Morgunblaðið - 18.04.1996, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUD. jUR 18: APRÍL 1996 19
ERLENT
■ .
Réuter
Ensk kona
úrskurðuð
látin en
lifði
ENSK kona, sem læknir
hafði úrskurðað látna, var á
batavegi í sjúkrahúsi í gær.
Hún er 59 ára og féll í dá
af völdum sykursýki á heim-
ili sínu á mánudagskvöld og
skömmu síðar gaf læknir út
dánarvottorð.
Lögreglumenn, sem sam-
kvæmt venju komu síðan
heim til hennar, tóku eftir
því að hún hreyfði annan
fótinn. Tókst þeim að lífga
hana við.
Er þetta annað mál af
þessu tagi það sem af er ári
í Englandi.
Gennadí Zjúganov á kosningaferðalagi í Tsjeljabínsk
Segir Jeltsín vold-
ugri en keisara
TsjeMabínsk, Moskvu. Reuter.
Aukið
samstarf
BILL Clinton Bandaríkjaf orseti
og Ryutaro Hashimoto, for-
sætisráðherra Japans, takast í
hendur í Tókýó I gær eftir að
hafa undirritað samkomulag
um aukin samskipti og samstarf
í varnarmálum. Forsetinn sagði
að Bandaríkin og Japan gætu í
sameiningu orðið forystuafl í
heimsmálunum. Hann hét því
að bandarískt herlið yrði í Asíu
eins lengi og talin væri þörf á
því til að tryggja frið í löndun-
um við Kyrrahaf og Hashimoto
fagnaði þessu ummælum. Sagði
ráðherrann að samkomulagið
væri hornsteinn tvíhliða samn-
inga sem gætu tryggt stöðug-
leika og hagvöxt í austanverðri
Asíu.
Hashimoto ræddi ekki bein-
línis um þann möguleika að Jap-
anar yrðu þátttakendur í hern-
aðaraðgerðum utanjapanskrar
lögsögu ef nauðsyn krefði. Mál-
ið er mjög viðkvæmt vegna út-
þenslustefnu ríkisins um miðja
öldina.
GENNADÍ Zjúganov, frambjóðandi
rússneskra kommúnista í forseta-
kosningunum í júní, segir að Borís
Jeltsín forseti hafi nú sölsað undir
sig meiri völd en keisaramir höfðu.
Kommúnistar saka einnig Jeltsín og
menn hans um að misbeita óspart
aðstöðu sinni í kosningabaráttunni.
Zjúganov hefur verið á kosninga-
ferðalagi í suðurhluta Úralfjalla en
þar eru miklar iðnaðarborgir. „Eng-
inn krýndur þjóðhöfðingi á allri jarð-
arkringlunni hefur jafn mikil vöid [og
Jeltsín]. Hann hefur tvöfalt meiri
völd en rússneski keisarinn hafði...
og fjórum sinni meiri en [Bill] Clin-
ton Bandaríkjaforseti," sagði hann á
blaðamannafundi í Tsjeljabínsk.
Zjúganov hefur reynt að höfða til
sem flestra og reyndi að leggja
áherslu á að hann væri tiltölulega
hófsamur vinstrimaður er hann
ræddi við fólk í Tsjeljabínsk þar sem
kommúnistar fengu lítið fylgi í þing-
kosningunum í desember. Hann ít-
rekaði fyrri yfirlýsingar um að
kommúnistar myndu ekki snúa við
blaðinu í efnahagsumbótum en gera
hlutina á annan hátt en stjóm Jelts-
íns. Kaupsýslumenn borgarinnar
sýndu boðskap Zjúganovs þó lítinn
áhuga.
Aðstoðarmenn hans gáfu í skyn
að stjórnvöld í Moskvu hefðu beitt
þrýstingi til að fá ráðamenn í pípu-
verksmiðju til að aflýsa fundi fram-
bjóðandans með verkamönnum.
Margir vilja afturhvarf
Að sögn rússneska ríkisútvarpsins
sýnir könnun virtrar stofnunar er
annast skoðanakannanir vilja 42%
Rússa að á ný verði tekinn upp áætl-
unarbúskapur í efnahagnum, eins og
var í tíð Sovétríkjanna gömlu. Aðeins
33% vilja fremur markaðshagkerfi,
eins og stjóm Jeltsíns segist stefna
að, 25% hafa ekki skoðun á málinu.
Einnig kom í ljós að 41% töldu so-
véskt stjórnkerfi hentugast fyrir
Rússland, 27% vildu vestræna lýð-
ræðishætti en 9% sögðust ánægð
með núverandi stjórnhætti. 1.600
manns tóku þátt í könnuninni.
Ekki var skýrt frá því hvernig
skiptingin var eftir aldri en í öðmm
könnunum hefur komið í ljós að ungt
fólk er hlynnt lýðræði og markaðs-
kerfi en gamla fólkið saknar Sovétár-
anna. Gamla fólkið er yfirleitt mun
duglegra að fara á kjörstað en ungt
fólk í landinu.
Vortilboð
flug og gisting
gildir 1. maí
til 15. júní
VORÍ
Lágmarks- og liámarksdvöl cr ein vika (7 dagar).
Síöasti lieimkomudagur er 15. júní.
Haföu samband vió sölufólk okkar, feröaskrifstofurnar
eöa i síma 50 50 100 (svaraö mánud. - föstud. frá kl. 8
19 og á laugard. frá W. 8 -16.)
Blómskrúð, geislandi kátína og „gezelligheid“
FLUGLEIDIR
Traustur tslenskur ferðafélagi
ORIENT
Grétar Helgason,
úrsmi>ur,
Laugavegi 35,
s. 552 4025.
Vöndu)
fermingarúr
Ven
kr. 11.900.
APPELStNU
BRASSt 1 itr
SOLGLERAUGU
HERRA/DÖMU/UNGL
MARGAR GEROiR
AGFA FtLMA mm
36 MYNDA 200 ASA
FRONKEX
SUKKULAOl
MARIE
FRONKEX
HEIMA ER BEST
meira en bensín