Morgunblaðið - 18.04.1996, Síða 20
20 FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Nýgræðingur
gæti gert Gramm
skráveifu
Houston. Reuter.
VICTOR Morales, menntaskóla-
kennari í Texas, hefur lagt
áherslu á það við nemendur sína
að þeir eigi að láta tiLsín taka í
stjórnmálum. Fyrir nokkrum
mánuðum ákvað hann að sýna
fordæmi með því að bjóða sig
fram sjálfur og stendur nú með
pálmann í höndunum sem fram-
bjóðandi demókrata til öldunga-
deildar Bandaríkjaþings í kosn-
ingunum í nóvember. Andstæð-
ingur hans verður repúblikaninn
Phil Gramm.
Ók um á pallbíl
Morales bauð sig fram gegn
John Bryant fulltrúadeildarþing-
manni, sem nú hugðist gefa kost
á sér til öldungadeildarinnar.
Morales hafði enga málsmetandi
menn á bak við sig, hann notaði
eigin sjóði til að fjármagna kosn-
ingabaráttuna og ók um Texas á
pallbíl sínum til að ræða við kjós-
endur.
Bryant naut stuðnings flokks-
vélarinnar og til kosningabarátt-
unnar varði hann tífaldri þeirri
upphæð, sem Morales eyddi, eða
hálfri milljón dollara (33 milljón-
um króna) á móti fimm þúsund
dollurum (þijú hundruð þúsund
krónum).
Morales þakkaði sigurinn því
að kjósendur litu á sig sem „venju-
legan náunga". Morales sótti einn-
ig mikið fylgi til kjósenda af suð-
ur-amerískum uppruna. 80 af
hundraði þeirra kusu hann í for-
kosningunum 12. mars. Andstæð-
ingur Morales í nóvember verður
Phil Gramm öldungadeildarþing-
maður. Sérfræðingar telja að
Gramm geti ekki bókað auðveld-
an sigur á hinum pólitíska ný-
græðingi.
Staða
Gramms veik
Staða Gramms er mjög veik
eftir misheppnað forsetaframboð,
sem kostaði hann 27 milljónir
dollara (um 1,7 milljarða króna).
Nú þarf Gramm að átta sig á því
hvernig hann ætlar að heyja kosn-
ingabaráttu gegn andstæðingi,
sem ekki hefur á sér stimpil hins
innvígða stjórnmálamanns, en
kjósendur hafa sérstaka andúð á
því fyrirbæri.
Fjórðungur kjósenda í Texas
er af suður-amerískum uppruna
og flestir þeirra eru demókratar.
Líklegt er talið að þeir muni
mæta vel á kjörstað. Gramm hef-
ur hins vegar dijúgt forskot á
Morales samkvæmt skoðanakönn-
unum og þijár milljónir dollara
(tæpar 200 milljónir króna) í kosn-
ingasjóði sínum.
En Morales kveðst ekki smeyk-
ur. Hann hyggst nota pallbílinn
sinn áfram og segist lítið vit hafa
á flóknum pólitiskum málum:
„Það eina, sem ég veit, er að ég
ætla ekki að breytast. Ég ætla að
vera meðal fólksins."
Reuter
Sjö skip í Síldarsmugu
Ósló. Morgvnblaðið.
NORSKA strandgæslan segir fimm
dönsk og tvo færeysk skip vera að
veiðum á alþjóðlegu hafsvæði í
Síldarsmugunni svokölluðu. Sex
skipanna voru með veiðarfæri úti
er vél strandgæslunnar flaug yfir
þau um 30-40 mílur út af 200
mílna lögsögu Norðmanna.
Audun Marák, framkvæmda-
stjóri samtaka norskra útgerðar-
manna, segist telja að þessi skip
hafi þegar hafið veiðar úr norsk-
íslenska síldarstofninum og að
hann hafi vitneskju um að skip frá
Svíþjóð, Danmörku, Skotlandi og
írlandi búi sig nú undir síldveiðar
á sama svæði. Hann segist einnig
óttast að skip frá fleiri ríkjum, s.s.
íslandi, muni halda til veiða innan
skamms í Síldarsmugunni.
Norska strandgæslan hyggst
fylgjast með veiðum erlendra skipa,
m.a. úr flugvélum.
Síldin er nú á leið á haf út eftir
vorgot við Noregsstrendur. Stofn-
inn er mjög stór í ár en síldin er
enn mögur og fitumagnið einungis
á bilinu 7-8% og hentar því vart
til annars en bræðslu.
Marák segist vona að síldin
muni brátt halda inn í norska land-
helgi á ný og að þannig verði hægt
að takmarka veiðar úr stofninum.
Hann segir hættu á að ella verði
of mikið veitt úr stofninúm og
muni það bitna harðast á íslending-
um og Færeyingum þar sem stofn-
inn verði að ná tiltekinni stærð til
að ganga inn í landhelgi þeirra.
Mengun í
Zimbabwe
STARFSMAÐUR í þjóðgarði í
Afríkuríkinu Zimbabwe fjar-
lægir hvíta leirslabba, vatna-
fiska sem drepist hafa í stöðu-
vatninu Chivero. Eiturefni á
botninum munu hafa færst ofar
vegna skyndilegra straum-
breytinga. Einnig er talið að
óhreinsað skolp og iðnaðarúr-
gangur, sem dælt er í aðrennsl-
isfljót vatnsins, eigi einhvern
þátt í fiskadauðanum.
Óöld mest
í Suður-
Afríku
AÐ meðaltali falla 52 menn á
degi hveijum fyrir morðingja-
hendi í Suður-Afríku. Miðað
við mannfjölda eru hvergi
framin fleiri morð í heiminum,
t.d. eru þar framin níu sinnum
fleiri morð en í Bandaríkjunum
miðað við mannfjölda. Nauðg-
un á sér stað á hálfrar stundar
fresti að meðaltali, bíl er stolið
níundu hveija mínútu og vopn-
að rán er framið á 11 mínútna
fresti.
Bretar glápa
í fjóra tíma
BRETAR sitja að jafnaði í fjór-
ar klukkustundir dag hvern
fyrir framan sjónvarp, sam-
kvæmt nýrri könnun. Hjá 85%
eru fréttir áhugaverðasta efn-
ið. Helmingur þátttakenda í
rannsókninni mundi ékki eftir
neinu einu markverðu sjón-
varpsefni frá síðasta ári.
Eritreumenn
inn í Djibútí
ERITRESKAR hersveitir fóru
sjö km inn í Djibútí seint í
fyrrakvöld og kom til átaka
milli þeirra og stjórnarhers
Djibútí. Ríkin tvö greinir á um
mörk landamæra. í gær sendi
stjórn Djibútí liðsauka og
þungavopn að landamærunum
til að veija þau.
Ný ofur-
stjarna
fundin
KÍNVERSKIR vísindamenn
segjast hafa fundið ofur-
stjömu utan Vetrarbrautar-
innar, í stjörnumerkinu Hrafn-
inum. Sé hún 100 milljón sinn-
um bjartari en sólin og í 65
milljón ljósára fjarlægð frá
jörðu.
Ríkjaráðstefna Evrópusambandsins
Sænskar tillögur
um opnara stjórn-
kerfi sambandsins
SVÍAR lögðu fram tillögur um
hvemig opna mætti stjórnkerfi
Evrópusambandsins er annar
samningafundur ríkjaráðstefnu
sambandsins var haldinn á þriðju-
dag.
Gunnar Lund, fulltrúi sænsku
ríkisstjómarinnar, kynnti tillögur
Svía um hvernig auka mætti tiltrú
almennra borgara í garð sam-
bandsins og koma í veg fyrir spill-
ingu án þess þó að aflétta leynd
af öllum skjölum.
Að sögn Svenska Dagbladet er
í tillögum Svía einungis gert ráð
fyrir að ESB-skjöl verði öllum að-
gengileg. I greinargerðinni segir
að vissuiega megi einnig færa rök
fyrir því að opna fundi ráðherra-
ráðsins fyrir almenningi og fjöl-
miðlum. Hins vegar verði lokaðir
fundir ávallt að vera til staðir þann-
ig að aðildarríkin geti skipst opin-
skátt á skoðunum reynt að ná
málamiðlunum.
Ákvæði um leynd
Lagt er til að áþekkar reglúr
gildi um ESB-skjöl og opinber
sænsk skjöl en að hægt verði að
binda skjöl trúnaði undir ýmsum
kringumstæðum, t.d. ef um þjóðar-
öryggi eða viðskiptaleyndarmál er
að ræða.
Svíar töldu nauðsynlegt að setja
slíkt ákvæði inn í tillögur sínar þar
sem margir evrópskir stjómmála-
menn höfðu skilið fyrri málflutning
þeirra á þann veg að leynd mætti
ekki hvíla yfir neinu. Lund úthlut-
JUSTUS Lipsius, bygging ráðherraráðs ESB í Brussel, er ekki
árennileg. Svíar vilja opna suma fundi ráðherraráðsins fyrir
almenningi og fjölmiðlum.
^★★★^.
EVRÓPA^
aði því á fundinum einnig afritum
af sænsku reglunum, þar sem kem-
ur fram að margar undantekningar
eru á reglunni um að aðgangur
að skjölum skuli vera óheftur.
Sænsk stjórnvöld hafa sömuleið-
is í verki reynt að sýna fram á að
þau séu ekki andvíg leynd, t.d.
með því að mótmæla því er upplýs-
ingar, sem eiga að vera leynilegar,
leka út til fjölmiðla.
Rök Lunds á fundinum voru
ekki síst þau að eftir því sem að
innsýn í störf hins opinbera eykst,
eykst jafnframt tiltrú almennings
í garð stjórnvalda. Að auki dragi
þetta verulega úr spillingu í stjórn-
kerfinu.
Ganga frá
áheyrnar-
aðild að
Schengen
DÓMSMÁLA- og innanríkisráð-
herrar norrænu ríkjanna fimm
munu í dag eiga fund með stjórnar-
nefnd Schengen-vegabréfasam-
komulagsins í Haag í Hollandi. Á
fundinum verður formlega gengið
frá áheyrnaraðild Norðurlandanna
að Schengen-samkomulaginu, en
gert er ráð fyrir að hún taki gildi
1. maí næstkomandi.
Full aðild þriggja,
samstarfssamningar við tvö
Áheyrnaraðildin er um leið yfir-
lýsing um að stefnt sé að fullri
Schengen-aðild norrænu ESB-ríkj-
anna, Danmerkur, Finnlands og
Svíþjóðar. Stefnt er að gerð sam-
starfssamninga við ísland og Nor-
eg, sem standa utan Evrópusam-
bandsins.
Ekki er gert ráð fyrir að aðild
neins af norrænu ríkjunum að
Schengen-samstarfinu taki gildi
fyrr en á árinu 1998.
)
>
)
I
>
i
l
i
>
(
I
i
l
i
I
í
i