Morgunblaðið - 18.04.1996, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1996 21
ERLENT
Friðartilraunir vegna átaka ísraela og Hizbollah
Vonast
eftir
árangri
í vikulok
Jerúsalem, Beirút, París. Reuter.
SHIMON Peres, forsætisráðherra
ísrael, sagði í gær að árásum á
stöðvar Hizbollah-skæruliða í suð-
urhluta Líbanon yrði haldið áfram
en viðurkenndi að óliklegt væri að
þær myndu leiða til þess að eld-
flaugaárásum á ísrael linnti á
næstu dögum. ísraelskir embættis-
menn drógu í efa að tilraunir
Bandaríkjamanna til að koma á {
vopnahléi milli ísrael og Hizbollah
færu að bera árangur fyrr en undir
lok vikunnar.
Heimildir innan ísraelska stjórn-
kerfisins herma að ekki sé lengur
talið raunhæft að ná víðtæku sam-
komulagi um vopnahlé og í stað
þess sé stefnt að því að útvíkka
munnlegt samkomulag er komst á
fyrir tilstuðlan Bandaríkjastjórnar
eftir að átök brutust síðast út á
landamærum Líbanon og ísrael árið
1993. ísraelar gerðu lítið úr tilraun-
um Frakka til að miðla málum og
sögðu að þeir litu á Bandaríkja-
stjóm sem eina sáttasemjarann í
deilunni.
Ellefu þúsund sprengjukúlur
ísraelar hafa undanfarna viku
skotið ellefu þúsund sprengjukúlum
og herþotur þeirra farið í þúsund
árásarferðir yfir Líbanon.
Sprengjuárásum var haldið áfram
í gær og Hizbollah-skæruliðar svör-
uðu með því að skjóta eldflaugum
á norðurhluta ísrael.
Heimildir herma að Sýrlendingar
líti svo á að hinn óbeini stuðningur
við Hizbollah sé tromp sem þeir
ætli að spila út í tvíhliða friðarvið-
ræðum við ísrael er hefjast á ný
þann 29. maí. Að mati ísraela gætu
Sýrlendingar, sem hafa 35 þúsund
hermenn í Líbanon, hæglega komið
böndum á Hizbollah-samtökin æski
þeir þess.
Reuter
ISRAELAR hafa boðið miklum fjölda barna frá suðurhluta Líban-
ons að dveljast í sumarbúðum í Israel vegna átakanna við hiz-
bollah-skæruliða í Líbanon. Myndin var tekin er börnin komu
yfir ísraelsku landamærin i gær með ísraelska og líbanska fána.
Vestrænir hernaðarsérfræðingar
segja að hernaðaraðgerðir ísraela
hafí lítil áhrif haft á starfsemi Hiz-
bollah og hafi ekki orðið til að ein-
angra samtökin gagnvart líbönsk-
um stjórnvöldum.
Hizbollah hafnaði í gær tillögum
Bandaríkjastjórnar frá því á þriðju-
dag, sem eru á svipuðum nótum
og samkomulagið frá 1993, og
hvatti liðsmenn sína til áframhald-
andi árása. Sögðu forystumenn í
Hizbollah að Bandaríkjamenn væru
ekki siðferðislega færir um að miðla
málum vegna náinna tengsla við
ísrael.
Faris Bouez, utanríkisráðherra
Líbanons, sagði hins vegar ekki
útilokað að Líbanir myndu sættast
á bandarísku tillögurnar yrðu gerð-
ar á þeim breytingar.
Hervé de Charette, utanríkisráð-
herra Frakklands, hélt í gær áfram
tilraunum til að miðla málum í deil-
unni. Franskir embættismenn
sögðu tillögur hans vera mjög
áþekkar tillögum Bandaríkjamanna
og að viðræður hans við Ehud Bar-
ak, utanrikisráðherra ísrael, hefðu
verið „gagnlegar en erfiðar“ sem á
máli diplómata þýðir að þeim hafi
lent saman.
Talsmaður bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins neitaði því að tog-
streita væri milli Bandaríkjamanna
og Frakka og sagði að Bandaríkja-
stjórn styddi tilraunir de Charettes
heilshugar.
Ókeypis lögfræðiaðstoð
í kvöld milli kl. 19.30 og 22.00
í síma 551 1012.
Orator, félag laganema.
BIODROGA
Lífrænar jurtasnyrtivörur
IV, 1 ‘ PáStkJ '
Handhafar Evrópu
gæðaverðlaunanna
1994 og 1995
Nýttu þér frábært tilboð frá BIODROGA núna: |
HREINSIMJÓLK...300 ml................1.365 kr.
HREINSIVATN.........300 ml...........1.365 kr.
Útsölustaðir:
Stella, Bankastræti; Ingólfsapótek, Kringlunni; Lilja, Grenigrund 7, Akranesi; Vöruhús
KEA, Akureyri; Hilma, Húsavík; Cleopatra, Egilsstöðum;
SIEMENS
Sérstök afsláttarkjör
Laugardaginn 20. apríl verður opið frá kl. 10
Vorsýning
-16
Við bjóðum ykkur
velkomin í
verslun okkar að
Nóatúni 4.
Við verðum með
ýmis tæki á
sérstöku
tilboðsvérði í
tilefni dagsins.
á hinum glæsilegu Siemens heimílistækjum
sem allir vilja - og geta eignast.
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4 Sími 511 3000
Heitt á könnunni - gjörið svo vel!
Látíð sjá ykkur og njótið dagsins með okkur,
m
tx
UJ
N
>-
X
J
Einkaumboö fyrir Siemens á íslandi