Morgunblaðið - 16.04.1996, Page 40
-40 ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
R AÐ AUGL YSINGAR
A TVINNUAUGL ÝSINGAR
Bakari
Óskum að ráða bakara til starfa.
Upplýsingar á staðnum fyrir hádegi.
Bernhöftsbakarí hf.,
Bergstaðastræti 13.
Grunnskólakennarar
Næsta skólaár vantar kennara til aímennrar
kennslu við Borgarhólsskóla, Húsavík. Einnig
vantar enskukennara við unglingadeildir
skólans og þroskaþjálfa til starfa með
fötluðum nemendum.
Umsóknarfrestur er til 30. apríl.
Nánari upplýsingar veita Halldór Valdimars-
son skólastjóri vs. 464 1660 og hs. 464 1974
og Gísli Halldórsson aðstoðarskólastjóri
vs. 464 1660 og hs. 464 1631.
Hafnarfjarðarbær
auglýsir laus til umsóknar eftirtalin störf:
Tæknimaður
í stjórnunarstörf á framkvæmda- og tækni-
sviði (Skrifstofa bæjarverkfræðings).
Um er að ræða starf byggingaverkfræðings
eða byggingatæknifræðings með töluverða
starfsreynslu.
Umsóknir sendist til Skrifstofu bæjarverk-
fræðings í Hafnarfirði, Strandgötu 6, 220
Hafnarfjörður, fyrir 26. apríl nk. merktar:
„Deildarstjóri".
Verkfræðingur
eða tæknifræðingur til afleysinga í sumar.
Hugsanlega gæti orðið um lengri ráðningar-
tíma að ræða. Viðkomandi þarf að geta haf-
ið störf sem fyrst.
Umsóknir sendist til Skrifstofu bæjarverk-
fræðings í Hafnarfirði, Strandgötu 6, 220
Hafnarfjörður, fyrir 26. apríl nk. merktar:
„Sumarafleysing".
Nánari upplýsingar um bæði störfin fást hjá
bæjarverkfræðingi, Kristni Ó. Magnússyni í
síma 555 3444.
TIL SÖLU
Jörð óskast til kaups
helst í Árnes- eða Rangárvallasýslu eða
Borgarfirði. Má vera með eða án bústofns,
garðyrkjubýli kæmi einnig til greina.
Áhugasamir hafi samband í síma 588 1263,
894 0636, eða fax 482 3736, fyrir lok apríl.
Við hverju má buast?
Er raunhæft að treysta launa-, lána- eða líf-
eyrissamningum í samfélagi þar sem Hæsti-
réttur sendir héraðsdómstólunum leyndar-
bréf um lögmenn, sem embættis- og stjórn-
málamenn þegja um?
Bókin Skýrsla um samfélag upplýsir. Útg.
ÓSKAST KEYPT
Kaupi gamla muni
s.s. skrautmuni, bækur, bókasöfn, myndir,
málverk, silfur, silfurborðbúnað, jólaskeiðar,
Ijósakrónur, bollastell, gömul póstkort,
íslensk spil og húsgögn, stór og smá.
Upplýsingar í síma 567 1989 e.kl. 19.00.
Geymið auglýsinguna.
ÝMISLEGT
Atvinnumálanefnd
Reykjavíkur
Þróun atvinnulífs í Reykjavík
STYRKVEITINGAR
Atvinnumálanefnd Reykjavíkurborgar veitir á
hverju ári styrki til þróunar atvinnulífs í
Reykjavík. Hér með er auglýst eftir umsókn-
um um slíka styrki en að þessu sinni eru til
ráðstöfunar 5 milljónir króna sem verða veitt-
ar til uppbyggingar í atvinnulífi Reykjavíkur-
borgar.
Styrkurinn er ætlaður einstaklingum sem eru
að búa sig undir að hefja eigin rekstur, og
litlum fyrirtækjum, sem eru að efla þann
rekstur sem fyrir er. Verkefnin verða að
stuðla að nýsköpun, þróun, hagræðingu,
markaðssetningu eða uppbyggingu í atvinnu-
lífi Reykjavíkurborgar.
Styrkir til einstakra verkefna geta numið allt
að 50% af áætluðum kostnaði við fram-
kvæmd hvers verkefnis. Hámarks styrkupp-
hæð er kr. 500 þús. og greiðist styrkurinn út
í samræmi við framgang verkefnis. Atvinnu-
og ferðamálastofa Reykjavíkurborgar hefur
eftirlit með framvindu verkefnis og útborgun
styrksins.
Umsóknareyðublöð iiggja frammi á Atvinnu-
og ferðamálastofu Reykjavíkurborgar, Að-
alstræti 6, si'mi 563-2250. Umsóknarfrestur
er til 30. apríl næstkomandi.
KENNSLA
Vigtarmenn
Námskeið til löggildingar vigtarmanna verður
haldið á Akureyri dagana 22., 23. og 24.
apríl 1996 og í Reykjavík dagana 6., 7. og
8. maí 1996.
Ef næg þátttaka fæst!!!
Námskeiðinu lýkur með prófi.
Skráning þátttakenda og allar nánari upplýs-
ingar á Löggildingarstofunni í síma
568 1122.
Löggildingarstofan.
A TVINNUHÚSNÆÐI
Akranes
Til leigu mjög gott verslunarhúsnæði á 1.
hæð við Kirkjubraut, ca 100 fm. Staðsett í
hjarta bæjarins. Tilvalið undir verslunar- eða
þjónustustarfsemi.
Nánari upplýsingar á fasteignasölunni.
Fasteignasalan Hákot,
Kirkjubraut 28,
sími 431 4045.
FUNDIR - MANNFAGNAÐUR
Nemendur
Langholtsskóla fæddir ’52
Er ekki kominn tími til að hittast og rifja upp
gömul kynni?
Skráning fyrir 1. maí.
Hannes, s. 557-4130 og Reynir, s. 567-2606.
Aðalfundur Sóknar
Aðalfundur Sóknar verður haldinn í Sóknar-
salnum fimmtudaginn 18. apríl nk. kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Kaffiveitingar.
Stjórn starfsmannafélagsins Sóknar.
Rafvirkjar - rafvélavirkjarí
Munið eftir aðalfundinum í félagsmiðstöð-
inni, Háaleitisbraut 68 kl. 20.30 í kvöld.
Stjórnin.
Verkamannafélagið Hlíf
Aðalfundur
Aðalfundur Verkamannafélagsins Hlífar
verður haldinn fimmtudaginn 18. apríl kl.
20.30 í veitingahúsinu Gafl-lnn, Dalshrauni
13.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
wmifa Fræðsla,
VMW skemmtun og
afþreying
á ráðstefnu um græna
ferðamennsku, Hótel
Eddu, Flúðum, 19. og 20.
apríl
Eftirtaldir þættir verða til
umræðu:
★ Vistvæn stjórnun í ferða-
þjónustu, samkvæmt ISO
14000 gæðastöðlum.
★ Umhverfisvottun og gildi
hennar fyrir íslensk ferða-
þjónustufyrirtæki.
★ Virk ferðamennska. Er
hægt að gera sögu og
fornminjar aðgengilegri
fyrir ferðamenn?
★ Er hægt að selja ferða-
mönnum menningararf-
inn? Áherslur grænnar
ferðamennsku á að gera menningu sýni-
legri sem afþreyingu fyrir ferðamenn.
★ Hvaða hugmyndir hefur fólk um ísland?
Hvernig sér gests augað hvernig við
stöndum að kynningu og markaðssetn-
ingu á landinu?
★ Sjálfbær landnýting. Um samvinnu sveit-
arfélaga og ferðaþjónustuaðila. Uppbygg-
ing þjónustu og aðgengi að ferðamanna-
stöðum.
Próf. Dr. Hansruedi Muller, Forschungsinst-
itut Bern, heimsþekktur fyrirlesari á sviði
grænnar ferðamennsku. Hefur ritað fjölda
greina um efnið og unnið að rannsóknum
varðandi skipulag ferðaþjónustu í Ölpunum
og við Miðjarðarhaf.
Angelika Frei, markaðs- og ferðaráðgjafi
FUTOUR í Munchen. Hefur verið verkefna-
stjóri í umhverfisráðgjöf fyrir þýsku ferða-
skrifstofuna Studiosus varðandi „Eco Audit".
Aðrir fyrirlesarar:
Juoko Parviainen, yfirráðgjafi umhverfismála
hjá Savonia, Finnlandi, Ari Trausti Guð-
mundsson jarðfræðingur, Björn Guðbrandur
Jónsson umhverfisráðgjafi, Arthúr Björgvin
Bollason rithöfundur, PéturJ. Eiríksson fram-
kvæmdastjóri markaðssviðs Flugleiða o.fl.
Ráðstefnugjald fyrir báða dagana aðeins
6.900 kr. Innifelur ítarleg ráðstefnugjöld og
græna skoðunarferð.
Gisting, fullt fæði, fordrykkur og fjölbreytt
kvöldskemmtun frá kr. 6.060 kr.
Upplýsingar og skráning í síma 561 5835.