Morgunblaðið - 09.05.1996, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Gamalt og- nýtt
TÓNLIST
Norræna húsid
KAMMERTÓNLEIKAR
Verk eftir Boismortíer, Erik Norby,
Jón Nordal, Telemann, Vivaldi,
Þorkel Sigurbjörnsson og Roman.
Kammersveit Kaupmannahafnar:
Steen Lindholm, semball; Gert
Hertzberg, óbó & ástaróbó;
Wladyslaw Marchwinski, fíðla;
Hans Gammeltoft-Hansen, fíauta
Birthe Holst Christensen, selló.
Sunnudaginn 5. maí kl. 16.
„BAROKK og nútímatónlist fer
hvort öðru vel,“ sagði kynnir
Kammersveitar Kaupmannahafnar,
semballeikarinn Steen Lindholm, í
upphafi tónleikanna sl. sunnudag í
Norræna húsinu, er haldnir voru
með tilstyrk danska sendiráðsins.
Ummælin orsökuðust af efnisskrá
kammerhópsins, er flakkaði
áhyggjulaust fram og aftur milli
hárkollu- og nælonaldar, líkt og 300
ár væru ekkert á milli vina.
Og nokkuð virtist til í því - all-
tjent miðað við val hópsins á nú-
tímaverkum, sem öll höfðu sér til
ágætis að vera „absólút“ og tiktúru-
laus tónlist, blessunarlega óbijáluð
af öfgum raðtækni, uppákomu, ör-
hyggju eða strúktúralisma. Fyrir
utan auðvitað að vera skrifuð fyrir
áhöfnina flautu, óbó, fíðlu, selló og
sembal, sem í sjálfri sér kemst varla
hjá því að leiða hugann að öld upp-
lýsta einveldisins, sama hversu
stjómleysislegar ómstreitur kunna
að verða fyrir hana lagðar.
Hópurinn hóf leikinn í síðbar-
okkinu með Sónötu í e-moll Op.
34 nr. 3 eftir Joseph Bodin de
Boismortier (1691-1755), viðkunn-
anlegu verki í fjórþættu stórformi
kirkjusónötunnar, sem virtist ann-
aðhvort hafa verið samið snemma
á . æviskeiðinu eða verið svolítið
gamaldags fyrir sinn tíma. Hinn
örstutti 3. þáttur einkenndist af
hnígandi harmbassastefi (basso
lamento), og fleira var fomlegt,
en þó vel gert. Hópurinn meðhöndl-
aði þetta verk, líkt og flest á dag-
skránni, sem gamlan, ljúfan kunn-
ingja og lék ekki aðeins af öryggi,
heldur af ánægju þeirra er
skemmta öðrum um leið og sjálfum
sér.
Danska tónskáldið Erik Norby
(f. 1936) kvað einn þeirra nútíma-
höfunda, er slitið hafa trúnaði við
raðhyggjukvöð Darmstadt-
arfleifðar, og ku hann jafnvel hafa
hugleitt að reyta allan slíkan fort-
íðararfa úr tónverkaskrá sinni.
Norby hefur ekki sízt sinnt tjáning-
armiðlum einsöngs og kóra, enda
kom það auðheyranlega fram í
löngum hendingum „Vatnslita-
myndar“ (Akvarel), er hann samdi
fyrir Kammersveit Kaupmanna-
hafnar í hitteðfyrra. Verkið gat
stundum minnt á 20. aldar upp-
færslu á tregablöndnum, þétt skip-
uðum krómatískum hljómum
Gesúaldós, stundum á þykkju-
þunga stórborgarkvikmyndartón-
list og Samuel Barber. Verkið virt-
ist mjög kunnáttusamlega saman
skrúfað, enda þótt andstæð og
gisnari áferð hefði vissulega getað
komið í góðar þarfir, þegar fór að
síga á seinni hlutann, þrátt fyrir
mikla alúð flytjenda.
Dúó Jóns Nordal fyrir fiðlu og
selló frá 1983 kemur, ef nokkuð
er, sterkar fyrir við aðra heyrn en
fyrstu. Hinar mögnuðu samræður
hljóðfæranna leiða óhjákvæmilega
hugann að hæggengari dúóum
Bartóks, þótt væri ekki nema fyrir
kynngikraft og epíska mælsku.
Marchwinski og Holst Christensen
léku af natni og innlifun, og kom
fram hér sem víðast hvar, hversu
dijúgt akkeri hið gamla meistara-
hljóðfæri sellistans reyndist hópn-
um, í heild sem í tvíleik, með sínum
breiða og safaríka vínámutóni.
Að „Kvartetti" (fylgibassahljóð-
færin semball og selló reiknuð sem
ein rödd) Telemanns í G-dúr úr
safninu „Borðhaldstónlist" (Tafel-
musik) I frá 1733 var ómenguð
ánægja. Telemann, sem vel að
merkja var mun virtari af sinni
samtíð en bæði Bach og Vivaldi,
kunni vitaskuld manna bezt að laða
fram þá ímynd, að tónlistin léki
úr munni hljóðfæra líkt og andrík-
ar athugasemdir í góðra manna
hópi, hlustendum til uppbyggingar
og skemmtunar, án þess að slaka
á fagmennskulegri vandvirkni.
Fyrstu tveir þættir voru í undan-
sónötuformi da capo-aríunnar, og
í lokaþætti vottaði fyrir „gebroch-
ene Arbeit“ að hætti Beethovens,
er tvítónafrumum úr stefbærum
hnígandi tónstiga var dreift til
skiptis meðal raddhljóðfæra. Leik-
ur Hafnarbúa var ljómandi, utan
hvað hugsanlega hefði mátt nostra
meira við styrkvídd á smáu plani.
Hlutfallslega losaralegust virtist
spilamennskan í hinum sérkenni-
lega, en ekki að sama skapi hug-
vitssama, Konsert Vivaldis nr. 6 í
g-moll Rv 107 eftir hlé. Hinar leift-
urhröðu þrjólu-runur 1. þáttar
römbuðu á barmi örvæntingar, og
hópurinn var í heild ekki jafn sam-
taka og endranær. Miðþátturinn -
siciliano í 6/8, sem e.t.v. var leik-
inn ívið of hratt - einkenndist af
skringilegu hrynmynztri í bassa,
og í lokaþætti staglaðist „rauði
klerkurinn" á tilbrigðum við þrá-
bassastefið la/so/fa/mí-
do/re/mí/la af fremur takmarkaðri
andagift.
„Lófalagið" eftir Þorkel Sigur-
björnsson var samið fyrir hópinn
1990 og hefur að sögn Lindholms
verið flutt víða um heim, eftir að
það var frumflutt í Venezúelu.
Fimm tóna lófavænt einkennis-
frum eða „mottó“ gekk sem rauður
þráður gegn um allt verkið og birt-
ist á hvolfi í lokin í bráðskemmti-
legri tónsmíð, sem í hliðhollum
höndum Hafnarhópsins sveiflaðist
milli spennu, dulúðar, drama,
fyndni og ballett-kennds þokka.
Gamansemin var hæfilega hjúpuð
grafalvarlegum virðuleika, líkt og
í þögulli mynd með Buster Keaton,
og hljóðfæraskipan kvintettsins
var virkjuð á hinn fjölbreytilegasta
hátt, ýmist með eða án þrástefja-
tækni, og án þess að vart yrði
dauðra punkta.
Hinn „sænski Hándel“, Johann
Helmich Roman, bar ábyrgð á síð-
asta lið tónleikanna, 5 þáttum úr
Drottningarhólmssvítunni, og var
fyrsti þáttur ítrekaður í lokin. Þar
mæddi mikið á óbóleikaranum, er
skipt hafði yfir á „oboe d’amore“,
ástaróbó, enda var hinn kliðmjúki
tvíblöðungur ekki aðeins í uppá-
haldi hjá Roman og öðrum barokk-
tónskáldum (þ.á m. Bach), heldur
kom einnig til, að Drottningar-
hólmssvítan (kennd við hirðóperu-
hús Svíakonunga á samnefndum
hólma í höfuðborg þeirra) var sam-
in í tilefni af konunglegu brúð-
kaupi. Kammersveit Kaupmanna-
hafnar lék hina glaðværu viðhafn-
artónlist, sem sennilega hefur jafn-
framt hljómað á dansgólfinu við
sama tækifæri, með hæfilegri
blöndu af reisn og fjöri og lauk
þar með sérlega skemmtilegum og
marghliða tónleikum við dynjandi
undirtektir áheyrenda.
Ríkarður Ö. Pálsson
Keppst um
frumraun Alcott
Morgunblaðið/Aðalheiður
Viðar Gunn-
arsson í
Galdra-Lofti
VIÐAR Gunnarsson verður
meðal söngvara í óperu Jóns
Ásgeirssonar, Galdra-Lofti,
sem ís-
lenska óp-
eran frum-
sýnir í sam-
starfi við
Listahátíð í
Reykjavík
1. júní.
Viðar
kemur sér-
staklega til
landsins til að syngja hlutverk
Gottskálks biskups en hann
hefur frá síðasta hausti verið
fastráðinn hjá Aalto Theater í
Essen. Viðar hefur sungið víða
í Þýskalandi svo sem í Ríkis-
óperunni í Hannover, Frank-
furt, Stuttgart og Gelsenkirch-
en, aukþess að syngja í Austur-
ríki, á Islandi og víðar.
Viðar er einn fárra íslend-
inga sem hefur sungið öll helstu
bassahlutverkin í Niflunga-
hring Richards Wagners en á
sýningu Þjóðleikhússins fór
hann með hlutverk Regins,
Fáfnis og Högna.
Miðasala á Galdra-Loft er
hafín í íslensku óperunni. Sýn-
ingar verða aðeins sex og er
uppselt á fyrstu tvær.
Framtídin er
New York. The Daily Telegraph.
ÁÐUR óþekkt verk eftir banda-
ríska rithöfundinn Louisu May
Alcott hefur fundist í bókasafni
Harvardháskóla og keppast
áhugasamir nú um og bjóða í verk-
ið í von um að geta hagnast á því
í kjölfar vinsælda „Yngismeyja"
(Little Women) eftir Alcott sem
kvikmynduð var árið 1994.
Handritið er 150 síður að lengd
og hafði Alcott gefið verkinu heit-
ið „Inheritance“ (Arfurinn). Með
handritinu fylgir miði þar sem
skáldkonan segist hafa samið
handritið. Það fannst fyrir fimm
árum en frá þeim tíma hafa há-
skólaprófessorarnir tveir sem
fundu handritið, ráðið í það og
lauk þeirri vinnu fyrir skömmu.
Tom Shuster, sem sér um sölu
á bók Alcott, segist ekki hafa feng-
ið stundlegan frið fyrir kvik-
myndaframleiðendum sem slást
um réttinn til að kvikmynda bók-
ina. „Við vissum að við höfðum
yndislega bók undir höndum en
við gerðum okkur enga grein fyrir
þessari flóðbylgju," segir hann.
Fyrir tveimur árum var útgáfu-
rétturinn að annarri áður óútgef-
inni bók Alcott „A Long and Fatal
Love Chase“ seldur fyrir rúmar
100 milljónir ísl. kr.
„Arfurinn“ segir frá ungri ít-
alskri stúlku, Edith að nafni, sem
er fátæk og munaðarlaus en verð-
ur kennslukona á ensku sveita-
setri. Afbrýðisöm frænka sakar
Edith um þjófnað og þrátt fyrir
að hún viti hver hefur framið
glæpinn, tekur hún á sig sökina
og yfirgefur fjölskylduna. En þjóf-
urinn, þjónn á setrinu, gefur sig
að lokum fram og sagan fær far-
sælan endi.
Annar þeirra tveggja sem fundu
handritið, Joel Myerson, prófessor
í bandarískum bókmenntum við
háskólann í Suður-Karólínu, segir
verkið sýna það að Alcott hafi
búið yfir miklum hæfileikum þegar
á unga aldri en bókina skrifaði
hún árið 1849, þá 17 ára. Verkið
sé afar rómantískt en þó með fem-
inísku ívafi. Mörg atriði minni á
seinni tíma verk hennar svo sem
„Yngismeyjar“. Áður var talið að
fyrsta verk Alcott hefði verið
„Moods“ sem samið var árið 1864.
Lítið er vitað um fyrsta verk
Alcott. Hún lést árið 1888 og
minnist ekki á það í dagbókum
sínum. Þess er hins vegar getið í
framhjáhlaupi í ævisögu Alcott,
sem kom út árið 1950. Hagnaður-
inn af sölu bókarinnar mun renna
til þriggja manna, sem eru langa-
langafabörn föður Alcotts. Þá
munu prófessorarnir tveir sem
fundu verkið fá nokkuð í sinn hlut.
Ungir
söngfuglar
ÞESSI fríði hópur ungra söng-
fugla er yngri deild Barnakórs
Oddakirkju á Hellu, sem fagnaði
sumarkomunni með söng í Hellu-
bíói á sumardaginn fyrsta, ásamt
nokkrum kórum og dúettum.
Stjórnandi kórsins er Halldór
Oskarsson organisti og undir-
leikari Hörður Bragason.
• VINSÆLASTA kvikmyndin í
Tyrklandi er aldrei þessu vant
innlend framleiðsla og nefnist
„Istanbúl undir vængjum mín-
um“. Myndin er sú dýrasta sem
gerð hefur verið þar í landi,
kostaði um 70 milljónir ísl. kr.
o g hefur hlotið blendnar mót-
tökur gagnrýnenda. Almenn-
ingur flykkist hins vegar í bíó
og hafa um 150.000 manns séð
myndina frá því í mars. Hún er
byggð á sannri sögu um 17. ald-
ar manninn Hezarfen Ahmet
Celebi sem var uppfinninga-
maður og gerði sér m.a. vængi
sem hann reyndi að fljúga með.
Þrátt fyrir að sögusvið myndar-
innar sé tímar Ottómanveldisins
eru tilvísinar í nútíðina sagðar
afar greinilegar og ljóst sé að
myndin sé árás á bókstafstrúar-
menn sem reyni að koma í veg
fyrir framfarir og frelsi.
• ÞÆR leikkonur sem taka að
sér aðalkvenhlutverkið í
„Happy Days“ eftir Samuel
Nýjar bækur
• SKÁLDSAGAN Hugsanlega
hæfir eftir danska rithöfundinn
Peter Haeg, höfund metsölubókar-
innar Lesið ísnjóinn, er komin út.
Hugsanlega hæfir kom fyrst út í
Danmörku haustið 1993 og hlaut
jákvæðar móttökur, en fyrir söguna
hlaut höfundurinn hin eftirsóttu
verðlaun danskra gagnrýnenda árið
1993 og hefur sagan síðan náð slíkri
hylli almennings að hún trónaði
mánuðum saman á metsölulistum.
Hugsanlega hæfir fjallar um
þijú ungmenni, sem eiga undir högg
að sækja í skólanum. Tilfinningum
þeirra, draumum og vangaveltum
er lýst af skörpu innsæi höfundar
svo úr verður hörkuspennandi frá-
sögn. Höfundurinn lætur sögumann-
inn, einn þremenninganna, tjá innstu
hugrenningar sínar og hjartans mál
á dauðu stofnanamáli sem honum
hefur verið innrætt. Um leið rís mik-
ill skáldskapur af glímu hans við
tungumálið, skáldskapur sem tekst
á við eðli valdsins og farg tímans,"
segir í frétt frá Máli og menningu.
Mál og menninggefur út. Eygló
Guðmundsdóttirþýðir bókina, sem
kom fyrst út íHeimsbókmennta-
klúbbi Máls og menningar fyrr í
vor. Hugsanlega hæfir er 242 bls.,
prentuð í Svíþjóð. Kápuna gerði Alda
Lóa Leifsdóttir.
Beckett verða að láta sig hafa
það að leika stóran hluta þess
grafnar í sand upp að hálsi.
Alagið sem þessu og öðrum
kvenhlutverkum í leikritum
Becketts fylgja, verður eitt af
umræðuefnunum á mikilli Beck-
ett-hátíð í Flórens á Ítalíu í vik-
unni en þá hefði Beckett orðið
níræður, hefði hann lifað. Af
öðrum umræðuefnum má nefna
ævisögu Becketts sem James
Knowlson vinnur nú að.
• AUÐUGU áhugafólki um
fornmuni gefst nú í fyrsta sinn
kostur á að panta slíka muni í
gegnum póstlista, sem hefur
verið komið á fót í Bretlandi.
Þar eru til sölu fornmunir á
borð við rómverskt borðskraut
og skartgripi sem fundust á
egypskri múmíu. Ástæða þessa
er skortur á geymslurými í
breskum söfnum, sem hafa grip-
ið til þess neyðarúrræðis að selja
þá fommuni sem minnsta þýð-
ingu eru taldir hafa.