Morgunblaðið - 09.05.1996, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 09.05.1996, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ1996 45 MINNINGAR EIRIKUR ÓLAFSSON hörmum það þau munu aldrei njóta hans í sama mæli og við og með þeim hætti sem við höfðum vonað. En við munum sjá til þess að minningum um afa Eika lifi áfram meðal þeirra og að afi Eiki verði hluti af þeirra lífi. Nú kveðjum við pabba í síðasta sinn og skilum ástarkveðju frá Vöku og Deb, Sigrúnu Elvu og Kára litla. Ólafur Eiríksson, Andrés Eiríksson. + Eiríkur Ólafs- son fæddist á Siglufirði 4. janúar 1936. Hann lést í Reykjavík 30. apríl síðastliðinn og fór útförin fram frá Fossvogskirkju 7. maí. Nú er pabbi dáinn. Hann var pabbi sem alltaf veitti ást, stuðn- ing og tilsögn, aldrei stjórnsemi og skipanir. Fyrir skömmu urðum við sjálfir pabbar og Eiki pabbi varð afi Eiki, sem átti nú aldeilis við hann. Það vita allir sem þekkja pabba að fátt veitti honum meiri gleði en börn og sú gleði var gagnkvæm. Þau hændust að honum, alveg ósjálfrátt, fyrr en varði skriðin upp í kjöltu hans og farin að spyrja hann spjörunum úr rétt eins og hann kynni svör við öllum þeim spurningum um lífsins gang sem brjótast um í litlu barns- höfði, sem hann vafalaust gerði. Samband hans við Kára og Sigrúnu Elvu var fullt af þeirri sömu ást er hann alla tíð veitti okkur bræðr- unum. Það eru þessi litlu kríli sem i senn létta og þyngja sorg okkar og söknuð. Barnslegur gáski þeirra og uppátæki gefa okkur gleði og fögnuð og það eru þau sem umfram allt gera okkur núna kleift að líta með tilhlökkun til þeirra tíma sem í hönd eru. En jafnframt syrgjum við þann snögga endi sem nú er bundinn á kynni þeirra við afa Eika, Eiríkur Ólafsson lauk námi í bif- reiðasmíði 12.7. 1960 og varð meistari í iðninni 23.11. 1968. Hinn 4.3.1975 hóf Eiríkur störf hjá Al- mennum tryggingum hf. Þegar Tjónaskoðunarstöðin sf. í Kópavogi var opnuð 12.8. 1987 á vegum Al- mennra trygginga hf. og Bruna- bótafélags Islands hóf hann að starfa þar og síðan þegar Tjóna- skoðunarstöðin fluttist að Draghálsi vegna saméiningar Sjóvár og Al- mennra trygginga í apríl 1989 hóf Eiríkur störf þar og starfaði þar allt til dauðadags. Eiríkur var góður félagi og líkaði öllum vel við hann sem kynntust honum. Hann var hægur og sérlega ljúfmannlegur í framkomu jafnt við viðskiptavini sem við starfsfélaga sína. Eiríkur var mjög nákvæmur í sinni vinnu, mikill fagmaður og gerði ekki upp á milli manna en reyndi þess í stað að leysa málin á sem sanngjarnastan hátt fyrir við- skiptavini félagsins. Eiríkur átti við mikil veikindi að stríða síðasta árið sem hann lifði þar sem hann gekkst undir aðgerð vegna hjartakvilla. Hann hóf störf að nýju eftir sjúkralegu í lok sept- ember 1995. Þó var hann ekki al- veg laus við sjúkrahúsvist þar sem hann þurfti að fara í nokkrar minni aðgerðir. Eiríkur hafði gengist undir síð- ustu aðgerðina fyrir nokkru og sú aðgerð heppnaðist vonum framar þar sem honum virtist aukast styrk- ur frá degi til dags. Við vinnufélag- ar hans höfðum hlakkað til að fá hann aftur í vinnu hraustan og spaugsaman eins og hann átti að sér að vera, en þá kom reiðarslagið. Eiríks verður sárt saknað á vinnustað og erfitt verður að fylla það skarð sem hann skildi eftir. Við sendum Sigurlaugu og öðrum vandamönnum okkar innilegustu samúðarkveðjur um leið og við kveðjum kæran vin. Sigurður K. Sigurkarlsson. Eiríkur er horfinn. Það er eflaust hluti af mannlegri tilvist að það sem okkur er kærast I dag, kann að hverfa á morgun. Máttlaus stöndum við andspænis þeim öflum sem svipta okkur fjölskyldu og ástvinum en fyllumst þakklæti fyrir að hafa notið samvista þeirra og ástar. í þann tíma sem við kynntumst Eiríki veitti hann lífi okkar gleði og yl. Við minnumst hans milda viðmóts, hljóðlátu kímni og við- kvæma eðlis. Hann skilur eftir minningu sem er okkur mikils virði. Við samhryggjumst Sillu sem svo lengi stóð við hlið hans og veitti honum ást og stuðning. Vinátta okkar við Sillu mun halda áfram og styrkjast. Paul og Stella Spence. Ég er að hugsa um hann Eika, ég er næstum alltaf að iiugsa um hann síðan hann fór. Ótal minning- ar ryðjast fram og það er svo margt sem ég vil minnast. Ég ætla að muna hann eins og hann var síðast þegar ég hitti þau Sillu Gunnu í Kringlunni og við sett- umst, fengum okkur kaffitár og tíndum saman smápeninga til að eiga fyrir kaffibolla handa mér. Ég ætla að muna hann sístarf- andi, honum féll aldrei verk úr hendi og svo hagur var hann að mér fannst hann geta allt. Ef eitthvað fór úr- skeiðis eða þurfti að laga var alltaf leitað til Eika og allt lék í höndunum á honum. Hvert sem litið er, á heim- ili hans, í sumarbústaðnum, allt ber hugkvæmni hans og hagleik vitni. Ég ætla að muna hann eins og hann var á góðri stund, í góðra vina hópi þegar hláturinn kumraði í hon- um ef eitthvað vakti ánægju hans. Ég ætla að muna hann eins og hann var með bömum, öllum börn- um. Þau elskuðu hann og hann er „Eiki afi“ allra barna sem ég þekki, bæði skyldra og óskyldra. Ég á svo margar góðar minning- ar sem ég ætla að orna mér við á glöðum stundum og döprum stund- um, á öllum þeim stundum sem ég þarf á góðum minningum að halda. Elsku Silla Gunna, Unna, Andr- és, Óli, Doborah, Valka og afabörn- in, Sigrún Elva og Kári, ég sendi ykkur mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Minningin um góðan dreng verð- ur alltaf hlý. Anna Matthildur. t Útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, FRIÐBJARGAR TRYGGVADÓTTUR hjúkrunarkonu, fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju á morg- un, föstudaginn 10. maí, kl. 13.30. Gísli Friðrik Johnsen, Ásdís Anna Johnsen, Björn Blöndal, Hrafn G. Johnsen, Sigurrós Skarphéðinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn t Móðir okkar og fósturmóðir, MÍIMERVA HAFLIÐADÓTTIR, Fannborg 1, Kópavogi, lést í Borgarspítalanum föstudaginn 3. maí sl. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 10. maí kl. 15.00. Karlotta Helgadóttir, Hannes Helgason, Hafdfs Gústafsdóttir, Hafliði Albertsson. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, dóttir, systir, mágkona og tengdadóttir, KRISTÍN LÁRA RAGNARSDÓTTIR, Tjarnargötu 14, Reykjavík, sem lést i Landspítalanum í Reykja- vik 1. maí sl., verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 10. maí kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Hjartavernd. t Elskuleg móðir okkar, INGA EGGERTSDÓTTIR, Fálkagötu 15, andaðist 3. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Arnar Sigurbjörnsson, Þráinn Sigurbjörnsson, Bergljót Sigurbjörnsdóttir, Steingerður Sigurbjörnsdóttir. Hörður Harðarson, Guðrún Harðardóttir, Oddgeir Harðarson, Guðrún Guðjónsdóttir, Sigurður Ólafsson, Áslaug Harðardóttir, Guðjón Þór Ragnarsson, Guðrún Björg Ragnarsdóttir, Lárus Kristinn Ragnarsson, Málfrfður Sigurðardóttir, Hörður Þorgilsson. t LÁRUS Þ. PETERSEN, Hátúni 10a, áður Nönnugötu 1b, lést í Landspítalanum 25. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey samkvæmt ósk hins látna. Aðstandendur. t Hugheilar þakkir færum við öllum þeim, er auðsýndu okkur samúð og vinarhug við fráfall og útför ÁSTU SVERRISDÓTTUR, (Víðiteigi 12, Mosfellsbæ), Sandagervej 11, Vadum, Danmörku. Stefán Ómar Jónsson, Ásthildur Stefánsdóttir, Ómar Stefánsson, Arndfs Stefánsdóttir, Arndís Kristinsdóttir, Lilja Sigurjónsdóttir, Jón M. Sigurðsson, systkini, mágkonur og mágar. Áhrifarík heilsuefni Bio-Qinon Q10 eykur orku og úthald Bio-Biloba skerpir athygli og einbeitingarhæfni Bio-Selen Zink er áhrifaríkt alhliða andoxunarheilsuefni BIO-CAROTEN BIO-CHRÓM BIO-CALCIUM BIO-GLANDÍN-25 BÍO-SELEN UMB, SÍMI557 6B10 TURTLE WAX ORIGINAL BÍLABON 500 ml KOK EDA DIET SUPERDÓS OG SÓMA HAMBORGARI meira en bensín
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.