Morgunblaðið - 09.05.1996, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Theodór
FRÁ afhendingu Lionskvenna á blóðskilvindu til Heilsugæslustöðvarinnar í Borgarnesi. Frá vinstri,
Elfa Hauksdóttir, Eyjólfur Torfi Geirsson, formaður stjórnar Heilsugæslustöðvarinnar, Margrét Sigur-
þórsdóttir, Guðrún Daníelsdóttir, Eva Eðvarsdóttir framkvæmdastjóri, Skúli Bjarnason yfirlæknir,
Rósa Marinósdóttir hjúkrunarfræðingur og María Erla Geirsdóttir, formaður Lionsklúbbsins Oglu.
Borgarnesi - Þegar á leið apríl-
mánuð var ekki um annað rætt
í Borgarnesi og nágrenni en kól-
esterólmælingar, jafnvel umræð-
ur um forsetaframboð og veðrið
féllu gjörsamlega í skuggann.
Ástæða þessa var að fólki var
boðin ókeypis kólesterólmæling
á Heilsugæslustöðinni í Borgar-
nesi um mánaðartíma eftir að
Lionsklúbburinn Agla hafði gefið
stöðinni sérstakan kólesteról-
mæli. Til að vera gjaldgengur í
umræðunni þurfti viðkomandi að
hafa farið í mælingu og muna
hvað hann mældist hár.
Að sögn Guðrúnar Brodda-
dóttur hjúkrunarforstjóra komu
hátt í 800 manns í mælingu í
apríl og var um það bil 20%
þeirra bent á að fara í framhalds-
rannsókn. Sagði Guðrún að við-
miðið í efrimörkunum hefði verið
sett 6,2 millimól heildarmagns
kólesteróls í einum litra blóðs og
Hversu
hátt er kól-
esterólið?
hefðu um 20% mælst þar fyrir
ofan. Þeim sem hefðu verið yfir
mörkum hefði verið gefinn bækl-
ingur frá Manneldisráði Islands,
með ábendingum um mataræði
og útskýringum um það hvers
vegna kólesterólið hefði mælst
of hátt hjá þeim.
Aðspurð sagði Guðrún að það
væri alls ekki einhlítt að feitlagið
fólk mældist með of hátt kól-
vaxið. En þó væru ákveðin lík-
indi fyrir því. Sagði Guðrún að
ljóst væri að erfðir réðu mjög
miklu í þessum efnum sem og
öðrum. Aðspurð um hvað réði
mestu og hvað fólk gæti gert til
þess að koma í veg fyrir hátt
kólesterólstig í blóði sagði Guð-
rún að magn og samsetning mat-
ar réði miklu. Fólk ætti að forð-
ast að borða fitu af landspendýr-
um og þá væru tóbaksreykingar
verulegur áhættuþáttur..
Sagði Guðrún þetta framtak
vera hluta af fyrirbyggjandi
heilsugæslu sem væri mjög stór
þáttur í starfsemi Heilsugæslu-
stöðvarinnar í Borgarnesi. Vildi
Guðrún koma á framfæri þakk-
læti til Lionsklúbbsins Öglu I
Borgarnesi, sem hefði gefið Heil-
sugæslustöðinni mikið af tækjum
á liðnum árum og nú síðast full-
komna blóðskilvindu, auk kól-
esterólmælis. Þá sagði Guðrún
að önnur félög hefðu einnig gef-
ið stöðinni góðar gjafir á liðnum
árum.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Heiða-
gæsin
hugar að
hreiðrum
Vaðbrekka, Jökuldal - Vor-
komunni fylgja farfuglarnir,
heiðagæsin er þar meðtalin.
Nú er sá tími að heiðagæsin
er að setjast upp og huga að
hreiðrum sínum, varpið hefst
um miðjan maí og ungar klekj
ast út í byrjun júní, Fréttarit-
ari rakst á þetta heiðagæsa-
par á förnum vegi þar sem
það var að huga að hreiður-
stæði sínu.
Vinna og lær-
dómur pólsku
verkamannanna
Flateyri - Okkur íslendingum
þykir alveg nóg um að vinna
okkar hefðbundnu 8-10 klst.
vinnudag og síðan leggjast í
leti þegar heim er komið.
Eflaust stunda þó sumir ein-
hveija iðju að loknum vinnu-
degjnum ef orkan leyfir.
Á Flateyri er stór hópur
pólskra verkamanna sem
vinnur ötullega og af kappi
alla sjö daga vikunnar 12
tíma á dag. Flestum þætti
nóg um en til að kóróna vik-
una setjast þessir sömu Pól-
veijar á skólabekk á sunnu-
deginum og læra íslensku af
enn meira kappi.
Mikill meirihluti þessa hóps
er pólskar konur. Karlamir
vinna í flestum tilfellum á
sunnudegi ef vinna er. Ann-
ars mæta þeir, eins og Tad-
eusz Jesionowski gerði þegar
fréttaritari kíkti á hópinn,
með kennurum sínum, þeim
Þóru Karlsdóttur og Grazynu
Gunnarsson.
Morgunblaðið/Egill Egilsson
Grásleppu-
vertíð hafin
í Arnes-
hreppi
Litlu-Ávík - Átta bátar eru gerð-
ir út hér á grásleppu og fóru
menn að leggja net upp úr
10.-12. apríl. Norðan garð gerði
í kringum 20. apríl þannig að net
fóru illa, fylltust af þara, snerust
og flæktust og þurfti að taka allt
í land til að greiða og lagfæra.
Að sögn Adolfs Thorarensen
og Garðars Jónssonar á Gjögri
hefur engin veiði verið, varla
komið í tunnu hjá hvorugum, en
þeir verka hrognin sjálfir. Garðar
segist óánægður með að þurfa
að taka upp rauðmaganet frá
Morgunblaðið/Jón G. Guðjónsson
ADOLF Thorarensen á
leið á veiðar.
14.-29. apríl af þeirri ástæðu að
það gæti komið þorskur í þau,
það gæti ekki gerst hér eins og
við leggjum í grunnum vatni seg-
ir hann.
Veistu
POSTUR OG SÍMI
... að dagblað í Bretlandi kostar
30 kr. í lausasölu. Fyrir það verð fæst
símtal í 8 mín. innanbæjar í Bretlandi.
... að dagblað á fslandi kostar 125 kr. í
lausasölu. Fyrir það verð fæst símtal í
2 klst. og 26 mín. innanbæjar á íslandi.