Morgunblaðið - 16.04.1996, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1996 45
BRÉF TIL BLAÐSIIMS
Klerkar í klípu
Hvað eruð þið
að hugsa hjá Stöð 2?
Frá Albeiti Jensen:
ÞAÐ virðist ljóst að Guð vor hefur
í gegnum tíðina verið frekar óhepp-
inn með fulltrúa sína hér á jörð. í
gegnum aldirnar hefur trúin verið
notuð sem hagstjómartæki og
svipa kúgunarafla. Á miðöldum
kvað svo rammt að þessu, að „sa-
dískir“ kirkjunnar þjónar notuðu
trúna til að svala óeðli sínu með
pyntingum og morðum. Lúterstrú-
in var innleidd hér á landi með
aftökum á biskupi kaþólskra og
sonum hans. í einum sið kristninn-
ar getur maður framið viljandi
voðaverk, gengið svo til svokall-
aðra skrifta og hreinsað sig.
Hræðilegt umkomuleysi alþýð-
unnar um margar liðnar aldir, fólst
í menntunarsnauð, viðhaldinni fá-
tækt og kúgun í kjölfarið. Prestar
ljáðu lítið lið fátæklingum þeirra
tíma.
Það má líkja trú við stjórnmála-
stefnu. Leiðtogi sem fer ekki eftir
stefnuskrá flokks síns, svíkur bæði
málstaðinn og þá sem á hann trúa.
Kristin trú er það besta sem völ
er á ef maður vill að það góða sigri.
En þá er lágmarkið að fulltrúar
Guðs trúi á hann. í dag eru prest-
ar almennt ekki vændir um trú-
girni. í þeirra stéttarfélagi eru
meiri illindi og trúleysi hvor á ann-
an en gerist í öðrum félögum, þó
ótrúlegt megi telja. Æðsti maður
kirkjunnar á í vök að veijast. Til
hans er lagt af mikilli mannvonsku
og er málum þannig fyrirkomið að
hann á sér enga vörn. Frá mínum
bæjardyrum séð á miskunnarlaus
valdabarátta sér stað meðal presta.
Mér finnst eins og klerkar séu
komnir í stríð við almenning. Þeir
valdi látinn tauta við sjálfan sig
að nú sé líklega best að fara að
biðja Guð að hjálpa sér. Kannski
taka klerkar Guð ekki aivarlega.
Ekki einu sinni í bókstaflegri merk-
ingu.
I mínum huga eru sumir hæst
stemmdu prestarnir í Langholts-
málinu hræsnarar. Allt snýst um
peninga, völd og þá sjálfa. Þeir eru
svo lágt sigldir að taka undir
ósannaðar ávirðingar á yfirmann
sinn. Biskupi er hótað af lögfæð-
ingi Flóka ef úrskurður hans verði
þeim óhagstæður. En þegar úr-
skurður séra Bolla er það, lætur
Flóki nægja að fara í fýlu og ásaka
vígslubiskupinn um að forða sér á
flótta.
Sá söfnuður er heppinn sem
hefur slíkan afbragðstónlistár-
mann sem Jón Stefánsson er.
Langholtskirkja er það sem hún er
í dag vegna hans gjörða og safnað-
arins. Að skifta á Jóni og kreddu-
fullum friðslítanda væri svo sem
eftir öðru sem snýr að almenningi
í dag.
Biskup átti að víkja báðum,
Flóka og Jóni, á vinsamlegan hátt
og láta söfnuðinn um eftirleikinn.
Hvað sem öllu þessu líður eru
það söfnuðirnir, alþýðan, sem
borgar allan kostnað af kirkjum
og prestum. Ef klerkar setja söfn-
uðum sínum s'tólinn fyrir dyrnar,
hrekja þeir fólkið úr þjóðkirkjunni
og Háskólinn fengi framlagið í
staðinn. Það væri svo sem ekki
verra en hvað annað. Því eins og
margir vita, er menntun óvinur
stöðnunar og ofstækis.
ALBERTJENSEN,
Háaleitisbraut 129, Rvík.
Frá Guðbjörgu R. Guðmunds-
dóttur:
STRANGLEGA bönnuð börnum eða
alls ekki við hæfi barna er orðið
daglegt brauð í kynningu Stöðvar 2
á því sjónvarpsefni sem stendur
áhorfendum til boða klukkan tvö að
degi til.
Bannaða dagskráin byijar eftir
hádegi þegar krakkar eru að koma
heim úr skólanum. Foreldrarnir eru
þá oft í vinnu og ekki óalgengt að
krakkar svona frá 10 ára aldri (því
miður jafnvel yngri líka) séu einir
frá tvö til fimm á daginn. Þessi börn,
heimavinnandi fólk, aldraðir, vakta-
vinnufólk og sjúkir eru því markhóp-
urinn.
Lengi hefur verið lögð áhersla á
að bannað efni sé sýnt eftir tíu eða
ellefu á kvöldin þegar börnin eru
komin í rúmið. Margir foreldrar
reyna að brýna fyrir börnum sínum
að myndir séu ekki bannaðar nema
ástæða sé til og sporna við því að
börnin séu að horfa á efni sem geti
skaðað sálartetrið.
Stöð 2 brýtur síðan niður uppeldið
með því að halda að börnunum bann-
að efni um hábjartan dag og hvetja
þau til að horfa þegar mamma og
pabbi sjá ekki til.
Auðvitað er best að annað foreldri
geti verið heima og fylgst með börn-
um sínum en margir hafa ekki val.
Bannað börnum um
hábjartan dag
Ég er ekki áskrifandi að Stöð tvö
en þegar annað barnið mitt var í
pössun hjá afa sínum og ömmu um
daginn og hugsaði sér gott til glóð-
arinnar að horfa á sjónvarpið rak
alla í rogastans þegar efnið var
stranglega bannað börnum. Hvað eru
forsvarsmenn Stöðvar 2 eiginlega að
hugsa með þessu? Eru þeir beinlínis
að freista barna að horfa á bannað
efni þegar enginn sér sem bannar
eða fylgist með? Vita þeir ekki eins
og aðrir sem eiga börn að það er
afskaplega freistandi að horfa á
bannað myndefni og bestu börn láta
freistast þegar mamma og pabbi eru
í vinnunni og vita ekkert hvað gerist
heima? Ætlast þeir til að mamma
taki fjarstýringuna með í vinnuna
og pabbi kaupi skáp með lás fyrir
sjónvaipið? Þó að áhyggjufullir for-
eldrar tækju upp á því þá hafa sum
börn líka aðgang að nýjum tölvum
sem eru með innbyggðu sjónvarpi
og þá er erfitt að fylgjast með börn-
um að leik um hábjartan dag.
Er verið að þjóna öldruðum
og heimavinnandi fólki?
Hveijum eru forsvarsmenn hjá
Stöð 2 að þjóna með þessum sýning-
um? Halda þeir að roskið fólk, sem
líka er heima á þessum tíma dags,
hafi mjög gaman af bönnuðu mynd-
efni, eða þá að heimavinnandi fólk
eða vaktavinnufólk hafi ekki annað
við tíma sinn að gera en horfa á bann-
að og endurtekið efni klukkan tvö á
daginn? Mér þætti mjög vænt. um að
fá skýringar á þessum útsendingum
Stöðvar 2. Ég er viss um að fleiri
foreldrar vilja fá skýr svör. Með þessu
áframhaldi er það öruggt að Stöð 2
verður ekki fyrir valinu á mínum bæ
ef auka á við úrval sjónvarpsefnis.
GUÐBJÖRG R.
GUÐMUNDSDÓTTIR
Selbraut 11
hafa vitnað mikið í Biblíuna nú
undanfarið til stuðnings því áliti
sínu að söfnuðurinn skifti ekki
máli ef hann er ekki sammála
prestinum. Bókstafstrú hvort sem
alþýðunni líkar betur eða verr. Það
fer eftir prestinum hvort ritningin
er túlkuð til aukinnar gleði og sam-
heldni eða sundrungar og illinda.
Flókinn persónuleiki þarf ekki
að gera mönnum erfitt í hlutverki
friðflytjenda. Hugarfarið þarf að
vera í góðlegri kantinum og
óbrenglað af valdsýki og hroka.
Prestar eru venjulegt fólk. Það
auglýstist vel í viðtölum við Flóka
Kristinsson. Þar kom fram að hann
á erfitt með að fara eftir þeim
boðskap sem hann var kjörinn til
að þjóna. Það er eins og hann þekki
ekki eðli sáttfýsi og lítillætis. Að
ætla í skjóli heimskulegra laga, að
níðast á söfnuði sínum með því að
sitja áfram þrátt fyrir nánast alls-
herjar atrdbyr, kallar ekki á virð-
ingu honum né öðrum þeim prest-
um til handa, er telja söfnuðina
skifta nánast öngvu. I góðri skáld-
sögu, frægri, er klerkurinn Sig-
ALPINA
gönguskor
Vandaðir gönguskór
fyrir nieiri- «g
minniháttar
gönguferðir.
Frábær vcrð
Frá kr. 6.500
SPOTT
fflSr' L E I G A N®
ÚTIVISTARBÚÐIN
við Umferðarmiðstöðina,
símar 5519800 og 5513072.
Verslunarlagerhillur
Þungavöru-„rekkar
mm Stálhillur
Greina-„rekkar
Milligólf
Idnaðarvinnuborð
Plastskúffur
|D O aMj O ' ® |t® 1 Þéttihjólasl (ápar
--- 1 Stálfataskáf iar og- hólf ^
pP Ryðfríar hil llir ^^VIETflSfeffcMv
s. | Lyfti-oglél ... , . t Tnantnl 'TIT^DhI ^ ii oiiioi llllðrlll
ísold hf.
Umboðs- & heildverslun
Faxafen 10, 108 Reykjavík
Simi: 581 1091, fax: 553 0170
Fagleg ráðgjöf.
Hagstætt verð.
Leitið tilboða.