Morgunblaðið - 18.04.1996, Side 18

Morgunblaðið - 18.04.1996, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1996 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÚR VERIIMU Morgunblaðið/Kristinn SKIPVERJAR á Baldvini Þorsteinssyni byrja að taka á móti nýju trolli um borð í Reykjavíkurhöfn. „Það gerir enginn svona“ Guðmundur Þ. Jónsson skipstjóri á Baldvini Þorsteins- syni segir rússneska togarann hafa brotið öll siglingalög TJÓNIÐ sem Samheiji varð fyrir þegar rússneskur verksmiðjutog- ari eyðilagði veiðarfæri frystitog- arans Baldvins Þorsteinssonar er meira en áður var talið. Það er upp á margar milljónir króna, að sögn Guðmundar Þ. Jónssonar, skipstjóra á Baldvini Þorsteins- syni. Eins og áður hefur verið greint frá dró rússneski togarinn eigið troll þvert yfir troll Baldvins og klippti það aftan úr honum. Guð- mundur segist ekki geta gert sér grein fyrir því hvort þetta hafi verið viljandi gert, en bætir við: „Það gerir enginn svona.“ Rússnesku togararnir friðlýstir Hann heldur áfram: „Hann á að vita hvað er á seyði þegar hann dregur yfir trollið hjá okkur. Við erum að draga á undan þegar hann siglir okkur uppi og beygir svo fyrir aftan okkur. Það eru aðeins 0,4 mflur í okkur þegar hann fer þvert yfír okkar troll.“ Að sögn Guðmundar losnaði trollið strax og var aldrei hætta á ferðum fyrir áhöfnina. „Við hífð- um svo það sem eftir var í sjónum og sáum að það vantaði helming- inn af trollinu. Þá fórum við upp að rússneska togaranum og pok- inn okkar kom upp úr trollinu hans.“ Guðmudur segir að þar hafi pokinn náðst um borð. Meira tjón en reiknað var með „Rússneski skipstjórinn brást þannig við að hann sagði að þetta væri mitt vandamál,“ segir hann. „Það er það sem þeir segja alltaf. Enda sé ég ekki betur en að búið sé að friðlýsa þá. Við tökum þá ekki einu sinni þegar þeir eru að veiðum inni í landhelgi." Hvað varðar aðgerðir gagnvart rússneska togaranum segir hann að það sé verið að kanna þau mál: „Ef þeir koma hingað verður athugað hvort eitthvað sé hægt að gera, t.d. halda sjópróf. Þeir brutu öll siglingalög. Við reyndum til dæmis að ná sambandi við þá' í tvo tíma en það gekk ekki. Samt eiga öll skipin þarna að vera stillt inn á sömu rás.“ Aðspurður um það hvort rúss- nesku togararnir hafi verið til vandræða á þessu svæði segir Guðmundur að ástandið hafi verið vont í fyrra en nú hafi það versnað. Hann segir að Baldvin Þor- steinsson fari aftur út á sunnudag með nýtt troll. „Tjónið var mun meira en reiknað var með,“ segir hann. „Það kom í Ijós að trollið var meira virði en við héldum og einnig töpuðum við aflanemum sem kosta sitt.“ V eruleg aukning þorsk- afla á þessu fiskveiðiári ÞORSKAFLINN það sem af er fiskveiðiárinu er orðinn 115.300 tonn samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskistofu. Það er um 15% aukning miðað við sama tíma í fyrra, þrátt fyrir að heimilaður afli á síðasta fiskveiðiári hafi vérið meiri en nú. Þorskaflinn í marzmánuði varð um 23.000 tonn á móti 18.800 tonnum í sama mánuði í fyrra og frá ára- mótum er þorskaflinn um 59.500 tonn, sem er rúmlega 10.000 tonn- um eða 20% meira en á sama tíma I fyrra. Heildarafli á fiskveiðiárinu er orðinn 1.250.646 tonn samkvæmt upplýsingum Fiskistofu, en það er veruleg aukning miðað við síðasta fiskveiðiár. Á sama tíma þá var Aflinn frá ára- mótum 20% meiri en í fyrra heildaraflinn orðinn 975.200 tonn og er munurinn því langleiðina í 300.000 tonn. Munurinn liggur reyndar nær allur í loðnu. I ár hafa veiðzt 794.814 tonn af loðnu, en á sama tíma sípasta fiskveið- iárs var loðnuaflinn orðinn 532.834 tonn. Botnfískaflinn þetta fískveiðiárið er var orðinn 268.028 tonn um síðustu mánaðamót, en á sama tíma í fyrra var hann 258.580. í flestum tilfellum er afli botnfisktegunda meiri nú en í fyrra. Úthafsrækjuaflinn var um mán- aðamótinn orðinn tæplega 44.700 tonn, sem er nærri 10.000 tonnum meiri en í fyrra. Auk þess öfluð- ust 2.100 tonn af rækju á Flæmska hattinum í janúar, febr- úar og marz. Úthafrækjuaflinn í marzmánuði varð einnig töluvert meiri en í sama mánuði í fyrra eða 6.149 tonn á móti 4.535 tonnum í fyrra. Mestúm þorski var í marzmán- uði landað í Þorlákshöfn, 3.930 tonnum. 3.802 tonnum var landað í grindavík, 2.868 tonnum í Sand- gerði og 2.205 tonnum á Höfn í Hornafírði. Síðustu dagar kosningabaráttunnar Pólitískt skít- kast en minna um málefni Róm. Reuter. ALMENNAR þingkosningar verða á Ítalíu næstkomandi sunnudag og nú síðustu dagana einkennist orra- hríðin milli tveggja stærstu kosn- ingabandalaganna af pólitísku skítkasti og hræðsluáróðri fremur en af málefnalegri umræðu. Ekki virðist vera mikill munur á stefnu flokkanna og margir óttast, að kosn- ingarnar muni engu breyta um upplausnina í ítölskum stjórnmál- um. _ „Ég mun ekki styðja neinn frambjóðanda eða flokk, ekki af yfir- læti heldur af virðingu fyrir borgurunum og stofnunum ríkisins," sagði Antonio Di Pi- etro, fyrrverandi sak- sóknari er á sínum tíma hóf baráttuna gegn spillingunni. Nær allir flokkar reyndu ákaft að fá hann til liðs við sig. Kannanir benda til þess að meirihluti ítala vilji að hann verði næsti forsætisráðherra landsins en pólitískur leiði og ör- vænting hafa gripið um sig meðal kjósenda. Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra og leiðtogi Frelsis- bandalagsins, kosningabandalags mið- og hægriflokka, sló á strengi kalda stríðsins um síðustu helgi þegar hann réðst á Ólífutréð, kosn- ingabandalag mið- og vinstriflokka undir forystu Lýðræðisbandalags vinstrimanna, kommúnistaflokks- ins fyrrverandi, og velti því upp hvort aftur yrðu haldnar fijálsar kosningar á Ítalíu ef það fengi meirihluta. Berlusconi gagnrýndur I herbúðum Ólífutrésins hefur þessum orðum verið svarað fullum hálsi og á þriðjudag birtist viðtal við - Romano Prodi, forsætisráð- herraefni Ólífutrésins, þar sem hann sakaði Berlusconi um að hafa auðgast á klámi og ofbeldi í sjón- varpi. Prodi sagði í viðtali við kaþ- ólska vikuritið Famiglia Cristiana að Berlusconi hefði grafið undan hefðbundnum fjöl- skyldugildum á Ítalíu með því efni er sýnt væri á sjónvarpsstöðv- um hans. Leo Valiani, öld- ungadeildarþingmað- ur, sem sat í fangelsum Mussolinis á sínum tíma, sagði hættu á upprisu fasismans ef Frelsisbandalagið sigr- aði. Átti hann þá við annan stærsta flokkinn í Frelsisbandalaginu, Þjóðarflokk Gianfranco Finis, sem ekki hefur enn afsalað sér öllum arfi Mussolinis og fas- ista. Raunar kvaðst Valiani trúa því, að Fini væri lýðræðissinni en margir stuðnings- manna hans væru gallharðir fasist- ar. Mislukkað kosningakerfi Kosningakerfið, sem tekið var upp 1994, sambland einmennings- kjördæma og hlutfallskosninga, hefur brugðist að flestra dómi og virðist ekki geta tryggt stöðugt stjórnarfar. Benda talsmenn beggja kosningabandalaganna á, að þau gætu unnið meirihluta í annarri deildinni en ekki hinni og því yrði hugssanleg stjórn komin upp á náð og miskunn smáflokka eins og Kommúnískrar endurreisnar, harð- asta kjarnans úr gamla kommún- istaflokknum, og Norðursambands- ins, sem vill skipta Ítalíu upp í sam- bandsríki. Að Frelsisbandalaginu standa fimm flokkar með 277 þingmenn en að Ólífutrénu fjórir flokkar með 225 þingmenn alls. Utan blokka eru Norðursambandið með 76 þingsæti, Kommúnísk endurreisn með 24 og smáflokkar og óháðir hafa 26. Tvö þingsæti eru óskipuð. Reuter ROMANO Prodi, f orsætisráðherra- efni Ólífubanda- lagsins. Kenningin um „illsku Þjóðveija“ endurvakin Bonn. Reuter. NÝ bók um Helförina og ábyrgð þýsku þjóðarinnar á henni hefur vakið hörð viðbrögð í Þýskalandi. Höfundurinn heldur því fram að gyðingahatur hafi verið landlægt í Þýskalandi fyrir stríð og að millj ónir Þjóðverja hafi ýmist tekið þátt í eða stutt gyðingamorðin í valdatíð Adolfs Hitlers. Mjög neikvæðir dómar um bók Daniels Jonah Goldhag- en; aðstoðarprófessors við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum, hafa á undanförnum dögum birst í stærstu dagblöð- um Þýskalands. Bæði Frankfurter Allgemeine Zeitung og Der Spieg- e/hafa algjörlega hafnað megin- niðurstöðu höfundar og röksemd- arfærslu hans. í ritdómi sagði út- gefandi Der Spiegel, Rudolf Aug- stein, meðal annars:„Við drögum hryllinginn ekki í efa. En að halda því fram að allir Þjóðveijar hafi verið hlynntir gyðingamorðum er í besta falli fráleit fullyrðing og í því versta illskeytt." í nokkrum bókadómum var vik- ið að því að útgáfa bókarinnar, sem nefnist „Hinir viljugu böðlar Hitlers" („Hitler’s Willing Executi- oners"), gæti orðið til þess að skaða samskipti Bandaríkjamanna og Þjóðveija. Þeir hinir sömu töldu og að deilan sýndi að morð- in á sex milljónum gyð- inga í valdatíð Hitlers hvíldu enn sem mara á þýsku þjóðinni. Goldhagen, sem er 36 ára og sonur gyðings sem lifði Helförina af, telur sig hafa afsannað fullyrðingar um að þýska þjóðin hafi aðeins farið að skipunum blóðþyrstra nasista, sem öllu réðu. í umsögnum um bókina segir að þetta sjónarmið hafi oftlega komið fram og Goldhagen hafi ekkert nýtt fram að færa í þessu efni. Bók um Hel- förina vekur hörö viöbrögð > i i i ! ! i * I Í > I | i I-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.