Morgunblaðið - 18.04.1996, Qupperneq 24
24 FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1996
MORGUNBLA.ÐIÐ
Leikföng
bregða á leik
KVIKMYNPIR
Bíóborgin, Bíöhöllin
„TOY STORY“ ★★★>/!
Leikstjóri John Lassiter.
Handritshöfundur Joel Coen, ofl.
Tónlist Randy Newman. Islensk tal-
setning undir stjóm Júliusar Agnars-
sonar. Þýðandi Ágúst Guðmundsson.
Raddir - undir stjóm Steinunnar
Ólínu Þorsteinsdóttir - Magnús
Jónsson, Felix Bergsson, Jóhann
Sigurðarson, Amar Jónsson,
Hjálmar Hjálmarsson, Alfrún
Ömólfsdóttir, Karl Agúst Úlfsson,
o.fl. Bandarisk. Walt Disney 1995.
EFTIR Pocahontas, ekkert of vel
heppnað hliðarspor, er teiknimynda-
deild Disney-veldisins aftur komin á
rétta braut með hinni konunglegu
skemmtun Toy Story. Teiknimynda-
deild segi ég, það getur verið örlítið
villandi því myndin er sú hin fyrsta
í sögunni sem er alfarið unnin í tölv-
um. Svipmót og yfirbragð allt annað
en á hinum hefðbundnu teiknimynd-
um fyrirtækisins. Vinnubrögðin
vammlaus líkt og fyrri daginn, nostr-
að við hlutina niður í smáatriði. Per-
sónurnar verða nýstárlegar fyrir vik-
ið, umhverfið á vissan hátt raunveru-
legra, þetta er bylting.
Hér segir af duldu lífi leikfanga,
hvað gerist í gullakassanum þegar
mannverurnar eru fjarri. Viddi er
leiðtogi lekfanganna hans Adda.
Myndin hefst á afmælisdeginum
hans og bíða þau spennt eftir því
hvað kemur uppúr pökkunum.
Herra kartafla vonast eftir frú kart-
öflu, Viddi óttast að fá keppinaut
sem uppáhaldsleikfangið á bænum
og sú verður raunin. Síðasta gjöfin
er engin annar en hinn geysifull-
komni Bósi ljósár, bjargvættur al-
heimsins. Er ekki að spyija að því
að Viddi leggur strax fæð á geim-
farann og fleygir útum gluggann,
óviljandi reyndar, en því vilja hin
leikföngin ekki trúa svo Viddi fer
líka útá verganginn. Nú tekur eitt
við af öðru. Eftir mikla hrakninga
og eltingaleik við húsbónda þeirra
og herra, lenda þeir félagar í klón-
um á Sigga klikk, óknyttastráknum
í næsta húsi. Sá kvelur leikföngin
sín og fordjarfar svo að þau minna
mest á skrýmslin hans Hieronymus-
ar Bosch. Það er því ekki um annað
að ræða fyrir þá Vidda og Bósa en
leggja niður deilur til að komast
úr þessari martröð og aftur heim í
öryggi dótakassans.
Þetta er hress og skemmtileg
saga, makalaust spennandi og hnytt-
in. Fígúrumar hver annarri betri og
hugmyndaflugið ótrúlegt - sem oftar
þegar galdrakarlamir hjá Disney eru
annarsvegar. Hér fá áhorfendur
semsagt nasaþefinn af því í hveiju
gullin eru að pæla á stórhátíðum,
útsjónarsemi þeirra, innbyrðis átök-
um og valdatafli. Sálarlífíð kemur
mikið við sögu, ekki síst hjá eymingj-
ans alheimsbjargvættinum, sem
verður fyrir andlegu áfalli þegar
hann kemst að því að hann er „bara“
leikfang, og leggst í þunglyndi. Toy
Story er ekki aðeins skemmtun fyrir
böm heldur alla aldursflokka. Það
er ekki hægt að setja neinn stimpil
á afþreyingu í þessum gæðaflokki.
Sem fyrr segir er útlitið afar vand-
virknislegt, þó er hin hnökralausa
tölvugrafík það eina sem hægt er
að finna að. Hún er svolítið geril-
sneydd, vantar tilfinninguna sem
prýðir jafnan góðar teiknimyndir.
Þetta er þó aukaatriði og sjálfsagt
hafa menn misjafnar skoðanir á
því. Tónlistin er að vonum góð hjá
Randy Newman, KK syngur lögin
einsog honum er einum lagið. Líkt
og fyrri daginn er íslenska talsetn-
ingin, raddirnar, stjómin og þýðing-
in hreint út sagt frábær og gera
góða mynd enn betri.
Sæbjörn Valdimarsson
LISTIR
Perlan í
Öskjuhlíð
LEIKHÓPURINN Perlan.
Bellman-söngvari og
Ensemble Ginestra
í Norræna húsinu
LEIKHÓPURINN Perlan heldur
leiksýningu í Öskjuhlíðarperl-
unni í dag, fimmtudag, í tilefni
af 13 ára leikafmæli leikhóps-
ins. Kynnir verður Felix Bergs-
son leikari.
Leikatriðin sem verða flutt
eru: Ég heyri svo vel, Siggi var
úti, Síðasta blómið í skóginum,
Mídas konungur og frumflutn-
ingur á Ef þú giftist.
I kynningu segir: „Leikhópur-
inn Perlan hefur getið sér gott
orð fyrir sérstæða og hrífandi
leiktúlkun sína og eru allir
hvattir til að koma og sjá litríka
og áhrifamikla sýningu Perl-
unnar í Perlunni, Öskjuhlíð kl.
19 í kvöld.“
TÓNLEIKAR verða haldnir í Nor-
ræna húsinu í kvöld kl. 20.30, þar
sem Bellman-söngvarinn og túlk-
andinn Marin Bagge syngur ásamt
Ensemble Ginestra.
í kynningu segir: „Martin Bagge
er einn af vinsælustu listamönnum
Svía. Hann hefur oft komið fram í
sænsku og norrænu sjónvarpi og
útvarpi sl. tvö ár. Nýlega kom út
geisladiskurinn „Blásen nu al_la“ og
fékk hann mjög góða dóma. Útgáfa
með öllum „Fredmans 82 epistlar",
sem Bagge tók þátt í ásamt helstu
listamönnum Svía, fékk Grammis
verðlaunin 1994.
Ensemble Ginestra er einn þekkt-
asti strengjakvartett í Suður-Svíþjóð
með aðsetur í Hallandi. Kvartettinn
skipa Peter Skog, 1. fiðla, Thomas
Petrsson, 2. fiðla, Jan Svensson,
lágfiðla, og J.Á. Sjökvist, selló.
Hljóðfæraleikararnir eru ráðnir hjá
stofnuninni Musik í Hallandi, en það
eru samtök, sem að stórum hluta
sjá um svæðisbundið tónlistarfram-
boð þar. Ensemble Ginestra leikur
við mörg mismunandi tækifæri og
oft í samvinnu við einleikara af
ýmsum sviðum í tónlistarheiminum.“
Aðgangur er ókeypis að tónleik-
unum í Norræna húsinu.
Nýtt rit um réttindi og skyld-
ur hvers og eins í umhverfinu
BÆKUR
Umhverfisréttur
FRÆDIRIT
Verndun náttúru íslands eftir Gunn-
ar G. Schram. Háskólaútgáfan,
Landvemd 1995,398 bls.
NÚTÍMAFÓLKI er ljóst hve heil-
næmt, fagurt og gjöfult umhverfi
er mikils virði fyrir farsæla afkomu
óg heilbrigt líf. Landsmönnum er æ
betur að aukast skiiningur á því hve
mikilvægt er að ofnýta ekki auðlind-
ir lands og sjávar, þannig að unnt
sé að viðhalda heilladijúgri sambúð
þjóðar og umhverfis í komandi fram-
tíð. Augljóst er einnig, að það ber
að sýna fyllstu tillitssemi í viðskipt-
um við náttúruna til þess að ofbjóða
ekki því jafnvægi, sem þarf að ríkja
í umhverfínu, og raska því ekki á
kostnað stundarhagsmuna. Til þess
að sporna við óhóflegri nýtingu auð-
linda og röskun umhverfis, sem get-
ur valdið nágrönnum og komandi
kynslóðum tjóni, er reynt að setja
lög-og koma á reglum í umgengni
við náttúruna. Mörg íslensk lög fjalla
um sambúð manns við umhverfið,
en ekki hefur verið gerð grein fyrir
þeim í einni heild fyrr en með þessu
gagnmerka riti, Umhverfísrétti. Er
hér í fyrsta sinn tekið saman heildar-
yfírlit helstu laga og reglna, sem
gilda í landinu á þessu sviði, og
gerð grein fyrir þeim alþjóðasamn-
ingum um umhverfísmál, sem Is-
lendingar hafa gerst aðilar að.
Höfundur og samstarfsmenn hans
fjalla um efnið í 13 köfl-
um, en efninu er skipt
í þijú svið. Þar er fyrst
rætt um markmið um-
hverfísréttar. í öðrum
hluta er fjallað um evr-
ópska efnahagssvæðið
og regiur þess bornar
saman við íslenska
löggjöf og í þriðja lagi
er gerð grein fyrir al-
þjóðlegum umhverfís-
rétti og gildi hans fyrir
íslendinga.
Ekki er ætlunin í
stuttri umsögn að rekja
hér einstaka þætti
þessa umfangsmikla
rits, en þó skal aðeins vikið að fáein-
um atriðum. Tekið er fram í 2., 3.
og 6. kafla, að ekki sé til heildarlög-
gjöf um umhverfismál hér á landi,
en frumvarp um framsýna umhverf-
isstefnu hafí samt sem áður verið
undirbúið og lagt fram á Alþingi
1993-94, þótt ekki hafi það verið
samþykkt. Vafalaust er bót að slíkri
löggjöf, en þetta rit sýnir, að í um-
fjöilun um umhverfismál þarf mjög
víða að taka tillit til ákvæða í núgild-
andi lögum, sem fjölmörg fjalla um
athafnir manna í umhverfinu, og er
því nokkur vandi að semja heildar-
löggjöf. Minna má á, að umhverfíð
er einnig innan dyra sé strangt á
litið. Það kemur fram í ýmsum
mannlegum sámskiptum, en einnig
í samgöngum, viðskiptum og í heil-
brigðismálum, íþróttum og öllum
aðbúnaði og lifnaðarháttum þjóða.
Dálæti nútímamanns á umhverfínu
og ástríða á náttúru-
vernd jaðrar jafnvel við
trúarbrögð og er að
verða einskonar end-
urnýjuð trú á stokka
og steina. í þessu riti
er hins vegar fjallað um
umhverfi í þrengri
merkingu þess orðs.
í 5. kafla ritsins er
rætt um stjórnsýslu
umhverfismála, stofn-
un umhverfisráðuneyt-
is og taldar upp þær
stofnanir, sem undir
það ráðuneyti heyra.
Eru þar skráðar ágætar
upplýsingar fyrir al-
menning, því hér er um nýtt ráðu-
neyti að ræða og á þess verksviði
eru boð og bönn gagnvart borgurun-
um, sem þarflegt er að þekkja. Enn
eru samt mörg umhverfisviðfangs-
efni, sem heyra undir önnur ráðu-
neyti, og er yfirstjórn ýmissa rann-
sókna, eftirlits og vöktunar á því
sviði t. d. í höndum landbúnaðar-
ráðuneytis. Þá er í 7. kafla fjallað
um réttarheimild og takmarkanir á
umráðarétti manna yfír eignum sín-
um í þágu umhverfisverndar. Er
fróðlegt fyrir almenning að átta sig
á, hvað sé eign og hvaða takmarkan-
ir geta orðið á eignarétti í þágu
umhverfisverndar.
Mengunarmál fá ítarlega umfjöll-
un í 8. kafla. Er þar bæði gerð grein
fyrir sérákvæði laga um mengun frá
íðjurekstri, en einnig sérstaklega
mengun í lofti, geisla- og varma-
mengun, vatnsmengun og mengun
hafsins. Oftast heyra mengunarmál
undir umhverfisráðuneytið og eftirlit
með mengun. Samt sem áður kemur
landbúnaðarráðuneytið þar einnig
við sögu, sem þó er ekki sérlega tí-
undað í ritinu. Má þar nefna eftirlit
með magni þungmálma í áburði,
með óæskilegum efnum í búfjár-
fóðri, óæskilegum tegundum plantna
í innfluttri sáðvöru og eftirlit með
innflutningi plantna með tilliti til
sjúkdóma og meindýra. Á Alþingi
hefur einnig komið fram frumvarp
um að nauðsyn sé eftirlits á innflutn-
ingi plantna, sem gætu valdið röskun
á lífríkinu (93/1995). í þessum kafla
hefði einnig mátt minnast á gæða-
stýringu í íslenskum landbúnaði, þar
sem gerðar eru miklar kröfur til
umhverfisverndar og hreinleika af-
urða. Eru þannig vistvænir búskap-
arhættir skilgreindir í lögum nr.
162/1994 og í reglugerð nr.
219/1995 um lífræna landbúnaðar-
framleiðslu.
Einnig hefur nýlega verið gefin
út reglugerð nr. 89/1996 um sér-
staka gæðastýrða, íslenska landbún-
aðarframleiðslu og eftirlit, er á að
tryggja uppruna búQár og nytja-
jurta, þannig að afurðirnar uppfylli
kröfur, sem gerðar eru til „vist-
vænna landbúnaðarafurða". í 9.
kafla ritsins er íjallað um skipulags-
mál og umhverfisvernd. Er það
mörgum þörf lesning, til dæmis þeim
sem vilja kynna sér rétt til töku jarð-
efna, bygginga sumarbústaða eða
skipulag miðhálendisins, sem nú er
einmitt mikið rætt um.
Náttúruvernd er tekin til meðferð-
Gunnar G. Schram
ar í 10. kafla og er þar fjallað um
mjög mikilvæg málefni, svo sem
þjóðgarða, skógrækt, landgræðslu,
ýmis veiðilög og samninga um físk-
veiðar. I þeim kafla er meðal annars
minnst á lög og reglugerð um sinu-
bruna og meðferð elds á víðavangi,
sem byggð eru á gömlum Grágás-
arákvæðum. Höfundur flokkar þau
eðlilega undir verndun gróðurfars,
en um er að ræða mál, sem einnig
varðar fuglafriðun og loftmengun. I
lok þessa fyrri hluta er síðan kafli
um vernd menningarverðmæta, og
þar gerð grein fyrir friðun fornleifa
og gamalla húsa.
Síðari hluti bókarinnar er helgað-
ur umfjöllun um evrópska efnahags-
svæðið og alþjóðlegan umhverfis-
rétt. Hefur þannig greinargerð ekki
áður birst íslenskum lesendum, en
við erum sífellt að verða meðvitaðri
um umhverfí okkar og ein af for-
sendum fyrir góðri umhverfisvernd
hér á landi er að þekkja þjóðréttar-
legan grundvöll umhverfisréttar.
Nokkur smáatriði í þessu riti orka
tvímælis, sem að vísu eru fyrir utan
ramma laganna. Til dæmis er á bls.
178 staðhæft, að tveir þriðju hlutar
landsins hafi verið grónir við land-
nám, sem að mínum dómi er allt of
há tala. Skógar eru sagðir hafa klætt
24% lands á þeim tíma, en að mínu
áliti hefur skógur þá varla geta hul-
ið meira en 18 hundraðshluta af
yfirborði lands. En allt er þetta
matsatriði og ekki lagabókstafur.
Einnig má benda á, að sé upp-
græðsla örfoka lands ásamt sjálf-
græðslu nú í dag 25 km2 á ári og
hafí svipuð stærð Iands árlega verið
að eyðast í undanfarin 1000 ár,
ætti heildar gróðurþekja landsins nú
ekki að vera á neinu sérlegu undan-
haldi, eins og þarna er haldið fram.
Þá er á bls. 274 fjallað um alþjóða-
stofnanir á sviði umhverfismála, sem
ekki eru háðar stjómvöldum. Er þar
talið vafalítið, að grænfriðungar séu
þekktastir þessara samtaka. Þeir