Morgunblaðið - 09.05.1996, Side 28

Morgunblaðið - 09.05.1996, Side 28
28 FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ SAS Jackpot Allir i sumarfrí! Nú er tækifærið til aö skella sér með SAS í gott sumarfrí og taka alla í fjölskyldunni meö. SAS Jackpot fargjöldin koma sér mjög vel fyrir fjölskylduna því þeir sem eru 18 ára og yngri fá 50% afslátt þegar ferðast er með fullorðnum fjölskyldumeðlimi. Hámarkstími er einn mánuður. Allar nánari upplýsingar færðu á ferðaskrifstofunni þinni eða söluskrifstofu SAS. V I N B R U S S E L 48.850 H E L S K 1 N K 1 T A M P E R E T U R K U 'IMIl VAASA XSZD LYO N Twm N 1 C E Twrrm P A R í S B E R LÍ N DUSSELDORF FRANKFURT H A M B 0 R G HANNOVER 48.590 48.59 48.59 M U N C H E N 48.590 STUTTGART 48.590 AÞENA BOLOGNA 56.580 M í L A N Ó 56.58 3 R Ó M 56.58 3 T U R 1 N 56.58 3 FEN EYJAR 53.48 3 ALICANTE BARCELONA 52.84 M A D R 1 D 58. [2Q MALAGA 59. [fU Flugvallarskattar eru Innifaldlr í verðl. M/SAS Laugavegi 172 Sími 562 2211 LISTIR Morgunblaðið/Ásdís ErkiTíð 96 TÓNLISTARHÁTÍÐIN ErkiTíð 96 stendur í Reykjavík á veit- ingahúsinu Sólon íslandus til 11. maí næstkomandi. ErkiTíð var fyrst haldin 1994 í tilefni 50 ára afmælis lýðveldisins. Það eru ErkiTónlist sf. og Ríkisútvarpið sem standa fyrir ErkiTíð og að þessu sinni í samvinnu við Tón- listarskólann í Reykjavík. í kynningu segir m.a.: „Aðal- stef ErkiTíðar ’96 er annars veg- ar íslensk samtímatónlist og hins vegar ný erlend tónlist.... Nem- endur Tónlistarskólans í Reykja- vík flytja íslenska samtímatónlist undir leiðsögn kennara, en at- vinnuhyóðfæraleikarar, þ.á m. Caput-hópurinn, flytja erlenda tónlist. í lok hverra tónleika er efnt til pallborðsumræðna." íslensk tónskáld, sem verk eiga á hátíðinni eru: Jón Leifs, Atli Heimir Sveinsson, Þorkell Sigurbjörnsson, Gunnar Reynir Sveinsson, Magnús Blöndal Jó- hannsson, Jón Nordal, Victor Urbancic, Hjálmar H. Ragnars- son, Leifur Þórarinsson, Kjartan Ólafsson, Karólína Eiríksdóttir, Egill Gunnarsson, Áskell Másson, Snorri Sigfús Birgisson, Gísli Magnassson, Þuríður Jónsdóttir, Hróðmar I. Sigurbjörnsson, Guðni Franzson, Sveinn Lúðvík Björnsson, Elín Gunnlaugsdóttir og Árni Egilsson. Erlend tónskáld eru: Bent Sör- ensen, Steve Reich, Elliot Carter, Oliver Knussen, Aldo Clementi, WiIIiam Harper, Lars Grauga- ard, Kazuo Fukushima, Gerrit Schuil og Aake Parmerud. Ríkisútvarpið hljóðritar alla tónleika ErkiTíðar ’96 og verða þeir ýmist sendir út beint eða síðar. Atli Heimir Sveinsson kynnir. Aðgangur átónleikana er ókeypis. Bruce Willis Madeleine Stowe í myríji meis,-® Terry J Gillia Karlakóra- hald undir jökli TONLIST Digrancskirkja KÓRTÓNLEIKAR Vortónleikar Karlakórsins Jökuls u. stj. Jóhanns Moráveks. Guðlaug Hestnes, pianó. Laugardaginn 4. mai kl. 16. AÐ ÖÐRU hornfirzku tónlistar- fólki ólöstuðu vakti ættarnafnið Morávek óneitanlega mesta athygli hjá undirrituðum, þegar Jökull, karlakór Homfirðinga, hélt vortón- leika sl. laugardagssíðdegi í hinni nýju og ómgóðu Digraneskirkju. Sá er þetta ritar er að vísu hvorki mann- né ættglöggur, en rekur þó minni til, að meðal frumlegustu ís- lenzkra dægurlagaútsetninga á 6. og 7. áratug voru aðskiljanlegar tengdar nafni Jans heitins Morá- veks, föður kórstjórans, sem ættir átti að rekja til einhvers músíkalsk- asta reits á Evrópukortinu, Bæ- heims í hinu núverandi Tékklandi. Það kom því ekki svo mjög á óvart, að Morávek yngri skyldi sýna efni- leg tök á öllu þrennu, kórstjórn, útsetningum og frumsmíðum. Karlakórinn Jökull var skipaður 42 söngmönnum. Meðalaldur söng- félaga virtist lægri en algengast er um samskonar kóra, og gaf það, ásamt fallegum, kraftmiklum opn- um hljómi, hugboð um örar fram- farir á komandi misserum, er þyrftu þá helzt að beinast að hinum mest áberandi göllum kórsins, óhrein- leika í inntónun og skorti á tón- stöðufestu í hröðu lágferli. Söng- fólkið hafði greinilega á mörgum góðum röddum að skipa, og er ekki að efa, að fegurðarblettum eins og „flötum“ toppnótum eigi eftir að fækka stórum með aukinni ástund- un og raddþjálfun. Til að valda ekki misskilningi er rétt að undir- strika, að kórinn söng margt fal- lega, þó svo að hér sé miðað við ýtrustu hreinleikakröfur nútíma- hlustenda, er vissulega hafa aukizt að mun á örfáum áratugum. Kórinn var fljótur að syngja sig upp; opni hljómurinn var kominn þegar í þriðja lagi, Prestakórnum úr Töfraflautu Mozarts. Útsetning Carls Billichs á Capriljóði Winklers næst þar á undan var svolítið hart sungin á stuttu nótunum og bar auk þess með sér að vera hugsuð fyrir kvartett fremur en kór. „Jök- ullinn“ eftir stjórnandann við ljóð eftir Guðbjart Össurarson var netti- lega skrifað lítið söngverk, mótað af m.a. söngleikslögum og vínar- klassík og bauð bæði upp á náttúru- lýsingar og pólýfónísk fúgató. Voru hin síðari, eftir óörygginu í innkom- um að dæma, ekki meðal sérgreina karlakórsins enn sem komið er. Hið fallega „Nótt“ eftir Árna Thorsteinson myndaði, ásamt „Álft- irnar kvaka“ eftir Þorstein Jónsson, þar sem Erlingur Arason tenór og Sigurður Kr. Sigurðsson baríton sungu tvísöng með kórnum, há- punkt fyrri hálfleiks. Af fjórum síð- ustu lögum fyrir hlé átti „Kampa- vínskveðja" (Champagnegalop) Lumbyes hins vegar einna sízt er- indi við karlakórsmiðilinn, enda sem kunnugt er sópandi létt (en ekki þar með sagt auðflutt) hljómskála- lag fyrir litla sinfóníuhljómsveit. Eftir hlé bar einna hæst fyrsta lagið, „Þú álfu vorrar yngsta land“ eftir Sigfús Einarsson, enda meðal hinna sterkari hefðbundinna karla- kórslaga. Hið fallega en nærri því ofkeyrða lag Jóhanns Helgasonar, „Söknuður", lýtist ávallt af slæmri textafrösun, og tiplandi útsetning Jóns Sigurðssonar dofnaði nokkuð í heldur daufum píanóundirleik með óþarfa rúbató. í „Dórnínó" eftir Skúla Halldórsson í útsetningu stjórnandans var ekki nógu vel hug- að að styrkbreytingum, þegar lag- línan færðist í neðri raddir, og vildi hún stundum týnast þar. „Síminn" er gott dæmi um ofur- gildi texta á kostnað lags í vitund Islendinga. Gríntexti eftir Halla, þótt smellinn sé út af fyrir sig, er látinn sópa burt upphaflegum texta um farmannarómantík („Seemann, Wind und Welle...“) á grundvelli yfirborðslegrar orðalíkingar, í full- kominni andstæðu við eðli lagsins. Eins og góður hljómur kórsins gaf ótvírætt til kynna - en hann náði oftast hæst, þegar fagurfræði ís- lenzkrar karlakórshefðar modo ero- ico var hvað næst - var og verður lagið æ tengt hafsins hetjum, sama hvað stundaspaugurum dettur í hug í skjóli einangrunar landsins. Lagið var í tónleikaskrá sagt „þýskt“ (sbr. „lagið er erlent“ í RUV-kynningum) og útsett af stjórnandanum. Friðrik Snorrason, hár tenór, en dálítið lokaður, söng einsöng í „Funiculi, funicula" með kórinn í bakgrunni, er reifaði ýmsar óskyld- ar tóntegundir í útsetningu stjórn- andans. Friðrik söng ásamt Sigurði Hannessyni einnig tvísöng með kórnum í síðasta atriði dagskrár, „Dóná svo blá“, er gerði góða lukku og var sungið með ekta vínarvalsa- „sesúrum“, smáhiki á viðeigandi upptöktum. Var því númeri, líkt og mörgum undangengnum, tekið með kostum og kynjum af áheyrendum, og neyddist kórinn til að syngja fjölda aukalaga. RíkarðurÖ. Pálsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.