Morgunblaðið - 16.04.1996, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 16.04.1996, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1996 15 VIÐSKIPTI Myndsímar fyrirferðarmiklir á samnetssýningu Pósts & síma Háir tollar setja strik í reikninginn ir við starfsmann Open Networks í Sviþjóð í gegnum myndsíma. Morgunblaðið/Sverrir VALDIMAR Óskarsson, tæknifræðingur hjá Apple-umboðinu, ræð- MYNDSÍMAR voru það sem helst bar fyrir augu á samnetssýningu Pósts & síma, sem lauk á fímmtu- daginn. Sýnt var talsvert úrval síma, allt frá símum í tölvur og skrifborðssímum upp í viðameiri fjarfundabúnað sem kostar allt að 5 milljónir króna. Verðið er nokkuð misjafnt eftir því hversu viðamikl- um búnaði er sóst eftir, en það liggur á bilinu frá tæpum 200 þúsundum og upp í um 5 milljón- ir. Þessi búnaður hefur hins vegar verið tollafgreiddur á annan hátt en hefðbundnir símar, sem bera enga tolla, og hefur það talsverð áhrif á verðið. Haraldur Leifsson, fram- kvæmdastjóri þróunarsviðs Ný- heija, segir að enn sem komið er séu íslensk fýrirtæki lítið farin að nýta sér þessa tækni, en fjölmarg- ir hafi þó sýnt henni áhuga. Vil- hjálmur Hreinsson hjá Símvirkjan- um hefur sömu sögu að segja. Ekkert hafi selst fram til þessa, en mikill áhugi sé greinilega á þessari tækninýjung. Haraldur segir þennan búnað tilvalinn í þeim tilfellum þar sem um reglulega stöðufundi, sem krefjist ferðalaga, sé að ræða. Menn verði þó að gera sér grein fyrir því við kaup á þessum bún- aði að hér sé ekki um sömu gæði og í sjónvarpi að ræða. Hins vegar velti myndgæðin nokkuð á því hversu mikinn flutningshraða menn geti notað. Þegar stærri búnaður eigi í hlut sé mælt með því að ekki séu notaðar færri en 3 ISDN-línur, sem gefi 384 kb/s flutningsgetu. Það geri myndina nokkuð eðlilega, en við minni flutningsgetu sé hreyfing í mynd nokkuð „spastísk“. Tollar á myndsíma þeir hæstu á Norðurlöndum Haraldur segir verðið hins vegar enn nokkuð hátt á þessum búnaði og muni þar miklu um hvernig tollyfirvöld hafi flokkað þessa vöru. „Þessir símar hafa verið sett- ir í sama tollflokk og dyrasímar með skjá, sem þýðir að þeir bera 37,5% vörugjald og 7,5% toll. Hefðbundnir símar bera hins vegar engin vörugjöld né tolla.“ Haraldur segir að unnið sé að því að fá þessa tollflokkun endur- skoðaða, sérstaklega í ljósi þess að hvergi annars staðar á Norður- löndum beri þessi vara jafnháa tolla. „Með þessu er verið að standa í vegi fyrir því að þessi tækni komi hér inn í landið. Hún hefur verið í notkun á hinum Norð- urlöndunum í nokkur ár og verð á þessum vörum er væntanlega komið niður á það stig sem það kemur til með að verða á. Innflutn- ingurinn strandar því fyrst og fremst á háum tollum.“ 25,5 milljóna tap á Höfn- Þríhymingi TAP af reglulegri starfsemi Hafn- ar-Þríhyrnings hf. varð 15,7 millj- ónir á síðasta ári, sem er talsvert verri útkoma en árið áður þegar fyrirtækið skilaði 11,5 milljóna króna hagnaði. Óreglulegir liðir voru fyrirtækinu einnig óhagstæð- ir og nam heildartap af rekstri þess á síðasta ári 25,5 milljónum króna. Rekstrartekjur Hafnar-Þríhyrn- ings hf. á síðasta ári urðu 1.144 milljónir, en útgjöld 1.127 milljón- ir. Gestur Hjaltason framkvæmda- stjóri sagði að ástæðan fyrir verri afkomu væri harðnandi samkeppni á kjötmarkaði og lægri álagning. Hann sagði að útlit væri fyrir að fyrirtækið yrði rekið með hagnaði í ár. Gert ráð fyrir hagnaði í ár Gestur sagði að útlit væri fyrir mun betri afkomu á þessu ári. Tekist hefðu hagstæðari samning- ar við verslanir með samstarfi við Baug hf. Frá áramótum hefði ver- ið gripið til margvíslegra aðgerða til að lækka kostnað og myndu þær skila um 30 milljóna króna sparnaði á þessu ári. Til viðbótar hefði verið unnið að því að skapa fyrirtækinu sóknarfæri á nýjum sviðum. Verið er að vinna að breytingum á verslunum Hafnar-Þríhyrnings hf. á Hellu og Selfossi. Gestur Sagði að þeim yrði lokið í júní. Stefnt væri að því að lækka vöru- verð í verslunum. Rekstraráætlan- ir gengu út frá því að verslunin á Selfossi skilaði 30% meiri veltu á þessu ári en í fyrra. Gestur sagði að rekstur kjöt- vinnslunnar hefði verið erfiður á síðasta ári. Búið væri að grípa til aðgerða sem vonast væri eftir að skiluðu sér í 20 milljóna króna tekjuaukningu á þessu ári. Kjöt- vinnslu í Þykkvabæ yrði hætt og sá þáttur í rekstri sláturhússins þar færður til Selfoss. Verið væri að gera lagfæringar á sláturhúsinu á Hellu, en það er stærsta stórgripasláturhús lands- ins með 24% af allri nautgripa- slátrun á landinu. Gestur sagði að kostnaður við breytingarnar næmi 7-8 milljónum. Markmiðið væri m.a. að sláturhúsið fengi leyfi til að flytja út hrossakjöt til Japans. Starfsmenn Hafnar-Þríhyrn- ings hf. eru 115. í byijun árs var tekin sú ákvörðun að fækka starfs- fólki niður í 105 og taka uppsagn- irnar gildi í júní. Gestur sagði að flestum starfs- mönnum yrði boðin vinna í sumar og hugsanlega áfram í samræmi við vöxt fyrirtækisins. Starfs- mönnum, sem hafa unnið í kjöt- vinnslunni í Þykkvabæ, yrði boðin vinna á Selfossi, en ekki væri víst að allir hefðu aðstöðu til að þiggja hana. Stéttarfélög veita félagslegt öryggi Kjarasamningar stéttarfélaga veita launafólki og fjölskyldum þess dýrmæt réttindi sem stuðla að félagslegu öryggi. Samiðn er samband stéttarfélaga í byggingar- iðnaði, málmiðnaði, bíliðnaði, garðyrkju og netagerð. í Samiðn er 31 félag um land allt með um 5500 félagsmenn. Hver vill missa laun í veikindum, eiga von á fyrirvaralausum uppsögnum, fá ekki greiðslur í orlofi eða missa rétt til sjúkrabóta? Samiðn hvetur iðnaðarmenn til að standa vörð um stéttarfélag sitt. Teflum ekki félagslegu öryggi fjölskyldunnar í tvísýnu. Samíðn SAMBANDIÐNFÉLAGA Suðurlandsbraut 30.108 Reykjavík. Sími 568 6055. Fax 5681026. Heimasíða: http://www. rl. is/samidn.html Onnur kynslóð Oracle hönnunar- og þróunarverkfæra Gartner Group, ADM. Research Note C-ORA-1143, 1995: h,„ „Við teljum að Oracle haldi forystu sinni á sviði þróunarverkfæra á komandi árum..." Ef þú vilt vita meira um Designer/2000, Developer/2000 og Discoverer/2000 eða fá tækifæri til að prófa hugbúnaðinn án endurgjalds í takmarkaðan tíma, hringdu þá strax í síma 561-8131 og pantaðu ókeypis geisladisk til reynslu. ORACL6® Enabling the Information Age™ Designer/2000, Developer/2000 og Discoverer/2000 eru að fullu samþætt Oracle7, sem er útbreiddasti gagnagrunnsmiðlari heims með 44% markaðshlutdeild. Nú bjóðum við þessi þrjú verkfæri saman með 40% afslætti. Borgarlvni 24, 105 R é y k / 0 V 11 Slmi 561 8131 Brélrimi 562 8131 N e t f a n g teymi@oracle.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.