Morgunblaðið - 09.05.1996, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 09.05.1996, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1996 31 AÐSENDAR GREMMAR Vandinn leyst- ur í lýðskóla SÍÐASTLIÐIÐ haust var haldið mál- þing í Norræna hús- inu um lýðskólamál á Islandi, en Norræna húsið hafði þá um skeið verið vettvangur umræðu um stofnun skóla sem grundvall- aðist á hugmyndum norrænu lýðskólanna. Á málþinginu, sem var mjög vel sótt, var fólk einhuga um nauðsyn þess að koma til móts við þann stóra hóp, sem ekki fyndi sér stað í hefðbundnu skólastarfi, og að á þeim vettvangi væri lýðskóli í anda norrænu lýð- skólanna mjög æskilegur valkost- ur auk þess sem slík stofnun gæti auðgað þjóðlífið á fjölmörgum öðr- um sviðum, næði hún að festa sig í sessi. Lýðskólahreyfingin á Norður- löndunum, sem fjölmargir íslend- ingar þekkja af eigin raun, gegnir miklvægu hlutverki í menntun og menningu þessara þjóða. Það var presturinn og eldhuginn Grundtvig sem hratt þessari hreyf- ingu af stað fyrir u.þ.b. 150 árum, en þá var lýðræði að taka við af einveldi í flestum löndum Evrópu. Grundtvig óttaðist, að í þeim umskiftum gæti hlutskifti Dana orðið svipaður hildarleikur og upp- lausn og átt hafði sér stað í frönsku stjórnarbyltingunni. Lýðskólarnir voru því beinlínis stofnaðir til þess að breyta fáfróð- um almúgamönnum í upplýsta kjósendur, sem gætu valið þá hæfustu úr sínum hópi til þing- setu, eftir að konungur þeirra hafði afsalað sér einveldinu. Skólarnir áttu að vera lífsins skólar í þeirri merkingu að þar væri glímt við þau vandamál er biðu nemendanna þegar út í lífið kæmi, bæði á heimilunum og í starfi, í samvinnu við aðra, og í félagslegu samstarfi, Og þeim var ætlað að vekja sjálfsvirðingu fólks- ins, sjálfstraust þess og ábyrgðar- tilfinningu. Hreyfingin breiddist óðfluga út til hinna Norðurlandanna og fjöl- margir lýðskólar voru settir á stofn í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi, auk Danmerkur. í dag eru starfandi um 500 lýðskólar í þessum löndum, og eru langir biðlistar eftir skólavist í mörg- um þeirra. í nýlegu blaðaviðtali kemst Jón Sigurðsson, bankastjóri Norræna íjárfestingabankans og fv. ráðherra, svo að orði: „Það er án alls efa afrek þessarar aldar að á Norðurlönd- um hafa verið byggð upp öflug velferðar- ríki, byggð á hugsjón- um mannúðar og rétt- lætis, en ekki ein- göngu á hagkvæmni." Þetta eru orð að sönnu og eng- um sem skoðar þá sögu getur dulist hve stóran þátt lýðskóla- hreyfingin á í því að skapa, og viðhalda meiri velsæld og jöfnuði á Norðurlöndunum, en á flestum ef ekki öllum öðrum stöðum á jarð- arkringlunni. Fjögur hundruð lýðskól- ar eru starfræktir á •• 3 Norðurlöndum. Orn 01- afsson segir frá starfi lýðskóla í Norræna hús- inu í Reykjavík. Á þeim sjö mánuðum, sem liðn- ir eru frá málþinginu sem sagt var frá hér í upphafi, hefur mikið vatn runnið til sjávar og er skemmst frá því að segja, að nk. föstudag 10. maí útskrifar Lýðskólafélagið, sem stofnað var þann 1. desember sl., sína fyrstu nemendur. Þar er um að ræða 17 ungmenni, sem kusu að sitja á skólabekk þessa vorönn, í stað þess að vera á at- vinnuleysisskrá. Lýðskólinn hefur haft aðsetur í kjallara Norræna hússins og verið samstarfsverkefni Lýðskólafé- lagsins, íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur og Norræna hússins. Rétt er að hafa í huga, að í dag býr ungt fólk á íslandi við allt aðrar kröfur í skólamálum en næsta kynslóð á undan, sem best sést á því að fyrir u.þ.b. 20 árum fóru aðeins um 60% nemenda í Örn Ólafsson framhaldsnám, en í dag er þessi tala nær 90%. Viðhorf og vinnubrögð, sem mótast hafa á löngum tíma í gömlu menntaskólunum, duga ekki til, þegar það er orðin regla fremur en undantekning, að nemendur innriti sig í framhaldsskóla að loknu skyldunámi, og helst á bókn- ámsbraut. Bæði kennarar og foreldrar hafa horft á það með vaxandi áhyggjum, að stór hópur nemenda ræður ekki við námið og flosnar upp með fáeinar námseiningar og brotna sjálfsmynd, eftir að hafa setið oft í sömu áföngunum. Meðan þensla var í þjóðfélaginu, og næga atvinnu að hafa,. bar minna á þessu vandamáli og nem- endur gátu talið sjálfum sér og öðrum trú um, að þeir ætluðu að hvíla sig á náminu og koma aftur eftir að þeir væru búnir að vera á vinnumarkaðnum um tíma og raunar komu margir aftur, eldri, þroskaðri og reynslunni ríkari. Samdrátturinn, sem eðlilega bitnar mest á ungu og ómenntuðu fólki, hefur beint sjónum skóla- manna æ meir að þeim nemendum, sem af einhverjum orsökum fínna sér ekki stað í framhaldsskólakerf- inu, án þess að hafa að nokkru öðru að hverfa. Mismunandi leiðir hafa verið reyndar og settir hafa verið í gang áfangar, sem hafa það yfirlýsta markmið að kenna nemendum að læra, en það er að sjálfsögðu for- senda þess að þeir geti stundað nám. Nemendur hafa verið hvattir til að segja leti, agaleysi og slæm- um vinnuvenjum stríð á hendur, en það hefur oftar en ekki verið undirrót námsvandans. Jafnframt hefur verið reynt að fá þeim áhugavekjandi, en umfram allt viðráðanleg verkefni, til að auka sjálfstraust þeirra og sjálfsþekk- ingu. Lýðskólinn, sem rekinn hefur verið í Norræna húsinu í vetur, starfar í þessum anda og hópur- inn, sem nú er að útskrifast er sönnun þess hvers unglingar eru megnugir ef þeir fá aðstoð og njóta trausts. Höfundur er formnður Lýðskólafélagsins. Verö frá kr. hvora leið með flugvallarskatti Sala: Wihlborg Rejser, Danmörku, Sími: 0045 3888 4214 Fax: 0045 3888 4215 9.900 FÖSTUDAGSKVÖLD: GEIRM(1ND(1R ATHUGIÐ ENGINN AÐGANGS- EYRIR !^J Simi 56817fMUFax 568-501« HL]OMSVEIT HfiNS HELDCIR I CJTfiN (JM FJÖRIÐ H]fí OKKCJR AUTHENTIC AMERICAN SPORTS NYJUM HREYSTI VERSLANIR LAUGAVEGI51 - S. 551-7717 - SKEIFUNNI19 - S.568-1717 -wM®Cr. Gæðatæki sem þú getur treyst
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.