Morgunblaðið - 16.04.1996, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Prófessor í tölvunarfræði um tilboð Tákns hf. til tölvunarfræðinema
Gagnstætt siðareglum
og sennilega ólöglegt
ODDUR Benediktsson, prófessor í
tölvnnarfræðiskor við Háskóla ís-
lands, hefur sent Bjama Júlíussyni
framkvæmdastjóra Tákns hf., orð-
sendingu þar sem hann segir að
tilboð Bjarna til tölvunarfræðinema
um að brjótast inn í tölvukerfi sitt
sé gagnstætt öllum siðareglum og
sennilega ólöglegt. Bjarni segir
þessi viðbrögð Odds á misskilningi
byggð.
Oddur vitnar í reglur um notkun
tölvubúnaðar í eigu eða umsjón
Reiknistofnunar Háskólans og
notkun tölvunets Háskóla íslands.
Hann segir að aðgangur að tölvu-
búnaði, tölvuneti, gögnum og ann-
arri þjónustu sem veitt er hjá
Reiknistofnun Háskólans og á
tölvuneti Háskóla íslands sé ætlað-
ur til eflingar kennslu, rannsóknum
og öðrum þáttum er samræmast
markmiðum Háskólans og stofnana
hans. Verði vart við brot á þessum
reglum verði notandanafni viðkom-
andi aðila umsvifalaust lokað og
upplýsingar varðandi misnotkun
sendar stjóm Reiknistofnunar Há-
skólans. Noti nemendur búnað Há-
skólans til innbrotstilrauna sé það
ótvírætt brot á reglunum.
Ekki verið að hvetja til
ólöglegs athæfís
„Ég tel að athöfnin sé brot á siða-
reglum Skýrslutæknifélags íslands.
í Bandaríkjunum eru tilraunir til
tölvuinnbrota ólöglegar og refsi-
verðar samkvæmt lögum. Sennilega
hérlendis líka ef til kasta laganna
kæmi. Ég vil því biðja þig um að
aflýsa þessu boði með tölvupósti til
tölvunarfræðinema og biðja nem-
endur afsökunar. Ef þú gerir það
ekki innan tveggja daga mun ég
taka málið upp með formlegum
hætti,“ segir Oddur. Bjarni Júlíus-
son segir Odd taka heldur djúpt í
árinni og þá sérstaklega í ljósi þess
að tölvunarfræðinemar hefðu verið
fengnir til þess verkefnis að prófa
umrædda vörn.
„Það að við séum að hvetja til
ólöglegs athæfis er einfaldlega
rangt. Það er ákveðinn hópur tölv-
unarfræðinema sem fær leyfí til að
framkvæma þetta próf en aðrir
ekki, og það að þetta skuli hafa
undið upp á sig er ekki með okkar
vitund og vilja. Það sem gerðist er
að fleiri reyna heldur en bara tölvu-
fræðinemarnir, en tilboð okkar á
alls ekki við aðra en þá. Ég held
að þetta sé því á misskilningi byggt
hjá Oddi og menn leysi þetta mál
einfaldlega með því að tala saman
og að sjálfsögðu munum við tala
við Odd og fara yfír þetta mál með
honum,“ sagði Bjarni.
Morgunblaöið/Árni Sæberg
Grafið við Hvalfjörð
Jakob Þ.
Möller í mann-
réttindaráð
RÁÐHERRANEFND Evrópuráðs-
ins hefur samkvæmt ákvæðum
Dayton-samkomulagsins tilnefnt
átta menn til setu í mannréttinda-
ráði Bosníu-Hersegovínu og er Jak-
ob Þ. Möller, ritari mannréttinda-
nefndar Sameinuðu þjóðanna í
Genf, einn þeirra. Auk fulltrúa Evr-
ópuráðsins eiga fjórir fulltrúar
múslima og Króata og tveir fulltrú-
ar Serba sæti í mannréttindaráðinu.
Því er ætlað að tryggja að í Bosníu-
Hersegóvínu verði virt grundvallar-
ákvæði um mannréttindi og mann-
frelsi.
Jakob Þ. Möller er fæddur í
Reykjavík 28. október 1936 og lauk
lagaprófi frá Háskóla íslands 1967.
Um árabil hefur Jakob starfað hjá
Sameinuðu þjóðunum í Genf, nú síð-
ast sem ritari mannréttindanefndar-
innar.
UNNIÐ er að því að grafa niður
að gangnamunna Hvalfjaröar-
ganga beggja vegna fjarðarins.
Grafið er niður fyrir klöpp.
Þarna verða steyptir upp veg-
skálar en áður þarf að fjarlægja
verulegt magn af jarðvegi. Áætl-
að er að komið verði niður á lóð-
réttan hamravegg nálægt mán-
aðamótunum maí-júní. Þá verður
byrjað að sprengja fyrir göngun-
um sjálfum.
Tími sinubruna að hefjast
Mikilvæg efni
tapast úr jarðvegi
við sinubruna
MEÐ reglugerð frá
árinu 1993 hefur
sinubruni verið
takmarkaður verulega frá
því sem áður var. Til dæm-
is er óheimilt að brenna
sinu nema á jörðum sem
eru í ábúð eða eru nýttar
af ábúendum lögbýla og
þá samkvæmt leyfí sýslu-
manns. Þá má hvergi
brenna sinu eftir 1. maí,
en telji sýslumaður að veðr-
átta eða snjóalög hafi
hamlað sinubrennu fyrir
þann tíma getur hann, að
höfðu samráði við um-
hverfisáðuneytið, veitt
leyfishöfum að brenna sinu
til 15. maí.
Menn eru ekki á einu
máli um hvort sinubruni
geri meiri skaða en gagn;
bændur sem stunda sinubruna
líta á skjóta sprettu í kjölfar hans
en fræðimenn líta til lífríkis og
umhverfis. Þeir hafa mikinn
áhuga á að auka möguleika ís-
lensks gróðurríkis til að binda
koldíoxíð, en við bruna er dæminu
algjörlega snúið við. „Gróðurinn,
lifandi og dauður, er undirstaða
dýralífs og hann þarf að brotna
niður smám saman og verða hluti
af jarðveginum. Þegar sina er
brennd tapast mikilvæg næring-
arefni út úr vistkerfinu,“ sagði
Hólmfríður Sigurðardóttir.
„Það hefur átt sér stað mikil
umhverfisvakning á undanförn-
um árum ekki bara meðal fræði-
manna heldur einnig meðal
bænda, sem betur fer. Huga þarf
að mörgu í umhverfinu þegar sina
er brennd, því töluverð mengun
kemur frá reyknum auk áhrif-
anna sem það hefur á lífríkið.
Fólk verður að vera sérstaklega
vakandi út af fuglalífi og gæta
þess að brenna ekki sinu á varp-
tíma. Þess vegna hafa verið sett
timamörk i reglugerð, sem nauð-
synlegt er að halda.“
- Hveijar eru helstu afleiðing-
ar sinubruna?
„Eftir bruna þegar sinulagið
er horfið flýtir það fyrir sprettu.
Undirlendið verður svart og dreg-
ur þar af leiðandi í sig hita. Ef
jarðvegur er þurr geta efstu
sentimetrar hitnað og haft skað-
leg áhrif á smádýr í jarðvegi, auk
þess sem eldurinn eyðir kvikind-
urp á yfirborðinu. Éinnig getur
verið mikil hætta á að eldurinn
breiðist út í lyngmóa, berjalönd
og skógræktarsvæði eins og
dæmi hafa sýnt. Oftast er verið
að brenna úthaga sem notaðir
eru til beitar. Þar lifa ánamaðkar
yfírleitt í yfirborðinu og hætta
er á að þeir drepist. Það er slæmt,
því eins og allir vita hafa ána-
maðkar áhrif á fijósemi jarðvegs
og eru mikilvæg fæða fugla.“
— Er skaðinn af sinubruna þá
í raun orðinn meiri en ---—----------
gagnið? Wlenneru
- „Ég mundi ekki fastir í
endilega segja það. Ég hefðum
held samt að menn séu _________
fastir í hefðum og þeir
sem hafa brennt sinu gera það
áfram án þess að hugsa ef til
vill mikið út í annað en það sem
þeim fínnst jákvætt. Skortur á
köfnunarefni veldur því að niður-
brot lífræns efnis er lítið og sina
safnast fyrir. Til að draga úr sinu-
söfnun gætu bændur borið á út-
haga sína, en áburðargjöf líkt, og
sinubruni er inngrip í umhverfíð.
Það getur því líka raskað jafn-
vægi þess. Líkja má svona inn-
Hólmf ríður Sigurðardóttir
► Hólmfríður Sigurðardóttir
fæddist 1960 í Reykjavík. Hún
lauk stúdentsprófí frá MR
1980, jauk BA-prófi í líffræði
frá HÍ 1984. Hún hóf síðan
framhaldsnám við Árósarhá-
skóla og lauk þaðan prófi í
jarðvegslíffræði 1987. Hún var
fagdeildarsljóri umhverfis-
deildar Garðyrkjuskóla ríkis-
ins 1988-91, vann að jarðvegs-
líffræðirannsóknum hjá RALA
1991-96 og vinnur nú sem sér-
fræðingur á umhverfissviði hjá
Skipulagi ríkisins við mat á
umhverfisáhrifum. Hólmfríður
er gift Ágústi Þór Gunnarssyni
byggingafræðingi og eiga þau
tvö böm.
gripi i umhverfið við að fjarlægja
dempara úr bíl og allir gera sér
grein fyrir hvað það þýðir fyrir
bílinn og aksturslagið.
En ef við drögum saman kost-
ina kemur í ljós að grasnálin
kemur fyrr fram með'sinubruna.
Ef land er þýft er hugsanlegt að
dýr geti forðað sér niður á milli
þúfnanna, þar sem minni raki er
og þá nái eldurinn ekki að drepa
eins mikinn fjölda. Síðan geti þau
dýr numið land uppi á þúfunum
þegar fram í sækir. Ókostirnir
eru þeir að aukin mengun verður
við bruna vegna reyks, næringar-
efni tapast úr vistkerfinu, við
drepum dýr á yfírborði og hugs-
anlega niður við jarðveginn. Við
verðum að gera okkur grein fyrir
að bruni er ekki náttúrulegur
þáttur í íslensku vistkerfi."
- Hvað ef brennt er til dæmis
þrjú ár í röð eins og sýslumaður
getur veitt leyfi til?
„Það hefur auðvitað áhrif, því
tíma tekur fyrir kvikindi að nema
land á nýjan leik. Við vitum ekki
hvað það gerist hratt, þannig að
ég ímynda mér að eitthvað fækki
í sumum dýrahópum í landi sem
brennt er. Það vantar tilfínnan-
lega víðtækari rann-
sóknir á þessum mál-
um.“
- Hafa verið gerðar
einhverjar rannsóknir
á afleiðingum sinu-
bruna á smádýralíf?
„Já. Við líffræðiskor HÍ hefur
Árni Davíðsson unnið masters-
verkefni um áhrif sinubruna á
smádýralíf í jarðvegi. Aftur á
móti hefur Guðmundur Halldórs-
son skordýrafræðingur á Rann-
sóknastöð Skógræktar ríkisins á
Mógilsá kannað áhrif sinubruna
á smádýralíf á yfirborði jarðvegs.
Niðurstöður úr þessum rannsókn-
um munu birtast von bráðar.“