Morgunblaðið - 09.05.1996, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 09.05.1996, Blaðsíða 46
46 FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1996 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ 4 BERGSTEINN STEFÁNSSON + Bergsteinn Stefánsson fæddist í Reykja- vík hinn 6. nóvem- ber 1940. Hann lést í Svíþjóð hinn 29. apríl síðastlið- inn. Foreldrar hans eru Sigrún Bergsteinsdóttir, f. 1917, og Stefán Nikulásson, f. 1915, d. 1985. Hinn 24. júlí 1963 kvæntist Bergsteinn Eddu Níels, f. 14.9. 1942, og eiga þau tvær dætur, Sigrúnu Rósu, f. 1965, gift Birgi Blön- dal, f. 1962, og Helgu Marín, f. 1968, í sambúð með Hirti Jónssyni, f. 1965. Bergsteinn hóf nám í sjón- Löngu og harkalegu stríði er lok- ið. Bergsteinn Stefánsson, hann Bebbi minn, er allur. Aldrei gafst andinn upp né hvarf vonin. Líkam- inn, þessi hreyfivél og hulstur sálar- innar, gat ekki meir. Vísindi og tækni nútímans komust í þrot. Og kvikna nú spumingar um tilgang lífsins, réttlæti dauðans og miskunn Guðs. Hannes Pétursson, skáld, hjálpar dulítið með svarið: Eitthvað er það sem engin hugsun rúmar en drýpur þér á augu sem dðgg - þegar húmar. Bergsteinn er án efa einhver besti drengur, sem ég hef kynnst. Þau kynni hófust fyrir hálfri öld eða svo fyrir neðan háan Laufás- vegarvegg Miðbæjarskólaportsins. Þar var glímt með þeim hætti, að hinn sterkasti náði hæst upp á vegginn og jafnvel upp í grindverks- fótinn. Þegar bekkurinn ákvað hver hefði komist næst gangstéttinni á Laufásveginum, nærri lóðrétt upp, urðu til foringjar og fylgjendur, vin- ir og minni vinir. Þessi ár voru án loforða um mótaða framtíð. Þau voru hvorki hörð né blíð og leituðu ugglaust jafnvægis í sorg og gleði. Hinn sterki varð sá veiki og hinn ljúfi sá kröftugi. Þroskasárin á hnjám og olnbogum færðust síðar inn í sál og hjarta. Öguð lögmál margföld- unartöflunnar og stafrófsins sprungu út í mörgum og fjölbreytt- um mannlífslitum, í nokkrum takti við gen forfeðranna. tækjafræði árið 1959 í gleraugna- verslun Ingólfs Gíslasonar og lauk námi í Kaup- mannahöfn 1964. Árið 1972 stofnaði hann gleraugna- verslunina Linsuna og starfaði þar alla tíð. Bergsteinn var einn af stofnend- um CARPA, sem eru alþjóðleg sam- tök sem starfa að krabbameinsrann- sóknum. Samtökin voru stofn- uð í Uppsölum í Svíþjóð 1991 og sat Bergsteinn í stjórn þeirra frá upphafi. Útför Bergsteins fer fram frá Dómkirkjunni í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Á þessum afmörkuðu árum æskuminninganna verða vinirnir til. Og sama á hveiju gengur, hver fjarlægð er frá manni til manns, vináttan er þama. Heimurinn var og er jafngrimmur og jafnljúfur. Ekkert í grunninum hefur breyst; aðeins umbúðir hins mannlega lífs, auknar kröfur og getan til þess að verða við þeim. En í bemskunni, í sakleysinu og hreinleikanum teng- ist sál við sál, án efasemda og spuminga. í þeim jarðvegi vex vin- áttan. Það er mikið lán að fá að vera góðu fólki samferða á lífsgöngunni. Bergsteinn varð mér sem besti bróðir. Lífsgleði hans og ljúf- mennska, heiðarleiki og hreinlyndi gerði hann að eftirsóknarverðum félaga. Foreldrar hans létu báðum í té ástríki og umhyggju, svo vart varð greint h^or sonur væri. Húsið á Baldursgötu 15 varð ömggt skjól þeim sem þráðu öryggi og ástríki. Fyrir allt þetta verður ekki þakkað með orðum. í þann mund að fullorðinsárin gengu í garð, breikkaði bil á milli gönguleiða. Við eignuðumst okkar heimili, böm og buru. Bergsteinn nam sjóntækjafræði og kom á fót góðu fyrirtæki. Fyrir einum átta ámm greindist hann með krabba- mein. Þá hófst barátta þar sem frá- bærir eðliskostir hans komu fram og gerðu honum kleift að halda dauðanum frá húsi sínu svo lengi að undrun sætir. En hann stóð ekki einn í þessu stríði. Edda, kona hans, dætumar tvær og Sigrún, móðir t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts móður okkar, BERGÞÓRU JÚLÍUSDÓTTUR, áður Hjarðarhaga 54, Ingveldur Jóhannesdóttir, Þorkell Jóhannesson. Lokað Verslun okkar verður lokuð í dag, fimmtudag, vegna útfarar BERGSTEINS STEFÁNSSONAR. Linsan, Aðalstræti 9. Lokað Vegna útfarar ANTONS KRISTJÁNSSONAR, skrif- stofustjóra, verður lokað í dag, fimmtudaginn 9. maí, frá kl. 13.00-16.00. Dynjandi ehf., Skeifunni 3h. hans, veittu honum þann stuðning og ást, sem ekki bara gerði honum lífið bærilegt, heldur hamingjusamt og fagurt. Og læknamir töfðu fyrir manninum með ljáinn, en þeir gátu ekki stöðvað stundaglasið. Leiðir okkar Bergsteins lágu saman á nýjan leik fyrir ekki löngu. Þá gafst tími til að rifja upp árin, þegar vínberin komu í trétunnum og korkmulningi og lykt af eplum og appelsínum varð hin eiginlega jólalykt. Nælonúlpur frá Ameríku með skinnkraga voru undur og stór- merki og ekki notaðar í rigningu; aðeins í góðu veðri á rúntinum. Ekki höfðum við fundið svörin við lífsgátunni, en við gerðum okkur ljósa grein fyrir því, að heilbrigður maður á sér margar óskir en sjúkur maður aðeins eina. Þessum elsku- lega vini mínum varð ekki að ósk sinni um bata. Hann skilur hins vegar svo mikið eftir að fyrir mér er hann ljóslifandi og hress og svo mun lengi verða. Margir hafa reynt að skilgreina minningargreinar. Sagt er að þær segi stundum meira um þann er skrifar en skrifað er um. En mér og fleirum er nokkur vorkunn, þeg- ar við viljum þakka öðrum fyrir að hafa verið til og hafa verið hluti af eigin lífi. Árni Gunnarsson. Það er alltaf erfitt að kveðja góðan vin, en það er huggun í að vita að öll hittumst við einhvern tíma aftur. Bergsteinn var lífsglaður og full- ur af orku, og það var aldrei logn- molla í kringum hann. Við það að umgangast Bergstein öðluðumst við hjónin djúpan skilning á því, að aldur er afstætt hugtak. Aðdáun okkar á því, hvemig hann og fjöl- skylda hans sýndu í verki hvemig njóta skal hvers dags eins og væri hann sá síðasti, er vart hægt að lýsa með orðum. Markmið Berg- steins var ávallt að njóta lífsins og láta gott af sér leiða, og með orku sinni hreif hann ætíð alla með sér. Það þarf því ekki að koma á óvart, að Bergsteinn átti stóran vinahóp, og tómarúm ríkir nú í hjörtum okk- ar allra. Við vitum, að það er ekki í anda Bergsteins að velta sér upp úr sorg- inni, heldur að herða upp hugann og horfa fram á veginn. Við viljum þakka fyrir að hafa fengið að kynn- ast honum, og við eram ríkari manneskjur fyrir vikið. Elsku Edda, Helga, Hjörtur, Sigrún og Biggi, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Megi.Guð veita ykkur styrk í sorginni. Sigrún og Sigþór. Vinur okkar, Bergsteinn Stefáns- son, er látinn eftir langa og harða baráttu við illvígan sjúkdóm. Það var að morgni 29. apríl sem Sigrún Crfisdrykkjur i« cnpi-mn Sími 555-4477 Ei*fidnkkjur Glæsileg kat'ti- hladbord, tallegir salir og m jög got) þjcinusta l pplvsmgar i síma 5050 925 og 5bl 7575 /K FLUGLEHDIR nim Ltnmiti dóttir hans hringdi og tilkynnti lát föður síns þá um nóttina. Þrátt fyr- ir að á brattann hefði verið að sækja síðustu mánuði þá brá okkur illa við. Bergsteinn var um margt mjög sérstæður maður sem vildi njóta líðandi stundar en lifa lífinu hratt. Hver stund var nýtt og sífellt verið að ráðgera eitthvað sem brotið gæti upp hversdagsleika hins dag- lega lífs. Ferðalög innanlands eða utan, skíðaferðir, gönguferðir eða að fara út að borða, alltaf var Berg- steinn með eitthvað á pijónunum. Fjölskyldan og vinirnir vora Bergsteini mikils virði og naut hann stundanna með þeim, en hafði litla þörf fyrir að blandast fjöldanum. Þau ár sem Bergsteinn barðist fyrir lífi sínu heyrðum við hann aldrei kvarta og ætíð lét hann sem ekkert væri. Uppgjöf eða vonleysi voru ekki til. Það er á slíkum erfiðleikatímum sem í ljós kemur hvað í fólki býr. Hvernig fjölskyldan þjappaði sér saman vakti aðdáun okkar og virð- ingu. Sigrún sá um rekstur fyrir- tækisins, en Edda annaðist Berg- stein af fórnfysi og dugnaði sem á sér vart hliðstæðu. í Svíþjóð bjuggu þau hjá Helgu og Hirti sem þar era í námi og hefur það vafalaust verið þeim mikill styrkur. Við sumarbústað okkar fyrir austan fjall gróðursettum við hjónin tvö grenitré fyrir nokkram áram sem vora tileinkuð þeim Bergsteini og Eddu. Trén standa við hliðið þar sem ekið er inn í landið og munu um langa framtíð viðhalda minning- unni um mætan og góðan mann sem kvaddi allt of fljótt. Við hjónin sendum Eddu og dætr- unum, svo og Sigrúnu, móður Berg- steins, okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning Bergsteins Stefánssonar. Einar Sigfússon og Anna K. Sigþórsdóttir. Kynni okkar við Bergstein Stef- ánsson spanna orðið langt árabil. Einn góðan veðurdag birtist hann hjá mér á vinnustað ásamt Eddu konu sinni og spurði formálalaust hvort ég gæti aðstoðað þau við að hanna innréttingar í nýja gler- augnaverslun, sem þau höfðu í hyggju að opna. Tíminn væri naum- ur, peningar af skornum skammti og húsnæðið minna en þarfimar sögðu til um. Þetta fannst mér eink- ar áhugavert verkefni og hófst umsvifalaust handa. Húsnæðið var á stærð við sæmilegt herbergi, þar átti að rúmast verslun, vinnustofa, skrifstofa og lager. Opnun var á tilsettum tíma og í Morgunblaðinu birtist í tilefni þess mynd af bros- andi manni, ljósum yfirlitum, í hinu nýja húsnæði. Gleraugnaverslunin Linsan var komin til að vera. Hún hefur verið í nærfellt aldarfjórðung til húsa við Aðalstræti, þar sem Skúli fógeti stofnaði Innréttingar sínar. Við hjónin höfum átt því láni að fagna að eiga þau Bergstein og Eddu að traustum vinum frá fyrstu kynnum. Ekki bara þau hjón heldur dætur, tengdasyni og raunar fjöl- skyldu alla. Verkefnin sem ég hef unnið fyrir þau hjón era orðin býsna mörg og Brigitte hefur séð um að skreyta glugga Linsunnar frá því verslunin var opnuð. Vinafundir, ferðalög heima og erlendis og þó sérstaklega um óbyggðir era okkur ógleymanleg. Hið óvænta i fari Bergsteins gerði návist við hann spennandi. Hann gat alltaf komið manni á óvart. Skyndileg upphring- ing frá Sidney eða Mflano, þar sem annaðhvort var véríð að láta sér detta eitthvað í hug varðandi fyrir- tækið og hann vildi heyra álit vinar eða bara leyfa manni að taka þátt í einhvetju sem á daga hans hafði drifið. Skjótráður var Bergsteinn með afbrigðum og kom það sér oft vel í umsvifamiklum rekstri. Hann hafði eiginleika sem einkenna stjórnendur stórra fyrirtækja og hefði hugur hans staðið til umsvifa- meiri viðskipta er mér nær að halda að árangur hefði orðið engu minni. Hann taldi hins vegar mestu máli skipta að fást við það sem hann hafði þekkingu á og gera það vel. Bergsteinn Stefánsson var fagur- keri sem unni fögram listum. Hönn- un og þó sérstaklega myndlist vora honum einkar hugleikin. Oft hef ég undrast hvað Bergsteinn og Edda fylgdust vel með á þessu sviði. Sjaldan var hann ánægðari á svip- inn en þegar hann sýndi okkur fal- lega mynd eða teikningu sem hann hafði komið fyrir á vegg heima hjá sér eða í versluninni. Hann hafði sterka þörf fyrir að veita öðrum hlutdeild í gleði sinni og þegar ég rifja upp minningar liðinna ára sé ég alltaf Bergstein fyrir mér glað- an, hlaupandi um í Aðalstræti á stutterma skyrtu og tréklossum, hvernig sem viðraði. Bergsteini var ekki tamt að tala mikið um sjúkleika. Ég ætla líka að láta hjá líða að fara mörgum orðum um slíkt. Uppgjöf var óþekkt hugtak hjá honum í daglega lífinu. Þannig viljum við líka minnast hans. Að leiðarlokum er þakklæti efst í huga fyrir trausta vináttu og vel- vild. Elsku Edda, megi góður Guð styrkja þig og dæturnar, Sigrúnu Rósu og Helgu Marín, og ástvini þeirra, Birki og Hjört, í djúpri sorg. Sigrúnu, móður Bergsteins, vottum við einnig innilega samúð við frá- fall ástkærs einkasonar, svo og skyldmennum öllum. Brigitte og Pétur. Bergsteinn var einstaklega vel af Guði gerður og átti fáa sína líka. Hann var sannkallaður gleðigjafí, með heillandi framkomu, glaðlynd- ur, jákvæður, bjartsýnn og tilfinn- inganæmur. Hann var mikill mann- vinur með stórt hjarta og umgekkst alla með vinsemd og virðingu. Hann var kraftmikill og duglegur baráttu- maður með áberandi mikla útgeisl- un. Það var alltaf gott að hitta hann eða heyra í honum því hann var svo hvetjandi og uppbyggjandi. Það var fyrir tæplega 22 áram að ég var svo lánsöm að kynnast Bergsteini og fá að verða vinkona hans. Ég var ung stúlka, ómeðvituð um að ég var á góðri leið með að missa sjónina, nýkomin frá því að hitta augnlækna í Þýskalandi og hafði fengið tvenn gleraugu send á eftir mér hingað heim með tilmæl- um um að láta sjóntækjafræðing stilla umgjarðimar. Með gleraugun í töskunni gekk ég í fyrsta sinn inn í Gleraugnaverslunina Linsuna. Úti geisaði stormur og bylur en inni tók á móti mér ljóshærður, myndarleg- ur, snaggaralegur maður með sól- skinsbros og áberandi frjáls í fasi. Við þessi fyrstu kynni fundum við bæði fyrir óvenjulega sterku sam- bandi milli okkar, sem átti fljótt eftir að þróast í einlæga vináttu. Við áttum mörg sameiginleg áhugamál og gátum spjallað um allt milli himins og jarðar og skild- um svo vel hvort annað. Eftir þetta átti ég oft eftir að koma við í Lins- unni, stundum bara til að spjalla, og var mér alltaf tekið með kostum og kynjum af honum og starfsfólki hans. Seinna hitti ég Eddu, dæturnar og móður hans. Fór hann ekki dult með hvað hann var stoltur af þeim, unni þeim heitt og naut þess að gleðja þær og vera sem mest í sam- vistum með þeim. Bergsteinn var einstakur fjölskyldumaður og hugs- aði vel um sína. Hjónaband þeirra Eddu var farsælt. Þau vora góðir vinir og félagar og virtu og studdu hvort annað. Bergsteinn og Edda störfuðu frábærlega vel saman og eyddu frístundunum saman. Þau ferðuðust víða um lönd og fóra ekki alltaf troðnar slóðir. Saman fóra þau á skíði og á sumrin stund- uðu þau útilegur hérlendis hvenær sem tækifæri gafst. Það var aldrei lognmolla í kring- um Bergstein. Ég þekki fáa sem hafa lifað lífinu jafn lifandi og hann. Alltaf hress og jákvæður, uppfullur af hugmyndum sem hann fram- kvæmdi við fyrsta tækifæri. Hann var mikill heimsmaður og kunni vel að meta það sem lífið hafði að bjóða. Var smekklegur og mjög fær í sínu starfi. Alltaf var hann að hugsa um i i d : € ( i (!. ( ( ( ( < ( i i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.