Morgunblaðið - 16.04.1996, Page 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Ætlar þú að taka áhœttuna
í sólarlandaferð eða
sólbekknum án 98%
ALOE VERA gelifrá Jasoni
Þín besta trygging er með
98% ALOE VERA
gelfrá Jason í farteskinu.
Feest í öllum apótekum á landinu og í:
2. hæð,
Boigarkringlunni,
símar854 2117
og 566 8593.
Tölvuþjálfun
Windo ws • Word • Excel
Það er aldrei of seint að byrja!
60 stunda námskeið þar sem þátttakendur kynnast
grundvallarþáttum tölvuvinnslu og fá hagnýta þjálfun.
Vönduð kennslubók innifalin í verði.
Innritun stendur yfir.
Fjdrfestu í framtíðinnil
5 ^éé Tölvuskóli íslands
™ Höfðabakka 9 • Sími 567 1466
Framtíð
á 60 mínútum
í dag
kl. 17:15 á Hótel Borg
Frummælendur:
Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra
Margrét Guðmundsdóttir, forstöðumaður
markaðssviðs Skeljungs hf.
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar hf.
Fundarstjóri:
Halldóra Vífilsdóttir, varaformaður SUS
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
Viltu verða
vinur?
Kynningarfundur fyrir verðandi sjálfboðaliða Vinalínunnar verður
haldinn þriðjudaginn 16. apríl kl. 20.30 í Þverholti 15. Sjálfboðaliðar
Vinalínunnar eru ekki sérffæðingar, heldur venjulegt fólk, sem vill
deila með öðrum reynslu sinni og tíma. Markmið okkar er að vera til
staðar, hlusta og gera okkar besta til að liðsinna þeim sem hringja.
Upplýsingar veittar í símum Vinalínunnar fyrir hádegi og á kvöldin.
Allir 25 ára og eldri velkomnir.
Vinalínan+
Sími 561 6464 Grænt númer 800 6464
Reykj avíkurdeild Rauða krossins.
ÍDAG
SKÁK
llmsjón Marjjrir
Pétursson
Hvitur leikur
og vinnur
STAÐAN kom upp á helg-
arskákmóti Taflfélags
Reykjavíkur sem lauk á
sunnudagskvöldið. Einar
Hjalti Jensson (2.015) var
með hvítt og átti leik, en
Davíð Kjartansson (1.640)
hafði svart.
28. Hxg5! - He2 (Eftir
28. - fxg5 29. Rxg5+ -
Bxg5 30. Dxg5 er svartur
óveijandi mát) 29. Hg7+ —
Kh8 30. Rd4 - He5 31.
Hxf7 - Hg8 32. h7 -
Hge8 og svartur gafst upp
vegna 33. Hh7+ sem mátar
í öðrum leik.
Fyrir þessa skák var
Davíð efstur með
fimm vinninga úr
fimm skákum, en
missti nú forystuna
til Einars Hjalta
sem sigraði á mót-
inu. Röð efstu
manna varð: 1. Ein-
ar Hjalti Jensson
6‘A v. af 7 möguleg-
um, 2.-3. Jón Vikt-
or Gunnarsson og
Oddur Ingimarsson
5'/2 v. 4.-6. Davíð
Kjartansson, Arn-
grímur Gunnhalls-
son og Jón Árni Jónsson 5
v. 7.-9. Arnar E. Gunnars-
son, Davíð Ó. Ingimarsson
og Jóhann Ingvason 4 V2 v.
10.-16. Hafsteinn Blan-
don, Stefán Kristjánsson,
Hjörtur Daðason, Bjarni
Magnússon, Þórir Júlíus-
son, Björn Þórðarson og
Helgi P. Gunnarsson 4 v.
o.s.frv.
Skólaskákmót Reykja-
víkur, einstaklings-
keppni, hefst í kvöld kl.
19 í félagsheimili TR,
Faxafeni 12.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Salmonella í
dýramat
HALLDÓRA Gunnars-
dóttir hringdi og vildi
benda fólki á að lítið eft-
irlit væri með innihaldi
dýramatar í-dósum, s.s.
fyrir hunda og ketti. Þar
gæti hugsanlega komið
upp sahnonella, enda er
mikið notað af kjúklinga-
kjöti í kattamatnum.
Væri ekki sniðugt að
nota allt þetta góða hrá-
efni, sem við Islendingar
hendum, í dýrafóður?
Þess vegna mætti
styrkja þessa atvinnu-
grein, þar sem hér er
atvinnuleysi og þ.a.l. fár-
ánlegt að vera að flytja
inn þessa vöru.
Mikill
verðmunur
MÓÐIR hringdi og vildi
vekja athygli lesenda á
miklum verðmun í leik-
fangaverslunum. Hún
fór með son sinn í bóka-
búð í Grafarvogi þar sem
sonur vildi fá Turtles-
karl. Sá kostaði 998
krónur og fannst móður-
inni það fulldýrt og varð
ekkert af kaupunum.
Þau fóru síðan í leik-
fangaverslun í Glæsibæ
og rákust þar á sams-
konar fígúru og kostaði
karlinn þar ekki nema
598 krónur og var þá
keyptur að bragði. Þetta
er ansi mikill verðmunur
því á seinni staðnum
hefði nánast verið hægt
að kaupa tvo fyrir einn.
Farsi
HÖGNIHREKKVÍSI
Víkveiji skrifar...
FYRIR nokkru var fjallað í
Reykjavíkurbréfi Morgun-
blaðsins um ný sjónarmið, sem tölu-
vert hafa verið til umræðu í Bret-
landi og Bandaríkjunum um ábyrgð
fyrirtækja á velferð starfsmanna
og umhverfi sínu og að umbuna
ætti þeim fyrirtækjum, sem sýndu
slíka ábyrgð í verki.
Nýlegt dæmi um þá áherzlu, sem
stjórnmálamenn í Bandarikjunum
leggja á þessi nýju viðhorf eru við-
brögð Clintons Bandaríkjaforseta
við ákvörðun verksmiðjueiganda í
Massachusetts. í desembermánuði
sl. kom upp eldur í vefnaðarvöru-
verksmiðju í bænum Lawrence í
Massachusetts. Framleiðslan stöðv-
aðist þegar og 2.500 starfsmenn
verksmiðjunnar'gengu út frá því
sem vísu, að þeir stæðu uppi at-
vinnulausir og tekjulausir þangað
til verksmiðjan hefði verið endur-
byggð, yrði hún á annað borð end-
urbyggð, því að allt eins mætti
búast við því að eigandinn hirti
tryggingaféð og pakkaði saman.
Þetta reyndist ástæðulaus ótti.
Eigandi verksmiðjunnar, Aaron
Feuerstein að nafni, sjötugur að
aldri, boðaði starfsmenn sína ti)
fundar í leikfimihúsi nærliggjandi
skóla. Hann kvaðst mundu greiða
þeim full laun, meðan á framleiðslu-
stöðvun stæði en vikulegur launa-
kostnaður verksmiðjunnar nam um
100 milljónum íslenzkra króna.
Hann kvaðst ennfremur mundu
greiða þeim jólabónus, um 20 þús-
und krónur hveijum um sig. Hann
lýsti því ennfremur yfir, að hann
mundi sjá um heilbrigðistryggingar
starfsmanna sinna næstu 90 daga
og hét því jafnframt að sumir þeirra
mundu geta hafið störf innan viku.
Viðbrögð íbúa Massachusetts
voru" gífurlega sterk. Þeir sendu
gjafir og stuðning til fyrirtækisins.
Clinton, Bandaríkjaforseti, bauð
eigandanum til Washington en Feu-
erstein kvað enga ástæðu til að
þakka sér. Afi sinn hefði byrjað
þennan atvinnurekstur af engum
efnum. Aðstæður í Bandaríkjunum
væru þannig, að fyrirtæki græddu
óeðlilega mikið fé. Samkvæmt hefð-
bundinni gyðingatrú sinni bæri hon-
um að reyna að vera maður og
gera eitthvað sem máli skipti í ver-
öld, sem gerði lítið með siðferðileg
verðmæti. Það var rifjað upp, að á
sjöunda áratugnum hefði hann neit-
að að flytja atvinnurekstur sinn til
Suðurríkjanna, þar sem svertingj-
um voru greidd lægri laun. „Afi
minn kom frá Ungveijalandi til
þess að öðlast pólitískt frelsi og ég
vildi ekki selja sálu mína fyrir ódýrt
vinnuafl," sagði Feuerstein.
Robert Reich, vinnumálaráðherra
Bandaríkjanna, sagði um Feuer-
stein: „Hann lítur á starfsmenn sína
sem jákvæðan þátt í rekstri fyrir-
tækisins en ekki kostnað, sem þurfi
að skera niður."
Athyglisverð saga - ekki satt?
FYRIR nokkrum vikum lézt
þekktur erlendur blaðamað-
ur, Victor Zorsa að nafni. Mið-
aldra og eldri lesendur Morgun-
blaðsins minnastþess áreiðanlega,
að blaðið birti reglulega í nokkur
ár greinar þessa merka blaða-
manns, sem var talinn fremsti
blaðamaður á Vesturlöndum í
umfjöllun um innri málefni Sovét-
ríkjanna. Enginn var talinn honum
fremri í því að greina hvað fram
fór að tjaldabaki í Kreml.
Victor Zorsa skrifaði greinar
sínar í allmörg ár í brezka dag-
blaðið Guardian en síðar flutti
hann sig yfir til Washington Post.
Blöð um öll Vesturlönd hafa
minnzt þessa merka blaðamanns,
sem hvað eftir annað spáði rétt
fyrir um atburði í Sovétríkjunum
og aðgerðir þeirra á alþjóðavett-
vangi. Þá spádóma byggði hann
fyrst og fremst á óhemju mikilli
vinnu við að lesa sovézk blöð og
tímarit og ýmis gögn, sem hann
fékk send frá Sovétríkjunum.
Um tíma var því haldið fram,
að Zorsa væri á mála hjá KGB,
sem kysi að nota hann til þess að
koma upplýsingum á framfæri á
Vesturlöndum. I ljós kom, að þess-
um sögum var dreift frá KGB til
þess að draga úr trúverðugleik
Zorsa á Vesturlöndum.