Morgunblaðið - 27.03.1996, Page 41

Morgunblaðið - 27.03.1996, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARZ 1996 41 WHOOPI Goldberg var aðalkynnir hátiðarinnar í annað skipti á ferlinum. Hún þótti standa sig vel og vera af- slappaðri en í fyrra skiptið. FÓLK í FRÉTTUM ROBIN Williams notaði tækifærið og fór með gamanmál áður en hann af- henti teiknaranum Chuck Jones heið- ursóskar. BRUCE Springsteen flutti lagið Dead Man Walking úr samnefndri mynd á verðlaunaafhendingunni. Hann hlaut tilnefningu fyrir lag- ið, í flokknum besta frumsamda lagið, en Colors of the Wind úr myndinni Pocahontas sigraði i þeim flokki. TYRA Banks, fyrirsætan kunna, mætti að sjálfsögðu til að fylgjast með þessum stærsta atburði ársins í Hollywood. Besta leikkona í aðalhlutverki Susan Sarandon var valin besta leikkonan og að flestra mati er hún vel að verðlaununum komin. Túlkun hennar á nunnu í myndinni Dead Man Walking hreif fólk um allan heim. Þetta er fyrsti Óskar hennar, en hún hafði verið tilnefnd flórum sinnum áður. Fyrirfram var talið öruggt að hún myndi hljóta verð- launin, en hún bar sigurorð af Elisa- beth Shue, Emmu Thompson, Shar- on Stone og Meryl Streep. Þegar hún tók við verðlaununum þakkaði hún meðleikara sínum, Sean Penn, fyrir „frábæran dans“ og sambýlis- manni sínum, Tim Robbins, sem leik- stýrði myndinni. „Þessi gripur er þinn jafnt sem minn,“ sagði hún. „Guði sé lof að við búum sarnan." Besti leikari í aukahlutverki Talið var að kapphlaupið í þessum flokki stæði á milli Ed Harris (Apollo 13) og Tim Roth (Rob Roy). Sú varð hins vegar ekki raunin og óvæntur sigurvegari varð Kevin Spacey, sem lék í myndinni Usual Suspects. Aðrir keppendur í þessum flokki voru James Cromwell (Babe) og Brad Pitt (12 Monkeys). Besta leikkona í aukahlutverki Mira Sorvino sigraði í þessum flokki með leik sínum í Woody Allen- myndinni Mighty Aphrodite, sem ekki hefur verið tekin til sýninga hér á landi. Þar með bar hún sigur- orð af Joan Allen (Nixon), Kate Winslet (Sense and Sensibility), Mare Winningham (Georgia) og Kathleen Quinlan (Apollo 13). Marg- ir spekingar voru á því að Kate Winslet ætti verðlaunin skilin, en hún þótti sýna afar sannfærandi leik í Sense and Sensibility. Aðrir flokkar Helst bar til tíðinda í öðrum flokk- um að Emma Thompson hlaut verð- launin fyrir besta handritið byggt á áður birtu efni, en hún skrifaði hand- rit myndarinnar Sense and Sensibi- lity. Besta frumsamda handritið var valið handrit Christophers McQu- arries að Usual Suspects. Besta kvikmyndin á öðru tungumáli en ensku var valin hollenska myndin Antonia’s Line. John Toll var valinn besti kvik- myndatökustjórinn fyrir vinnu sína að myndinni Braveheart og bestu klippararnir voru valdir Mike Hill og Dan Hanley fyrir Apollo 13. Ósk- arinn fyrir bestu hljóðupptökuna hlutu Rick Dior, Steve Pederson, Scott Millan og David McMillan fyr- ir vinnu sína við Apollo 13. Besta heimildamyndin í fullri lengd var valin Anne Frank Remembered, en framleiðandinn, Jon Blair, tók við verðlaununum. MIRA Sorvino brosir út að eyrum, yfir sig ánægð með Óskarsverðlaunin fyrir best- an leik í aukahlutverki. KEVIN Spacey hlaut Óskar- inn fyrir túlkun sína á Keyser Soze í myndinni Usual Suspects. f þakkarræðunni þakkaði hann móður sinni fyrir stuðninginn. Panasonic myndbandstæki NV SD200 Panasonic SD200 [Super Dríve, A1 Crystal viewj allar aðgerðir koma fram á skjá, innstilling stöðva sjálfvirk ásamt langtíma upptökuminni. SD 200 fékk 10 fyrir myndgæði I What Video Tækið endurgreitt! Einn heppinn vtOsklptavlnur fær tæklð endurgrelttl LAUGAVEGI - SIMI 552 6860 KRINGLUNNI - SÍMI 568 9980 tilboðsdagar Sumarkjólar áöur kr. 5.990,- nú kr. 3.990,- Allar peysur áðurkr. 5.990,- nú kr. 2.990,- Gallajakkar áður kr. 5.990,- nú kr. 3.990,- Gailaskyrtur áður kr. 4.990,- nú kr. 2.490,- Síð sumarpilí áður kr. 3.990,- nú kr. 1.990,- (fimm litir) Leggings Bolir aöur kr. 1.990.- nu kr. 79O0~ áöurkr. 1.990,- HÚ kr, 790,- 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.