Morgunblaðið - 18.04.1996, Page 14

Morgunblaðið - 18.04.1996, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1996 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Akureyrarbær tekur við verkefnum ríkisins á sviði menningarmála Hlutverk Leikfélags og þriggja safna skoðað sérstaklega SAMNINGUR um framlög ríkis- sjóðs til menningarmála og menn- ingarstofnana sem tengjast Akur- eyrarbæ og bundinn er verkefni reynslusveitarfélags verður undir- ritaður um næstu helgi. Samningur- inn gildir fyrir árin 1996-1999. Akureyrarbær er eina reynslusveit- arfélagið sem óskaði eftir að taka við rekstri menningarmála. Ingólfur Ármannsson menning- arfulltrúi Akureyrarbæjar sagði að með þessum samningi myndi bær- inn fá í einum pakka það fjármagn sem ríkið leggur til menningarmála á Akureyri og getur nýtt þá eins og best þykir henta. Jafnhliða því sem samningurinn er gerður verða stofnaðir vinnuhóp- ar sem skoða afmörkuð málefni á menningarsviðinu. Hefur einn hóp- urinn það hlutverk að skoða stöðu Leikfélags Akureyrar og hugsan- lega viðurkenningu þess sem lands- hlutaleikhúss. Þá munu fulltrúar Listasafnsins á Akureyri og Lista- safns íslands skoða möguleika á að veita á Akureyri þjónustu á veg- um Listasafns Island. Einnig munu fulltrúar bæjarins og Minjasafnsins á Akureyri eiga viðræður við þjóðminjaráð og Þjóð- minjasafn m.a. um minjavörslu og þá verður sérstaklega kannað hvort setja megi upp aðstöðu fyrir fólk sem áhuga hefur á að skoða einn stærsta verslunarstað íslands fyrr á öldum, á Gásum. Einnig verður möguleiki á að setja upp iðn- og tækniminjasafn sem tengdist verk- smiðjurekstri á Akureyri fyrr á árum. Að lokum mun einn vinnuhópur fara yfir hlutverk Amtsbókasafns- ins á Akureyri sem prentskilasafns. Vinnuhópunum er gert að skila nið- urstöðum sínum fyrir 1. desember næstkomandi. Samstarf ssamningur Vest- Norden Samstarfsamningur Vest-Nord- en er einnig á lokastigi og verður væntanlega undirritaður á laugar- dag en um er að ræða samstarf Islands, Færeyja og Grænlands á sviði rannsókna, menningar- og skólamála. Ríkisstjórn íslands hefur samþykkt samninginn og falið Ak- ureyrarbæ að hafa umsjón með hlut landsins í honum. Fyrsta stóra verk- efnið samkvæmt þessum samningi er þátttaka færeyskra og græn- lenskra handverksmanna í árlegri handverkssýningu í Eyjafirði í sum- ar. Ingólfur sagði að forgangsverk- efni Vest-Norden lyti að málefnum háskóla, sérkennum til lands og sjávar á þessum svæðum og kæmi sjávarútvegsdeild Háskólans á Ak- ureyri væntanlega mjög inn í þetta verkefni. „Með þessum samningi treystir ráðuneytið sveitarfélaginu fyrir að taka að sér þetta verkefni í þess umboði og við lítum á þetta sem viðurkenningu,“ sagði Ingólfur en gat þess að Grænlendingar og Fær- eyingar hefðu sótt fast að starfsem- in yrði á Akureyri þar sem bærinn væri álíka stór og Nuuk og Þórs- höfn. Siglir um á Sandvíkurtjörn SIGURÐUR Henningsson er handlaginn piltur í Grímsey. Hann útbjó sér lítið fley með rá og reiða og setti á flot á Sandvík- urtjörn. Báturinn er útbúinn úr slöngu úr dráttarvéladekki, í botninn setti hann froðuplast og seglið er svartur ruslapoki. Sjálf- ur situr Sigurður í hálfri hrogna- tunnu meðan hann siglir um tjörnina og lætur hann vel af þessum heimasmiðaða bát. ATVINNUMÁLANEFND AKUREYRAR STRANDGÖTU 29 AKUREYRI Ráðstefna um matvæla- iðnað í Eyjafirði Föstudaginn 3. maí 1996 á Hótel KEA, Akureyri. Dagskráin hefst kl. 9.30. STAÐA MATVÆLAIÐNAÐAR Neysluþróun og markaðurinn. Fulltrúi Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna. Hvenær á landbúnaður samleið með iðnaði? Ari Teitsson, formaður Bændasamtaka Islands. Hindrar núverandi skipan landbúnaðarmála frekari sóknarfæri? Páil Kr. Páisson, framkvæmdastjóri Sólar hf. Virðisauki í fullvinnslu. Námskeið um lífeðlis- fræði ár eynslu og þjálfunar ENDURMENNTUNAR- STOFNUN Háskóla íslands mun í samstarfi við Háskól- ann á Akureyri gangast fyrir námskeiði um lífeðlisfræði áreynslu og þjálfunar um tvær helgar, 20. og 21. apríl og 4.-5. maí á Akureyri. Námskeiðið er ætlað sjúkra- þjálfurum, íþróttakennurum og þjálfurum íþróttafélaga. Áhersla á breytingar við íþróttaiðkun Fjallað verður um lífeðlis- fræði mannslíkamans með sérstakri áherslu á þær breyt- ingar sem verða á honum við áreynslu og þjálfun íþrótta- fólks. Meðal atriða: Áhrif næringae.fna (prótein, kol- vetni o.fl.), áhrif bætiefna (kreatín o.fl.), mjólkursýru- mælingar, ofþjálfun, upp- bygging og breytingar á vöðvum, starfsemi lungna, hjarta og blóðrásar og margt fleira. Leiðbeinendur verða þeir dr. Þórarinn Sveinsson lektor og dr. Stefán B. Sigurðsson þrófessor. Nánari upplýsingar og skráning er hjá Endurmennt- unarstofnun Háskóla íslands. Aðalsteinn Helgason, framkvæmdastjóri Strýtu hf. Morgunblaðið/Hólmfriður Hvar eru sóknarfaerin? Ingjaldur Hannibalsson, dósent við Háskóla fslands. EYJAFJÖRÐUR SEM MATVÆLASVÆÐI Tekjur Skinnaiðnaðar jukust um 10% fyrstu mánuði ársins fmynd Eyjafjarðar sem matvælaframleiðslusvæði. Sigurður G. Tómasson, fréttamaður. Verður matvælaiðnaður stóriðja Eyfirðinga? Tómas Ingi Olrich, aiþingismaður. Skipulagsmál og stefnumörkun. Bjarni Kristinsson, framkvstj. Iðnþróunarf. Eyjarfjarðar hf. ERLEND FJÁRFESTING OG MARKAÐURINN Markaðssetning eriendis — hindranir og nýjar leiðir. Þorgeir Pálsson, yfirmaður sjávarútvegssviðs Útflutningsráðs. Fjárfesting í matvælaiðnaði — liður í aðgengi að nýjum mörkuðum. Guðný Káradóttir, verkefnastjóri Fjárfestingaskrifst. íslands. Útflutningur á fullunnum sjávarafurðum. Ari Porsteinsson, forstöðumaður sjávarútvegssviðs KEA. FRAMLEIÐSLUUMHVERFI - ÚRRÆÐI Hvernig tengist menntun atvinnulífinu? Jón Þórðarson, deildarstjóri sjávarútvegsdeildar HA. Þróunarsetur. Gunnar Már Kristjánsson, deildarstjóri vöruþróunardeildar fslenskra sjávarafurða. Reynsla fslendinga af Evrópusamstarfi á sviði matvælaþróunar. Emil B. Karlsson, upplýsingafulltrúi Iðntæknistofnunar. Umræður og fyrirspurnir verða á milli erinda. Ráðstefnustjórar verða: Gylfi Þór Magnússon framkvæmdastjóri markaðsdeildar SH og Guðmundur Stefánsson formaður atvinnumálanefndar Akureyrar. Ráðstefnugjald er 3.500 kr. Hádegisverður og kaffi eru innifalin í ráðstefnugjaldi. Skráning fer fram á Atvinnumálaskrifstofu Akureyrar í síma 462 1701. Lokadagur skráningar er-27. apríl. Meiri sala og hærra verð TEKJUR Skinnaiðnaðar hf. jukust um 10% fyrstu þijá mánuði árs- ins, miðað við sama tímabil í fyrra. Brúttótekjur félagsins voru um 189 milljónir króna en voru rúm- lega 171 milljón króna fyrstu þrjá mánuði síðasta árs. Þetta kemur fram í fyrsta fréttabréfi fyrirtæk- isins sem kom út í gær. Þar kem- ur einnig fram að hlutabréf í Skinnaiðnaði hafi hækkað um tæp 40% frá því að fyrirtækið gerðist aðili að Verðbréfaþingi íslands um sl. áramót og í vikunni voru seld bréf á genginu 4,20. Bjarni Jónasson, framkvæmda- stjóri Skinnaiðnaðar, segir megin- ástæður tekjuaukningarinnar vera að meira magn hefur selst en á sama tíma í fyrra, auk þess sem ívið hærra verð hefur fengist fyrir framleiðsluna. Bjarni segir útkomuna í takt við þær vænting- ar sem forsvarsmenn fyrirtækis- ins hafi gert til rekstrarins á yfir- standandi ári. Áætlanir gera ráð fyrir svipaðri afkomu í ár og var á síðasta ári en þá varð hagnaður fyrirtækisins rúmar 68 milljónir króna. Framleiðslan til 20 landa Framleiðsluvörur Skinnaiðnað- ar voru seldar til rúmlega 20 landa á liðnu ári, segir í fréttabréfínu. Þar af voru um 50% framleiðslunn- ar seld til Ítalíu og Suður-Kóreu, sem eru langstærstu einstöku markaðslöndin. Ítalía var lengi vel stærsta markaðslandið fyrir mokkaskinn en hlutdeild Suður- Kóreu hefur vaxið jafnt og þétt sl. 7 ár. Norðurlöndin og þá sérstaklega Finnland og Danmörk eru einnig mjög mikilvægj Loks er Bretland stór markaður fyrir mokkaskinn og þangað hefur líka verið selt megnið af þeirri ull sem klippt er af skinnunum. Önnur helstu mark- aðslöndin eru Tékkland, Grikk- land, Tyrkland, Bandaríkin og Kanada. Um 98% framleiðslunnar ár hvert eru seld til útlanda og aðeins um 2% á innanlandsmark- aði. Góð ávöxtun hlutabréfa Skinnaiðnaður var skráður á Opna tilboðsmarkaðnum í júlí í fyrra og fyrsta skráða gengi hluta- bréfa var 2,6. Þeir sem gerðust hluthafar í félaginu frá því að hlutafjárútboð hófst og til ára- móta, keyptu bréfin á genginu 3,0. Skráð sölugengi þeirra hefur hækkað töluvert síðan og sem fyrr sagði voru í vikunni seld bréf á genginu 4,20.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.