Morgunblaðið - 09.05.1996, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 09.05.1996, Blaðsíða 60
60 FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ KVIÐDÓMANDINN Miðaverð 600 kr. VONIR OG VÆNTINGAR 7 tilnefningar til Óskarsverðlauna Hlaut Óskarsverðlaun fyrir besta handritið i, i>;.». I j.i_ Sense^Sensibility ★ ★★1/2 ★ ★★ S.V. MBL Ó.H.T. Rás 2 ★ ★★1/2 ★ ★★1/2 Ö.M. Tíminn H.K. DV ★ ★★1/2 ★ ★★ Á.Þ. Dagsljós ÓJ.Bylgjan ★★★ ★ ★★1/2 K.D.P. Helgarp. Taka2 STöð 2 ★★★★ ★★★★ Ó.F. X-ið Taka 2 Stöð 2 Sýnd í kl. 4.30. 6.50 og 9.10. Kr. 600. T Stórt smástirni HARVEY Keitel hefur hingað til helst verið þekktur fyrir hlutverk í myndum sem ekki hafa verið dýrar í framleiðslu. Hann hefur oft og tíðum hafnað hlutverkum í stórmyndum fyrir flóknari hlut- verk í minni myndum. Smám sam- an hefur hann áunnið sér virðingu í Hollywood. Hann vakti fyrst athygli fyrir leik sinn í myndinni „Thelma and Louise“ og var síðan tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir túlkun sína á glæpamanninum Mickey Cohen í myndinni „Bugsy“. Þar á eftir lék hann í stórmyndum á borð við „Sister Act“, „Reservoir Dogs“, „Bad Lieutenant", „The Young Americans", „The Piano“ og síðast en ekki síst „Pulp Fiction". Harvey er 56 ára og hefur leik- ið í yfir 50 myndum. Ekki leikur allt í lyndi hjá honum í einkalíf- inu, en hann skildi nýlega við leik- konuna Lorraine Bracco og stend- ur nú í forræðisdeilum við hana um 10 ára dóttur þeirra. Nýjustu myndir hans verða sýndar á næstunni í kvikmynda- húsum borgarinnar. Það eru myndirnar „Clockers“ sem Spike Lee leikstýrir og Martin Scorsese framleiðir og „From Dusk Till Dawn“, en handritshöfundur þeirrar síðarnefndu er Quentin Tarantino. Sýnd kl.5. íslenskt tal ni irirk Sýnd kl. 7 og 11. b.í. 14 ára. r Í'm ★★★ DV. ★★★ Rás2 ★★★ Helgarp. streep neÍeson DIGITAL Hughes bræðurnir slógu í gegn með MENACE II SOCIETY. Dead Presidents er nýjasta mynd þeirra og hefur komið miklu fjaðrafoki af stað. Árið 1968 heldur hinn 18 ára gamli Anthony Curtis frá Bronx til Víetnam. Fjórum árum síðar snýr hann aftur en er ekki sú hetja sem hann bjóst við. STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA. SÝNIÐ NAFNSKÍRTEINI við miðasölu. Skemmtanir ■ SPOOKY BOOGIE er heiti á nýrri hljómsveiti, sem leikur á föstudagskvöld í Sjallanum, Akureyri. Á laugardags- kvöld leikur þessi fönkóríentaða og diskó- skotna hljómsveit í Ingólfseafé í Reykja- vík. Um helgina verður hljómsveitin skip- uð þeim: Richard Scopbie, Stefáni Hilmarssyni, Bimi Jörundi Friðbjörns- syni, Ingólfi Guðjónssyni, Tómasi Jó- hannssyni og Sigurði Gröndal. Þá mun hljóðmaðurinn Bjarni Friðriksson vera með í förinni. ■ ASTRÓ l íefur undanfarin fimmtu- dagskvöld boðið upp á tónlistaratriði sem hafa heppnast vel. Á fimmtudagskvöld treður Páll Óskar upp með skemmtidag- skrá ásamt Jóni Ólafssyni. ■ KAFFI REYKJAVÍK Á fimmtudags- kvöld leikur hljómsveitin Hálft í hvom og á föstudags- og laugardagskvöld leik- ur svo stuðhljómsveitin Papar. Hljóm- sveitin Spur leikur sunnudagskvöld og á mánudags- og þriðjudagskvöld leika fé- lagarnir Ingi Gunnar og Eyjólfur. ■ NAUSTKJALLARINN Hljómsveit Önnu Vilhjálms leikur bandaríska sveita- tónlist öll fimmtudags- og sunnudags- kvöld. Hljómsveitin er skipuð Sigurði Má Ágústssyni, hljómborð, Ingvari Val- geirssyni, gítar og söngur, og Önnu Vilhjálms, sem sér um söng. ■ HANA-STÉL KÓPAVOGI Hljóm- sveitin Ásar leikur laugardagskvöld til kl. 3. Veitingastaðurinn er á Nýbýlavegi. ■ SJÖ RÓSIR Frá fimmtudegi til sunnu- dags leikur Gunnar Páll rólega og róm- antíska tónlist fyrir matargesti. Veitinga- staðurinn leggur áherslu á suðræna mat- argerð og er í Grand Hótel v/Sigtún. ■ CAFÉ OSCAR býður upp á lifandi tónlist föstudags- og laugardagskvöld frá kl. 22. Á sunnudagskvöldum er boðið upp á kántrídanskennslu. Kaffihlaðborð er laugardags- og sunnudagskvöld og einnig er boðið upp á mexíkanska smárétti. ■ HÓTEL SAGAÁ Mímisbar sjá Ragn- ar Bjamason og Stefán Jökulsson um fjörið föstudags- og laugardagskvöld. f Súlnasal er síðasta sýning á skemmtidag- skrá Borgardætra Bitte NÚ! Af þessu tilefni kemur söngvarinn og trúbadorinn K.K. í heimsókn og syngur nokkur lög. Á eftir sýningu og kvöldverð er dansleik- ur með hljómsveitinni Munkarnir ásamt þeim Helgu Möller, Kristni Svavars- syni, Hallbergi Svavarssyni, Magnúsi Kjartanssyni, Gunnari Jónssyni og Bjarna Gíslasyni. Húsið er opnað öðrum en matargestum kl. 23.30, verð á dans- leik er 850 kr. ■ HÓTEL HVERAGERÐI Á laugar- dagskvöld leikur hljómsveitin Karma fyr- ir dansleik. Meðlimir hljómsveitarinnar eru: Ólafur Þórarinsson, gítarleikari og söngvari, Guðlaug Ólafsdóttir, söngur, Helena Káradóttir, hljómborð, gítar og söngur, Páll Sveinsson, trommur, Rík- harður Arnar III, slagbretti, og Jón Ómar Erlingsson, bassi. ■ VINIR DÓRA leika á veitingahúsinu Frábær, ísafirði, föstudags- og laugar- dagskvöld. ■ ENGLARNIR leika fimmtudagskvöld á Bíóbarnum ásamt Dan Cassidy. Á föstudags- og laugardagskvöld leika svo Englarnir í Lundi, Vestmannaeyjum. ■ SKÍTAMÓRALL leika laugardags- kvöld í Víkinni, Höfn í Hornafirði. Geislaplata hljómsveitarinnar sem út kemur í júní hefur fengið heitið Súper. ■ SVEITASETRIÐ Á laugardagskvöld leika Anna Vilhjálms og hljómsveit frá kl. 23-3. Aldurstakmark á dansleik er 18 ár og er nafnskírteinis krafist. ■ KAFFI AUSTURSTRÆTI verður með Bítlakvöld föstudagskvöld þar sem formaður Bítlaklúbbsins, Eiríkur Einars- son, kemur fram og syngur og leikur bítlalög. Á milli laga verður Eiríkur með fróðleiksmola um Bítlana. ■ SNIGLABANDIÐ heldur áfram för sinni um landið og um helgina verður hljómsveitin £ Kántrýbæ á Skagaströnd föstudagskvöld og í Sjallanum, Akur- eyri, laugardagskvöld. Hljómsveitina skipa nú: Björgvin Ploder, Einar Rún- arsson, Eiður Arnarsson, Pálmi Sigur- hjartarson og Þorgils Björgvinsson. ■ HLJÓMSVEITIN ULTRA heldur tónleika í sjómannastofunni Vör, Grinda- vík, laugardagskvöld. Hljómsveitina skipa: Anton Kröyer, hljómborð og gít- ar, Elín Hekla Klemensdóttir, söngkona og Samúel Þórarinsson, gítar. ■ CAFÉ AMSTERDAM Á fimmtu- dags-, föstudags- og laugaragskvöld leik- ur dúettinn Arnar og Þórir. ■ RÚNAR ÞÓR leikur á Blúsbarnum föstudagskvöld og á Skálafelli, Mos- fellsbæ, laugardagskvöld. Þess má geta að Rúnar er að leggja síðustu hönd á geislaplötu sem kemur út í sumar. ■ ROKKTÓNLEIKAR verða haldnir föstudagskvöld kl. 20.30 í sal Tónlistar- skóla FIH við Rauðagerði. Fram kemur Rokkband Jónsa en það er rokksamspil skólans í umsjón Jóns Elvars Hafsteins- sonar. Rokkbandið skipa: Þorvaldur Þ., slagverk, Rafn J. hljómborð, Sigurður S. bassi, Viktor S. Þeim til halds og traust eru söngvarar grunndeildar:_ Rúnar í., Þórdís S., Árni G., Björg í., Þóra J., Margrét G., Ása B. og Auður H. Efnis- skráin er mjög fjölbreytt og farið víða. Aðgangur er ókeypis. ■ ORRI HARÐAR leikur þægilega tón- list á Fógetanum fimmtudagskvöld og á laugardagskvöld leikur Orri á Blúsbarn- um. ■ NÆTURGALINN Á föstudags- og laugardagskvöld leikur hljómsveitin Út- lagar og verður öðru fremur logð áhersla á kántrítónlist og aðra danstónlist. ■ HÓTEL ÍSLAND Á föstudagskvöld verður Skagfirsk sveifla með Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar frá kl. 22-3. Enginn aðgangseyrir. Á laugardagskvöld heldur sýningin Bítlaárin 1960-70 áfram þar sem söngvararnir Ari Jóns- son, Bjarni Arason, Björgvin Halldórs- son og Pálmi Gunnarsson ásamt Söng- systrum koma fram. Að lokinni sýningu leikur Bítlavinafélagið fyrir dansi. ■ SIXTIES leikur laugardagskvöldið á Langasandi, Akranesi. Hljómsveitin er að leggja síðustu hönd á nýja hljómplötu sem kemur út í sumar og hefur fengið nafnið Ástfangnir. Áætlaður útgáfutími er í lok maí. ■ RJÚPAN er heiti á nýrri þriggja manna hljómsveit sem skipuð er þeim Skúla Gautasyni, Friðþjófi Sigurðssyni og Karli Olgeirssyni. Rjúpan leikur eink- um frumsamda tónlist sem einkennist af viðkvæmislegum og hugljúfum laglínum og stórundarlegum textum. Rjúpan skemmtir á veitingahúsinu Torginu, Akureyri fimmtudags- og föstudags- kvöld. ■ STJÓRNIN leikur í Þjóðleikhúskjall- aranum föstudags- og laugardagskvöld. Nýr gítarleikari tók við stöðu Friðriks Karlssonar í bytjun mars, Jón Elvar Hafsteinsson (Jónsi), sem lék áður með Stjórninni 1989-1991. Stjórnin hefur landsreisu sína heigina 17.-18. maí í Miðgarði og Ólafsvik en verður með annan fótinn í Kjallaranum í sumar. Hljómsveitin sendir frá sér nýjan 10 laga geisladisk um miðjan júní. Þjóðleikhús- kjallarinn opnar fyrir matargesti kl. 18 en fyrir dansgesti kl. 23. ■ GULLÖLDIN Á föstudags- og laug- ardagskvöld leikur Meistari Tarnús fyrir dansi. ■ DANSHÚSIÐ í GLÆSIBÆ Á föstu- dags- og laugardagskvöld verður dans- sveifla með hljómsveitinni Grái fiðring- urinn. Húsið er opnað kl. 22 og er að- gangseyrir 500 kr. ■ FÓGETINN Á fimmtudagskvöld verða útgáfutónleikar með hljómsveitinni Twist og Bast. Föstudags- og laugar- dagskvöld leikur dúettinn Blátt áfram og á sunnudags- og mánudagskvöld leik- ur trúbadorinn Sigurður Guðfinnsson. Orri Harðar leikur svo þriðjudagskvöld og á miðvikudagskvöld tekur trúbadorinn Jón Ingólfs við.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.