Morgunblaðið - 09.05.1996, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 09.05.1996, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1996 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Nokkur atriði til umhugsunar RÍKISSTJÓRNIN sem situr að völdum er sennilega sú óvinsæl- asta sem um getur um árabil. Það þarf sérstaka sálkönnun á því hvernig á því stóð þegar ríkis- stjóm Þorsteins Pálssonar riðlað- ist. Það er óskiljanlegt að það hafi verið betri kostur fyrir Al- þýðuflokk og Framsóknarflokk að skipta á Sjálfstæðisflokknum og Alþýðubandalaginu. Enda var ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar, er hún var mynd- uð, ekki meirihlutastjóm. Það voru því brigð við forseta íslands, sem forsetinn átti að hafna. Síðan hefur ríkisstjórnin verið að, veltast og byltast í eigin ræfil- dómi, sem enn stendur þrátt fyrir tilkomu Borgaraflokksins eða hluta hans, en hann klofnaði eins og kunnugt er. Sá er þessar línur ritar harmar þau örlög sem Borgara- flokknum eru búin. Hann var ekki stofnaður til að vera hækja til að tryggja ríkisstjóm Steingríms Her- mannssonar brautargengi. Það er oft búið að reyna stjórnarsamstarf við Alþýðu- bandalagið og áður Sósíalista- flokkinn en hefur ævinlega mis- tekist nema þau rúmlega tvö ár frá 1944-1946 er Sósíalistaflokk- urinn tók þátt í Nýsköpunarstjórn- inni, sem reif íslensku þjóðina úr fortíðinni inn í framtíðina. En blaðran sprakk út af samningun- um við Atlantshafsbandalagið um áframhaldandi veru varnarliðsins hér á landi þegar Stalín og árar hans tóku til hendinni í Austur- Evrópu, sem nú hefur brostið eins og kunnugt er. Virðisaukaskatturinn tók gildi um áramót. Hann er 24,5%. Slík skattheimta styðst ekki við neitt annað en óskammfeilni og undra- vert að Alþingi skuli samþykkja hann. Virðisaukaskatturinn á ekki að vera hærri en 20%, það virðist vera ríflega skattheimta. Það kom fát á ríkisstjórnina er tók þá ákvörðun að greiða niður dilkakjöt, mjólk og fisk (ýsu), þannig að skattur á nefnd mat- væli er 13% eftir að niðurgreiðslur hafa verið greiddar. Hið rétta er að virðisaukaskatt- ur á enginn að vera á eftirtalin matvæli: Allar kjötvörar, mjólk og mjólkurvörar, garð- ávexti, innlent græn- meti, allar algengar fisktegundir. Slík ráð- stöfun myndi tryggja betur sölu og neyslu þessara hollu mat- væla og í leiðinni, bæta heilsu og hag- sæld þjóðarinnar. Alþýðubandalagið gerði harða hríð að ríkisstjóm Þorsteins Pálssonar vegna „matarskattsins". Forkólfar þess vissu að það var vilji fólks- ins að ekki ætti að skattleggja þau matvæli sem greint . er frá hér að ofan. Ólafur Ragnar Grímsson hélt æsingaræði í Mikla- garði um þá skattheimtu og fleiri forkólfar Alþýðubandalagsins, en átu það allt ofan í sig og gott bet- ur þegar þeir komust til valda eins og síðar verður vikið að. Ríkisstjórnin ákvað viðbótar- skatt á bíla sem ábót við bíla- skatt, er Jón Baldvin Hannibalsson barðist fyrir í fjármálaráðherratíð sinni. Nefndir skattar eru reiknað- ir af þyngd bílanna, bæði nýrra og gamalla. Gera má ráð fyrir að þessi skattheimta sé kr. 10.000 ■ eða meira á hvern bíl. Þetta er óréttlát skattheimta er kemur nið- ur á hinum almenna bíleiganda, sem ekki getur verið án bíls. Það á við um konur og karla. Bíllinn er nauðsynlegt tæki fyrir fólk til að geta tekið þátt í fjölþættum störfum atvinnulífsins og til þjón- ustu við heimilin. Umræddur skattur er viðbótar skrautfjöður í hatta Ólafs Ragnars og Jóns Baldvins, sem þeir skarta með í næstu fundarhöld ásamt rauðu fjöðrinni sem þeir höfðu með í för á „ísafjarðarfundinum“ er ekki var nein frægðarför. Sennilegt er að í hugskoti þess- ara herra sé svipað hugarfar og birtist hjá hinum föllnu foringjum Austur-Evrópuþjóða sem fólkið hefur steypt af stóli. Umræddir ráðherrar hafa báðir tekið þátt í þeirri eyðimerkur- göngu sem hefur einkennt Alþýðu- bandalagið, en era nú formenn svokallaðra A-flokka, sem þeir eru á góðri leið með að sprengja í loft upp, hvor á sinn máta. Hjá þeim er enga stefnu að finna í fijálsræði- sátt, aðeins tilraun til að festa völd sín. En örlög þeirra verða hin sömu og þeirra er hrakist hafa frá völd- um í löndum Austur- Evrópu. Þess er rétt að geta að í Alþýðuflokknum eru menn, er hafa haldið tryggð við hann. Þar má nefna Jón Sigurðsson, við- skipta- og iðnaðarráðherra, og Jóhönnu Sigurðardóttur, félags- málaráðherra, sem ættu að leiða Alþýðuflokkinn. Það óttaðist Jón Baldvin Hannibalsson mest. Fjárlögin eru nær 100 miljarð- ar, sem enginn glóra er í og hrein eignaupptaka umfram hóflega skattheimtu, sem ekki leiðir til annars en versnandi afkomu samfélagsins. íslenska þjóðin er um 260 þús- und íbúar. Ríkisbáknið þenst enda- laust út en atvinnuvegunum hrak- ar. Slíkt leiðir ekki til annars er ofstjómar. Stjórnkerfið er sjúkt vegna óráðsíu stjórnvalda sem ekki geta snúið við af óheillabraut inn á leiðina til „bjargálna“, sem er hið eftirsóknarverðasta samfé- lagsform, sem ber að stefna að. Ráðherrarnir hafa aðstoðar- menn sem engin þörf er á. í ráðu- neytunum eru ráðuneytisstjórar, skrifstofustjórar og deildarstjórar að viðbættu öðra starfsfólki, sem ætti að duga á tölvuöld. Ráðherrar vora ellefu í ríkisstjórn Steingrím Hermannssonar en ættu ekki að vera fleiri en átta, síðan era ótal nefndir á vegum ríkisins, það er verðugt verkefni Ríkisendurskoð- unar. Á fundi í Vestmannaeyjum, sem Jón Baldvin Hannibalsson hélt í janúar, réðst hann á landbúnaðinn og taldi að styrkir til hans á hvert bú í landinu svöruðu til ráðherra- launa, er bóndinn fengi greitt. Utanríkisráðherra getur fengið upplýsingar um þessa fullyrðingu hjá landbúnaðarráðherra og Fram- Einar Öm Björasson leiðsluráði landbúnaðarins. Hér er um grófa árás á bændastéttina að ræða, sem kemur frá formanni Alþýðuflokksins í því skyni að villa um fyrir almenningi. Það er ekki vansalaust af forsætisráðherra að hýsa slíka menn í stjórnarráðinu, sem á eftir að draga dilk á eftir sér. Einnig ræddi utanríkisráðherra nauðsyn þess að flytja inn land- búnaðarvörar frá löndum Efna- hagsbandalagsins til að neytendur gætu fengið þær á góðu verði. Þar átti ráðherrann við innflutning á kjörvörum og mjólkurvöram. Ef farið væri að ráðum Jóns Baldvins yrðu afleiðingarnar þær að byggð- ir landsins myndu leggjast í auðn og hér yrði komið á svipuðu stjórnarfari og tíðkast hefur í lönd- um Austur-Evrópu, er blasir við eftir að fólkið í þessum löndum hefur hrist af sér klafann. Var utanríkisráðherra öðrum þræði að ræða þessi viðskiptamál við ráðamenn Efnahagsbanda- lagsins sem formaður EFTA ráðs- Yirðisaukaskattur á enginn að vera, segir Einar Orn Björnsson, á matvöru eins og mjólk, kjöti, fiski og grænmeti. ins fyrir áramót! Var honum falið það af ríkisstjórninni? Er forsætis- ráðherra svo fastur í stólnum að láta það eins og vind um eyru þjóta, að einn ráðherra í stjórn hans beri slíkar firrur á borð á opinberam fundi! Einhver hagfræðingur kom fram í sjónvarpsviðtali og lýsti fylgi við fullyrðingu Jóns Bald- vins. Enn fleiri liggja í leyni, sem eru tilbúnir að leggja þessum sjón- armiðum lið án þess að huga að afleiðingum. Bændastéttin óttast ekki slíkt gaspur. Hér á landi eru framleidd- ar góðar landbúnaðarvörar, sem era eftirsóttar. Einnig mun að því koma að þær verði fluttar út, er fram líða stundir.er verður að vera- leika þegar íslendingar ná tökum á heilbrigðum viðskiptaháttum, þar sem verðbólga og vextir verða svip- aðir og í löndum er íslendingar hafa sín meginviðskipti við. Bændastéttin þarf að vera vökul um málefni sín og þá er veljast til forystu í stjórn bændasamtak- anna. Landbúnaðurinn er mikil- vægur atvinnuvegur. Hann þarf að lyfta af sér því fargi er á hon- um hvílir um þessar mundir. Einn- ig ætti fiskeldi, bæði lax og silung- ur, að geta orðið góð búbót á mörgum jörðum, en einnig að nýta þau mörgu vötn og tjarnir þar sem náttúran sér fyrir uppeldinu, ef rétt er að farið. Landnámsmenn námu landið á 60-80 áram og fluttu með sér þann bústofn sem hér hefur verið síðan. Þegar íslendingar losnuðu úr þeim viðjum er hér vora viðvar- andi í sex hundrað ár, með öllum þeim þjáningum sem því fylgdu, -vöknuðu þeir til vitundar, er þok- aði þeim áleiðis til þess er við blasir. Þéttbýli íslands er ávöxturinn. Bensínskattur, sem Jón Baldvin sem fjármálaráðherra setti í tíð ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar, var 10.000 kr. en mismikill eftir þyngd bílsins, sem hann gaf út að hefðu orðið eitthundrað og fjör- tíu milljónir í fjármálatíð sinni. Ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar hrökklaðist frá völdum og við tók ríkisstjórn Steingríms Hermanns- sonar. Jón Baldvin varð utanríkis- ráðherra og Ólafur Ragnar Gríms- son fjármálaráðherra. Hann tvö- faldaði þennan óréttláta skatt þannig að hann var greiddur tvisv- ar á ári. og hækkaði samkvæmt því. Þriðja ríkisstjórn var mynduð eftir kosningar 1990 undir forsæti Davíðs Oddssonar „hin makalausa Viðeyjarstjórn“ þar sem Friðrik Sophusson varð fjármálaráðhera. Enn hækkaði skattheimtan á bí- leigendur. Nú situr ríkisstjórn framsóknar- og sjálfstæðismanna við völd undir forsæti Davíðs Oddssonar og þessi siðlausa skatt- heimta heldur áfram og skatturinn orðinn tveir milljarðar. Skatt- heimta þessi legst með miklum þunga á fjölskyldurnar í landinu og stuðlar að því að fleiri fara niður á fátæktarmörkin. Þess vegna á að nema þennan skatt úr gildi nú þegar og fara leiðina til bjargálna. Þá leið verður ríkis- stjórnin að fara eigi hún að vera samkvæm sjálfri sér. Ólafur Ragnar Grímsson, sem varð fjármálaráðherra í ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar, tvö- faldaði þennan nefnda bensínskatt og er nú framboði til forseta ís- lands. Hann hefur því engu gleymt af gerðum sínum. Hvað segja kjós- endur í landinu um slíkt? Friðrik Sophusson, fjármálaráð- herra í ríkisstjóm Davíðs Oddsson- ar, var beðinn um það af hópi manna í Sjálfstæðisflokknum að fara í framboð til forseta íslands, en hann treysti sér ekki til að verða við þeim tilmælum. Höfundur býr & Mýnesi á Fljótsdalshéraði. FULLAR BÚÐIR A F NÝJUM VÖRUM Brussell . ATHLETIC AUTHENTIC AMERICAN SPORTS Útivistar og sportfatnaður VTYR Sundföt [GILD Hágæða leikfimifatnaður TRIX I Stórkostlega stílfærður tfskufatnaður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.