Morgunblaðið - 16.04.1996, Qupperneq 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 16. AFRÍL 1996
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRVERINU
Fiskréttaverksmiðja gæti
skapað allt að 400 störf
Aflavaki telur jafnvel raunhæft að reisa slíka verksmiðju
TALIÐ er að raunhæfir kostir
kunni að vera á því að reisa fisk-
réttaverksmiðju hér á landi. Slík
verksmiðja, sem ynni úr 10.000 tii
20.000 tonnum af hráefni árlega,
gæti skapað 150 til 400 störf. Þetta
eru niðurstöður skýrslu sem Afl-
vaki hefur látið vinna fyrir sig. Þar
kemur einnig fram að höfurborgar-
svæðið sé álitið heppilegasti staður-
inn fyrir slíka verksmiðju, þó önnur
atvinnusvæði í þéttbýli komi einnig
til greina. Þá er bent á að hugsan-
lega sér svigrúm fyrir tvær verk-
smiðjur, varla fleiri og ljóst að flytja
þurfi inn fisk til vinnslu.
í frétt frá Aflvaka segir, að með
þessu vildi félagið stuðla að auknu
gagnsæi og leggja lóð á vogarskál-
ar mikillar en oft yfirborðskenndrar
þjóðfélagsumræðu, og greiða götu
markvissrar úttektar á möguleik-
um atvinnu- og verðmætaskapandi
„sjávarréttarverksmiðju" á íslandi,
hvaða starfsskilyrði þyrftu að vera
fyrir hendi og hvar væri eftir atvik-
um hagkvæmast að reisa slíka
starfsstöð.
Frumvinnsla og
framhaldsvinnsla
Skýrslan er unnin af Einari
Kristni Jónssyni, rekstrarhagfræð-
ing. Skýrsluhöfundur gerir greinar-
mun á „frumvinnslu" annars vegar
og „framhaldsvinnu“ hins vegar.
Bent er á að þó svo að hefðbundin
fískvinnsla sé enn bundin frum-
vinnslustigi, hafi orðið verulegur
virðisauki af aukinni vinnslu frysti-
húsanna í neytendapakkningar,
sérvinnslu, bitaskurði o.fl. á undan-
förnum árum, á sama tíma og
blokkarframleiðsla hafi dregist
saman.
Framhaldsvinnsla er næsta stig,
sem felur í sér umbreytingar eða
„tilreiðslu“ hráefna frá hefðbund-
inni fiskvinnslu, s.s. brauðhjúpun,
kryddun, forsuðu eða -steikingu,
blöndun við önnur hráefni, o.s.ftv.
Stærstu fisksölufyrirtækin hér-
lendis annast framhaldsvinnslu í
verksmiðjum sínum í Bandaríkjun-
um, Bretlandi og Frakklandi. Hér
á landi er að finna vísa að fram-
haldsvinnslu, sem eru þó ófullburða
og í litlum rekstrareiningum.
Árleg söluaukning
á tilreiddum fiskafurðum
Bent er á að árleg söluaukning
á „tilreiddum" fiskafurðum í helstu
Evrópulöndum sé 7,4% á meðan
sala á ótilreiddum fiski aukist unt
aðeins 0,5% á ári. Sala á tilreiddum
ftskafurðum nemi um 4% af
heildarsölu sjávarafurða, en þetta
hlutfall verði komið í 60% um alda-
mót. Breytingar á fjölskylduhátt-
um, neyslumynstri, atvinnuþátt-
töku og örbylgjuofnaeign valda
þessum breytingum og eru hag-
stæðar hvers kyns framhalds-
vinnslu.
Skýrsluhöfundur varpar fram
nokkrum kostum til framhalds-
vinnslu sjávarafurða. Varað er hins
vegar við óraunhæfri bjartsýi varð-
andi verksmiðjurekstur hérlendis.
Lykilforsendur framhaldsvinnslu
felast m.a. í því að slíkar rekstrar-
einingar séu nægjanlega stórar og
burðugar til þess að standast stöð-
uga og umfangsmikla vöruþróun
fyrir markaði, þar sem líftími vöru-
tegunda verður æ styttri, margir
stórir framleiðendur eru fyrir og
verslunarkeðjur æ meira ráðandi í
allri markaðsfærslu framleiðslunn-
ar.
Gera verður ráð fyrir að fisk-
réttaverksmiðja framleiði að lág-
marki 10-15.000 tonn á ári á tví-
til þrískiptum vöktum til að eiga
einhveija möguleika, sem er svipuð
eða ívið stærri rekstrareining en
stærstu fiskvinnslufyrirtæki hér-
lendis, og veiti 150-400 manns
atvinnu. Líklegt er að slík verk-
smiðja verði að flytja inn lykilhrá-
efni í einhveijum mæli. Stærðin og
eðli starfseminnar setur staðarvali
hennar skorður og aðeins örfáir
staðir sýnast uppfylla nauðsynleg
skilyrði.
Næstu skref
Aflvaka hf.
í skýrslunni varpar höfundur
fram rökum fyrir vei'ksmiðjurekstri
erlendis frekar en hérlendis, og
gagnrökum fyrir verksmiðjurekstri
hérlendis. Næsti áfangi þessa verk-
efnis af hálfu Aflvaka hf. felst í
nánara mati á íslenskri sam-
keppnisstöðu með ítarlegum sam-
anburði á innlendum og erlendum
rekstrarskilyrðum „sjávarréttar-
verksmiðju".
Samstarf
við ÍS og SH
íslenskar sjávarafurðir hf. og
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
hafa fallist á að eiga hvort í sínu
lagi samstarf við félagið um slíka
úttekt, enda verði þær upplýsingar
sem samstarfsaðilarnir skilgreina
sem viðskiptalegt trúnaðarmál ekki
birtar opinberlega.
„Með þessu vill félagið sem fyrt'
auka málefnalega umfjöllun um
mögulegan verksmiðjurekstur hér-
lendis, kanna samkeppnisstöðu Is-
lands með tilliti til slíkrar fram-
leiðslustarfsemi, sem nú fer fram
erlendis, og leita svara við því hvað
þurfti til, til að slíkut' rekstur gangi
hérlendis," segir meðal annars í
frétt Aflvaka.
íslendingar reka fjórar fiskréttaverksmiðjur erlendis
Skapa um 1.300 manns
vinnu við framleiðsluna
SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihús-
anna, SÍF og íslenzkar sjávarafurð-
ir reka fiskréttaverksmiðjur í
Bandaríkjunum, Bretlandi og
Frakklandi, sem veita um 1.300
manns vinnu og vinna ú_r tugum
þúsunda tonna af fiski. I skýrsl-
unni er meðal annars að finna eftir-
farandi yfirliti yfir þá starfsemi.
SH rekur framleiðslu- og sölu-
fyrirtækið Coldwater Seafood
Corporation í Bandaríkjunum, sem
var stofnað 1947. Markmiðið með
stofnun þess var að koma frystum
afurðum félagsmanna á markað
ytra. Verksmiðjurekstur Coldwater
HUGBÚNAÐUR
FYRIR WIND0WS
FRÁBÆR ÞJÓNUSTA
gl KERFISÞRÖUN HF.
Fákafení 11 - Sími 568 8055
hófst árið 1954 og voru afurðirnar
fiskstautar og sneiðar með brauð-
mylsnu.
Afurðir fyrirtækisins í dag eru
aðallega hjúpuð framleiðsla með
brauði eða deigi, rækjur og ýmis
sérpökkun. Auk þess eru framleidd
þar fyllt flök. Einungis helmingur
hráefnisins _ til framleiðslunnar
kemur frá Islandi.
Fyrirtækið seldi um 25.000 tonn
af verksmiðjuframleiddum afurð-
um árið 1994 fyrir um 7,3 milljarða
króna. 420 manns vinna við fram-
leiðsluna.
Framleiðslan
tvöfölduð á sex árum
Verksmiðjuframleiðsla SH í
Bretlandi hófst á vegum Icelandic
Freezing Plants Ltd. árið 1984.
Fyrirtækið hefur búið við vaxandi
sölu og velgengni í seinni tíð og á
undanförnum sex árum hefur
framleiðslan tvöfaldazt.
Árið 1994 seldi fyrirtækið
13.600 tonn af verksmiðjuafurðum
fyrir um 3,6 milljarða króna. Afurð-
ir verksmiðjunnar eru um 200 tals-
ins. þar má nefna fiskborgara fyrir
McDonalds, flök fyrir verzlanakeðj-
una Iceland Frozen Foods og sér-
pökkuð hnakkastykki fyrir ýmsar
verzlanakeðjur. Um 450 manns
störfuðu hjá félaginu, þar af um
410 við verksmiðjuframleieðslu.
Á síðasta ári keypti SH helm-
ingshlut í Faroe Seafood verksmiðj-
unni í Grimsby. Reksturinn hefur
verið sameinaður og er fyrirtækið
þá þriðja til fjórða stærsta fyrir-
tækið í framleiðslu og dreifingu á
fiski í Bretlandi.
Selt fyrir 5,6 milljarða
íslenzkar sjávarafurðir eiga
ásamt framleiðendum fyrirtækið
Iceland Seafood Corporation í
Bandaríkjunum, sem var stofnað
árið 1951. Það rekur nú fullkomna
fiskréttaverksmiðju. Árið 1994
seldi fyrirtækið 23.100 tonn af eig-
in framleiðslu fyrir um 5,6 milljarða
króna. 320 manns starfa við fram-
leiðsluna.
SÍF með verksmiðju
í Frakklandi
Fyrir fimm árum keypti Sölu-
samband íslenzkra fiskframleið-
enda, SÍF, framleiðslu- og dreifíng-
arfyrirtækið Nord Morue í Jonzac
í Frakklandi. Með því móti vildi
SÍF komast inn fyrir tollmúra ESB
■ og sem næst endanlegum neyt-
anda. Þá vildi það þróa betur sölu-
möguleika á þurrfiski. Hjá fyrir-
tækinu í Frakklandi starfa 125
manns við vinnslu, markaðsmál og
stjórnun. Framleiðslan var 9.100
tonn árið 1994 og er stefnt að því
að auka hana í 15 þúsund tonn á
næstu árum. 75% af hráefni fyrir-
tækisins er íslenzkur fiskur.
Sænska stjórnin herðir
sparnaðaraðgerðir
Hærri skattar
og minni bætur
Kaupmannahöfn. Morgiinblaðið.
SVIAR hyggjast spara 22 millj-
arða sænskra króna (um 200 millj-
arða ísl.kr.), í viðbót við þann 118
milljarða (1150 milljarða) niður-
skurð, sem þegar var búið að
ákveða. Erik Ásbrink fjármálaráð-
herra Svía segir að takist að bæta
stöðu ríkisútgjalda með þessum
aðgerðum verði Svíar heimsmeist-
arar í niðurskurði.
Sparnaðinum á að ná með gam-
alkunnri blöndu skattahækkana
og niðurskurðar, til dæmis í fé-
lags- og heilbrigðismálum, þrátt
fyrir fyrri loforð um að skattar
yrðu ekki hækkaðir. Stjórnin virð-
ist ekki lengur búast við að ná
settu marki um að helminga at-
vinnuleysið fyrir 2000.
Ætlun stjórnarinnar er að
minnka ríkisútgjöld um 12,3 pró-
sent á árunum 1993 til 1998 og
í viðbót við fyrri sparnað á að
skera niður um 10 milljat'ða
sænskra króna (nær 100 milljarða
ísl.kr.) á næsta ári og tólf 1998.
Lögð er áhersla á að allur sparnað-
ur skili sér, en gangi ekki til að
greiða niður halla annars staðar.
Hins vegar er spáð minni hag-
vexti fram til 2000 en áður, 1,4
prósentum í stað 4 prósenta, svo
stjórnin virðist sjálf hafa misst trú
á eigin áætlunum um að fækka
atvinnulausum um helming, eins
og ætlunin var.
Ýmsar breytingar verða á
skattakerfinu. Orkuskattui' og
skattar á hlutabréf hækka, virðis-
aukaskattur lítilla fyrirtækja verð-
ur lækkaður og húsaviðhald gert
frádráttarbært. Hlutur sjúklinga í
greiðslum fyrir tannlækningar og
aðra heilbrigðisþjónustu verður
hækkaður. Áður hafði verið lofað
að hlutfall atvinnuleysis- og
sjúkrabóta yrði hækkað úr 75 pró-
sentum, sem stjórn Hægriflokks-
ins færði þær niður í, upp í 80
prósent og við það verður staðið,
en hins vegar verður bótaviðmiðun
breytt, svo að bótaþegar fá ekki
fleiri krónur í vasann.
Carl Bildt formaður Hægri-
flokksins segir um efnahagsstefnu
stjórnarinnar að hún sé görótt
blanda, þegar hagvöxtur minnki
og skattar hækki, ekki sé leyst
um höft atvinnulífsins og atvinnu-
leysið aukist. Bildt, sem hefur
umsjón með uppbyggingunni í
Bosníu, var í Stokkhólmi í gær á
ráðstefnu um Bosníu, en hefur
annars sjaldnast tíma til að láta í
ljós skoðanir á sænskum stjórn-
málum.
ISTUTT
Clinton til
Asíu og
Rússlands
BILL Clinton Bandaríkjafor-
seti lagði upp í vikuför til
Asíulanda og Rússlands í gær
og var fyrsti
viðkomu-
staðurinn
Suður-
Kórea. Þar
mun hann
ræða við
ráðamenn
um erfið-
leika í sam-
búðinni við
kommúnistastjórn Norður-
Kóreu en heldur síðan til Jap-
ans. Er ætlunin að staðfesta
með nýjum samningi í Tókýó
áratuga samstarf ríkjanna í
varnar- og öryggismálum.
Ákveðið var í gær að Banda-
ríkin afhentu fyrri eigendum
á ný um 20% lands sem þeir
nota undir herstöðvar á eynni
Okinawa. Ekki verður fækkað
í herliðinu.
Clinton fer þar næst til
Rússlands á alþjóðlegan leið-
togafund um öryggi í tengsl-
um við varðveislu kjarna-
vopna. .
Fjöldamorð
í Indónesíu
LIÐSFORINGI í her Indónes-
íu gekk af göflunum í gær
og skaut 15 manns til bana,
þ. á m. 10 hermenn. Atburð-
urinn varð á afskekklum í'lug-
velli í héraðinu Irian Jaya þar
sem innfæddir hafa barist
fyrir sjálfsstjórn og gegn hóf-
lausu skógarhöggi.
Varað við
niðurskurði
LEIÐTOGAR stjórnarand-
stöðu og stéttarfélaga í
Þýskalandi vöruðu í gær ríkis-
stjórn Helmuts Kohls kansl-
ara við því að ganga of langt
í að draga úr_ félagslegum
bótagreiðslum. Á hinn bóginn
virtist sem ekki væri eining
meðal jafnaðarmanna. Ger-
hard Schröder, forsætisráð-
herra Neðra-Saxlands, og
Kurt Beck, starfsbróðir hans
í Rheinland-Pfalz, virtust mun
sáttfúsari en Oskar Lafonta-
ine flokksformaður.
Sahlin hættir
á þingi
MONA Sahlin lýsti því yfir í
gær að hún ætlaði að hætta
þingmennsku og hugsa sinn
gang. Fyrir nokkrum mánuð-
um var talið
að Sahlin
yrði eftir-
maður Ing-
var Carls-
sons sem
formaður
sænska
Jafnað-
armanna-
flokksins og forsætisráð-
herra, en hún missti af hnoss-
inu vegna greiðslukortaó-
reiðu. Hún situr áfram í fram-
kvæmdanefnd flokksins.
Talið er líklegt að Sahlin
sé einangruð í þingflokknum
og Persson virðist hafa lítinn
áhuga á að hlaða undir hana.
Eftir að Persson var kosinn
sagðist ■ hún samt sem áður
álíta að hún hefði orðið betri
formaðúr og forsætisráðherra
og þau ummæli hafa ekki
mælst vel fyrir.