LAUF, Landssamtök áhugafólks um
flogaveiki, heldur myndbanda- og
kaffikvöld fimmtudaginn 28. mars
kl. 20. á Laugavegi 26, 4. hæð,
(gengið inn Grettisgötumegin).
Sýnd verða fræðslumyndbönd um
flogaveiki í eigu félagsins. Kaffi og
spjall á eftir. Allir velkomnir.
LAUGARDAGINN 3. mars var
haldin stærðfræðikeppni í Há-
skóia Islands. Þar öttu kappi 35
ungmenni í úrslitum Stærðfræði-
keppni framhaldsskólanema.
Keppni þess hefur verið haldin í
12 ár og er opin öllum nemendum
framhaldsskólanna.
Síðastliðið haust mættu 746
nemendur úr 17 skólum til leiks
í forkeppni og unnu 40 þeirra
sér rétt til að taka þátt í úrslitun-
um nú. Fyrir keppendur voru
lágðar 6 þrautir og fengu þeir 4
tíma til þess að leysa þær. Sigur-
vegari var Kári Ragnarsson, MH.
Hann sýndi töluverða yfirburði í
keppninni og leysti allar þraut-
irnar nánast á fullkominn hátt.
Úrslit voru tilkynnt sunnudag-
inn 24. mars. í fimmtán efstu
sætunum voru:
1. Kári Ragnarsson, MH.
2. Stefán Freyr Guðmundsson,
Flensborg.
3. Sveinn B. Sigurðsson, MR.
4. Þórður Heiðar Þórarinsson,
MR.
5. Magnús Þór Torfason, MR.
6. Pétur Runólfsson, FSlands.
7. Hannes Helgason, Flens-
borg.
8. Þórdís Linda Þórarinsdóttir,
LANDSSAMTÖKIN Þroskahjálp í
samvinnu við Kennaraháskóla ís-
lands, Háskóla íslands og Fulbright
stofnunina á íslandi hafa boðið hing-
að til lands tveimur erlendum fræði-
mönnum um málefni fatlaðra, þeim
Anders Gustavsson, dósent við Há-
skólann í Stokkhólmi, og Robert
Bogdan, prófessor í félags- og sér-
kennslufræðum við Háskólann í
Syracuse.
Anders Gustavsson mun halda
fyrirlestur fimmtudaginn 28. mars
kl. 20.30 í Skála, Hótel Sögu, þar
sem fjallað verður um rannsókn hans
á því ferli sem foreldrar fatlaðra
barna takast á við vegna sérstæðrar
foreldraábyrgðar. Jafnframt verður
ijallað um þau mótandi áhrif sem
starfsfólk félags- og heilbrigðisþjón-
ustu hefur á aðstæður foreldra. Fyr-
irlesturinn verður fluttur á sænsku
en verður snarað á íslensku.
Föstudaginn 29. mars frá kl.
13-17 standa Landssamtökin
Þroskahjálp fyrir málþingi undir heit-
inu Hvernig vegnar fötluðum úti í
samfélaginu? Þar munu báðir gest-
irnir tala. Málþingið verður haldið í
Háskólabíói sal 4. Ráðstefnugjald er
1.000 kr.
9. Bjarni R. Einarsson, MH.
10. Finnbogi Óskarsson, Flens-
borg.
11. -13. Einar Guðfinnsson,
MR.
11.-13. Gísli Harðarson, MA.
11.-13. Jón Thoroddsen, MR.
14.-15. Gunnar Geir Gunnars-
son, MR.
14.-15. Kristján Rúnar Krist-
jánsson, MR.
Tíu efstu keppendunum verð-
ur boðið að taka þátt í tíundu
norrænu stærðfræðikeppninni,
sem fram fer 11. apríl næstkom-
andi. Að henni lokinni verður
landslið Islands valið, sem keppir
á Ólympíuleikunum í stærðfræði
í Bombay á Inglandi næsta sum-
ar.
Félag raungreinakennara og
íslenska stærðfræðafélagið
standa að keppninni og þjálfa
landsliðið. ístak hf. og Steypu-
stöðin hf. veita þremur efstu
keppendum í úrslitakeppninni
peningaverðlaun og standa
straum af kostnaði við keppnina.
Raunvísindastofnun Háskólans
leggur til aðstöðu og stendur
straum af kostnaði við þjálfun
nemenda. Menntamálaráðuneyt-
ið og Seðlabanki íslands styrkja
landsliðið til Indlandsfararinnar.
Þar mun Anders Gustavsson flytja
tvo fyrirlestra, sá fyrri tjallar um
rannsókn á viðbrögðum nágranna
við sambýli fatlaðra í íbúðarhverfinu.
Rannsóknin var tvíþætt, annars veg-
ar var könnuð reynsla starfsfólks á
sambýlum af því hvernig nágrnannar
höfðu tekið íbúum sambýlanna.
Rannsókn þessi náði til allra sam-
býla í Svíþjóð árið 1987. Seinni hluti
rannsóknarinnar var fólginn í við-
tölum við 6 fjölskyldur þar sem 3
fjölskyldur voru ánægðar og 3 fjöl-
skyldur voru óánægðar með fatlaða
nágranna sína. Markmiðið með
seinni hluta rannsóknarinnar var að
skilja ástæður fyrir ólíkum viðbrögð-
um þessara fjölskyldna.
Seinni fyrirlestur Anders Gustavs-
sons fjallar um fyrstu kynslóð
þroskaheftra sem hafa einvörðungu
notað almenna þjónustu en ekki sérs-
tæka þjónustu fatlaðra. Rannsókn
þessi náði til ungs fatlaðs fólks með
væga greindarskerðingu.
Robert Bogdan mun í fyrirlestri
sínum fara yfir helstu niðurstöður
rannsókna sinna á hvernig ófatlaðir
bregðast við þátttöku fatlaðra í dag-
legu lífi.
MH.
Málþing og fyrir-
lestur um fatlaða
Ferðakynning Heimsklúbbsins
Mikil aðsókn
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Heimsklúbbi Ingólfs:
Heimsklúbbur Ingólfs efndi til
ferðakynningar á Hótel Sögu síðast-
liðinn sunnudag og var fullt út úr
dyrum. Þar voru kynntar tvær sér-
ferðir af menningarlegum toga.
Önnur var Ítalíuferð, sem farin
verður í ágúst undir leiðsögn Ingólfs
Guðbrandssonar, þar sem þræddar
verða allar helstu listaborgir lands-
ins, s.s. Mílanó, Veróna, Feneyjar,
Flórens, Písa, Síena, Assisi og Róm.
í Veróna hafa aðgöngumiðar verið
tryggðir að einni rómuðustu óperu
ársins, Nabucco eftir Verdi, sem fer
nú sigurför um Evrópu í uppfærsl-
unni frá Veróna.
Hin ferðin, sem kynnt var, er ný
af nálinni, Klassíska leiðin, og býður
upp á frægar listaslóðir sameinaðs
Þýskalands með borgum í Þýringa-
skógi og Weimar, sem um langt
skeið var eins konar menningarhöf-
uðborg Evrópu, sem allir listamenn
þyrptust til, og hefur nú verið valin
menningarhöfuðborg Evrópu árið
1999. Borgin tengdist gegnum þá
snillinga, sem þar bjuggu og störf-
uðu, sögu tónlistar, með J.S. Bach,
Liszt og Wagner í broddi fylkingar,
myndlistar með starfi L. Cranachs
og bókmennta, þar sem sjálfur Goet-
he stýrði þjóðleikhúsinu þýska um
langt skeið. Dresden við Saxelfi er
frá fornu fari ein mesta listaborg
heimsins og er líkt við sjálfa Flór-
ens. Leipzig var höfuðborg tónlistar
Evrópu í tvær aldir og blómstrar nú
með nýtt „Gewandhaus“, ei'nn besta
konsertsal heimsins með einstakan
hljómburð, þar sem hinn heimsfrægi
Kurt Masur hefur haldið um tón-
sprotann í 25 ár og að nýju komið
bæði Staatskapelle í Dresden og
Gewandhaus hljómsveitinni í tölu
hinna bestu í heimi. Klassísku leið-
inni lýkur í Berlín, sem að nýju er
orðin ein mesta menningarborg álf-
unnar með einstaklega opinn og
skemmtilegan borgarbrag.
Ferðin hefst 24. maí og stendur
yfir hvítasunnu í 10 daga undir leið-
sögn Ingólfs. Báðar ferðirnar eru
nærri uppseldar.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
ÍSTRAKTOR hf. í Garðabæ hefur hafið á ný sölu á stórum
vörubílum.
Iveco vöru-
bílar sýndir
ÍSTRAKTOR hf., umboðsaðili Iveco
á íslandi, hyggst hefja sölu á vöru-
bílum að nýju eftir nokkurra ára
hlé. Fyrirtækið hefur síðustu árin
einkum selt Iveco sendibíla og fjór-
hjóladrifna ferðabíla. Páll Gíslason
framkvæmdastjóri segir að sam-
keppni hafi aukist í sölu á sendibíl-
um og fyrirtækið hyggist nú hasla
sér völl sem söluaðili á stærri bílum.
Um helgina verður sýning á Iveco
bílum hjá ístraktor.
Nýlega var byggt við fyrirtækið
að Smiðsbúð 2 í Garðabæ og er nú
hægt að taka tvo stóra vörubíla inn
í hús ásamt minni sendibílum. Vöru-
bílalínan frá Iveco telst nokkuð ný
af nálinni. Tveir bílar eru komnir
til landsins, EuroTech 260E42/P,
sem var kjörinn vörubíll ársins 1993
í Evrópu, og rtiinni bíllinn Euro
Cargo, sem var kjörinn vörubíll árs-
ins 1992. Auk þess framleiðir Iveco
flaggskipið EuroStar sem er með
allt upp í 514 hestafla vél og stóru
ökumannshúsi, og EuroTrakker
sem er í svipuðum stærðarflokki
og EuroTech en er meiri þunga-
vinnubíll og með sterkari drifbún-
aði.
Páll segir að einkum verði lögð
áhersla á sölu á EuroTech og Euro
Cargo hér á landi og kveðst hann
geta boðið mjög gott verð á þessum
bílum. Tíu hjóla EuroTech 260E42P
er með drifi á fjórum hjólum af sex
og með loftfjöðrun að aftan. Hann
er fáanlegur með hálfsjálfskiptingu.
Vélin er 13,8 lítrar að slagrými og
420 hestöfl. Með miklum aukabún-
aði kostar bíllinn 8.700.000 kr. án
vsk. en án aukabúnaðar 7.690.660
kr.
Euro Cargo 85E15 með diska-
hemlum á öllum hjólum og vel bú-
inn að öðru leyti kostar á sérstöku
tilboðsverði 3.390.000 kr.
Sýningin er opin fimmtudag,
föstudag og laugardag frá 10-16.
-------♦ ♦ ♦---------
■ AÐALFUNDUR Öldrunarfé-
lags íslands verður haldinn
fimmtudaginn 28. mars kl. 17 í
Félags- og þjónustumiðstöð aldr-
aðra við Aflagranda 40. Á dag-
skrá eru venjubundin aðalstörf. Að
loknum aðalfundi gefst félögum
kostur á að kynnast starfsemi fé-
lags- og þjónustumiðstöðvarinnar,
skoða staðinn og þiggja veitingar.
Vinningar í
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
Hí’ifi potturinn 26. mars 1996
t kom á miða nr. 36450
'a