Morgunblaðið - 18.04.1996, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1996 15
LANDIÐ
Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson
FULLTRÚAR á stofnfundi Skólaskrifstofu Vesturlands.
Skólaskrifstofa
á Vesturlandi
Grund - Öll sveitarfélög á Vestur-
landi, utan Akranes, gengu frá
stofnun á Skólaskrifstofu Vestur-
lands í Borgartúni 12. apríl sl. Frá
og með 1. ágúst nk. mun Fræðslu-
skrifstofa Vesturlands lögð niður
en Skólaskrifstofa Vesturlands,
sem rekin er alfarið af sveitarfélög-
um, taka við.
Stofnfundurinn var haldinn á
Hótel Borgarnesi og kynnti Þórir
Jónsson, formaður undirbúnings-
stjómarinnar, endanlegar tillögur
um samþykktir fyrir Byggðasam-
lag um rekstur Skólaskrifstofu
Vesturlands. Samþykktir þessar
voru í 12 gr. og 1. gr. er svohljóð-
andi:
„Sveitarstjórnir þeirra sveitarfé-
laga sem undirrita þennan samn-
ing hafa ákveðið að stofna
Byggðasamlag um rekstur skóla-
skrifstofu á Vesturlandi í samræmi
við ákvæði IX kafla sveitarstjórn-
arlaga nr. 8/1986 um samvinnu
sveitarfélaga við framkvæmd ein-
stakra verkefna."
2. gr. er svohljóðandi:
„Samlagið heitir Byggðasamlag
um skólaskrifstofu Vesturlands.
Heimili þess og varnarþing er í
Borgarnesi.“
Eftir allnokkrar umræður voru
samþykktirnar bornar upp og sam-
þykktar óbreyttar. Kjörin var
stjórn Skólaskrifstofunnar, en
hana skipa: Guðjón Petersen, Snæ-
fellsbæ, formaður, Trausti Bjarna-
son, Dalabyggð, Guðmundur
Guðmarsson, Borgarbyggð, Ólafur
H. Sverrisson, Stykkishólmi, og
Ríkharð Brynjólfsson, Andakíls-
hreppi. I varstjórn eru: Björg Ag-
ústsdóttir, Grundarfirði, Svanur
Guðmundsson, Eyrar- og Mikla-
holtshreppi, Sæmundur Kristjáns-
son, Saurbæjarhreppi, Sigrún Sím-
onardóttir, Borgarbyggð, og Mar-
inó Tryggvason, Skilmannahreppi.
Rúmlega 2.000
stiga skor í
körfubolta
PILTARNIR í 10. flokki Ung-
mennafélagsins Skallagríms í
körfubolta léku nýlega körfu-
bolta stanslaust í heilan sólar-
hring. Tilefnið var fjáröflun
vegna væntanlegrar keppnis-
ferðar til Noregs í sumar. Fjár-
öflunin gekk mjög vel og stiga-
skorið fór samtals í rúmlega
2.000 stig. Piltarnir voru furðu
hressir eftir allan þennan leik-
tíma er þeir stilltu sér upp fyrir
ljósmyndara Morgunblaðsins,
ásamt Sveinbirni Sigurðssyni,
þjálfara sínum.
Ekki verði
dregið úr
umsvifum
Húsavik - Deild starfsfólks í
heilbrigðisþjónustu innan
Verkalýðsfélags Húsavíkur
samþykkti á síðasta fundi sín-
um eftirfarandi ályktun:
„Aðalfundur deildar starfs-
fólks í heilbrigðisþjónustu inn-
an Verkalýðsfélags Húsavíkur
haldinn 11. apríl 1996 skorar
á stjórnvöld, þingmenn kjör-
dæmisins og stjórnendur
Sjúkrahússins á Húsavík að
vinna að því að efla starfsemi
Sjúkrahússins og Heilsugæslu-
stöðvarinnar til muna.
Fundurinn . hafnar öllum
hugmyndum sem miða að því
að dregið verði verulega úr
umsvifum Héraðssjúkrahús-
anna á landsbyggðinni þar með
talið Sjúkrahús Húsavíkur.
Með því að draga úr umsvif-
um Sjúkrahússins á Húsavík
er verið að stíga stórt skref
aftur á bak í heilbrigðisþjón-
ustu og öryggi íbúa á þessu
svæði sem telur um 4.000 íbúa.
Endurbótum
á samkomu
húsinu lokið
Garði - Undanfarna mánuði
hafa staðið yfir endurbætur á
samkomuhúsinu og er þeim nú
nær lokið. í tilefni þessa bauð
vertinn, Jóhann Þorsteinsson og
eiginkona hans, Sigurbjörg H.
Bjarnadóttir, hreppsnefndinni í
kaffi sl. mánudag.
Miklar endurbætur hafa farið
fram á eldhúsi hússins sem nú
stenzt allar kröfur heilbrigðis-
eftirlits, húsið málað og keypt
inn í það ný húsgögn sem kost-
uðu um 1,5 milljónir kr. Tekur
húsið nú um 215 manns í sæti.
Jóhann og kona hans hafa
húsið á leigu til ársloka. Stefnt
er að því að hafa hlaðborð alla
sunnudaga í sumar fyrir ferða-
og heimamenn.
föstudagskvöld
GEIRMUNDUR
VALTÝSSON
ÁSAMT HLJÓMSVEIT
Morgunblaðið/Theodór
lilboð
í Kjarakaupum
Pottasettt 3 st
Ryðfrítt stál, 18/8
með glerloki,
gufuventli og
þreföldum botni.
Stærðir: 1,8 1,2,41,3,'
Áður 3.850
■; - í-t v -f'"" ■ 'í
P-—
i S.. '
Örbylgjuofn
22 Itr. m. snúningsdiski 850w
Áður 16.998
J 3.700
Halogensett
í innréttingar og loft, 12 wött
Þrír kastarar 20 wött.
Snúra og spennurbreytir.
Casin kaffivél
1,1 lítra, 750 wött.
Áður 2.200
nu
Áður 20.990
nu
14.998
Kjarakaupi
Lógmúlo 6, simi 568-4910
Óseyri 4, Akureyri, simi 462-4964.
- kjarni málsins!