Morgunblaðið - 18.04.1996, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1996 39
AÐSEIMDAR GREINAR
Algjört bann við
notkun jarðsprengna
FÁIR glæpir vekja
jafn mikinn óhug með-
al fólks og þeir sem
beint er gegn börnum.
í hveijum mánuði deyr
eða slasast fjöldi blá-
saklausra bama þegar
þau stíga niður fæti
eða teygja höndina
eftir smáhlut á jörð-
inni sem líkist leik-
fangi. Þessi smáhlutur
sem lítur svo sak-
leysislega út býr yfir
mætti tortímingar og
eyðileggingar. Jarð-
sprengjur gera ekki
greinarmun á barns-
fæti og hermannastíg-
véli.
Um þessar mundir stendur
Rauði krossinn um heim allan fyr-
ir átaki til þess að varpa ljósi á
þann gríðarlega skaða og harm
sem jarðsprengjur valda. Það er
eindregin og yfirlýst skoðun Rauða
kross hreyfingarinnar að algert
bann við framleiðslu, sölu og notk-
un jarðsprengna sé það eina sem
dugi í baráttunni gegn þessum
vágesti.
A alþjóðaráðstefnu Rauða
krossins, sem haldin var með full-
trúum ríkisstjórna í Genf í desem-
ber síðastliðnum, voru jarðsprengj-
ur ofarlega á baugi í umræðum
og lýstu fjölmargar þjóðir yfir full-
um stuðningi við bann á fram-
leiðslu og notkun þeirra. Þeirra á
meðal voru fulltrúar íslenskra
stjómvalda og Rauða kross ís-
lands.
Ekki hernaðarlega
mikilvægar
Enn er þó langt í
land með að fram-
leiðsla jarðsprengna
verði bönnuð. Svo virð-
ist sem ráðamönnum
víða um heim takist
að loka augunum fyrir
þeirri staðreynd að
jarðsprengjur liggja
virkar í jörðu árum og
áratugum eftir að
styijaldarátökum lýk-
ur og bitna helst á
þeim sem enga ábyrgð
bera á ástandinu.
í skýrslu sem kynnt
var 28. mars sl. af Alþjóðaráði
Rauða krossins og byggist á at-
hugunum hernaðarsérfræðinga
víða um heim kemur m.a. fram að
jarðsprengjur eru alls ekki jafn
hernaðarlega mikilvægar og álitið
hefur verið. Það em samhljóða nið-
urstöður sérfræðinganna að hem-
aðarlegt gildi jarðsprengnanna
réttlæti engan veginn þá ómældu
mannlegu þjáningu sem þær valda.
Það skýtur skökku við að ríki
sem setja velferð fjölskyldunnar í
öndvegi treysti sér ekki til að
stöðva framleiðslu og notkun jarð-
sprengna sem árlega valda
ómældri þjáningu jafnvel löngu
eftir að styijaldarátökum lýkur.
Sprengjur í jörðu skipta tugum
milljóna og ógna nú íbúum í 64
löndum víðsvegar um heim. Þær
þykja hentug morðvopn, eru ódýr-
ar í framleiðslu, þær ódýmstu
Það skýtur skökku við,
segir Sigrún Árnadótt-
ir, að ríki sem setja vel-
ferð fjölskyldunnar í
öndvegi treysti sér ekki
til að stöðva framleiðslu
og notkun jarðsprengna
sem árlega valda
ómældri þjáningu.
kosta rétt um 200 krónur, og úr
flugvél má auðveldlega dreifa þús-
undum jarðsprengna á mínútu.
Kostnaðurinn við að hreinsa jarð-
sprengjusvæði er margfaldur á við
framleiðslukostnaðinn eða á bilinu
20 til 60 þúsund íslenskar krónur
á hvert stykki.
Þetta snertir okkur öll
Jarðsprengjur valda ekki ein-
ungis slysum og dauða á óbreytt-
um borgurum. Þær gera einnig
stór landsvæði óbyggileg til lang-
frama og kollvarpa heilum samfé-
lögum sem áður yrktu jörðina.
Þeim hefur verið dreift í ómældu
magni víða um heim og þar halda
þær áfram að valda eyðileggingu
í áratugi, 'jafnvel aldir, eftir að
ófriði lýkur. Þetta mál snertir alla
sem láta sig mannúð og öryggi
varða. Þó að við íslendingar höfum
hingað til verið að mestu laus við
Sigrún
Árnadóttir
hörmungar styijalda vitum við vel
hvílíkt böl þær eru og þar eru jarð-
sprengjumar tvímælalaust meðal
þess versta.
Við íslendingar eigum að lýsa
andstöðu okkar við notkun þessara
vígtóla og hvetja aðrar þjóðir til
hins sama. Við getum hvert og
eitt látið í ljós skoðun okkar hvar
sem þessi mál ber á góma.
Viðbrögð íslenskra stjórnvalda
við umleitan Rauða krossins vekja
vonir um að þau muni ötullega
tala máli þeirra sem hætta stafar
af jarðsprengjum og hvetji til
banns við notkun, framleiðslu og
sölu jarðsprengna. Öflugt almenn-
ingsálit hefur mikil áhrif og við
getum stuðlað að því að þessi mis-
kunnarlausu vígtól heyri sögunni
til.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Rauða kross íslands.
GuðœmduK Rapn Gemöal
vœnmnlegiiR fORserapiacnkjóðanði
Stefnuskrá, 10. liður af 12:
„Að taka þátt í að móta jákvæða
framtíðarsýn fyrir þróun okkar sem
þjóðar. Athuga hvort við getum
orðið fyrirmyndarþjóðfélag á
alþjóðavettvangi, öðrum þjóðum
til hugsanlegrar eftirbreytni,
einkum hvað varðar frið og
manngæsku."____________________
20% afsláttur af sjúkrakössum
fimmtudag ogföstudag
rrnsTA
hjálp
mm.
»ifi
DOIUOVAN - DAGAR í COSMO
Þú kaupir Donovan gallabuxur og færð Donovan bol frían!
Tekur þátt í happdrætti! Hin(n) heppni fær 50.000 kr. úttekt í Cosmo.
m jr I I m ■
LÁUGAVEGI
KRINGLUNNI
SIMI 552 6860
• SÍMI 568 9980