Morgunblaðið - 16.04.1996, Síða 1
64 SÍÐUR B
86. TBL. 84. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR16. APRÍL1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuter
Pólitískir glæp-
ir afhjúpaðir
East London. Reuter.
28 VITNI koma á næstu dögum fullum sáttum milli kynþáttanna.
fyrir 17 manna nefnd, sem þjóð- Þeir sem játa fyrir nefndinni að
stjórnin í Suður-Afríku hefur hafa framið pólitíska glæpi, svo
skipað til að rannsaka pólitísk sem morð, fá sakaruppgjöf og
dráp og aðra glæpi sem voru nefndin á að leggja fram tillögur
framdir þegar aðskilnaðarstefn- um bótagreiðslur til þeirra, sem
an var við lýði. Fyrstu yfirheyrsl- misstu ættingja eða urðu fyrir
urnar hófust í gær en gera varð öðru tjóni vegna kúgunar hvíta
hlé á þeim í hálfa klukkustund minnihlutans eða tilræða blökku-
vegna sprengjuhótana. mannahreyfinga. Nefndin á að
Desmond Tutu erkibiskup er ljúka störfum eftir tvö ár.
formaður nefndarinnar og segir Á myndinni heilsar Desmond
markmið hennar að stuðla að Tutu nokkrum vitnanna áður en
„geðhreinsun" meðal Suður-Afr- fyrstu yfirheyrslurnar hófust í
íkumanna og greiða þannig fyrir gær.
Israelar halda áfram árásunum í Líbanon
Segja ótímabært
að ræða vopnahlé
Reuter
UM HÁLF milljón manna í suðurhluta Líbanons hefur lagt á
flótta eftir viðvaranir Israela um frekari árásir. Hér sjást lí-
bönsk börn gefa sigurmerki út um afturrúðu bifreiðar á leið
um bæinn Nabatiyeh í Suður-Líbanon.
Hizbollah hótar
árásum á ísraela
um allan heim
Beirút. Reuter.
ÍSRAELAR gerðu rafveitu í Bsaie-
em, skammt frá Beirút, óvirka i
loftárás í gær og réðust á úthverfi
í suðurhluta Beirút með flugskeyt-
um fjórða sinni á þeim fimm dög-
um, sem aðgerðir Israelshers gegn
Hizbollah-hreyfingunni í Líbanon
hafa staðið yfir. Líbanar segja að
mikill vandi sé kominn upp vegna
nokkur hundruð þúsunda flótta-
manna og segja að þörf sé á er-
lendri aðstoð. Shimon Peres, for-
sætisráðherra ísraels, segir ekki
tímabært að semja um vopnahlé.
ísraelar eyðilögðu aðra rafveitu
á sunnudag og er talið að nú verði
aðeins hægt að tryggja rafmagn í
Beirút í fjórar klukkustundir á dag.
Talsmaður ísraelska hersins
sagði að ráðist hefði verið á rafveit-
una til að bregðast við sprengju-
árásum Hizbollah-skæruliða, sem
beita litlum og hreyfanlegum Katj-
úsha-sprengjuvörpum. Skæruliðar
skutu nokkrum flaugum á norður-
hluta Israels í gær og særðust þrír.
Hóta sjálfsmorðsárásum
Hizbollah-hreyfingin sýndi
myndir af nokkrum tugum manna
að búa sig undir sjálfsmorðsárásir
og sagði að ráðist yrði gegn ísrael-
um hvar sem þeir ættu hagsmuna
að gæta í heiminum. Sendiráð
þeirra væru ekki undanskilin.
Yfirlýstur tilgangur árása ísraela
er að þvinga stjórnvöld i Líbanon
til að stöðva aðgerðir Hizbollah,
sem er hreyfing síta-múslima og
hliðholl stjórnvöldum í Iran.
Vestrænir stjórnarerindrekar í
Líbanon sögðu að ísraelum hefði
aðeins tekist að vinna á einu vígi
Hizbollah-skæruliða.
Rafik al-Hariri, forsætisráðherra
Líbanons, sagði að árásirnar hefðu
þau áhrif að auka veg Hizbollah
og skoraði á ísraela að lýsa yfir
vopnahléi og láta af hendi 15 km
breitt hernámssvæði meðfram norð-
urlandamærum ísraels. Aðeins þá
væri hægt að binda enda á aðgerð-
ir Hizbollah,
ísraelar sögðu íbúum í hafnar-
borginni Týrus og nálægum þorpum
að yfirgefa heimili sín vegna yfir-
vofandi árása og talið er að nú sé
allt að hálf milljón manna úr rúm-
lega 100 bæjum og þorpum á flótta.
Skortur er á vistum og lyfjum.
23 hafa látið lífið í Líbanon frá
því að árásirnar hófust fyrir fimm
dögum og 123 særst, flestir
óbreyttir borgarar. 43 ísraelar hafa
særst í árásum Hizbollah á norður-
hluta ísraels.
Jacques Chirac, forseti Frakk-
lands, sendi í gær Hervé de Char-
ette utanríkisráðherra til ísraels,
Sýrlands og Líbanons til að freista
þess að koma á vopnahléi.
■ Peres styrkist í ísrael/18
Trójugullið
til sýnis
OPNUÐ hefur verið í Moskvu sýn-
ing á 259 fomum dýrgripum sem
Þjóðverjinn Heinrich Schliemann
gróf upp í Tyrklandi á 19. öld og
taldi að væm úr eigu Príamosar,
konungs hinnar fornfrægu Tróju-
borgar Griklya. Sérfræðingar
segja dýrgripina hins vegar smíð-
aða um 1.300 ámm fyrir daga
Príamosar, eða um 2.500 fyrir
Krist.
Herir Sovétríkjanna tóku fjár-
sjóðinn traustataki í lok síðari
heimsstyijaldar og hann var varð-
veittur í geymslum Púshkín-safns-
ins í Moskvu í hálfa öld. Allan
þennan tíma neituðu Sovétmenn
að hafa tekið fjársjóðinn, en Borís
Jeltsín Rússlandsforseti skýrði frá
sannleikanum 1993. Þjóðveijar og
Tyrkir hafa gert tilkall til sjóðsins
en fátt bendir til þess að Rússar
láti hann af hendi. A myndinni
sést einn af dýrgripunum sem eru
flestir úr gulli og dýrum stcinum.
Þeir verða til sýnis í Púshkín-safni
í eitt ár.
F orsetakosmngarnar í Rússlandi
Jeltsín tvöfald-
ar ellilífeyri
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands,
undirritaði í gær tilskipun um að
greiðslur til fátækustu ellilífeyris-
þeganna yrðu tvöfaldaðar og sagði
þá þurfa á sérstökum stuðningi að
halda.
Lágmarkslífeyririnn verður
hækkaður í 150.000 rúblur, jafn-
virði rúmra 2.000 króna, úr 75.000
rúblum á mánuði. Fjórar milljónir
manna hafa fengið lágmarkslífeyri
og hækkunin hjá þeim, sem hafa
fengið hærri greiðslur, verður
minni.
Með þessu er Jeltsín að reyna
að ná fylgi af helsta andstæðingi
sínum í forsetakosningunum í júní,
Gennadí Zjúganov, frambjóðanda
kommúnistaflokksins, sem hefur
notið mikils stuðnings meðal ellilíf-
eyrisþega vegna óánægju þeirra
með slæm lífskjör.
Zjúganov enn með forystu
Frá sigri kommúnista og þjóðern-
issinna í þingkosningunum í desem-
ber hefur Jeltsín verið mjög örlátur
á fé ríkissjóðs, hækkað styrki til
námsmanna, varið miklum fjárhæð-
um í greiðslur til námamanna og
lofað stórfé til uppbyggingar í
Tsjetsníju.
Zjúganov er enn sigurstrangleg-
astur í forsetakosningunum. Sam-
kvæmt tveimur skoðanakönnunum,
sem birtar voru á sunnudag, er
hann með 26-27% fylgi en Jeltsín
18-22%.
■ Zjúganov með forystu/17