Morgunblaðið - 09.05.1996, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 09.05.1996, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1996 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Fullum hálsi í KVÖLD kl. 20.00 spreytir Kristján Jóhannsson tenór- söngrari sig í fyrsta sinn á hlut- verki Otellos hins blakka Mára- höfðingja meistaraverks Ver- dis, ásamt öðrum söngstjörnum eins og Luciu Mazzaria, sem syngur hlutverk Desdemonu, Alan Titus, Antonio Marceno, Alinu Dubik, Lofti Erlingssyni og Sigurði Skagfjörð Stein- grímssyni. Kór íslensku óper- unnar syngur og Sinfóníuhljóm- sveit íslands leikur undir stjórn Ricos Saccanis. Ágóði tónleik- anna í kvöld rennur í sjóð um byggingu tónlistarhúss og ágóða síðari tónleikanna síð- degis á laugardag verður varið til styrktar uppbyggingar á Flateyri. Morgunblaðið/Ásdís Prjónalist í Norræna húsinu NORSKI hönnuðurinn og textíl- listakonan Solvi Stomæss opnar sýningu á pijónuðum jökkum í and- dyri Norræna hússins á morgun, föstudag 10. maí, kl. 17. Selvi Stomæss er fædd 1944 í Þrándheimi. Hún stundaði nám í vefnaði og saumum en hélt til Þýskalands 1967, þar sem hún nam við^ listiðnaðarskólann í Munster. I kynningu segir m.a.: „Solvi gerði þó ekki textflvefnað að aðal- viðfangsefni sínu.... Hún keypti notaða prjónavél og tók til við að prjóna. Það em aðallega kápur eða jakkar sem hún hannar. Hver jakki er einstakur og tekur um mánuð að skapa hveija flík. Hún notar norskt ullargam, svart eða hvítt, sem hún litar síðan eftir þörfum. Mynstrið er ýmist ptjónað eða það litað á flíkina. Einnig notar hún batiktækni til að auka á íjölbreytn- ina. Hugmyndir að mynstmm sæk- ir hún víða að, notar gömul þjóðleg mynstur og áhrifa frá Japan og Spáni gætir einnig. Solvi Stomæss hefur haldið einkasýningar í Nordenfjeldske list- iðnaðarsafninu í Þrándheimi 1990, 1991 og 1994 og hjá Listamanna- samtökunum (Kunstnerforbundet) í Ósló 1994. Solvi Stomæss hlaut þriggja ára starfsstyrk norska ríkis- ins 1994. Auk þess hefur hún feng- ið ýmis norsk listamannalaun." Sýningin stendur til 26. maí. Hún verður opin daglega kl. 9-19, nema sunnudaga 12-19. Aðgangur er ókeypis. Ragnarsson fær góða dóma í Svíþjóð Kjartan Ragnarsson KJARTAN Ragnarsson hlýtur lof- samlega dóma fyrir uppfærslu sína á Kirsubeijagarði Tchekhovs með útskriftamemum Leiklistarháskól- ans í Málmey í Svíþjóð. Leiklistar- gagnrýnandi hjá Skánska dagblad- et, Ulf Person, segir í dómi, sem hann kallar Fullkomnlega leikinn Tshekhov að sýningin sé mikilfeng- leg, persónumar séu „nákvæmlega mótaðar“ og leikmyndin sé hreint dásamleg, en Kjartan var höfundur hennar. Person segir að þótt það sé ekki hörð samkeppni frá öðrum leiksýn- ingum í Málmey þessa dagana þá sé Kirsubeijagarðurinn nú áreiðan- lega áhugaverðasta sýningin þar. „Það er líka ánægjulegt að sjá klassískt verk sett upp án nokkurs fums og af skilningi og virðingu fyrir efninu. Það, ef nokkuð, ber ábyrgðartilfínningu leikhússmanns vitni.“ Um leikmynd Kjartans segir Person að hún sé sú hugmyndarík- asta sem sést hafi lengi og að hún ein sé næg ástæða til að sjá sýning- una. „Uppfærsla Kjartans Ragnars- sonar einkennist af innblæstri og leikgleði," segir Person að lokum, „en umfram allt ber uppfærslan merki einbeittra vinnubragða.“ Sporhraður dauðadans Boell Gerell, leiklistargagnrýn- andi hjá Sydsvenska dagbladet, segir í dómi sínum, Sporhraður dauðadans, að Kjartan reyni ekki í uppfærslu sinni á Kirsuberjagarðin- um að „snúa upp á hið klassíska verk, hér er ekki reynt að gera Ranevskaju, Anja og Vaija að nú- tímafólki í nútímaheimi. Þess í stað hefur sú leið verið farin að leggja áherslu á hið tímalausa í persónun- um, að líta fram hjá hinum almennu spumingum og láta áhorfandann sjálfan um að samsama sig persón- um verksins." Ennfremur segir Gerell að það sé erfítt að vekja lífsanda með þessu gamla rússneska verki en að leik- hópi Leiklistarháskólans hafí farist það vel úr hendi. „Samtölin verða aldrei gamaldags og leikmyndin endurspeglar tima og rúm verks- ins.“ Ennfremur segir leikdómarinn að sýningin hafi verið sér sterk upplifun, „þetta er sporhraður dauðadans með augljósum vísunum í samtímann". Stokkhóimi. Reuter. HART hefur verið deilt á hinn heimsþekkta sænska leikstjóra, Ingimar Bergman, vegna þeirr- ar ákvörðunar hans að hætta við að fara með Moliére-sýn- ingu til Bandaríkjanna, nokkr- um klukkustundum áður en skip með sviðsmynd átti að leggja úr höfn. Uppsetning hans á „Le Misantrope" (Mann- hataranum) hafði verið sýnd 118 sinnum í Dramaten í Stokk- hólmi er Bergman hætti við að sýna hana í Bandaríkjunum og hefur það vakið mikla reiði í heimalandi hans. Sýningin hafði áður hlotið einróma lof sænskra gagnrýnenda. „Leikararnir eru furðu lostn- ir og vonsviknir. Eg reyni allt sem ég get til þess að fá þá og Bergmann til að ræða saman og leysa málið,“ sagði Lars Löfgren, leikhússtjóri Konung- lega sænska leikhússins, Dram- aten. Kvað hann Bergman hins vegar aldrei hafa farið leið Bergman sagður „mannhatari“ málamiðlana þegar listrænt innsæi hans væri annars vegar og þess væri tæpast að vænta að hann gerði það nú. Bergman hefur gefið þá skýringu á ákvörðun sinni að sýningin hafi breyst í meðför- um leikhópsins og að hann treysti sér ekki til að lagfæra það sem farið hafi úrskeiðis á svo skömmum tíma. Sýna átti „Mannhatarann" í byijun júní. Blaðamenn og gagnrýnendur hafa ekki sýnt Bergman neitt umburðarlyndi. „Maður skyldi ekki vanmeta þrá Bergmans eftir stórslysum. En þetta var ekki samboðið leikstjóra sem gert hefur svo mikið til þess að auka virðingu leikara sem listamanna," sagði Leif Zern, leikhúsgagnrýnandi Dagens Nyheter. Þá getur gagnrýnandi Svenska Dagbladet sér þess til að Bergman sé sjálfur orðinn mannhatari, eins og aðalper- sóna leikritsins. Ljóð á Austur- landi Egilsstöðum. Morgunblaðið. VINIR ljóðsins á Austurlandi hittust á Eiðum nýverið. Mikill áhugi er á ljóðagerð og mætti fólk víða að úr fjórðungnum. Skipuð var nefnd til að und- irbúa stofnun félags um ljóð og ljóðagerð síðsumars. Ennfrem- ur var rætt að halda ljóðamót og sett var nefnd í að kanna útgáfu safns austfírskra ljóða. Á fundinum var bæði fræðsla og spjall um vísnagerð. Fyrir- lestra fluttu Helgi Seljan, Hrönn Jónsdóttir frá Djúpavogi og Sigurður Óskar Pálsson frá Egilsstöðum. Lágafellskirkja Tveggja kóra konsert TVEIR kórar, Samkór Odda- kirkju og Kirkjukór Lágafells- sóknar, halda tónleika saman í Lágafellskirkju í Mosfellsbæ föstudaginn 10. maí kl. 21. Kórarnir munu syngja hvor í sínu lagi og báðir saman ýmis ættjarðar- og trúarlög. Söngstjóri Oddaveija er Guð- jón Halldór Óskarsson en Guð- mundur Sigurðsson stýrir Mos- fellingum. Einsöng með kóm- um syngur Hulda Björk Garð- arsdóttir, en Bjami Þór Jóna- tansson leikur með á píanó. Kennslu- stundinni að ljúka KENNLUSTUNDIN eftir Eug- ene Ionesco hefur verið sýnd í Kaffíleikhúsinu við góða aðsókn frá því hún var frumsýnd í nóv- ember í fyrra. Nú er komið að síðustu sýningum og verða þær föstudaginn 10. maí og sunnu- daginn 19. maí. Leikendur eru Gísli Rúnar Jónsson í hlutverki prófessors- ins, Steinunn Ólína Þorsteins- dóttir í hlutverki nemandans og þær Guðrún Þ. Stephensen og Guðrún Ásmundsdóttir sem skipta með sér hlutverki ráðs- konunnar. Guðný Rósa áMokka GUÐNÝ Rósa Ingimundardótt- ir opnar sýningu á verkum sín- um á Mokka við Skóla- vörðustíg föstudaginn 10. maí. Guð- rún Rósa út- skrifaðist frá málaradeild Myndlista- og handíðaskóla íslands 1994 og hefur síð- an verið við frekara nám í „Ecole Nationale Superiéure des Arts Visuels de La Cambre" í Brussel. Á þessari fyrstu einkasýn- ingu sinni sýnir Guðný Rósa blek- og blýantsteikningar, sem unnar eru á þessu og síð- asta ári. Sýningin hangir uppi út maímánuð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.