Morgunblaðið - 11.04.1996, Qupperneq 47
\ MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1996 47
I BRIPS
Umsjón Guómiindur Páll
Arnarson
SPIL 18 í næstsíðustu um-
ferð íslandsmótsins vakti
áhuga áhorfendanna. Suðri
var úthlutað 7-6-skiptingu
í laufi og hjarta, en eins og
(oft er í slíkum spilum, mátti
ekki fara of hátt.
Austur hættu. gefur; NS á
Norður ♦ 962 V D63 ♦ ÁD862 ♦ G10
Vestur ♦ ÁD1083 y K8 ♦ 1053 ♦ Á94 Austur ♦ KG754 IIIIH ^52 111111 ♦ KG974 ♦ 6
Suður ♦ - V ÁG10974 ♦ * KD87532
Spilið skapaði víða
sveiflu, meðal annars Heik
Samvinnuferða og Ólafs
Lárussonar. Sagnir gengu
þannig í opna salnum, með
| Helga Jóhannsson og Guð-
J mund Sv. Hermannsson í
I liði Samvinnuferða í AV,
I gegn Hermanni Lárussyni
1 og Erlendi Jónssyni:
Vestur Norður Austur Suður
Guðm. Hermann Helgi Ertendur
2 spaðar* 3 hjörtu
4 spaðar 5 hjörtu Pass 6 hjörtu
Dobl Pass Pass Pass
*Veikt með spaða og láglit.
Fimm spaðar vinnast í
* AV, en Guðmundur ætlaði
I sér að dobla fimm hjörtu
| ef hann fengi tækifæri til.
I En Erlendur hækkaði
I skiljanlega í sex, sem voru
rauðmálaðir. Guðmundur
lagði niður laufás og hitti á
að spila lauft áfram. Það
kom honum þægilega á
óvart þegar Helgi trompaði.
Tveir niður og 500 til Sam-
vinnuferða.
Á hinu borðinu voru Karl
á Sigurhjartarson og Björn
j Eysteinsson í NS, gegn Ól-
I afi Lárussyni og Þresti Ingi-
I marssyni. Þar var ekki sami
1 stígandinn í sögnum:
Vestur Norður Austur Suður
Þröstur Björn Ólafur Karl
Pass 1 hjarta
1 spaði 2 hjörtu 4 spaðar 5 hjörtu
Dobl Pass Pass Pass
Þröstur fann einnig láuf-
ásinn út, en prófaði svo
spaðaás. Karl trompaði,
* spilaði hjartaás og meira
i hjarta og lagði síðan upp:
' 850 í NS og 16 IMPar til
Samvinnuferða.
< LEIÐRÉTT
Nöfn
verðbréfafyrirtækja
víxluðust
í FRÉTT á viðskiptasíðu
í gær um lækkun á fjár-
magnskostnaði 20 fyrir-
tækja á hlutabréfamark-
, aði var ranglega vitnað
* til upplýsingarits Lands-
( bréfa. Upplýsingar í frétt-
Á inni voru fengnar úr
fréttabréfi Kaupþings hf.
Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
Rangt
föðurnafn
Lilja Rós Jóhannesdótt-
ir, borðtenniskona Vík-
i ings 1996, var rangfeðruð
í frétt sem birtist á blað-
( síðu 61 í blaðinu í gær.
| Beðist er velvirðingar á
mistökunum.
I DAG
Árnað heilla
OfTÁRA afmæli. í dag,
O ti fimmtudaginn 11.
apríl, er áttatíu og fimm ára
Bernódus Finnbogason,
Laugarnestanga 60. Kona
hans er Kristín Helgadótt-
ir. Þau taka á móti gestum
á heimili sonar síns og
tengdadóttur Fljótaseli 14,
milli kl. 17 og 19 í dag,
afmælisdaginn.
f7ftÁRA afmæli. í dag,
í Ufimmtudaginn 11.
apríl, er sjötugur Atli Elías-
son, málarameistari,
Hvassaleiti 11, Reykjavík.
Eiginkona hans er Ragn-
hildur Bergþórsdóttir.
Þau hjónin taka á móti vin-
um og ættingjum á heimili
sínu í dag milli kl. 17 og 21.
prrkÁRA afmæli. í dag,
tlUfimmtudaginn 11.
apríl, er fimmtugur Sigur-
steinn Jósefsson, sölu-
maður hjá Brimborg.
Hann og eiginkona hans
Ólöf Heiða Hilmarsdóttir
verða að heiman.
/"\ÁRA afmæli. í dag,
éi Ufimmtudaginn 11.
apríl, er fertugur Guðni
Þór Arnórsson, hús-
gagnameistari, starfs-
maður Morgunblaðsins,
Fífuseli 14, Reykjavík.
Eiginkona hans er Rósa
Grétarsdóttir, ritari. Þau
hjónin taka á móti gestum
á heimili sínu laugardaginn
13. apríl nk. kl. 16.45.
Ljósm.stofa Sigríðar Bachmann
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 24. febrúar sl. í
Háteigskirkju af sr. Tómasi
Sveinssyni Soffía Jó-
hannsdóttir og Stefán
Heiðarsson. Heimili þeirra
er í Þórufelli 10, Reykjavík.
Ljósm.stofa Sigríðar Bachmann
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 6. janúar sl. í Há-
teigskirkju af sr. Pálma
Matthíassyni Sólveig Lilja
Einarsdóttir og Þórður
H. Sveinsson. Heimili
þeirra er í Klukkubergi 37,
Hafnarfirði.
HOGNIHREKKVÍSI
„7i(/ab er i/'mseelast hjágrlporunum iár
STJÖRNUSPÁ
cftir Franccs Drakc
HRÚTUR
Afmælisbarn dagsins:
Þú leggur hart að þér við
að tryggja fjöiskyldunni
góða afkomu.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl) fl-ft
Þótt ástæða sé til að njóta
dagsins og skemmta sér með
vinum, er betra að fara að
engu óðslega og gæta hófs í
mat og drykk.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Ef þér gengur erfiðlega að
finna lausn á verkefni í vinn-
unni, leitaðu þá nýrra leiða
til lausnar. Þær eru fyrir
hendi.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú fagnar góðum horfum í
vinnunni, og mátt eiga von á
að fjárhagurinn batni. En va-
rastu engu að síður óþarfa
eyðslu.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) HSB
Þú þarft að íhuga vel tilboð
sem þér berst um nýtt starf.
Fjármálin eru í góðu jafn-
vægi, og þú þarft að tryggja
að svo verði áfram.
Ljón
(23. júlí — 22. ágúst)
Þú hlýtur lof ráðamanna fyrir
vel unnin störf, en þarft að
sýna öfundsjúkum starfsfé-
laga skilning. Vanræktu ekki
þína nánustu.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Þú ættir ekki að taka afstöðu
í deilumáli, sem upp kemur í
vinnunni eða heima. Þú átt
auðvelt með að skilja rök
beggja deiluaðila.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þú átt erfitt með að sætta þig
við sífelldar truflanir, sem
tefja framgang mála árdegis.
Reyndu að sýna þolinmæði.
Sporðdreki
(23. okt. -21. nóvember)
Þú hikar við að taka mikil-
væga ákvörðun í dag, og ætt-
ir að leita ráða hjá góðum
vini. Umbætur eru í undirbún-
ingi heima.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember)
Fyrri fyrirætlanir þínar breyt-
ast í dag þegar þú færð til-
boð, sem erfitt er að neita.
Hreinskilni skerpir samband
ástvina.
Steingeit
(22. des. - 19.janúar) &
Þú hlýtur bæði viðurkenningu
og fyrirheit um stöðuhækkun
í dag. Þegar kvöldar hefur þú
ástæðu til að fagna með fjöl-
skyldunni.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Þótt þú hafir í mörg hom að
líta, ættir þú að gefa þér tíma
til að koma öllu í röð og reglu
heima, því þú átt von á gest-
um.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Aðlaðandi framkoma þín og
bjartsýni afla þér trausts og
viðurkenningar ráðamanna.
Astvinir eiga saman góðar
stundir.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
Tímatafla - opnir tímar
Tími Mánud. Þriðiud. Míðvikud. Fimmtud. Föstud. Laugard.
7.30- 8.30 Yoga Yoga Yoga
10.30-11.45 Yoga
11.30-12.00 Hugleiðsla Hugleiðsla
12.10-13.10 Yoga Yoga Yoga Yoga Yoga
16.30-17.45 Yoga konur Yoga konur
17.15-18.15 Yoga Yoga Yoga
18.20-19.35 Yoga Yoga Yoga Yoga Yoga
Við bjóðum upp á fullkomna aðstöðu til jógaiðkunar í nýinnréttuðu
og glæsilegu húsnaeði, böð, sauna og nudd.
Vilt þú prófa? - 1. tíminn er ókeypis gegn framv. auglýsingar.
Tilboð á jógakortum: 3 mán. kr. 9000 & 4 mán. kr. 10.900.
mimmmmm
16. apríl (8 skipti) þri. & mið. kl. 16.30-18.00. Leiðb.: Ásmundur.
18. apríl (8 skipti) þri.& fim. kl. 20.00-21.30. Leiðb. Anna Dóra.
i
i
i
i
i
%
YOGA
STUDIO
Afgreiöslan er opin milli kl. 11 og 18.30.
Hátúni 6A, 105 Reykjavík,
símar 511 -3100.
4
Tilboá
í Kjarakðupum
Eitt blab
fyrir alla! ^1,.,^!