Morgunblaðið - 09.05.1996, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 09.05.1996, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1996 19 NEYTENDUR Handverks- fólk í Garðatorgi um helgina ÞAÐ verður líf og fjör í Garða- torgi í Garðabæ um helgina. A morgun, föstudag, munu á milli 30 og 40 aðilar koma sér þar fyrir með alls kyns handverk til sýningar og sölu og þar verða þeir fram á sunnudag. Þetta er í annað skipti sem svona sýning fer fram í Garðatorgi. Fyrsta sýningin var um miðjan apríl sl. og þá voru þátttakendur rúmlega tuttugu. „Ahuginn fer vaxandi enda þurfa þátttakendur ekkert að greiða fyrir aðstöðuna,“ sögðu þær Ida Christiansen og Helga Steinsdóttir, verslunareigendur í Garðatorgi og stjórnarmenn hús- félagsins, þegar neytendasíðan tók hús á þeim. „Tilgangurinn er fyrst og fremst að skapa líf og fjör hér á svæðinu." Yfirbyggingu verslunar-, skrifstofu- og þjónustuhúsnæðis í Garðatorgi lauk formlega síð- astliðið haust og þar eru nú um 20 aðilar undir einu þaki. Ida og Helga segja það hafa ýtt á fram- kvæmdir að margir höfðu á orði að staðurinn væri orðinn kjörinn fyrir alls kyns uppákomur. „Þannig kviknaði þessi hug- mynd. Verslunareigendur hér eru ánægðir með þetta framtak, enda er prýði að þessum fallegu hlutum sem fólk er að sejja hér.“ Básarnir með handverkinu og listmununum verða opnaðir klukkan 12 á hádegi alla þrjá dagana. Þeir verða opnir til að minnsta kosti sjö um kvöldið en húsnæðið er opið til klukkan níu. „Það er ótrúleg fjölbreytni í því sem fólk kemur með og mikið af virkilega fallegum hlutum sem hér eru á boðstólum. Hingað kemur fólk alls staðar af, jafnt af höfuðborgarsvæðinu sem utan af landi. Þetta er líka gott tæki- færi til þess að kynna og selja vöru sina án þess að þurfa að borga fyrir aðstöðuna." Kaffisala og andlitsmyndir Á sýningunni verður Kvenfé- lag Garðabæjar með kaffisölu. „Það er nyög gott því það vantar alveg götukaffihús hér,“ segja Helga og Ida. Árni Elvar verður á staðnum og teiknar andlits- myndir af fólki og Bragi Hlíð- berg leikur á harmonikku. Þegar er búið að skipuieggja aðra sýningu 10.-12 ágúst næst- komandi og ef framhald verður á vinsældunum verða þær fleiri. „Helst vildum við skapa hefð um þetta. Við erum náttúrulega að auglýsa svæðið upp í leiðinni og fá hingað fleira fólk, en það er ekki aðalatriðið, heldur viþ'um við fá hingað líf og fjör og nýta þetta góða pláss sem við höfum.“ „Fiskbúðin ykkar“ opn- uð á Höfn Hornafirði. Morgunblaðið. FISKBÚÐIN ykkar er heitið á nýrri fiskbúð á Hornafirði, sem þau Bima Arnaldsdóttir og Aðalsteinn Esjarsson hafa sett á laggirnar. Er þetta í fyrsta sinni sem fiskbúð er starfrækt á Höfn og hafa sýslubúar tekið henni vel. Þau bjóða ávallt upp á nýjan og ferskan fisk auk tilbúinna fiskrétta sem og ýmsar furðufisktegundir sem Hom- firðingar almennt eru ekki vanir að matreiða enda hrá- efnið ekki verið á boðstólum fyrr. Morgunblaðið/Sigrún Sveinbjömsdóttir BIRNA Arnaldsdóttir í Fiskbúðinni ykkar á Höfn. aftur á “998.000 Með vökvastýri, beinni innspýtingu og fullum bensíntanki BRIMB0RG FAXAFENI B • SlMI 515 7010 ótrulegu verði! Charade 8 j ö u n d 1 hlmln
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.