Morgunblaðið - 18.04.1996, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 18.04.1996, Qupperneq 52
52 FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Grettir Tommi og Jenni M /VMÐur ALLT /4MN A& FVÍilR. &OIZJO Ljóska Ferdinand Jæja, hvað finnst þér? Mamma, einhver hefur skilið mörgæsabúrið eftir opið einu sinni enn! UiELL WHAT PO iou THINK H- 17 BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 5691329 • Netfang: lauga@mbl.is Bílar á göngustíg Frá Guðvarði Jónssyni: í ÞRJÚ ár hef ég reynt að fá því framgengt að bílaumferð um göngu- stíginn framan við húsið hjá mér yrði stöðvuð eða fyllsta öryggis gætt við akstur bíla á göngustígnum. Hvorug leiðin virðist fær, vegna af- stöðu borgarstjóra til málsins. Auk borgarstjóra hafði ég sam- band við eftirtalda aðila: Umferðar- nefnd borgarstjórnar, fulltrúa gatnamálastjóra, umferðardeild lög- reglunnar og umferðarráð. Svörin voru eftirfarandi: Umferðarráð hafði ekkert með málið að gera, lögreglan svaraði ekki bréfi sem ég skrifaði henni, fulltrúar gatnamálastjóra og umferðardeildar Reykjavíkur, svör- uðu í samræmi við afstöðu borgar- stjóra. Svar borgarstjóra var eftir- farandi. Að vísu svaraði borgarstjóri ekki bréfínu sjálfur sem ég skrifaði honum heldur lét fulltrúa í umferðar- deild Reykjavíkur senda mér eftir- farandi svar: „Þar sem þetta er einkalóð getur nefndin ekki skipt sér af þessu máli, en íbúar verða að koma sér saman um aðgerðir sjálfir." Mér fannst svarið lýsa nokkurri vanþekkingu á aðstæðum, þar sem talað er um eina lóð, eins og um fjölbýlishús væri að ræða. Þarna er aftur á móti um tíu einkalóðir að ræða, sem liggja að göngustígnum sitt hvoru megin. Umgengisréttur Eftir að hafa fengið þetta bréf hafði ég samband við fulltrúa gatna- málastjóra símleiðis, sagði honum að ég skildi svar borgarstjóra þann- ig að ég hefði leyfi til þess að þrengja göngustíginn fyrir framan húsið hjá mér svo bílar gætu ekki ekið um, en væri greiðfært fyrir gangandi með barnavagna. Eftir sem áður hefði verið hægt að aka á bílum eftir göngustígnum fyrir innan mig. Þessari hugmynd hafnaði fulltrúi gatnamálastjóra alveg og sagði að ég hefði ekkert leyfi til þess að gera eitt eða neitt á göngustígnum. Á göngustígnum væri almennur um- gengisréttur gangandi vegfaranda, af þeim sökum mætti ég ekki breyta þar neinu. Þá taldi ég að borgin hlyti að vera sá aðili sem ætti að setja þarna upp, hindrun til að stöðva bí- laumferð á stígnum. Aftur var nei hjá fulltrúa gatnamálastjóra, hann sagði að borgin hefði enga heimild til þess að gera eitt eða neitt á stígn- um. Þrátt fyrir þessa yfirlýsingu komu menn frá RR og grófu skurð eftir endilöngum göngustígnum, án þess að biðja um leyfi. Eg er ekki að kvarta undan þessari framkvæmd, en það sýndi að borgin telur sig hafa leyfi til þess að hefja fram- kvæmdir á stígnum án þess að spyija okkur um leyfi. Það sé fremur spurn- ing um hvað borgarstjóri vill gera. Það var bent á það í svari borgar- stjóra að menn ættu að koma sér saman um umferð á göngustígnum. Rétt er að hafa það í huga að það eru tíu lóðir sem liggja að þessum göngustíg. Þeir sem eru með ung börn á heimilinu vilja láta loka stígn- um fyrir bílaumferð eða gera aðrar þær ráðstafanir sem gætu hindrað að glæfraakstur sé stundaður á stígnum eins og gert er. Börnin ábyrg gerða sinna Þeir sem ekki eru með ung börn á heimilinu skiptast í tvo hópa. Sum- ir vilja þegja málið í hel, en aðrir eru róttækari í afstöðunni og fífl- djarfari í athöfnum. Þeir hafa sagt við mig, ef bam er svo heimskt að hlaupa út á göngustíginn þegar bíll er að koma eða fara sé ekki hægt að kenna bílstjóranum um það. Lendi barnið undir bíl og lifi það ekki af, er það bara vegna þess að það á ekki að lifa lengur. Ökuníðingar Það er aumt til þess að vita að embættismenn borgarinnar skuli dýrka þennan hugsunarhátt svo að þeir leggi allt kapp að tryggja öku- níðingum aðstöðu til að skemmta sér við að stofna lífi barna í hættu og neyði börn til þess að eiga líf sitt undir akstursmáta slíkra ökumanna, á göngustíg og leiksvæði. Ætli menn hafi nokkurn tímann leitt hugann að því, hver eftirmálinn yrði ef ekið væri á bam á göngu- stlgnum? Þar sem þetta er göngustígur taldi ég að gangandi fólk ætti þar for- gang, en svo er ekki. Gangandi fólk kemst oft ekki langtímum saman eftir stígnum með barnavagn eða barnakerrur vegna þess að hann er lokaður af bílum og þarf fólk þá að taka á sig stóran krók til að komast leiðar sinnar. Ég hef aldrei séð sjúkrabíl komast inn á stíginn af sömu ástæðum. Á gatnamótum Suðurhóla og Austurbergs er gangbraut sem fjöldi barna fer um, að og frá Hólabrekku- skóla. Að þessari gangbraut liggur göngustígur frá blokkunum við Suð- urhóla. Eftir þessum göngustíg koma bílar akandi inn á gangbraut- ina inn í Austurbergið og stundum fara þeir yfir á bílastæðið hjá Hóla- brekkuskóla eftir gangbrautinni. Furðulegt finnst mér að það skuli ekki vera settir þarna rörbogar til þess að hindra akstur af göngustígn- um inn á gangbrautina. GUÐVARÐURJÓNSSON, Hamrabergi 5,111 Reykjavík. Til nokk- urra þing- manna Frá Arnþóri Helgasyni: ÉG SENDI Páli Péturssyni, félags- málaráðherra, bréf um daginn vegna skipunar nefndar sem endurskoða skal lög um málefni fatlaðra. Ég tel með ólíkindum ef þessi ríkisstjórn ber ekki gæfu til að skipa nefndina svo að þar séu í forystu menn sem þekkingu hafa á þessum málaflokki og að þess sé gætt að einhver póli- tísk samstaða náist um þennan mála- flokk. Þá teldi ég óráð að skoða ekki I samhengi löggjöf um félagsþjón- ustu sveitarfélaga og lög um málefni fatlaðra. ARNÞÓR HELGASON, fv. formaður Öryrkjabandalags Íslands, Tjarnarbóli 14, Seltjarnarnesi. Netfang: arnhel@ismennt.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það- an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.