Morgunblaðið - 18.04.1996, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 18.04.1996, Qupperneq 44
44 FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR BRYNJÓLFUR EINARSSON + Brynjólfur Ein- arsson báta- smiður fæddist á Brekku í Lóni 7. júní 1903. Hann lést á Hraunbúðum í V estmannaeyjum 11. apríl síðastlið- inn. Foreldrar hans voru hjónin Guðný Benediktsdóttir frá Sléttaleiti í Suður- sveit (f. 19.9. 1865, d. 12.11. 1943) og Einar Pálsson frá Hofsnesi í Öræfum (f. 1.7.1859, d. 12.3. 1941). Guðný og Einar voru bæði tvígift, höfðu misst maka sína eftir stutta sambúð og áttu sitt barnið hvort af fyrra hjóna- bandi. Alsystkini Brynjólfs voru: 1) Ragnhildur Rannveig (f. 19.10. 1893), giftist Jóni Snædal smið frá Vopnafirði, bjuggu lengst á Eskifirði. 2) Benedikt (f. 12.1. 1895), kvænt- ist ekki, átti lengst af heima í Reykjavík. 3) Sigurlaug Stefan- ía (f. 25.9. 1896), giftist Ágústi Pálssyni sjómanni af Berufjarð- arströnd, bjuggu lengst á Fá- skrúðsfirði. 4) Jóhanna Borg- hildur (f. 28.4. 1898), giftist Sigurði Jóhannssyni skipstjóra frá Djúpavogi, bjuggu allan sinn hjúskap á Eskifirði en hún í Reykjavík eftir lát manns síns. 5) Þorsteinn (f. 2.10. 1899), kvæntist Steinunni Sigurðar- dóttur frá Hofsnesi í Öræfum, bjuggu á Höfn í Hornafirði. 6) Sveinn Mikael (f. 22.12. 1900), kvæntist Auðbjörgu Jónsdóttur frá Borgarhöfn, bjuggu á Sléttaleiti í Suðursveit, síðar lengi á Höfn í Hornafirði. 7) Þórdís Pálína (f. .17.5. 1908), giftist Páli Guðnasyni frá Vöðl- um í Vaðlavík, bjuggu þar fyrst en lengst á Eskifirði. Hálfsystk- ini Brynjólfs voru: 8) Auðbjörg (f. 1.12 1887), dóttir Guðnýjar og fyrri manns hennar Brynj- ólfs Jónssonar frá Breiðabólstað í Suðursveit (f. 25.5. 1862, d. 2.7. 1890). Auðbjörg giftist Hávarði Eiríkssyni verkamanni, bjuggu lengst á Eskifirði. 9) Páll (f. 21.7. 1892), sonur Einars Pálssonar og fyrri konu hans Jórlaugar Skarp- héðinsdóttur frá Gamlagarði i Borg- arhöfn (f. 17.10. 1865, d. 14.8. 1892). Öll eru börn Guðnýjar og Ein- ars nú látin nema Þórdís sem býr á Eskifirði. Hinn 27.1. 1926 kvæntist Brynjólfur Hrefnu Hálfdanar- dóttur frá Akureyri (f. 17.8. 1904, d. 8.7. 1982). Foreldrar hennar voru hjónin Hálfdan Jónsson beykir (f. 18.6. 1874) og Elín Rósa Magnúsdóttir (f. 7.3. 1868). Sonur Hrefnu fyrir giftingu var Vilberg Lárusson (f. 23.8. 1923, d. 4.8. 1988). Vil- berg ólst upp í Byggðarholti í Eskifjarðar-Kálki hjá Þor- björgu Jóhannsdóttur og Lár- usi Kjartanssyni; kjörsonur þeirra. Hann kvæntist Soffíu Erlendsdóttur (f. 18.1. 1927), °g bjuggn þau lengst á Egils- stöðum þar sem Soffía býr enn. Börn Vilbergs og Soffíu: A) Rannveig Þóra (f. 30.6. 1951), var gift Hjörvari Ó. Jenssyni (skildu); börn þeirra: Kári Val- ur (f. 16.9. 1970) er í Skot- landi, Vilberg ívar (f. 27.3. 1978) og Sóffía Tinna (f. 14.7. 1984). B) Atli (f. 15.12. 1954, d. 18.9. 1978). C) Harpa jf. 27.2. 1956), gift Hafsteini Olasyni; börn þeirra: Kormákur Máni (f. 4.8. 1977) og Bergrún (f. 28.10. 1981). D) Hrafn (f. 16.4. 1958). E) Lára Þorbjörg (f. 17.4.1963), gift Valgeiri Skúlasyni; dætur þeirra: Valdís (f. 6.11. 1985) og Andrea (f. 24.5. 1992). F) Er- lendur Gauti (f. 16.7. 1967, d. 27.4. 1986). Synir Hrefnu og Brynjólfs eru: 1) Hálfdan Brynjar matsveinn (f. 25.12. 1926, fórst með vélbátnum Helga við Faxasker 7.1. 1950); hafði viku áður en hann lést trúlofast Önnp Sigríði Þor- steinsdóttur frá Akureyri (f. 4.7. 1927). 2) Gísli Hjálmar málarameistari í Vestmanna- eyjum (f. 1.8. 1929). Hann kvæntist 1951 Önnu Sigríði sem áður var unnusta bróður hans. Börn Gísla og Sigríðar eru a) Hrefna Brynja (f. 28.3. 1952), gift Snorra Oskarssyni safnaðarhirði í Vestmannaeyj- um. Dóttir Hrefnu Brynju fyrir giftingu er Iris Guðmundsdótt- ir (f. 17.3.1968), var gift Brynj- ólfi Ólasyni (þau skildu); á með honum synina Aron Örn (f. 29.4. 1987) og Gisla Hjálmar (f. 7.5.1989); búa í Vestmanna- eyjum. Börn Hrefnu Brynju og eiginmanns hennar eru: Stefnir Snorrason (f. 31.5. 1974) , unnusta hans Soffía Sig- urðardóttir; bæði í námi. Hrund Snorradóttir (f. 24.8. 1975) , gift Gísla Sigmarssyni; búa í Eyjum. Brynjólfur Snorr- ason (f. 30.10. 1979) og Anna Sigríður Snorradóttir (f. 24.11. 1982) eru bæði í föðurhúsum. b) Rannveig (f. 15.5.1953), gift Marc Jonathan Haney (f. 11.4. 1955), búa í Kansas, Bandaríkj- unum. Sonur Rannveigar fyrir giftingu Gísli Brynjar Kristins- son (f. 10.6. 1973); á heima í Eyjum. Synir Rannveigar og eiginmanns hennar eru: Jonat- han Yngvi (f. 18.3. 1981) og Michael Hreinn (f. 7.7. 1987); báðir í föðurhúsum. c) Jón Hreinn (f. 5.10. 1964), kvæntur Guðrúnu Helgadóttur (f. 8.1. 1967); búa í Svíþjóð. Brynjólfur lauk sveinsprófi í skipasmíði 10.6. 1933; varð meistari í greininni 23.3. 1938. Sveins- prófi í húsasmíði bætti hann við sig 12.12. 1955 og meist- aragráðu 4.7. 1956. Utför Brynjólfs fer fram frá Hvítasunnukirkjunni í Vest- mannaeyjum í dag og hefst at- höfnin klukkan 16. í dag verður til moldar borinn Brynjólfur Einarsson, skipasmiður í Vestmannaeyjum. Brynjólfur var fæddur á Brekku í Lóni en foreldr- ar hans, sem áttu saman átta börn, höfðu fáum árum fyrr verið hrakin burt úr Suðursveit fyrir þá sök eina að skulda sveitarsjóði fáeinar krón- ur. í þá daga hikuðu sveitarstjórn- armenn ekki við að stía í sundur fjölskyldum til að fyrirbyggja að barnmörg hjón öðluðust sveitfesti. Fárra vikna gamall fluttist Brynjólfur með foreidrum sínum austur að Brú á Jökuldal og árs- gamall þaðan að Fagradal í Vopna- firði. Þegar hann var þriggja ára settust þau að í þorpinu á Vopna- firði. Að endingu settist fjölskyldan um kyrrt á Eskifirði þegar Brynj- ólfur var orðinn sjö ára. Þar bjuggu foreldrar hans til æviloka og var Erfidrykkjur Glæsilegt kaffihlaðborð og hlýleg salarkynni. Góð þjónusta. HOTEL REYKJAVÍK Sigtúni 38. Upplýsingar í símum 568 9000 og 588 3550 hann til heimilis hjá þeim þar til hann var þrítugur að aldri. Mér er sagt að fundum okkar Brynjólfs hafi fyrst borið saman sumarið 1917 þegar hann var á fimmtánda ári en ég því fyrsta. Þetta sumar stundaði hann sjó með föður mínum Bjarna Marteinssyni. Lágu þeir við á Hafranesi við Reyð- arfjörð, reru með línu og beittu kræklingi. Á hálfs mánaðar fresti komu þeir inn á Eskifjörð til að fara á skeljafjöru sem kallað var. Dvaldist þá Brynjólfur á heimili foreldra minna og kom þá fyrir að móðir mín, Gunnhildur Steinsdóttir, bað hann að gæta fyrir sig barns- ins. Upp frá þessu bar hann ætíð hlýjar tilfínningar til mín. Sumarið 1919 tók hann þátt í hákarlaveiðum frá Seley og mun vera síðastur til að kveðja þennan heim af þeim sem kynntust vinnu- brögðum í þeirri fornu verstöð.. Næstu ár stundaði Brynjólfur sjó ýmist sem háseti eða vélstjóri. Hann aflaði sér bæði vélstjórnarréttinda og skipstjórnarrréttinda til að stjórna fískibátum allt að 60 tonn- um að stærð. Þessum lærdómi lauk hann með besta vitnisburði, enda höfðu snemma komið í Ijós ágætir námshæfileikar hans. Brynjólfur var einnig sérstakur hagleiksmaður bæði til munns og handa. Hjá móð- urbróður sínum, Auðbergi Bene- diktssyni skipasmið, vann hann um níu ára skeið. Á þeim tíma smíðuðu þeir þtjá dekkaða báta 12-15 tonn að stærð, og að því loknu mun Brynjólfur hafa verið útlærður í iðninni. Veturinn 1932-33 smíðaði hann opinn vélbát fyrir Stefán Guðnason á Karlsskála. Var það sveinsstykkið og út á smíði þess báts fékk hann sveinsbréf sem skipasmiður. Bátur þessi hlaut nafnið Sæfari. Hann reyndist hin mesta happafieyta, og kvaðst eig- andinn aldrei hafa stigið út í betri sjóbát. Árið 1926 kvæntist Brynjólfur Hrefnu Hálfdanardóttur frá Akur- eyri. Þau hófu búskap í húsi for- eldra hans og bjuggu þar til 1933 að þau fluttust til Vestmannaeyja þar sem Brynjólfur vann við skipa- smíðar allttil ársins 1960. Þau hjón- in eignuðust tvo syni, Hálfdan Brynjar og Gísla Hjálmar. Áður hafði Hrefna eignast soninn Vilberg sem ólst upp hjá kjörforeldrum að Byggðarholti í Eskifjarðar-Kálki. Árið 1950 urðu Hrefna og Brynjólf- ur fyrir þeirri sáru raun að Hálfdan Brynjar fórst við Faxasker með vélbátnum Helga. Slík sár gróa aldrei en þau báru ævinlega harm sinn í hljóði. Veturinn 1942-43 var ég á ver- tíð í Vestmannaeyjum á trollbát í eigu Helga Benediktssonar. Hjá honum starfaði Brynjólfur, og um þær mundir var verið að leggja kjölinn að stærsta tréskipi sem smíðað hefur verið á íslandi. Það var Helgi Helgason, 188 tonn að stærð. Brynjólfur var yfirsmiður við smíði þessa fallega skips sem tók mjög langan tíma og mun ekki hafa lokið fyrr en 1947, því frátaf- ir urðu miklar við viðgerðir á öðrum bátum. Á þessum árum dvöldust systk- inabörn Brynjólfs oft hjá þeim hjónum um lengri eða skemmri tíma þegar þau voru í Eyjum ýmist við nám eða yfir vertíðina að afla sér tekna. Meðal annarra dvaldist kona mín, Sigrún Sigurðardóttir systurdóttir Brynjólfs, hjá þeim einn vetur. Telur allt þetta fólk að Hrefna og Brynjólfur hafi sýnt þeim einstaka umhyggju og gert allt sem þau gátu til að greiða götu þeirra. Á vertíðunum 1956-66 var ég í Vestmannaeyjum með eigin bát. Öðru hveiju á þessu tímabili dvald- ist fjölskylda mín einnig í Eyjum. Þá voru þau Hrefna og Brynjólfur búin að byggja hús sitt á Boðaslóð 4. Vorum við tíðir gestir á heimili þeirra og treystust þá vináttubönd- in enn frekar en áður hafði verið. Oft var þá setið og spjallað þegar tóm gafst til. Barst þá talið gjarn- an að skáldskap, því engan mann hef ég þekkt um dagana sem kunn- að hefur jafnmikið af ljóðum og Brynjólfur, en hann var ennfremur lands- þekktur hagyrðingur. Vafa- laust mun Brynjólfs lengi verða minnst fyrir smíðisgripi sína, skip og báta, en þó hygg ég að enn lengur muni ljóð hans og lausavís- ur halda nafni hans á loft meðal þeirra sem yndi hafa af hnyttileg- um skáldskap. Brynjólfur vildi þó ekki flíka kveðskap sínum opinber- lega og kærði sig ekki um að láta gefa hann út, kvað hann ekki til þess ætlaðan: Um vísur mínar helst er það að hafa í minni: Þær áttu við á einum stað og einu sinni. Flest það sem Brynjólfur orti var í gamansömum tón og sérstakt dálæti hafði hann á að yrkja þann- ig að skilja mætti á fleiri en einn veg. Eftir að Heimaeyjargosið hafði hrakið Vestmannaeyinga upp á land settust þau Brynjólfur og Hrefna um tíma að í Hveragerði. Við Sigrún heimsóttum þau þang- að. Sagðist hann þá hafa nýlega lokið við að skrifa mér lengsta bréf sem hann hefði nokkurn tíma skrifað. Rétti hann mér síðan papp- írsrúllu úr reiknivél sem hann hafði skrifað á margar af sínum bestu vísum. Bréfið var fjögurra metra langt. Fljótlega eftir að gosinu lauk og dvalarheimili aldraðra Hraunbúðir tók til starfa í Eyjum fluttust þau þangað Hrefna og Brynjólfur. Heilsa hennar var þá farin að bila og var til þess tekið hvað Brynjólf- ur annaðist hana af mikilli nær- gætni og þolinmæði í þessum veik- indum. Hrefna dó 1982. Á hveiju ári eftir fráfall hennar og allt til ársins 1994 ferðaðist Brynjólfur austur á land og heim- sótti skyldfólk sitt á Egilsstöðum og Eskifirði. Hann bar hlýjan hug til átthaganna og var sáttur við líf sitt og samferðafólk. Því lýsti hann betur en aðrir fá gert með þessari stöku: Þó að hér í fylgd með fólki góðu fest ég hafi í Vestmannaeyjum yndi, enn í gepum minninganna móðu mótar alltaf fyrir Hólmatindi. ■' Við Sigrún þökkum fyrir langa og dygga samfylgd og sendum niðj- um Brynjólfs og venslafólki innileg- ar samúðarkveðjur. Hilmar Bjarnason. Afi Binni er látinn. Hann var 92 ára, svo við því mátti búast. En samt er það svo sárt. Mig langar að deila með ykkur nokkrum minn- ingabrotum. Ein fyrsta minning mín um afa Binna er frá leikskólanum í Hvera- gerði. Þar birtist hann til þess að hafa auga með mér, lítill, grannur með alpahúfu, lítil kringlótt gler- augu og augabrýr sem hefði mátt setja í tagl, svo miklar voru þær. Hann fékk óskipta athygli allra á svæðinu og myndaðist röð af for- vitnum krökkum sem vildu fá að koma við augabrýrnar. Hann sinnti þessu með mikilli þolinmæði. Hann bókstaflega bjargaði félagslegri stöðu minni. Eg varð langvinsæl- ust. Þótt vinsældirnar færu dvínandi með árunum tókst mér nú að gift- ast. Og aftur bjargaði afi mér. Og í þetta sinn var um sjálfsvirðingu mína að ræða á sjálfan brúðkaups- daginn. Eftir að nokkrir veislugest- ir höfðu staðið upp og ítrekað boð- skap dagsins: „Kona, vertu manni þínum undirgefin“, þá stóð afi Binni upp, þungur á brún og orðhvass. Þótti honum að írisi sinni vegið. Minnti hann fólk á gagnkvæma virðingu og ást og hafði máli sínu til stuðnings sitt eigið hjónaband. Það hefði mátt heyra saumnál detta á meðan afí talaði. Fyrir nokkrum vikum fór ég til afa og bað hann að segja mér eitt- hvað frá barnæsku sinni og foreldr- um sínum. Þetta var mjög fróðleg stund og dýrmæt. Afi lést á heim- ili sínu á Hraunbúðum og skipt- umst við fjölskyldan á að sitja hjá honum síðustu sólarhringana. Áð fá að vera hjá honum síðustu dag- ana og stundirnar var mér afar dýrmætt. Ég hélt í hönd hans, tal- aði við hann, rifjaði upp, hlustaði á andardrátt hans, bjó til rúm úr stólum og svaf við hlið hans. Það var allt svo friðsælt og dýrmætt. Ég fann dauðann nálgast en var ekki hrædd. Ég fékk á tilfinning- una að afi væri að fara yfir líf sitt meðan hann svaf. Gera upp líf sitt, undirbúa sig undir að sleppa tak- inu. Systur mína dreymdi draum nóttina sem hann lést. Hana dreymdi að afi kæmi út úr her- bergi sínu í Hraunbúðum með gamlan, slitinn gítar í hendi. Hann lagði frá sér gítarinn og tók upp minni gítar, svartan á lit, skreyttan blómum. Hann leit til systur minnar og sagði: „Jæja, nú er ég tilbúinn að spila.“ Afi Binni var mikill ljóðaunnandi og vil ég enda þessa upprifjun á því að birta vísubrot eftir hann sem hljóðar svo: Oft er meðal okkar hér, einhver deyfðarvoma, en alltaf birtir yfir mér, ef ég sé þig koma. Ég bið Guð að blessa minningu afa Binna. Iris Guðmundsdóttir. „Það er einkennilegt, frænka, að alltaf þegar við tölum saman, þá tölum við um ást og heimspeki." Þetta sagði Brynjólfur frændi við mig í okkar síðasta samtali. Og þetta var rétt. Nú, og svo töluðum við auðvitað líka um skáldskap. Þar var Brynjólfur meistarinn, ég hlust- andi og lærisveinn. Ég hafði þekkt Brynjólf ömmu- bróður minn frá barnæsku, en við kynntumst fyrst fyrir alvöru í Vest- mannaeyjum árið 1975, ég þá tví- tug og hann rúmlega sjötugur. Það fór ákaflega vel á með okkur. Á milli okkar Brynjólfs var rúmlega hálf öld í árum, en hárfínn þráður í raunverulegum tíma. Hárfínn þráður þess sem skiptir máli; vin- áttu. Brynjólfur var fallegur maður, lágvaxinn, hæglátur, með kankvís og lifandi augu undir kafloðnum augabrúnum. Og yfir þeim auga- brúnum oftar en ekki svört alpa- húfa. Röddin var lág, með sérstakt hljómfall og hrynjandi. Hann hafði þá gáfu að geta farið með ljóð af tilfinningu, með fínum blæbrigðum og þögnum. Minnið var ótrúlegt - hann hafði kvæði flestra höfuð- skálda íslenskrar tungu á hrað- bergi og sjálfur var Brynjólfur góður hagyrðingur. Bátasmiðurinn var nefnilega jafnhagur á tré og orð og lék sér snilldarlega með tvíræða merkingu orðanna. Til að skemmta okkur hinum, sem tökum lífið svo hátíðlega. Svona er nú það. Lífíð er blátt skip sem siglir. Okkur er gefið ferðalagið og með forvitni o g undrun í farteskinu eign- umst við efann og nostalgíuna. Vin- ir koma og vinir fara, en skipið sigl- ir. Einu ferðalagi er lokið, sem skil- ur eftir skýra og fallega mynd, en ferðin sjálf tekur engan enda. Allt flýtur og allt er á hreyfingu. Ég er þakklát fyrir vináttu okkar Brynjólfs og ferðalag. Saman fund- um við hjartalagaðan stein við Sléttaleiti í fyrrasumar. Ég ferðast með hann áfram - í minningu um mann með gott hjartalag, dreng- lyndi og strákskap. Guð blessi minningu hans. Harpa Björnsdóttir. 1 € € 4 4 4 4 í 4 4 4 4 4 i 4
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.