Morgunblaðið - 09.05.1996, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 09.05.1996, Blaðsíða 64
OPIN KERFIHF. Sími: 567 1000 tfpMedfi *f$tmfrliifrtí> m <Q> AS/400 er... ...þar sem grafísk notendaskil eru í fyrirrúmi MORGUNBLADID, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85 FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1996 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Öll skip sem sóttu um fyrir 26. apríl fá leyfi til síldveiða 19 togveiðiskip fá að veiða 8.000 tonn FISKISTOFA úthlutaði í gær 59 nótaskipum heimild til veiða á 182.000 tonnum af 190.000 tonna kvóta íslendinga úr norsk-íslenska síldarstofninum, en auk þess fá 19 togveiðiskip heimild til veiða á sam- tals 8.000 tonnum. Úthlutunin er i samræmi við reglugerð sem sjávar- útvegsráðuneytið gaf út í gær um stjórn veiða úr norsk-íslenska síldar- stofninum 1996. Heimilt er að hefja veiðarnar á morgun, 10. maí, og ___-samkværnt upplýsingum Tilkynning- arskyldunnar voru 39 skip lögð af stað á síldarmiðin um kvöldmatar- leytið í gær. Samkvæmt reglugerðinni eiga öll þau skip sem sótt höfðu um veiði til Fiskistofu 26. apríl síðastliðinn kost á því að fá leyfi til síldveiða enda hafi þau leyfi til veiða í atvinnuskyni þegar veiðamar hefjast. Þeir nóta- bátar sem kost eiga á veiðileyfi eru annars vegar þeir bátar sem stund- uðu veiðar á loðnu eða síld einhvern tíma á tímabilinu 1. júlí 1995 til 1. aþn'l 1996, og er þar um 45 báta að ræða, en hins vegar önnur nóta- skip sem staðfest hefur verið til Fiskistofu eigi síðar en 20. maí næst- komandi að fullbúin séu til síldveiða, og er þar um að ræða 14 báta. Þá eiga einnig kost á leyfi þau togveiði- skip sem staðfest hefur verið til Fiskistofu eigi síðar en 20. maí að halda muni til veiða eigi síðar en 5. júní, og er hér um að ræða 19 skip, þar af 13 frystitogara. Aflahámarkið óframseljanlegft Skipunum sem veiðileyfi hljóta verður sett óframseljanlegt aflahá- mark. Aflaheimildum hringnótabát- anna verður skipt þannig að helm- ingi magnsins er skipt jafnt milli skipanna, en helmingi þess í hlut- falli við skráða rúmtölu þeirra. Sam- kvæmt bráðabirgðaútreikningi koma því rúm 5.000 tonn í hlut þeirra skipa sem hæst aflahámark fá, Sigurðar VE og Víkings AK, en rúm 2.000 tonn í hlut þess skips sem lægst afla- hámark fær. Til handa togveiðiskipum eru tekin 8.000 tonn og miðast aflahámark skipanna við að hvert skip geti farið tvær veiðiferðir. Til frystitogaranna verður hámarkið miðað við mestan landaðan afla úr frystilestum, en til ísfisktogara við mestan landaðan afla ísaðan eða í kassa. Vegna óvissu um þátttöku í veið- unum, einkum af hálfu þeirra 14 hringnótabáta sem ekki hafa stundað hringnótaveiðar á liðnu ári og einnig togskipanna, er í reglugerð sjávarút- vegsráðuneytisins ákveðið að þegar eftir 20. maí verði endurskoðaðar aflaheimildir þeirra skipa sem farið hafa til veiða, með hliðsjón af ónýtt- um aflaheimildum. Þá er í reglugerð- inni gert ráð fyrir að unnt sé að endurskoða afiamark einstakra skipa þegar að lokum vertíðar dregur ef í ljós kemur að heildaraflaheimildin nýtist ekki að fullu vegna þess hvern- ig veiðar einstakra skipa hafa geng- ið. ■ Nýmæli að miðað/4 Ljósmynd/Kristján Jónsson ÞRONG á þingi á Reykjaneshrygg. Fjærst er portúgalskur tog- ari, þá færeyski togarinn Akraberg, og fremst rússneskur togari. Gáfu Rússum fiskinn ÓHAPP átti sér stað á Reykjanes- hrygg fyrir skömmu þegar Engey RE-1 sigldi fyrir framan rússnesk- an togara og pokinn í trollinu kræktist í annan hlerann á rúss- neska togaranum. „Þetta var slys,“ segir Guðmund- ur Björnsson, skipstjóri á Engey. „Eg átti frekar sök á því að lenda í rússneska togaranum. Það er ekki hægt að kenna Rússanum um allt.“ Trollið var óskemmt fyrir utan að pokinn var aðeins rifinn. Rúss- arnir tæmdu pokann til að geta losað hann og fengu fiskinn í sára- bætur, að sögn Guðmundar. „Þriðji togarinn, sem var rúss- neskur, fór svo í trollið á rússneska togaranum sem var að vinna við að losa pokann hjá okkur. Hann sleit svo höfuðlínukapalinn hjá okkur þegar hann var að hífa.“ Guðmundur segir að það sé allt- af eitthvað að koma upp á á Reykjaneshrygg. Menn séu að reyna að vera þar sem f iskurinn sé og það sé mjög þröngt. í þann tíma sem hann hafi verið þarna hafi samskiptin verið í lagi, fyrir utan tungumálaörðugleika. „Þegar búið var að gera við pokann, sem tók ekki langan tíma, héldum við áfram veiðum," segir hann. „Þetta gekk því alveg ótrú- lega vel hjá okkur. Við vorum þarna í rétt rúmlega þrjár vikur og lönduðum 250 tonnum." Síldin í lögsögunni HAFRANNSÓKNASKIPIÐ Ámi Frið- riksson var í gærkvöldi í Noregshafi, djúpt austur af íslandi, skammt innan íslensku lögsögunnar, við rannsóknir á norsk-íslenska síldarstofninum. Að sögn Hjálmars Vilhjálmssonar leiðang- ursstjóra hefur síldin komið 10-15 sjómílur inn í lögsöguna á um 75 mílna kafla sem kannaður hefur verið. „Þetta viiðist vera meira og minna flakk á sfldinni fram og aftur í ætis- leit, en héma er töluvert magn af henni og margar fallegar torfur á tölu- vert stóru stykki," sagði Hjálmar. Hann sagði að síldin stæði djúpt yfir daginn en kæmi upp á nóttinni. Þetta gæti hins vegar breyst mjög fljótt eins og reyndin varð í fyrra. „Hún er eitthvað farin að taka fitu, en hún er auðvitað mjög horuð miðað við það sem hún verður í sumar. Sumt af henni hefur verið alveg fullt af átu en í öðmm togum hefur engin áta verið í síldinni. Hún fitnár mjög ört næstu mánuðina. Áður fyrr var hún ekki talin söltunarvara fyrr en komið var fram í jú!í, að mig minnir," sagði . Hjálmar. Á MEÐAN drekinn sefur fasta svefni í kastalanum er best að gæta að hverri hreyfingu á felli- brúnni. Ef til vill er stórkostlegt ævintýri í vændum hjá stúlkunni Ævintýraleikur hér að ofan eða hún er þegar orðin ein af aðalpersónunum í Morgunblaðið/Kristinn eigin ævintýraheimi. Að minnsta kosti skein einbeitnin úr andliti hennar þegar ljósmyndari var á röltinu í vesturbæ Reykjavíkur á dögunum. Halldór Asgrímsson utanríkisráðherra um kaupmátt á árinu 1996 Stefnir í 4% aukningu HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráð- herra segir að samkvæmt nýrri áætl- un Þjóðhagsstofnunar verði hagvöxt- ur á árinu u.þ.b. 3% og 3 þúsund ný störf verði til. Líklegt þykir að dragi úr atvinnuleysi á árinu um 4% og kaupmáttur ráðstöfunartekna aukist um 3,5-4%. Halldór sagði á fundi sem Félag ungra framsóknarmanna stóð fyrir að stefnt væri að því að jafn- vægi næðist í ríkisfjár-málum á árinu 1997 eða 1998 og afgangur yrði á ríkissjóði á árinu 1998 eða 1999. Halldór sagði að ekki yrði undan því vikist að takast á við fjárlagahall- ann og reyna að hemja þenslu í ríkis- útgjöldum. „Það er lykilatriði að ná jafnvægi í ríkisrekstrinum og eyða ekki um efni fram í góðæri. Við höf- um hins vegar ekki treyst okkur til þess að ganga mikið lengra í því að sinni en ná jafnvægi, því við óttumst að ef við göngum lengra komum við um of við velferðarkerfið og drögum úr þjónustu við fólkið, bæði á sviði heilbrigðismála og menntamála," sagði Halldór. „Atvinnuleysi hefur minnkað meira en menn spáðu í upphafi ársins. Á fyrsta fjórðungi þessa árs er atvinnu- leysi 1,1 prósentustigi minna en á sama tíma í fyrra og líkur eru á því að atvinnuleysi fari niður í 4% á þessu ári. Talið er að 1.760 manns komi út á vinnumarkaðinn á árinu og þar með skapast 1.240 störf fyrir atvinnulausa miðað við það að 3 þúsund ný störf verði sköpuð á árinu,“ sagði Halldór. Hann benti á að í fyrra hefði störfum fækkað um 1.800 og um 1.000 árið 1994 og sagði gífurleg umskipti hafa orðið í atvinnumálum á þessum tíma. Halldór sagði að ef svipaður hag- vöxtur yrði hér á landi fram til alda- móta og gert er ráð fyrir í áætlun Þjóðhagsstofnunar á þessu ári, væri útlit fyrir að markmið Framsóknar- flokksins um að skapa 12 þúsund ný störf á þessu tímabili næðist. Halldór benti á að kaupmáttur ráð- stöfunartekna hefði rýrnað 1988, 1989 og 1990, vaxið um 2,5% 1991, rýrnað um 2,3% 1992, rýrnað um 6% 1993 og staðið í stað 1994. „En það er aukning um 4% á árinu 1995 og útlit fyrir aukningu um 3,5-4% á ár- inu 1996.“ Halldór sagði að vextir hefðu lækkað frá áramótum og fjárfesting aukist. Hann kvaðst hins vegar ekki vænta þess að vextir lækkuðu enn frekar á næstunni, meðal annars vegna hættu á þenslu í efnahagslíf- inu. Ofanflóða- sjóður fær sjálfstæðan tekjustofn RÍKISSTJÓRNIN hefur samþykkt að Ofanflóðasjóður fái sjálfstæðan tekjustofn við innheimtu vátrygg- ingariðgjalds, að sögn Guðmundar Bjarnasonar umhverfisráðherra. Um er að ræða 0,2 prómill af ið- gjaldinu, sem mun hækka við næsta gjalddaga viðkomandi tryggingafélaga að sögn ráðherra, eða um 400 milljónir króna. Ofanflóðasjóður hefur til þessa fengið 5% af árlegum tekjum Við- lagatryggingar og segir Guð- mundur að það fyrirkomulag verði endurskoðað á næsta þingi. „Þetta er viðbótarskattur en hins vegar má gera ráð fyrir því að sá hluti viðlagatryggingargjalds sem renn- ur í Ofanflóðasjóð verði lækkað- ur,“ segir hann. Búið er að sam- þykkja tillögurnar í þingflokki Framsóknarflokks og segir ráð- herrann það vilja ríkisstjórnarinn- ar að þær verði afgreiddar á yfir- standandi þingi. Eign hækkar í 700 milljónir Sjóðurinn hefur fengið um 275 milljónir króna árlega og munu nýjar álögur hækka eign hans upp í tæpar 700 milljónir. Heimild er fyrir 800 milljóna króna lántöku í nýju frumvarpi um snjóflóðavarn- ir og gert ráð fyrir að þessir fjár- munir muni standa undir fyrirhug- uðum snjóflóðavörnum á Vest- fjörðum, sem kosta munu 1-1,3 milljarða að Guðmundar sögn. Fyrst verður hafist handa við gerð varnargarða á Flateyri og einnig eru inni í áætlun uppkaup húsa í Súðavík og Hnífsdal. Varnargarð- ar á ísafirði eru taldir munu kosta um 300 milljónir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.