Morgunblaðið - 18.04.1996, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREIIMAR
FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1996 37
Ferðamennska og
náttúruvernd á mið-
hálendi Islands
HÁLENDIÐ, með
söndum sínum, gróður--
flákum, hraunum og
jöklum, hefur iöngum
seitt til sín hugi margra
Islendinga. Fyrr á tíð
bjuggu þar tröll í ijöll-
um og útilegumenn
áttu sér bólstaði í huld-
um plássum í skjóli
jökla. Þótti þá ekki
heiglum hent að fara
um sumar óbyggða-
slóðir, enda þá sjaldn-
ast farið lengra inn á
hálendið en brýna
nauðsyn bar til vegna
nauðsynja, er tengdust
almennu bústriti. Lengi
voru þó nokkrar öræfaleiðir farnar
milli landshluta, þegar þörf krafði,
en smám saman lögðust sumar
þeirra reyndar af eða jafnvel týnd-
ust með öllu á síðari öldum, þegar
deyfð, drungi og framtaksleysi lagð-
ist hvað þyngst á þjóðina. Er sú
saga mörgum kunn. Með breyttum
þjóðlífsháttum, batnandi hag og
nýrri lífssýn almennings, einkum á
þeirri öld, sem nú er senn liðin,
hófust ferðir um hálendisleiðir að
nýju, en nú undir öðrum merkjum
en áður: íslendingar vildu kynnast
landi sínu af eigin raun, sér til and-
legrar og líkamlegrar hressingar,
og eignast með sínum hætti hlut-
deild í auðnunum, fossunum, hraun-
unum og jöklunum. í því augnamiði
þurfti m.a. að ryðja slóðir um tor-
færur, finna bílfær vöð á stórfljótum
°g byggja brýr á sum þeirra, reisa
fjallaskála og tryggja öryggi og
þægindi ferðamanna með öðrum
hætti. Áttu þar margir góðir for-
ystumenn í ferðamálum hlut að
máli, en vart er á neinn hallað þótt
sérstaklega sé minnst hlutdeildar
Ferðafélags íslands í því átaki að
„opna“ þjóðinni öræfaheiminn, en
það hefur reyndar verið eitt af meg-
inmarkmiðum félagsins frá stofnun
þess fyrir hart nær sjötíu árum. Á
siðustu áratugum hefur erlendum
ferðamönnum, sem kynnast vilja
miðhálendi okkar, einnig farið ört
fjölgandi, þjóð okkar til síaukinnar
hagsældar, því að alkunna er að
ferðaþjónusta getur verið arðvænleg
ef vel er að málum staðið og njóta
þeir, er að henni standa, góðs af
ferðum erlendra ferðalanga jafnt
sem innlendra.
Öll þessi mikla mannaferð um
hálendið, ásamt þeirri aðstöðu, sem
henni hlýtur að tengjast þar, þ. á m.
vegum, skálum og öðrúm mann-
virkjum, getur hæglega spillt þessu
viðkvæma landi ef ekki er vel á
haldið og fullrar varkárni gætt:
Akstur utan vegslóða
skilur oft eftir djúp
hjólför, sem spilla feg-
urð auðnanna og skapa
hættu á uppblæstri þar
sem þau liggja um gró-
ið land, troðinn mosi
nær sér ekki fyrr en
að óratíma liðnum og
grómagn graslendis, til
endurnýjunar eftir
grófa áníðslu, reynist
oft lítið á landsvæðum,
er Jiggja í mikilli hæð.
í orði kveðnu eru nú
flestir sammála um að
einskis megi láta ófrei-
stað við verndun há-
lendisins og birtist sá
hugur m.a. í ýmsum lagaákvæðum,
sem eiga að stuðla að náttúru- og
umhverfisvernd og öll eru góðra
gjalda verð. Sett hafa verið á stofn
ráð og nefndir, sem framfyigja eiga
þessum lögum, og ágætir starfs-
menn opinberra stofnana leitast af
fremsta megni við að afstýra um-
hverfisspjöllum af ýmsu tagi. Þó er
sannast sagna, að mikið skortir á
að náttúruvarsla á hálendinu sé með
fullnægjandi hætti, einkum sökum
fjáreklu, og enn skortir á nægan
Mikið skortir á, segir
Páll Sigurðsson, að
náttúruvarsla á hálend-
inu sé fullnægjandi.
skilning almennings og stjórnmála-
manna á nauðsyn þess að halda þar
uppi því eftirliti og löggæslu, sem
þörf er á. Þótt vissulega kosti það
sitt eru þau útlát af opinberu fé,
sem þörf er á, smáræði eitt miðað
við þau verðmæti, sem í húfi eru,
því að í hálendinu felst ein hin dýr-
mætasta auðlind okkar ef rétt er á
haldið. Gildir þá reyndar einu hvort
við viljum leggja fjárhagslegan
mælikvarða einan á verðmæti auð-
lindarinnar eða horfum jafnframt -
og ekki siður — til hinna tilfinninga-
legu og menningarlegu gilda, sem
aldrei verða til fjár metin.
Hin opinbera stefna í ferðamál-
um, sem virðist hafa náð nokkuð
aimennu fylgi, felur m.a. í sér-þá
ætlun að reynt verði að stýra för
manna og viðdvöl í óbyggðum. Þó
helst ekki með valdboðum og bönn-
um heldur með annars konar ráð-
stöfunum, sem líklegar eru til að
gefa betri raun. í því efni hafa ráða-
menn t.d. almennt verið sammála
um, að vegagerð og annarri mann-
virkjagerð inni á hálendinu sjálfu,
sem tengist ferðamennsku, skuli
haldið í lágmarki en stórar og vel
búnar þjónustumiðstöðvar fyrir
ferðamenn eigi heima á jöðrum þess.
Getur þetta í framtíðinni dregið úr
álagi á óbyggðasvæðum og þar af
leiðandi verið virkur liður í náttúru-
vernd. Því miður hefur þessum hug-
myndum þó enn lítt verið hrint í
framkvæmd, þrátt fyrir aliar stefnu-
yfírlýsingar, og svo sem kunnugt
er má enn finna dæmi um ráðvillta
menn, sem skilja ekki kall tímans
og vilja byggja stórhýsi inni í „hjarta
óbyggðanna", í óþökk allra dóm-
bærra manna.
Mikilvægt er, að fyrrnefndri
ferðamálastefnu verði nú fylgt fram
af dug og krafti með tilstyrk opin-
berra aðila og með stuðningi úr al-
mannasjóðum, þar sem mest er fjár-
þörfin, svo sem við uppbyggingu
fullkominna þjónustumiðstöðva í
jaðri hálendisins. Inni á sjálfum ör-
æfunum fer hins vegar best á því
að aðstaða fyrir ferðamenn verði
með einföldum en traustum hætti,
svo sem verið hefur, með litlum og
lágreistum mannvirkjum, sem fara
vel í landinu. Sú aðstaða ætti að
jafnaði að vera í höndum þeirra
aðila, sem mesta hafa reynsluna og
þekkinguna, svo sem Ferðafélags
Islands eða annarra sambærilegra
hugsjónasamtaka útivistar- og nátt-
úruvemdarmanna. Getur reyndar
einnig verið full ástæða til að styrkja
þá starfsemi af almannafé þótt enn
sem fyrr verði þar mikið byggt á
starfi hugkvæmra og vinnufúsra
sjálfboðaliða.
Það fylgir skynsamlegri ferða-
mála- og náttúruvemdarstefnu fýrir
miðháiendi Islands að gott samstarf
náist milli stjómvalda ferðamála,
■skipuleggjenda ferðaþjónustu og
íbúa þeirra byggðarlaga, sem liggja
að hálendinu. Ef rétt er að staðið
eiga þeir byggðamenn, er þess óska,
að hafa nóg að sýsla við verkefni á
sviði landvörslu og löggæslu, gróð-
urverndar og uppgræðslu á hálend-
inu, auk starfa í jaðarmiðstöðvun-
um, og eiga með því að geta bætt
sér upp þverrandi arð af hefðbundn-
um búskap í byggðum niðri. Mætti
með þessum hætti koma í veg fyrir
frekari „landflótta“ úr uppsveitum
þeirra söguríku og fögru héraða,
sem að hálendinu liggja, og væntan-
lega einnig efla mannabyggð að
nýju þar sem undanhald hefur verið
nú um skeið. Um þessi sanngirnis-
og nauðsynjamál þarf að nást þjóð-
arsátt.
Höfundur er forseti Ferðafélags
íslands.
Páll
Sigurðsson
O R L AN E
OHLANf.
Kynnum ORLANE snyrtivörur
frá kl. 12-18 fínimtudag og föstudag.
ORLANE
Veglegur kaupauki
ovU-Anv-
ORLANE
m
ORLANE
raa&tsn
SSSSfeíi
Ar.A..M.I .1
VARASALVI - VARASMYRSL
ENDURNÆRIR ÞURRAR
OG SPRUNGNAR VARIR
Pharmaco hf.
MARBERT
kyntting í dag kl. 13-18.
Tilbot>
Þú kaupir krem og færö snyrtibuddu
aö gjöf meö:
Tvöfóldum spegli, body lotion 10 ml,
Scarf3,S ml.
Við bjóðum þcr að koma
ogþiggja ráðgjöf.
Holtsapótek
Glæsibæ, s. 553 5212.
Amerísku. heilsudýnurnar
& heilsa
★★★★★
Mikið úrval af
Amerískum
rúmgöflum og
svefnherbergis-
húsgögnum
íslensku, Amerisku og
Kanadisku Kírópraktorasamtökin
setja nafn sitt viö og mæla með
Springwall Chiropractic
isthúsinu Laugardal Simi: 581-2233
LBI-2518TX Þvottavél
LBI-218T Þvottavél
ABI-25 Inirrkari
LSI-56VV VJppþvottavél
tekur 12 manna borðbúnað
stillanleg hæð á efri körfu
5 þvottakerfi, sparnaðarkerfi
hitaval 65°/55°C
vatnstenging: kalt eða heitt
HxBxD = 85x60x60 cm
(Réttverð 51.590,-)
TILBOÐ aðeins 46.990,- stgr.
IBERNA BONUS
Smá-raftæki
að eigin vali
kr. 3000,-
við kaup á
IBERNA tæki
gegn framvísun
þessa miða
FRÍ HEIMSENDING - F)ARLÆG)UM GAMLA TÆKIÐ ÁN GREIÐSLU
ibefno flokks /FOnix
VÖNDUÐ VÉL Á VÆGU VERÐI fra HÁTÚNI 6A REVKJAVÍK SlMI 552 4420
ibernct
þvottavélar
tauþurrkarar
uppþvottavélar
IBERNA ER NÝTT VANDAÐ OG ÓDÝRT VÖRUMERKI FRÁ FÖNIX
500 sn. vinding
16 þvottakerfi
frjálst hitaval
sparnaðarrofi
HxBxD = 85x60x52 cm
(Rétt verð 44.150,-)
TILBOÐ 34.990,- stgr.
800/400 sn. vinding
12 þvottakerfi
írjálst hitaval
sparnaðarrofi
HxBxD = 85x40x60 cm
(Rétt verð 55.960,-)
TILBOÐ 49.990,- stgr.
2,5 m barki fylgir
tímarofi 1-130 mín.
2 snúningsáttir
taumagn 4,5-5,0 kg.
HxBxD = 85x60x52 cm
(Rétt verð 29.100,-)
TILBOÐ 25.990,- stgr.
* ryðfrítt stál í tromlu og kari
*18 þvottakerfi fyrir allt tau
* stiglaus hitastilling
* sparnaðarrofi f/lítið taumagn
* vinduhraði 800 sn./mfn.
* stillanlegur vinduhraði 800/400 sn.
* rofi til að aftengja vindingu
* orkunotkun 1,2 kwh á 60°C kerfi
* HxBxD = 85x60x52 cm
Verðlistaverð kr. 50.650,-
NÚ Á KYNNINGARVERÐI
AÐEINS 44.990,-stgr.