Morgunblaðið - 16.04.1996, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINCLAN I, 103 REYKJAVlK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENTRUM.IS / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85
ÞRIÐJUDAGUR 16. APRIL 1996
VERÐ I LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Sjávarútvegsráðherra mun ekki auka þorskafla á þessu fiskveiðiári
Ohætt að geyma fiskinn
á vöxtum í sjónum
ÞORSTEINN Pálsson sjávarút-
vegsráðherra ákvað í gær að auka
ekki þorskkvótann á þessu físk-
veiðiári frá því, sem ákveðið var í
fyrra. Davíð Oddsson forsætisráð-
herra segir að þessi ákvörðun
stangist ekki á við hugmyndir sínar
um aukningu þorskafla.
Sjávarútvegsráðherra tilkynnti
ákvörðun sína í utandagskrárum-
ræðum á Alþingi í gær, en þar
skiptust ræðumenn í nokkuð jafna
hópa með og á móti aukningu kvót-
ans á yfirstandandi fiskveiðiári.
Þorsteinn sagðist hafa hlustað á
ólík rök og sjónarmið og vissulega
væru mörg þeirra umhugsunar-
verð. Á hinn bóginn sýndust honum
þau rök þyngri, sem mæltu með
því að fylgja settum ákvörðunum
um kvóta og þeirri aflareglu, sem
ákveðið hefði verið að byggja veið-
arnar á, enda benti flest til þess
að þjóðin væri nú að uppskera
árangur af því starfi sem byggt
hefði verið á þeim sjónarmiðum.
Sjávarútvegsráðherra sagði að
bráðabirgðaendurmat Hafrann-
sóknastofnunar á þorskstofninum
nú sýndi að stofninn væri að
styrkjast. Það sýndi meðal annars
að óhætt væri að geyma fisk í sjón-
um og sjórinn væri um þessar
mundir að greiða hærri vexti en
bankarnir.
Aflareglan ekki brotin
á fyrsta ári
Aflareglan, sem sett var í fyrra,
gerir ráð fyrir að þorskkvóti hvers
árs sé ekki meiri en fjórðungur
af veiðistofninum, þó aldrei minni
en 155.000 tonn. „Ég er mjög
þakklátur og ánægður með að
menn skuli treysta sér til að halda
aflaregluna og bijóta hana ekki á
fyrsta ári,“ sagði Jakob Jakobsson,
forstjóri Hafrannsóknastofnunar,
í samtali við Morgunblaðið eftir
að ákvörðun ráðherra lá fyrir.
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra segir að tvennt hafi komið
til greina, að auka þorskaflann nú
strax og þá minna næsta haust,
eða þá að auka hann eingöngu á
næsta fiskveiðiári. „Meginatriðið
er að engin hætta var fólgin í því
að auka afla nokkuð nú í vor og
heldur minna í haust. Það lá engin
tillaga fyrir um aukningu nú, að
minnsta kosti ekki af minni hálfu.
Það liggur fyrir að aflinn verður
aukinn og dagsetningar hafa ekk-
ert með vöxt og viðgang stofnsins
að gera, heldur veiðihlutfall. Það
er enginn ágreiningur um þá aukn-
ingu, sem sjávarútvegsráðherra er
auðvitað ljóst,“ segir forsætisráð-
herra.
Tals'menn Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna og Sjó-
mannasambandsins fagna ákvörð-
un sjávarútvegsráðherra. Fulltrú-
ar smábátaeigenda og fiskvinnslu-
húsa telja hins vegar að svigrúm
hefði verið til að auka kvóta lítil-
lega. Guðjón A. Kristjánsson, for-,
maður Farmanna- og fiskimanna-
sambandsins, segir aftur á móti
að þetta sé „sorgleg niðurstaða".
■ Sjórinn greiðir/11
■ Viðbrögð/29
■ Leiðari/28
Penninn
kaupir Ey-
mundsson
PENNINN hefur keypt Ey-
mundsson og í kaupunum eru
bókaverslanir Eymundsson í
Austurstræti, Kringlu og Borg-
arkringlu og innflutningur Ey-
mundsson á bókum og blöðum.
Prentsmiðjan Oddi á áfram
verslanir við Suðurströnd, á
Hlemmi og í Mjódd, en Ey-
mundsson-nafnið hverfur af
þessum verslunum.
Gunnar B. Dungal, forstjóri
Pennans, sagði að Penninn
væri að styrkja sig í bóka- og
tímaritasölu og umræddar
verslanir yrðu áfram undir
nafni Eymundsson. „Við höld-
um rekstri þeirra áfram og
sjáum síðar hvað setur,“ sagði
Gunnar. „Kaupin bjóða upp á
hagræðingu, enda eru stærri
einingar hagkvæmari."
Penninn rekur nú verslanir
í Hallarmúla, Kringlu, Hafnar-
firði og í kjallara Eymundsson
við Austurstræti. Gunnar vildi
ekki gefa upp kaupverð.
Salmonella a
þátt í dauðsfalli
EINN sjúklingur hefur látist á Land-
spítalanum, að hluta til af völdum
salmonellu-sýkingar, að sögn Karls
G. Kristinssonar, formanns sýkinga-
varnanefndar spítalans, og tveir em
mikið veikir. Alls sýktust 124 af
völdum salmonellu í ijómabollum á
Landspítalanum í febrúar.
. „Þetta var aldraður sjúklingur
með alvarlegan undirliggjandi sjúk-
dóm og þótt hann hafi ekki látist
beint af völdum salmonellu-sýking-
ar er hún svokölluð meðvirkandi
ástæða,“ segir Karl. Sjúklingarnir
tveir, sem fyrr er getið, eru sýktir
af salmonellu, aldraðir og með al-
varlegan undirliggjandi sjúkdóm,
líkt og sá sem lést, segir Karl.
Aðspurður hvort málsókn á hend-
ur Samsölubakaríi, sem sá spítalan-
um fyrir ijómabollum á bolludag-
inn, komi til álita, segir formaður
sýkingavarnanefndar að það hafi
verið rætt, það sé hins vegar undir
stjórn spítalans komið.
Salmonellu-sjúklingarnir hafa
fengið afhentan spumingalista frá
sýkingavamanefnd og er búist við
að niðurstöður rannsóknarinnar
liggi fyrir í lok næstu viku, að
Karls sögn. Spurt er hvaða ein-
kenna sjúklingur varð var, hversu
lengi veikindin hafí staðið og hvaða
fylgikvillar hafí gert vart við sig.
„Þegar í ljós er komið hvað þetta
er umfangsmikið og hversu alvar-
legar afleiðingarnar eru, meta
menn kostnað spítalans og hvað
eðlilegast er að gera,“ segir Karl
G. Kristinsson að lokum.
Morgunblaðið/Kristinn
SR. RAGNAR Fjalar Lárusson, prófastur, og sr. Halldór Gröndal takast í hendur við upphaf fund-
arins í gær. Nær 100 prestar voru á fundinum þegar mest var í safnaðarheimilinu.
Hátt í eitt hundrað prestar sóttu fund Prestafélags Islands um „Astandið í kirkjunni
u
~ T)LLÖGUR um að fram færi póst-
könnun á því hvort prestar teldu
að biskup ætti að víkja eða ekki
og vantrauststillaga á stjórn
Prestafélags íslands vora dregnar
til baka og breytingartillaga, sem
málamiðlun við báðar, felld á lokuð-
um fundi Prestafélags íslands um
„Ástandið í kirkjunni" í safnaðar-
heimili Dómkirkjunnar í gær. Fund-
inn sóttu um 100 prestar alls stað-
ar af landinu. Hann stóð yfir í á
sjöunda tíma og var á fimmta tug
presta á mælendaskrá.
—• t Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins var fundurinn ekki jafn-
mikill átakafundur og ætlað hafði
verið. Við upphaf hans tóku nokkr-
ir hinna svokölluðu „svartstakka“
til máls og töluðu fyrir því að bisk-
up segði af sér. Samkvæmt heimild-
um blaðsins hlaut boðskapur þess-
ara presta hins vegar takmarkaðan
stuðning, en til hópsins töldust sam-
kvæmt heimildum blaðsins innan
Tillaga um viðhorfs-
könnun tekin aftur
við 20 manns. Tillaga um að fram
færi póstkönnun á því hvort prestar
teldu að biskup ætti að víkja var
dregin til baka og breytingartillaga
felld af miklum meirihluta fundar-
manna. Á sömu leið fór með van-
trauststillögu á stjórn Prestafélags-
ins.
Hreinskilni
og sáttahugur
Fyrstu þrír ræðumennirnir á
fundinum fengu að tala í ótakmark-
aðan tíma. En að því loknu var
ákveðið að takmarka ræðutíma,
enda mælendaskrá orðin nokkuð
löng. Prestarnir kvöddu sér hljóðs
hver af öðrum og var einróma álit
nokkurra presta, sem Morgunblaðið
talaði við eftir fundinn, að umræð-
urnar hefðu einkennst af mikilli
hreinskilni og sáttahug. Flest sjón-
armið varðandi „ástandið í kirkj-
unni“ hefðu komið fram og umræð-
urnar náð að hreinsa loftið og færa
prestana nær hver öðrum. Fundur-
inn hefði verið jákvæður og upp-
byggilegur.
Einn fundarmanna sagði að
fundurinn hefði haft yfir sér já-
kvætt og friðsælt yfirbragð. Prestar
vildu ekki taka neinn af lífi né
meiða neinn meira en orðið væri.
Hins vegar væri vilji fyrir því að
hefja jákvæða uppbyggingu. Annar
lagði áherslu á hversu mikilvægt
hefði verið fyrir prestana að fá loks
tækifæri til að tala saman af hrein-
skilni enda kominn tími til. Menn
skildu hver annan betur á eftir og
dæmi hefðu verið um að sættir
hefðu tekist á milli manna á fund-
inum. Kirkjan stæði án efa sterkari
eftir fundinn en fyrir hann.
Sr. Jón Bjarman var fundarstjóri
á fundinum og sr. Valgeir Ástráðs-
son honum til aðstoðar. Jón sagði
í samtali við Morgunblaðið að til-
gangur fundarins hefði fyrst og
fremst verið að gefa mönnum tæki-
færi til að láta í ljós skoðanir sínar
og blása út. Hvort tveggja hafi tek-
ist á fundinum. „Þótt menn hafi
verið mjög hreinskilnir í umræðum
skildu þeir í bróðerni þegar fund-
inum lauk,“ sagði Jón um fundinn.
Á honum var samþykkt tillaga
um að beina þeim tilmælum til bisk-
ups íslands að hann kallaði saman
nefnd þá er búið hafi í hendur
Kirkjuþings frumvarp um „Stöðu,
stjórn og starfshætti þjóðkirkjunn-
ar“, til að endurskoða ákvæði frum-
varpsins um embætti biskups ís-
lands í ljósi þess vanda sem biskups-
þjónustan hefði staðið frammi fyrir
á liðnum vikum.
i