Morgunblaðið - 18.04.1996, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 18.04.1996, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1996 47 MINNIIMGAR OLAFUR BERGMANN ÓMARSSON + Ólafur Berg- mann Ómarsson fæddist í Reykjavík 14. janúar 1978. Hann lést á Sjúkra- húsi Reykjavíkur aðfaranótt 10. apríl sl. Foreldrar hans voru Ómar Sverris- son, f. 25.11. 1955, d. 20.1. 1985, og Aðalbjörg Ólafs- dóttir, f. 11.1. 1959. Systkini Ólafs eru Sara Dögg Ómars- dóttir, f. 5.2. 1982, Hörður Freyr Harð- arson, f. 31.7. 1988, og Arin- Ijjörn Harðarson, f. 28.8. 1992. Ólafur gekk í barnaskóla í Mela- skóla og síðar Réttarholtsskóla. Síðar tók við Iðnskólinn og Myndlista- og handíðaskólinn. Ólafur vann við bensínaf- greiðslu á bensínstöð Esso við Ægissíðu. Útför Ólafs Bergmanns fer fram frá Bústaðakirkju í dag og hefst athöfnin kl. 13.30. Ég fann þig eitt sinn við fallna eik, þú varst fegursti geislinn minn. Nú grundin er orðinn gulnuð og bleik, og grænkar ei aftur um sinn. í hálfdraumi geng ég og hugsa um þig, því hér er þín æskuslóð. Svo strýk ég með lófanum lif- andi blóm, þá lágreisti kofinn þinn stóð. (Elín Kúld frá ðkrum) Þín amma, Helga Ósk Kúld. Ólafur Bergmann Ómarsson fæddist í Reykjavík 14. janúar 1978 og lést í Reykjavík 10. apríl sl. Hann var sonur Ómars Sverrissonar og Aðalbjargar Ólafsdóttur. Ég hef augu mín til fjallanna: Hvaðan kemur mér hjálp? Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar. Elsku Óli minn. Það er erfitt að trúa því að þú sért dáinn, svona snögglega. Ég vaknaði um kl. 5.30 um morg- uninn við dyrabjölluna, mér dauðbrá, sá Dóru systur fyrir utan, ég opnaði og sagði strax: Hvað kom fyrir, hvað er að? Við settumst inn í eld- hús, ég stóð upp og spurði aftur, Dóra, hvað kom fyrir? „Hann Óli hennar Öllu er dáinn.“ Það var þögn, ég trúði þessu ekki, það er svo sárt að horfa á eftir þér, elsku frændi, aðeins 18 ára gamall og áttir allt lífið framundan. Ég var aðeins 14 ára þegar hún Alla systir eignaðist þig, þú varst svo yndislegur og mikið krútt, ég passaði þig mikið enda var ég alltaf hjá stóru systur. Ég var mjög stolt að eignast lítinn frænda, enda fyrsta barnabarn pabba og mömmu. En ég veit að núna er hann pabbi þinn búinn að taka á móti þér og þið feðgar glaðir saman. Góður Guð geymi þig og varðveiti. Öll höfum við misst mikið en mestur er þó missir ykkar elsku Alla mín, Sara, Hörður Freyr og Arinbjörn. Gúð veri með ykkur öllum og styrki. Elsku pabbi, Fríða, mamma, Stebbi, Edda, Rósi, Sverrir og Sig- rún, þið sem sjáið á eftir barna- barni, ég bið góðan guð að hugga ykkur og okkur öll í sorginni. Hinsta kveðja, Heiðrún móðursystir. Elsku Óli minn. Þú veist og vissir að ég elskaði þig og ég er þakklát fyrir að þú kysstir mig bless þegar þú kvaddir mig eftir að við höfðum átt góðar stundir síðasta daginn þinn á þess- ari jörð. Þú varst kallaður í vinnu og kvaddir mömmu með kossi sem þú varst ekki vanur að gera dag- lega. Það veitir mér huggun þótt ég sé ekki farin að trúa eða ná því að þú sért farinn frá mér, en ég er viss um að pabbi þinn sem elskaði þig tekur vel og innilega á móti þér Og mun leiða þig áram hinum megin. Ég kveð þig, elsku Óli minn, með einni af bænunum sem ég kenndi þér þegar þú varst lítill drengur. Þú Guð sem stýrir stjarna her og stjórnar veröldinni, í straumi lífsins stýrð þú mkér með sterkri hendi þinni. (V. Briem) Þín elskandi, Mamma. Óli dáinn? Hann? Af hveiju? Hann var þarna rétt í gær, brosti svolítið útí annað og leið svo vel. Hver hefði búist við þessu? Hann var rétt að byija lífið. Maður trúir þessu ekki, áttar sig ekki! Hann hlýt- ur að fara að koma inn bráðum, iabba inn um dyrnar og spytja „er til Pepsi? Má ég fá?“ og mamma segir ,já, en ekki klára það!“ Og Óli brosir og fær sér Pepsi. Við Óli áttum okkar stundir sam- an og ég gleymi þeim aldrei. Það vantar svo mikið þegar hann er far- inn. Eitthvað sem alltaf var er allt í einu ekki lengur ... Það er svo skrýtið - ég myndi gera allt til að fá hann aftur, eða bara aftur til seinustu orðanna sem hann sagði við mig, geta stoppað, gert það sem hann bað mig um. Og kveðja hann. Þetta er svo sárt. Ég veit ekki hvað ég á að gera. Ég veit ekki hvernig ég á að vera. Óli bróðir var svo fyndinn og snið- ugur og það var alltaf hægt að hlæja að honum þegar hann var að grín- ast. Það var líka hægt að tala við hann. Við áttum okkar stundir, það er svo sárt að horfa á eftir honum svona ungum - svo óréttlátt! Hann hafði marga hæfileika sem áttu að fá að þroskast og dafna og hann átti að fá að eiga sína góðu tíma framundan eins og við hin. Hann var á margan hátt miklu þroskaðri en hann leit út fyrir að vera, hann leyndi á sér, ég veit það. Hann var bróðir minn, svo indæll og góður strákur. Elsku Óli, ég kveð þig með þessum orðum mínum, þakka þér fyrir allt sem við áttum saman, ég mun alltaf muna þig. Þín systir, Hann mún eigi láta fót þinn skriðna, vörður þinn blundar ekki. Nei, hann blundar ekki og sefur ekki, hann, vörður ísraels. Drottinn er vörður þinn, Drottinn skýlir þér, hann er þér til hægri handar. Um daga mun sólarhitinn eigi vinna þér mein, né heldur tunglið um nætur. Drottinn mun vernda þig fyrir öllu illu, hann mun vemda sál þína. Drottinn mun varðveita útgöngu þína og inngönp héðan í frá og að eilífu. I dag verður jarðsettur frá Bú- staðakirkju ástkær bróðursonur okk- ar og ömmubarn, Ólafur Bergmann Ómarsson. Það er ekki ofsögum sagt að það skiptast á skin og skúrir í þessu lífi. Þegar Ómar, faðir Óla, var viðstadd- ur jarðarför Svavars bróður síns bárust honum - mitt í sorginni - þau gleðitíðindi að honum væri. fæddur sonur. Sá hjartasjúkdómur sem nú, 18 árum síðar, dró Óla okk- ar til dauða, var farinn að höggva skarð í raðir fjölskyldu okkar. 20. janúar, 1985, deyr Ómar, og 17. júní 1989 deyr Elín, föðursystir Óla - öll voru þau hrifin burt í blóma lífsins. Annan dag páska vorum við viðstödd fermingarveislu Söru, syst- ur Ólafs, og þrátt fyrir það sem á undan var gengið var á þeirri gleði- stundu ekkert fjarri okkur en til- hugsunin um dauða - hvað þá að við ættum aldrei eftir að sjá Óla framar. Óli var afar þægilegur og góður drengur. Hann var dúglegur til vinnu og ijúfur í allri umgengni. Hann hafði afar gaman af að mála og teikna og stóð hugur hans til náms á lisþabraut á komandi hausti. Þá var Óli einstaklega góður við móður sína og mjög hjálpsamur. Elsku Alla og börn. Missir ykkar er mikill - og okkar allra. Megi góður Guð veita huggun og styrk í sorg ykkar. Okkur langar að skilja eftir handa ykkur huggunarorð Páls postula í Filippíbréfinu, 1. kafla, 21. versi, þar sem hann segir: ...„lífið er mér Kristur en dauðinn ávinningur." Edda amma, föðursystkin og aðstandendur. Þegar móðir þín hringdi í mig um miðnætti á þriðjudagskvöld og bað mig að koma til sín þá misskildi ég hana og hélt að hún væri að biðja mig að passa yngri systkini þín. Fljótlega eftir að ég var þangað komin hringdi hún aftur og spurði hvort ég hefði misskilið sig, ég hefði átt að koma niður á spítala. Hún hafði aldrei beðið neinn að koma til sín þegar þú hafðir verið fluttur á sjúkrahús. Það sóttu að mér slæmar tilfinningar. Þegar niðureftir var komið sá ég bílinn hjá afa, mér brá, ég tók til fótanna. Enn vil ég ekki trúa því að þú sért farinn og að við fáum aldrei að sjá Jiig aftur í þessum heimi. Elsku Óli minn, lífið blasti við þér, þú varst nýorðinn 18 ára, þú stefndir á iistabraut í fjölbraut nú næsta haust. Þú hafðir svo gam- an af að teikna og mála og ég veit að þú varst alltaf að hugsa út í myndina í eldhúsið mitt sem ég bað þig um eitt sinn. Þær voru svo falleg- ar myndirnar þínar og ég veit að þegar komin var ró á kvöldin gast þú setið við trönurnar fram á nótt og notið þess að skapa nýtt lista- verk. En þú færð ekki að klára þær myndir sem hálfnaðar eru, hún móð- ir þín geymir þær fyrir þig. Það var gaman að fylgjast með þér frá fæðingu, þú varst svo ánægt barn, frumburður foreldra þinna, sem voru stoltir af þér. En þegar faðir þinn dó rétt eftir 7 ára af- mæli þitt var það þér þungbær raun, og þú saknaðir hans alltaf. Ég veit að hann hefur tekið á móti þér með útbreidda arma og allri þeirri ást og hlýju sem hann átti. Þegar þú veiktist fljótlega eftir fermingu urðum við öll óskaplega hrædd um þig og margar urðu ferð- irnar á sjúkrahúsið. Laéknarnir héldu að þeir væru búnir að hjálpa. Við urðum öll rólegri um tíma en veikind- in tóku sinn toll þótt þú værir samt alltaf kátur, þótt þú yrðir fjarrænn um tíma. Síðasta gamlárskvöid komstu til mín í mat, ég sótti þig og við áttum gleðileg áramót, hver hefði trúað því þá að þau yrðu ekki önnur. Svo fermdist Sara Dögg systir núna annan í páskum, þú varðst svo glaður þá. Þú stóðst eins og klettur við hlið móður þinnar og systkina, LEGSTEINAR MOSAIK H.F. Hamarshöfða 4 - sími 587 1960 þér fannst þú þurfa að standast þín- ar skyldur. Þú stóðst þig vel, það máttu vita. Þú varðst aftur sá Óli sem við þekktum fyrir veikindi þín. Við sáum þig koma aftur með þitt fallega bros - en stutt er milli gleði og sorgar. Við vorum orðin svo ör- ugg með þig, en enginn hefði getað gert sér grein fyrir því, Óli minn, hve þú hefur verið veikur í raun. Ég trúi því, Óli minn, að þú finn- ir ekki lengur til og hvílir í örmum föður þíns. Elsku Oli minn, ég skal hafa hug minn allan hjá móður þinni og systkinum og hjálpa henni á þess- um erfiðu tímum því þú hafðir áhyggjur af fjölskyldu þinni ef illa færi. En þú varst í rauninni ekki hræddur sjálfur, þú hafðir meiri áhyggjur af öðrum en sjálfum þér. Góði Jesús bróðir besti blessun þína veittu mér þú ert lífsins læknir mesti ljósið heimsins er fylgja ber. Aðeins.þinn ég þráði frið þig ég einan hjálpar bið þú einn getur þerrað tárin þú einn getur læknað sárin. (Margrét Jónsdóttir.) Elsku Óli minn, þakka þér fyrir ailt og góðu stundirnar, minningin um þig lifir. Elsku Alla systir, Sara Dögg, Hörður Freyr og Arinbjörn ásamt öllum öðrum aðstandendum - Guð styrki ykkur í sorg ykkar. Halldóra Olafsdóttir. í dag langar mig að kveðja þig, Óli minn, með nokkrum orðum. Þeg- ar maður fær svona fréttir þá verður maður orðlaus. Ég veit að þar sem þú ert núna líður þér vel og að góð- ur Guð verndar þig. Hinsta kveðja, elsku drengurinn minn. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fýrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Elsku Alla, Sara Dögg, Hörður Freyr og Arinbjörn. Megi algóður Guð vernda og blessa ykkur í sorgum 'ykkar. Ykkar einlægur faðir og fóstur- faðir, Hörður. þdag kveðjum vip systurson okk- ar Ólaf Bergmann Ómarsson, aðeins 18 ára að aldri. Okkur brá mjög er síminn hringdi rétt fyrir miðnætti og í símanum var Alla systir að tilkynna að Óli sonur hennar hefði veikst alvarlega þar sem hann var við vinnu sína. Hann sem daginn áður, annan í páskum, þegar Sara Dögg systir hans var fermd, leit svo vei út, var svo glaður og ánægður, labbandi milli borða og talandi við fólkið sitt. Fyrir fjórum árum var Óli fermd- ur og skömmu síðar var vart þeirrar hjartveiki er hann lést nú úr. Þegar Óli var sjö ára lést pabbi hans úr þeim sama sjúkdómi. Minningarnar eru margar sem upp í hugann koma, minningar sem við geymum um frænda okkar. Elsku Alla systir, Sara Dögg, Hörður Freyr, Arinbjörn, afar, ömm- ur og aðrir aðstandendur, Guð blessi ykkur öll og gefi ykkur styrk á þess- ari sorgarstund. Blessuð sé minning frænda okkar. Ragnheiður Olafsdóttir, Nú þegar dagarnir eru orðnir langir á ný og gróður að vakna eft- ir vetrardvala berst okkur sú harma- fregn að Óli frændi sé dáinn. Þeir deyja víst ungir sem guðirnir elska en þegar ungur maður í blóma lífs- ins er hrifinn á brott þá spyr maður . „Hver er tilgangurinn?“ Þetta er svo óréttlátt. Það er okkur öllum svo mikið áfall að þú skulir vera farinn svo snögglega. Elsku Óli frændi, við viljum þakka þér samverustundirn- ar, og við munum geyma minningu þína í hjörtum okkar um ókomna framtíð. Við viljum með þessum fáu orðum kveðj a elsku besta f rænda okkar sem ' var ávallt svo yndislegur og hafði svo stórt hjarta. Góður Guð geymi þig og varðveiti. Elsku Alla, Sara Dögg, Hörður Freyr og Arinbjörn, Guð gefí ykkur styrk í þessari miklu sorg. Guðlaug Helga Magnúsdóttir, Sigurður Eðvaldsson, Arnar Freyr Sigurðsson. í dag kveðjum við Óla frænda eða Óla hennar Öllu eins og við kölluðum hann alltaf til að aðgreina frá öllum hinum Ólunum í fjölskyld- unni. Við þekkjum Óla sem þessa glað- væru týpu, og þess er allt of stutt að minnast hversu góðar stundir við áttum með honum þegar hann kíkti í heimsókn um áramótin síðustu. Okkur óraði ekki fyrir því þá að Óli myndi ekki vera með okkur næstu áramót. Jóna, elst okkar systkina, fermd- ist með Óla í Bústaðakirkju, og var fermingarveisla þeirra haldin sam- eiginlega enda var samgangur mik- ill milli heimila þó vinskapur okkar krakkanna hafi e.t.v. minnkað eftir því sem við eltumst. Elsku Óli frændi, við eigum marg- ar góðar minningar um þig sem við geyaaaamum í huga okkar. Við trú- um því að þér sé batnað og að þér líði vel á þínum nýja stað. „Þegar þú ert sorgmæddur, skoð- aðu þá aftur hug þinn og þú munt sjá að þú grætur vegna þess sem var gleði þín.“ (Kahlil Gibran.) Elsku Alla, Sara Dögg, Hörður Freyr og Arinbjörn, við vottum okkar dýpstu samúð, megi Guð styrkja ykkur öll á þessum erfiðu tímum. Jóna Mjöll Grétarsdóttir, Lena Huld Sigurðardóttir, Rúnar Sigurður Sigurðarson. Erfídrykkjur Glæsileg kaffi- hladbord, fallegir salir og mjög góð þjónusta Upplýsingar ísíma 5050 925 og 562 7575 FLUGLEIÐIR HÖTEL LÖFTLEIMR á legsteinum úr graníti, marmara o.fl. teg. Verð frá kr. J9.200. CTZ? SÓLSTEINAR Opið kl. 13-18 alla \ irka daga og laugardaga kl. 13-17. Nýbýlavegi 30, Dalbrekkumegin, Kópavogi, sími 564 3555. Sara Dögg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.