Morgunblaðið - 09.05.1996, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1996
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Óvissa um skólahald í Mývatnssveit næsta skólaár
Einkaskóli ekki rekinn
nema forsendur breytist
Markmið skólans er að ýta undir
hvers konar sköpunargleði og að
leiðbeina nemendum á sem fjöl-
breytilegastan hátt. Reynt er með
ýmsu móti að stuðla að velliðan og
gleði nemenda meðan þeir dvelja í
skólanum.
Áhersla hefur verið lögð á mynd-
list í skólanum og hefur hópurinn
farið til Hríseyjar þrjú síðustu sum-
ur til að vinna að veggmyndum á
stórt fiskverkunarhús sem þar er.
Leiklist hefur einnig verið í háveg-
um höfð og fjölmörg frumsamin
leikrit farið á fjalirnar. Þá hafa
mörg ljóð og margar sögur orðið til
í skólanum og einnig hafa nemend-
ur fengið að spreyta sig bæði fram-
an og aftan við myndbandstökuvél-
ar. Akureyrarbær og nokkur fyr-
irtæki hafa veitt skólanum fyrirgre-
iðslu og stutt með ýmsu móti.
Innritun á námskeið Sumarlista-
skólans er hafin en nánari upplýs-
ingar gefur Örn Ingi Gíslason á
Akureyri.
ÖVISSA ríkir um skólahald í Mý-
vatnssveit næsta skólaár, en Eyþór
Pétursson, formaður rekstrar-
stjórnar einkarekins skóla á Skútu-
stöðum, segir ljóst að þar verði
ekki rekinn einkaskóla næsta vetur
miðað við óbreyttar forsendur.
Tveir grunnskólar hafa verið
reknir í Mývatnssveit í vetur, í
Reykjahlíð og einkarekni skólinn á
Skútustöðum. Stjórn þess síðar-
hefnda sótti í haust um framlag
úr jöfnunarsjóði til að mæta út-
gjöldum vegna aksturs nemenda í
skólann en ekki er unnt að veita
slíkt framlag nema sveitarstjórn
sæki um það. Meirihluti sveitar-
stjórnar Skútustaðahrepps sam-
þykkti að sækja um styrkinn gegn
því að foreldrar barna í einkaskó-
lanum myndu undirrita yfirlýsingu
þess efnis að aldrei yrði sótt um
slíkt framlag aftur en meirihlutinn
hefur lýst þeirri skoðun sinni að
einungis einn grunnskóli, í Reykja-
hlíð, verði starfandi í sveitinni. Því
vilja íbúar í suðurhluta sveitarinnar
ekki una og benda á óhóflega lang-
an skólaakstur barna syðst í sveit-
inni.
Eyþór segir að algjör óvissa ríki
um skólahald í sveitinni næsta ár,
„nema það að ég get fullyrt að það
verður ekki rekinn einkaskóli á
Skútustöðum á sömu forsendum
og gert var í vetur. Mér sýnist
vera komið í ljós að einkaskóli í
dreifbýli, þar sem akstursvega-
lengdir eru langar, fær ekki stað-
ist. Þar með er búið að staðfesta
að menn sitja ekki við sama borð
hvað þetta varðar í dreifbýli og
þéttbýli“, sagði Eyþór. „Samþykki
Alþingi breytingar í þá átt að heim-
ilt verði að greiða jöfnunarsjóðs-
framlag til þeirra einkaskóla sem
menntamálaráðherra hefur veitt
slíkt leyfi þá koma upp allt aðrar
forsendur. Það er ógjörningur að
halda úti rekstri einkaskóla í dreif-
býli nema til komi framlag úr jöfn-
unarsjóði vegna aksturs nem-
enda.“
Farið yfir
stöðuna
í kjölfar deilna um skólamálin
viðruðu íbúar í suðurhluta sveitar-
innar þá hugmynd að skipta
sveitarfélaginu í tvennt. Þeir munu
hittast á fundi á sunnudagskvöld
þar sem farið verður yfir stöðuna
og málin rædd.
Sumarlistaskólinn
Grunnskólinn í Grímsey
Hvar finnur þú orku til að standast
vinnuálagið Og reka heimili og sinna
bömunum og stunda félagslífið og
stunda líkamsræktina og...?
Ef þér líður stundum eins og þig vanti
orku ofurmennis til að ráða við þetta
allt gæti 1 belgur á dag af Ostrin
GTZ plus verð einmitt það sem
þú þarfnast. Hentar sérstaklega
íþróttamönnum og öldruðum.
Sendum í póstkröfu.
Skipagötu 6, Akureyri,
sfmi/fax 462 1889.
Samstarf við finnskan
og hollenskan skóla
Grímsey. Morgunblaðið.
GRUNNSKÓLINN í Grímsey er
kominn í samstarf á vegum Evr-
ópuráðs við tvo skóla erlendis,
annar þeirra heitir Rasti og er
skóli í Finnlandi en hinn De Tarr-
ising í Nes í Hollandi. Nútíma-
tækni eins og tölvur og bréfasím-
ar gera skólunum kleift að sinna
þessu verkefni og er skipst á
upplýsingum um skólana, nem-
endurna, heimahérað þeirra,
þjóðirnar og ýmsa þjóðlega siði.
Samstarf þetta hófst nú síðla
vetrar og varir til ársins 1998.
Skólastóri grunnskólans í Gríms-
ey, Dónald Jóhannesson fór fyrir
skömmu til Hollands i heimsókn
í skólann Nes tii að kynnast sam-
starfsfólki sínu og kynna fyrir
þeim skólann í Grímsey. Til að
auðvelda börnunum í Grímsey
tjáskiptin hefur verið ákveðið að
byrja enskukennslu í 4. bekk og
mælist það vel fyrir. Er þetta
verkefni styrkt úr sjóðum Evr-
ópuráðsins.
Samið við
GV-gröfur
SAMÞYKKT hefur verið að taka til-
boði frá GV-gröfum sf. í verkefni
við norðurhluta miðbæjar Akur-
eyrar, en þar er um að ræða jarð-
vegsskipti, lagnir, hellulagnir og
götulýsingu.
Þrjú tilboð bárust í verkið, sem á
að ljúka fyrir 28. júní nk., og buðu
GV-gröfur 7.120.900, eða 101,15%
af kostnaðaráætlun. Halldór Bald-
ursson bauð 8.315.300, eða 118,15%
af áætlun,.og tilboð G. Hjálmarsson-
ar var að upphæð 8.869.300, sem
er 125,98% af 7.040.000 kr.
kostnaðaráætlun.
Morgunblaðið/Hólmfríður
BORNIN í Grunnskólanum í Grímsey, í efri röð frá vinstri eru
Jón Óli, Einar Þór, Einar Helgi, Sigurðu og Haraldur Helgi. I
miðröðinni eru Helgi Garðar, Þorleifur Hjalti, Konráð og Steinar
og í neðstu röðinni eru Ragnar, Sigfús, Öli Hjálmar, Stefán Þor-
geir og Helga Kristín.
í fimmta sinn
Morgunblaðið/Beryamín
SUMARLISTASKÓLINN á Akur-
eyri verður í fímmta sinn í sumar.
Sú breyting hefur orðið á að nem-
endum verður nú skipt í tvo hópa.
í yngri hópnum verða 10 til 13 ára
börn og stendur námskeiðið frá 16.
júní til 30. júní. Starfstími eldri hóps-
ins, sem er fyrir 14 til 16 ára ungl-
inga, er frá 21. júlí til 4. ágúst.
Seinni part sumars verður einnig
boðið vikunámskeið fyrir fullorðna í
myndlist. Með þessu hefur starfsemi
Sumarlistaskólans stóraukist.
Starri nem-
ur land fyrir
norðan
Eyjafjarðarsveit. Morgunblaðið.
Starrinn hefur fram til þessa
aðallega haldið sig á höfuðborg-
arsvæðinu, en virðist nú hafa
flutt sig norður fyrir heiðar.
Nýlega sáust þrír starrar við bæ
í Eyjafjarðarsveit en þeir hafa
að sögn fuglaáhugamanna ekki
sést á þessum slóðum fyrr. Fugl-
arnir eru nú að öllum líkindum
farnir að huga að hreiðurgerð
en til þeirra sást þar sem þeir
smugu inn undir þakskegg á
gömlu fjósi með strá í goggi.
Vissulega verður fuglalífið fjöl-
breyttara á Norðurlandi við
komu starrans en þó er hrifning
blendin hjá sumum þar sem
starrinn er oft á tíðum lúsugur
og á til að hrekja burtu frá sér
aðra fugla.
Ungbamavemdin flytur
í Heilsugæslustöðina
UNGBARNAVERND Heilsu-
gæslustöðvarinnar á Akureyri
hefur flutt starfsemi sína úr
Hafnarstræti 104 yfir á 4. hæð
Amaro-hússins að Hafnar-
stræti 99.
I ungbarnaverndinni fer fram
umfangsmikið forvarnarstarf,
sem felst í stuðningi við foreldra
nýfæddra barna svo þau geti
þroskast við bestu andlegu, lík-
amlegu og félagslegu skilyrði
sem völ er á. Starfið skiptist í
meginatriðum í bólusetningar
ungbarna gegn ýmsum hættuleg-
um sjúkdómum og viðtöl foreldra
þeirra við hjúkrunarfræðinga,
heimilislækna og barnalækna um
þarfir barnanna og þroska. Ár-
lega koma nær þijú þúsund börn
í ungbarnaverndina auk þess sem
hjúkrunarfræðingar fara í um
þúsund vitjanir heim til ný-
fæddra barna.
Framtíðarhúsnæði
Húsnæði ungbarnaverndar-
innar hefur lengi verið óviðun-
andi, en áætlanir verið uppi um
að innrétta framtíðarhúsnæði
fyrir starfsemina á 4. hæð Hafn-
arstrætis 99. Hönnun er lokið en
Morgunblaðið/Kristján
GEIR Friðgeirsson barnalæknir skoðar rúmlega mánaðargamla
dóttur Láru Jónsdóttur, en Guðfinna Nývarðsdóttir, hjúkrunar-
fræðingur og deildarstjóri ungbarnaverndarinnar sem er lengst
til hægri á myndinni, fylgist með.
fjárveitingar vantar til að ljúka
verkinu. Þó að búist sé við að
farið verði í framkvæmdir við
framtíðarhúsnæði á næsta ári
varð í hagræðingarskyni að
útbúa bráðabirgðaaðstöðu í hluta
þess svæðis sem fyrirhugað er
tol/o iiníiir hocctí ctarfspmi.
Styrkir úr
minningar-
• * >(•
sjoði
NEMENDUR sem lokið hafa
burtfararprófi frá Tónlistar-
skólanum á Akureyri og
hyggja á eða stunda háskóla-
nám í tónlist geta sótt um
styrk úr Minningarsjóði Þor-
gerðar S. Eiríksdóttur. Um-
sóknarfrestur er til 15. maí
næstkomandi og þurfa um-
sækjendur að greina frá náms-
ferli og námsáformum í um-
sókn sinni.
Þorgerður S. Eiríksdóttir
var fædd árið 1954 og lauk
burtfararpróf frá Tónlistar-
skólanum á Akureyri vorið
1971. Hún þótti efnilegur
píanóleikari og va,r nýkomin
til Lundúnaborgar til að hefja
framhaldsnám þegar hún lést
af slysförum árið 1972.